Morgunblaðið - 05.11.2019, Blaðsíða 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2019
í abstrakt. Ég vinn spontant, er ekki
mjög skipulögð heldur læt verkin
flæða. Þótt ég sé illa haldin af slit-
gigt get ég enn málað og er mjög kát
yfir því. Ég nota alla mína krafta í
myndlistina.“
Fjölskylda
Eiginmaður Sigríðar var Dieter
Roth, f. 21.4. 1930 í Hannover í
Þýskalandi, d. 5.6. 1998 í Basel í
Sviss, myndlistarmaður. Þau skildu.
Börn Sigríðar eru 1) Guðríður Adda
Ragnarsdóttir, f. 13.5. 1950, atferlis-
fræðingur, kennari og tónlistarkona;
2) Karl Roth, f. 17.11. 1957, tölvunar-
fræðingur hjá Decode og tónlist-
armaður. Eiginkona hans er Mar-
grét Kristjánsdóttir, hann á fimm
börn, tvö með Margréti og þrjú af
fyrra hjónabandi; 3) Björn Roth, f.
26.4. 1961, myndlistarmaður. Kær-
asta hans er Hanna Styrmisdóttir og
hann á þrjú börn af fyrra hjóna-
bandi; 4) Vera Roth, f. 17.2. 1963,
jarðfræðingur, rithöfundur og verk-
efnisstjóri á Kirkjubæjarstofu, hún
á tvö börn á lífi, en elsti sonur henn-
ar lést í bílslysi.
Systkini Sigríðar: Ingibjörg
Ragnheiður Björnsdóttir, f. 14.9.
1925, húsmóðir, búsett í Reykjavík;
Vigfús Björnsson, f. 20.1. 1927, d.
6.1. 2010, bókbandsmeistari á Akur-
eyri; Oddur Björnsson, f. 25.10.
1932, d. 21.11. 2011, rithöfundur og
leikritaskáld, og Sigrún Björns-
dóttir, f. 11.11. 1942, leikkona, út-
varpsmaður og fyrrverandi skóla-
stjóri Nýja tónlistarskólans, búsett í
Reykjavík.
Foreldrar Sigríðar voru hjónin
Guðríður Vigfúsdóttir, f. 2.6. 1901, d.
12.4. 1973, húsmóðir, og Björn O.
Björnsson, f. 21.1. 1896, d. 12.9.
1975, sóknarprestur og ritstjóri.
Sigríður Björnsdóttir
Rannveig Ingibjörg Sigurðardóttir
húsfreyja, f. á Geithömrum í Svínadal, A-Hún.
Björn Oddsson
bóndi á Leysingjastöðum í
Sveinsstaðahr., og á Hofi í
Vatnsdal, A-Hún.
Oddur Björnsson
prentsmiðjustjóri á Akureyri
Séra Björn O. Björnsson
sóknarprestur og ritstjóri
Ingibjörg Benjamínsdóttir
húsfreyja á Akureyri
Ragnheiður Árnadóttir
húsfreyja, frá Stóru-Mörk
Benjamín Guðmundsson
bóndi á Stóru-Mörk í
Bólstaðarhlíðarhr., og
Skeggjastöðum í Vindhælishr., A-Hún.
Gísli Sveinsson sýslumaður í Vík í Mýrdal, alþingismaður og forseti Alþingis
Ragnheiður O. Björnsson
heiðursborgari á Akureyri
Hera
Hilmars-
dóttir
leik kona
Oddur
Björnsson
rithöf-
undur og
leikrita-
skáld
Hilmar
Oddsson
kvik-
mynda-
gerðar-
maður
Sigurður O. Björnsson
prentsmiðjustjóri á Akureyri
Þuríður Ólafsdóttir
húsfreyja, frá Syðri-Steinsmýri
í Meðallandi, V-Skaft.
Gunnar Vigfússon
bóndi á Flögu
Vigfús Gunnarsson
bóndi á Flögu
Sigríður Sveinsdóttir
húsfreyja á Flögu í Skaftártungu
Guðríður Pálsdóttir
húsfreyja, frá Hörgsdal
á Síðu, V-Skaft.
Sveinn Eiríksson
prestur í Ásum í Skaftártungu
Úr frændgarði Sigríðar Björnsdóttur
Guðríður Vigfúsdóttir
húsmóðir
„ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ ÞEIR MYNDU EKKI
HALDA ÞÉR HÉR AÐ EILÍFU.”
„ÉG RÉÐ ÞIG TIL ÞESS AÐ SÓPA GÓLFIÐ.
LÁTTU VIÐSKIPTAVININA Í FRIÐI.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... stundum truflandi.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
MITT ER
RÍKIÐ
NEI, ÞETTA ER
EKKI RÉTT
MÍN ER
PÍTSAN
ÞAÐ ER FRAMORÐNARA EN ÉG HÉLT.
ÉG VERÐ AÐ TÖLTA HEIM!
ÁÐUR EN HELGA FER
AÐ SAKNA ÞÍN?
ÁÐUR EN ÉG MISSI AF MORGUNMATNUM!
KRÁ
Það er ferðahugur í Davíð Hjálm-ari í Davíðshaga:
Suðrá bóginn senn ég fer
í sólarlandareisu.
Troðin nesti taskan er,
ég trefil hef og peysu
því fyrst og síðast forðast ber
flensuskít og kveisu.
Jóhann Gunnarsson skrifaði í
Leirinn á sunnudag: „Þegar Hvera-
gerðishreppur var stofnaður árið
1946 orti Gunnar Benediktsson, ný-
bakaður hreppsnefndarmaður, um
viðblasandi vanda hreppsbúa:
Hér er kominn hreppur nýr
hann er sagður kostarýr
Þegar lífs við brjótum brýr
bæði segi og skrifa.
Í öllum hreppnum engin mold
í að greftra látið hold.
Við neyðumst til að nuddast við að lifa.
En svo er aftur önnur sveit
einstaklega kostafeit
enga frjórri augað leit
um að tala og skrifa.
þar er þessi þykka mold
þar má greftra látið hold,
þar eru menn sem þurfa ekki að lifa.
Síðastliðið vor bar svo við að tek-
ið var að aka æði mörgum bíl-
hlössum af mold, uppgrefti úr nýja
þjóðveginum austur frá Hvera-
gerði, á stærðar svæði sunnan við
kirkjugarðinn á Kotströnd, fannst
mér endilega að nú þyrfti að bæta
við kviðling Gunnars. Ekkert varð
þó úr fyrr en í morgun þegar mynd
birtist á vefsvæði Hvergerðinga af
væntanlegri viðbót við kirkjugarð-
inn, sem nú er búið að slétta vel og
sá í fræi. Datt mér þá þetta í hug:
Enda þótt í þeirri sveit
þykk sé mold og kostafeit
undur mikil augað leit
um það verð að skrifa.
Ofan í vegavinnumold
verður núna látið hold
þeirra sem að þreyttir hættu að lifa.“
Ingólfur Ómar yrkir „Kvöldvísu“
og segir að alltaf sé gaman þegar
sólin sest í æginn að sjá á himni
rauða skýjarönd og farið að
skyggja:
Hnígur sólin hafs í djúp
hylja skuggar grund og fláa.
skýjarönd með skarlatshjúp
skreytir loftið rökkurbláa.
„Sáttur“ er yfirskrift þessarar
stöku Péturs Stefánssonar:
Sköllóttur með skeggið grátt
og skapið eitilharða
labba ég í ljúfri sátt
um lífsins frjóu garða.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Mold fyrir hold
og vegagerð