Morgunblaðið - 05.11.2019, Page 4

Morgunblaðið - 05.11.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2019 Aðspurður segir Ólafur stefnt að því að opna hótelið í mars 2021. „Ég á ekki von á að það breytist neitt nema þá kannski að okkur takist að færa opnunina enn nær í tíma, en það skýrist betur um ára- mótin hvernig uppsteypa hefur gengið,“ segir hann. Ólafur segir nú fjórar hæðir komnar upp úr grunni hótelsins baka til en við Lækjargötu er verið að reisa aðra hæð hótelsins. niður stálþil af mikilli varkárni enda eru þarna viðkvæm hús á svæðinu,“ segir Ólafur Torfason, stjórnarformaður Íslandshótela, í samtali við Morgunblaðið, en forn- leifar fundust einnig á byggingar- reitnum við upphaf framkvæmda og verða þær varðveittar í norður- enda hótelsins. „Núna er þessi jarð- vegsvinna öll að baki og þá er bara að herða á vinnunni enn frekar,“ segir Ólafur. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Nýtt hótel í keðju Íslandshótela við Lækjargötu og Vonarstræti er tek- ið að rísa upp úr grunni sínum. Stefnt er að því að taka hótelið í notkun snemma árs 2021 og mun það heita Hótel Reykjavík. „Þetta gengur ágætlega núna. Grunnurinn var okkur erfiður, við þurftum meðal annars að keyra þar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Lækjargata Svona var umhorfs á framkvæmdasvæðinu í gær, en tvær hæðir eru komnar upp götumegin. Stefna að því að opna Hótel Reykjavík í mars Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bílgreinasambandið (BGS) er mót- fallið því að virðisaukaskattsívilnun vegna tengiltvinnbíla verði felld nið- ur 31. desember 2020, að sögn Maríu Jónu Magnúsdóttur framkvæmda- stjóra. Bílainnflytjendur eru á sama máli og segja að gefa verði lengri að- lögunartíma. „Við erum sammála FÍB um að það er ekki tímabært að fella niður ívilnun vegna tengiltvinnbíla í einu skrefi eftir rúmt ár,“ segir María. Hún segir að stjórnvöld stefni að því að tengiltvinnbílum fjölgi upp í 12.500 bíla en markið var áður sett við 10.000 bíla. María segir að nú sé búið að skrá vel yfir átta þúsund tengiltvinnbíla. Hún segir að Norðmenn hafi dregið úr ívilnunum vegna tengil- tvinnbíla árið 2016 og salan dregist verulega saman í kjölfarið. Árið eftir gerðu Bretar það sama og Norð- menn og salan á tengiltvinnbílum dróst verulega saman. María segir að þótt sala á ný- orkubílum hafi gengið vel undan- farið séum við Íslendingar ekki komnir mjög langt í orkuskiptum bílaflotans. „Við teljum að við þurf- um að ná hærra hlutfalli af um- hverfisvænum bílum á götunni, þar með talið tengiltvinnbílum. Úti á landi henta tengiltvinnbílar betur en t.d. bílar sem eru alfarið raf- knúnir enn sem komið er.“ Hún segir að það sem af er þessu ári, það er til föstudagsins 1. nóvember, hafi nýorkubílar, tengiltvinnbílar, hybrid-bílar, rafbílar og metanbílar verið 26,6% af nýskráðum fólksbíl- um. Tengiltvinnbílar voru 10% af heildarsölu ársins á nýskráðum fólksbílum. Margir bílaleigubílar hér Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu, telur að farið sé of hratt ef af- nema á virðisaukaskattsívilnun af tengiltvinnbílum í lok næsta árs. Við það muni verð margra bíla hækka um tæpa milljón í einni svipan. Með- alaldur bíla hér er hár og mikilvægt að beina endurnýjuninni í vistvæna bíla. Margir muni líklega kaupa frek- ar hefðbundinn bensín- eða dísilbíl ef vistvænir bílar hækka mikið í verði. Rafbílar og tengiltvinnbílar eru dýr- ari í innkaupum en bílar knúnir af jarðefnaeldsneyti. Því þarf ívilnanir stjórnvalda til að gera nýorkubíla að fýsilegum kosti. Friðbert segir að þótt sala rafknú- inna bíla hafi aukist mikið sé enn langt í land með að hægt sé að hlaða rafbíla hvar sem er á landinu. „Það þarf að hugsa orkuskipti ökutækja til lengri tíma. Ef til vill geta tengil- tvinnbílar fengið ívilnun þrjú ár í viðbót og rafbílarnir fimm ár ef það á að ná þeim markmiðum sem stjórnmálamenn tala um,“ segir Friðbert. „Víða á fólk erfitt með að nýta sér 100% rafbíl á þessum tíma- punkti. Það mun breytast hratt á næstu árum. Á meðan verið er að byggja innviðina upp fyrir rafbíla- væðingu geta tengiltvinnbílarnir brúað bilið.“ Hann segir að taka verði til greina hvað stór hluti bílaflota landsmanna sé í eigu bílaleiga. Um 42% af sölu nýrra fólksbíla er til bílaleiga og er hlutfallið miklu hærra hér en víða annars staðar þar sem bílaleigubílar eru lítill hluti bílaflotans. Friðbert segir að rafbílar séu ekki orðnir raunhæfur kostur fyrir bílaleigur vegna skorts á innviðum. Til dæmis þarf að efla mjög hleðslustöðvar á Keflavíkurflugvelli svo þar sé hægt að leigja út fullhlaðna rafbíla í stórum stíl. Ekki er enn hægt að tryggja ferðamönnum greiðan að- gang að hleðslustöðvum um allt land. Friðbert segir að kosturinn við tengiltvinnbíla umfram hreina raf- bíla í þessu sambandi sé að tengil- tvinnbílarnir þurfi ekki að vera full- hlaðnir þegar þeir eru leigðir út. Þeir eru heldur ekki háðir hleðslustöðv- um til að geta ekið. Þeir munu því gegna lykilhlutverki í umbreytingu bílaflotans í vistvænni ökutæki. Nær að þrengja skilyrðin Jón Trausti Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Öskju, telur að ekki sé tímabært að fella niður virðisauka- skattsívilnun af tengiltvinnbílum. „Miklu nær væri að setja þrengri skilyrði fyrir ívilnun, til dæmis að tengiltvinnbíll skuli ná að minnsta kosti 50 kílómetrum á rafmagninu miðað við WLTP-mælingar eða að CO2-losun tengiltvinnbíls sem nýtur ívilnunar sé að hámarki til dæmis 40 grömm á hvern ekinn km. Þá erum við að horfa til þess að tengiltvinn- bíllinn sé raunverulega umhverfis- mildur,“ segir Jón Trausti. Hann segir tvær ástæður ráða þessu mati sínu. Annars vegar að ný kynslóð tengiltvinnbíla hafi miklu meira drægi en fyrsta kynslóðin. Tengiltvinnbíll sem hefur 50 km drægni á rafhleðslu eða meira dugi flestum til daglegrar notkunar. Hins vegar sé framboð af hreinum rafbíl- um enn takmarkað og þeir tiltölu- lega dýrir. Því sé æskilegt að tengil- tvinnbílar njóti lengur ívilnunar, eða hið minnsta til ársloka 2021-2022, ef menn vilja flýta orkuskiptunum. Einnig bendir hann á að tengil- tvinnbílar henti landsbyggðinni bet- ur en rafbílar enn sem komið er vegna þess að verið sé að byggja upp innviði fyrir rafbílavæðingu. Ótímabært að afnema ívilnunina  Vinsælar gerðir tengiltvinnbíla gætu hækkað um tæpa milljón við afnám virðisaukaskattsívilnunar  Gegna mikilvægu hlutverki við umbreytingu bílaflotans í vistvænni ökutæki  Innviði skortir víða Bílar og orkugjafar 2014-2018 Raf magnsbílar Met an, ten gilt vinn og aðrir orkugjafar en bensín og dísel 2014 2015 2016 2017 2018 Bensín 171.072 171.980 175.086 176.974 175.359 Dí sel 77.802 86.457 97.990 111.234 120.579 Raf magn 315 710 1.107 1.980 2.813 Met an, ten gilt vinn o.fl . 2.101* 2.800* 1.343 3.554 6.406 Aðrir orku gjaf ar 3.422 4.889 6.060 Samtals 251.290 261.947 278.948 298.631 311.217 2014 2015 2016 2017 2018 *Met an, ten gilt vinn og aðrir orkugjafar en bensín og dísel. Heimild: althingi.is Verð nokkurra tengiltvinnbíla Þús. kr. með og án vsk. ívilnunar Með Án KIA Xceed PHEV Urban 4.391 5.351 KIA NIRO PHEV EX 1.6 GAS DCT6 4.791 5.751 Mercedes-Benz A 250e Style 5.290 6.250 Mercedes-Benz B 250e Style 5.690 6.650 Mitsubishi Out- lander PHEV Invite 4.590 5.550 Mitsubishi Out- lander PHEV Intense 5.090 6.050 Toyota Prius Plug-in Hybrid 4.740 5.700 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir SÍÐAN 1969 FLOTTUSTU BÚNINGARNIR ÞÍNAR SÉR ÓSKIR UM FJÖLBREYTTA FRAMLEIÐSLU EÐAMERKINGAR 846 BLS BÆKLINGUR Á HEIMASÍÐUNNI HENSON.IS TIL MERKINGA EÐA EKKI SENNILEGA FJÖLHÆFASTI FATAFRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI ÍSLANDS ÞÓVÍÐARVÆRI LEITAÐ! Brautarholti 24 · 105 Reykjavík · S.: 562 6464 · henson@henson.is Virðisaukaskattsívilnun fyrir tengiltvinnbíla (PHEV) er þannig að ekki er lagður 24% virðisaukaskattur á fyrstu fjórar milljónirnar af verði bílsins. Ívilnun á hvern bíl verður því mest 960.000 krónur. Hér eru dæmi um verð nokkurra vinsælla tengiltvinn- bíla þar sem ívilnunin kemur að fullum notum og hvert verðið væri nyti ívilnunarinnar ekki við. 960.000 kr. ívilnun á bíl TENGILTVINNBÍLAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.