Morgunblaðið - 05.11.2019, Síða 18

Morgunblaðið - 05.11.2019, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2019 ✝ Sigurður Stein-ar Ketilsson fæddist 3. mars 1948 á Framnesvegi í Reykjavík. Hann lést á Landspítalan- um 27. október 2019. Foreldrar hans voru hjónin Ketill Eyjólfsson, f. 20. apríl 1911, d. 11. október 2006, og Anna Rósa Árnadóttir, f. 6. júlí 1923, d. 20. febrúar 1996. Systur hans eru Guðrún Eyberg, f. 1939, og Helga Eyberg, f. 1952. Þann 12. júlí 1975 giftist Sig- urður Steinar Sólveigu Bald- ursdóttur, f. 27. maí 1951. For- eldrar hennar voru Baldur Óli Jónsson, f. 17. september 1913, d. 25. febrúar 1999, og Irma Jó- hanna Pálsdóttir, f. 20. júní 1914, d. 6. nóvember 2009. Synir Sig- urðar Steinars og Sólveigar eru: 1) Baldur Óli, f. 27. apríl 1975, maki Hildur A. Ármannsdóttir, f. 9. mars 1979. Börn þeirra eru á varðskipum og loftförum. Varð- skipinu Þór sigldi hann til heim- hafnar 13. apríl 2018 er hann lét af störfum, nákvæmlega 50 árum eftir fyrstu ferðina með Maríu Júlíu. Hann tók þátt í tveimur þorskastríðum, 1972-3 og 1975-6. Hann var einn af baráttumönnum sem komu á fót þyrlubjörgunar- sveit Landhelgisgæslunnar og var talsmaður fyrir smíði á nýju varðskipi og var við hæfi að hann sigldi varðskipinu Þór heim frá Síle í október 2011. Hann tók þátt í ótal björgunar- og leitarstörfum gegnum árin og lagði sitt á vog- arskálarnar í menntunar- og þjálfunarmálum sjómanna. Sigurður Steinar sat um tíma í stjórn Farmanna- og fiskimanna- sambands Íslands, hann var full- trúi í Sjómannadagsráði og for- maður hollvinasamtaka Óðins auk fleiri félags- og trúnaðar- starfa sem hann gegndi fyrir Landhelgisgæsluna og víðar. Sigurður Steinar var sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu 17. júní 2018 fyrir framlag sitt til landhelgisgæslu og björgunarstarfa. Útför Sigurðar Steinars fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag, 5. nóvember 2019, klukkan 15. Brynhildur Katla, f. 6. október 2006, Hrafnhildur Irma, f. 5. desember 2010, og Ármann Steinar, f. 16. júní 2012, fyrir á Baldur Óli soninn Daníel Frey, f. 9. mars 2002. 2) Ketill Sigurðsson, f. 8. júní 1977. Sigurður Steinar fluttist fjögurra ára til Keflavíkur og ólst þar upp þar til fjölskyldan flutti til Hafnar- fjarðar 1967 og bjó upp frá því í Hafnarfirði. Sigurður Steinar byrjaði 15 ára til sjós á bátum frá Keflavík, kláraði farmannapróf 1970 og varðskipadeild 1972 frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík. Þann 13. apríl 1968 hófst starfs- ferill Sigurðar Steinars hjá Landhelgisgæslunni er hann fór sem háseti á varðbátnum Maríu Júlíu. Hjá Landhelgisgæslunni starfaði hann sem háseti, stýri- maður og var skipherra til 30 ára Elsku pabbi, það er erfitt að setjast niður og ætla að skrifa til þín. Það er svo margt sem mig langar að segja og svo margt sem við ætluðum að gera nú þegar þú varst hættur að vinna. Ég mun sakna þess að fá ekki símtal frá þér því þú hringdir oft bara til að heyra í mér, mun sakna þess að fara ekki með þér bryggjurúnt- inn, sakna þess að geta ekki rætt málin og fengið ráðleggingar. Þú varst alltaf kletturinn sem hægt var að leita til og kenndir mér svo margt á lífsleiðinni. Þín verður sárt saknað elsku pabbi, takk fyrir allt. Baldur Óli Sigurðsson. Höfðingi er fallinn frá. Frændi og vinur er látinn eftir erfið veikindi. Lífið getur verið erfitt, Sigurður Steinar ætlaði að gera svo margt þegar hann hætti að vinna. Hann átti svo margt eft- ir að gera, nú var tíminn kominn til að sinna fjölskyldu og áhuga- málunum. Við Steini hittumst ekki oft á unglingsárunum en eftir að við festum ráð okkar lágu leiðir okkar saman æ oftar. Hann var ættræk- inn maður, var með ættfræðina á hreinu og var alltaf að uppfræða okkur. Mikilvægt að vita um allar frænkur og frændur og stöðu þeirra í lífinu. Hann var höfuð fjöl- skyldunnar, hélt henni saman með sinni einstöku gleði og prúð- mannlegu framkomu. Árin liðu og við urðum einstakir vinir, hittumst oft þegar hann var í landi. Einnig kallaði hann fjöl- skylduna á hádegisfundi, þar var gaman að koma og hitta ætt- ingjana sem ég hafði aldrei hitt áður. Síðustu árin hittumst við frændurnir, Steini, Teddi og ég reglulega í hádeginu. Þar var glatt á hjalla og margt rætt og planlagt. Þetta voru ómetanlegar stundir. Við áttum svo margt eftir að gera saman, við ætluðum að fara saman til Ruben og fleiri staða en ekki vannst honum tími til þess. Sigurður Steinar hafði einstak- an mann að geyma, hlýr, skemmtilegur, alltaf léttur og glaður. Hann fylgdist með öllu og lagði sig fram um að aðstoða og hjálpa. Steini og pabbi voru alltaf einstakir vinir og met ég mikils umhyggju hans fyrir pabba og Eddu sem syrgja hann sárt. Votta Sollu, Baldri, Katli og fjölskyldunni mína dýpstu samúð. Megi Guð blessa ykkur og vernda um ókomin ár. Far þú í friði kæri vinur. Ó, vef mig vængjum þínum til verndar, Jesús hér, og ljúfa hvíld mér ljáðu, þótt lánið breyti sér. Vert þú mér allt í öllu, mín æðsta speki’ og ráð, og lát um lífs míns daga mig lifa’ af hreinni náð. (Magnús Runólfsson) Þorvaldur Sigurðsson. Látinn er heiðursmaðurinn Sigurður Steinar Ketilsson skip- herra. Hann var ekki eingöngu heiðursmaður heldur einstakur drengskaparmaður, félagi og vin- ur til margra ára. Kynni okkar Sigurðar Steinars hófust fyrir rúmlega fimmtíu árum þegar hann réðst til starfa hjá Land- helgisgæslunni. Hann var ráðinn háseti á varðbátinn Maríu Júlíu en þar var ég stýrimaður og það kom í minn hlut að kenna honum fyrstu atriðin sem starfsmanni Land- helgisgæslunnar. Hann var ekki alveg ókunnur sjómennsku, hafði hafið störf á fiskiskipum frá Kefla- vík aðeins 15 ára gamall. Hann var Keflvíkingur og Suðurnesjamað- ur kominn af þekktum sjómönn- um og útgerðarmönnum á Suður- nesjum. Til okkar á Maríu Júlíu kom hann af köfunarbátnum Eld- ingu II en þar var hann háseti hjá þeim mikla sjósóknara og kafara Hafsteini Jóhannssyni. Að hafa verið háseti á Eldingunni sagði manni að þar færi óvenjulegur og duglegur maður, því á það skip réðust ekki neinir ónytjungar enda kom það fljótt í ljós við fyrstu kynni að hann var óvenju- legur bæði til orðs og æðis. Við vorum saman á vakt þetta vor og ræddum auðvitað margt saman. Ef sást á masturstopp gægjast upp við ystu sjónarrönd gat hann sagt manni um hvaða skip væri að ræða, hver væri skipstjóri og á hvaða veiðum. Ég hef hvorki fyrr né síðar kynnst öðru eins minni, og þetta var langt fyrir ofan mína getu í að þekkja skip á löngu færi. Hann hafði ótrúlegan áhuga á skipum og hafði vanist því að leggja á minnið útlit þeirra frá masturstoppi og að sjólínu svo vel að ekki skeikaði. Óhætt er að segja að hann hafi reynst mikill happafengur fyrir Landhelgis- gæsluna, reglusamur og prúður í allri framkomu. Sigurður Steinar lauk far- mannaprófi frá Stýrimannaskól- anum í Reykjavík árið 1970 og prófi frá varðskipadeild sama skóla tveimur árum síðar. Eftir það var hann stýrimaður á skipum og flugvélum Landhelgisgæslunn- ar þar til hann varð skipherra fyr- ir um þrjátíu árum. Ég held að óhætt sé að segja að hann hafi ver- ið fremstur meðal jafningja í hópi samstarfsmanna hjá Landhelgis- gæslunni. Áhugi hans á störfum hennar, skipum og flugvélum var óvenjulegur þó marga áhugasama mætti finna meðal félaga hans. Landhelgisgæslan varð hans áhugamál. Fyrir um 21 ári var hann kosinn fulltrúi stéttarfélags síns í Sjómannadagsráð á höfuð- borgarsvæðinu. Sjómannadags- ráð eins og flestir vita rekur Hrafnistuheimilin, happdrætti DAS og fyrirtækið Naustavör sem sérhæfir sig í rekstri leigu- íbúða fyrir aldraða. Hann varð happafengur eins og fyrir Land- helgisgæsluna á sínum tíma. Til hans var gott að leita og hann skoraðist ekki undan að taka til hendinni. Fyrir nokkrum árum tók hann að sér formennsku í ritstjórn Sjó- mannadagsblaðsins og rækti það eins og hans var von og vísa. Hann var sæmdur heiðursmerki sjó- mannadagsins árið 2018 fyrir sjó- mannsstörf sín, björgunarstörf og störf að félagsmálum sjómanna. Hann er kvaddur með söknuði og af virðingu. Eiginkonu hans, sonum og fjöl- skyldum þeirra sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd Sjómannadagsráðs, Hálfdan Henrysson. Hann Sigurður Steinar lét af störfum hjá Landhelgisgæslunni 13. apríl í fyrra. Þann dag lagði hann varðskipinu Þór að bryggju í Reykjavík nákvæmlega 50 árum eftir að hann lét úr höfn sem há- seti á varðbátnum Maríu Júlíu. Það var ekki þannig að honum væri farið að leiðast, á Þór naut hann sín best. Þetta var skipið hans sem hann hafði barist svo hart fyrir í fjölda ára og að lokum stýrt sjálfur heim frá Síle haustið 2011. Það var stór stund þegar hann kom með skipið til fyrstu hafnar í Vestmannaeyjum, þá vor- um við glaðir báðir tveir. Já, hann var fylginn sér og alls ekkert fyrir það að gefast upp hann Steini, hann gat verið ansi hreint þver þegar kom að hagsmunamálum Gæslunnar og það hefur í mörg- um tilfellum borgað sig ríkulega. Hann var eldhugi og óþreytandi við að koma málefnum Landhelg- isgæslunnar áfram í hinu stærsta sem og hinu smæsta. Leiðir okkar lágu fyrst saman í Vestmannaeyj- um fyrir um 25 árum en hann var þá skipherra á Óðni. Hann var í það skiptið að færa norskan land- helgisbrjót til hafnar. Hann hafði einstakt nef fyrir hugsanlegum landhelgisbrjótum enda dettur varla nokkrum manni í hug lengur að fremja svoleiðis brot. Með okk- ur Sigurði tókust strax góð kynni og síðar vinskapur. Við sigldum saman á Óðni til Bretlands vorið 2006 til minningar um þá sjómenn breska sem og íslenska sem fórust á Íslandsmiðum á árum áður. Á þeirri leið tókst honum að fiska upp færeyskan landhelgisbrjót. Sigurður Steinar var mikill reglu- maður í öllu sínu lífi í leik og starfi. Hann var geysilega hraustur, úthaldsgóður á öllum sviðum, stór, spengilegur með framkomu og fas eins og flottur maður á fimmtugsaldri. Lífsglaður, áhuga- samur, atorkumikill og óþreyttur. Nú rúmu ári síðar er hann allur. Já, það er ekki alltaf sann- gjarnt þetta líf. Eitt af því fjöl- marga sem stendur upp úr er hversu vel hann byggði upp, þjálf- aði og hugsaði um unga fólkið hjá okkur. Hann tók að sér óharðnaða unglinga og gerði úr þeim vand- aða Landhelgisgæslumenn. Þetta var aðalsmerki hans. Steini brann fyrir mennta- og þjálfunarmálum, reglusemi, trúmennsku og heiðar- leika. Mörgum kom hann til manns og það fólk er honum æv- inlega þakklátt. Til marks um brennandi áhuga allt frá því er hann var lítill strákur í Keflavík sagði hann mér frá því hvernig honum tókst að komast til Reykjavíkur til að taka á móti varðskipinu Óðni þegar það kom nýtt til landsins árið 1960. Þá var hann 12 ára. Hann Sigurður átti farsælan og viðburðaríkan feril þessi 50 ár hjá Landhelgisgæsl- unni. Það var lærdómsríkt að fá að vinna með honum. Við vorum ekki alltaf sammála við Steini en lang- oftast. Þegar okkur greindi á tókst honum yfirleitt að leiða mér fyrir sjónir réttu áherslupunktana og með föðurlegri umhyggju snúa mér til betri vegar. Allt með hags- muni Landhelgisgæslunnar fyrir augum. Ég, Landhelgisgæslan og þjóð- in öll vorum svo lánsöm að Sig- urður Steinar Ketilsson helgaði líf sitt þjónustu við fólkið í landinu. Megi minningin um einstakan mann lifa. Ástvinum Sigurðar Steinars votta ég mína dýpstu samúð. Georg Lárusson. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Látinn er langt um aldur fram einstakur maður og vinur okkar Sigurður Steinar Ketilsson, fyrr- verandi skipherra. Leiðir okkar lágu saman þegar við sem ungir læknar hófum störf í þyrlusveit lækna árið 1990 en Sigurður Steinar var einn hinna mörgu sem börðust fyrir tilvist þyrlusveitar- innar, íslenskri þjóð til heilla. Hann var þá stýrimaður á þyrl- Sigurður Steinar Ketilsson HINSTA KVEÐJA Ljúfi drottinn lýstu mér svo lífsins veg ég finni, láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Gísli á Uppsölum) Daníel Freyr, Brynhildur, Irma og Ármann Steinar. Margt ég vildi þakka þér og þess er gott að minnast að þú ert einn af þeim sem mér þótti gott að kynnast. (Guðrún Jóhannsdóttir) Þakka 50 ára vinskap kæri vinur. Innilegustu samúðar- kveðjur til fjölskyldu þinnar. Kristinn Þ. Sigurðsson. Elsku afi, mig langar að fá þig aftur. Minningarnar okkar eru svo góðar. Við fórum á skíði, jólaball og í skipið þitt og fullt fleira gaman, það var gaman að vera með þér. Ég elska þig og eigðu gott ferðalag í sumarlandið. Irma. Ástkær maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JENS PÉTUR HÖGNASON frá Grundarfirði, hestamaður og sauðfjárbóndi, lést 26. október. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 7. nóvember klukkan 13. Blessuð sé minning hans. Friðbjörg Egilsdóttir börn, tengdabörn, barnabörn, langafabörn og systkini Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, SIGURÐUR M. SIGURÐSSON veitingamaður, Kvíholti 12, Hafnarfirði, sem lést á Landspítalanum föstudaginn 25. október, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 7. nóvember klukkan 15. Birna Barkardóttir Gilbert Grétar Sigurðsson Fannar Már Sigurðsson Guðrún Guðmundsdóttir Kristín Ösp Sigurðardóttir Daníel Baldursson barnabörn og systkini hins látna Eiginmaður minn og faðir, ÓLAFUR BJARNFREÐSSON sjómaður, andaðist 23. október á Landspítalanum í Fossvogi. Útför Ólafs fór fram 31. október í kyrrþey að ósk hins látna. Pisamai Phaengsrisarn Guðni K. Ólafsson Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, DANA KRISTÍN JÓHANNSDÓTTIR, framreiðslumeistari og tónmenntakennari, lést laugardaginn 19. október. Útförin fór fram í kyrrþey mánudaginn 28. október, að ósk hinnar látnu. Megi hún hvíla í friði. Lárus Þór Pálmason Eva Hauksdóttir Hugljúf Dan Jensen Eiríkur Jensen Borghildur Hauksdóttir Guðbjörn Dan Gunnarsson barnabörn og aðrir aðstandendur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, KRISTRÚN KJARTANSDÓTTIR frá Haga, Grímsnesi, Fossheiði 58, Selfossi, lést á Sólvöllum, Eyrarbakka, miðvikudaginn 30. október. Útförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 8. nóvember klukkan 13. Ragnhildur Helgadóttir Hafliði Sveinsson Kjartan Helgason Áslaug Harðardóttir og fjölskyldur Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.