Morgunblaðið - 05.11.2019, Síða 20

Morgunblaðið - 05.11.2019, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2019 Fundir/Mannfagnaðir ses.xd.is Samtök eldri sjálfstæðismanna, SES Hádegisfundur SES Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, verður gestur á hádegisfundi SES á morgun, miðvikudaginn 6. nóvember kl. 12:00, í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Húsið opnað kl. 11:30. Boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi, 1000 kr. Allir velkomnir. Með kveðju, stjórnin. Félagsstarf eldri borgara Árskógar Smíðar, útskurður með leiðb. kl. 9-16. Leikfimi með Hönnu kl. 9. Leshringur kl. 11. Bridge kl. 12. Handavinnuhópur kl. 12-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 12:45. MS-fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:45- 15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700. Áskirkja Spilum félagsvist í kvöld í Dal, neðra safnaðarheimili kir- kjunnar kl 20 Allir velkomnir Safnaðarfélag Áskirkju Áskirkja Jólabasar Áskirkju verður haldinn þann 10.nóvember eftir messu kl 12 Tertur lagkökur, smákökur,sultur og allskyns kruðerí til sölu. Flóamarkaðurinn góði á sínum stað með notaða og nýja hluti, fatnað og margt fleira. Vöfflukaffi 1000 kr. Ef þið getið gefið okkur muni, köku eða annað kruðerí hafið samb við Petreu s 8918165. Allur ágóði rennur til starfs Safnaðarfélags Áskirkju Boðinn Leikfimi kl. 10:30. Fuglatálgun kl. 13:00. Bridge og Kanasta kl. 13:00. Bústaðakirkja Félagsstarfið er á miðvikudaginn kl 13-16, gestur okkar verður Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur og verður hann með erindi kl 15:00 yfir kaffi bollanum. Séra Eva Björk verður með hugleiðingu og bæn. spil, handavinna og framhaldssaga verða á sínum stað. Allir hjartanlega velkomnir. Hægt er að hringja að morgni miðvikudags og panta bílfar í starfið. Dalbraut 18-20 Félagsvist kl.13.40, verslunarferð í Bónus kl.15.05. Fella og Hólakirkja Eldriborgarastarf þriðjudaginn 5. október. Kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð eftir stundina. Þórey Dögg framkvæmdarstjóri Eldriborgararáðs er gestur dagsins. Verið velkomin Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8:50. Myndlistarnámskeið kl. 9-12. Thai Chi kl. 9-10. Leikfimi kl. 10-10:45. Spekingar og spaugarar kl. 10:30-11:30. Hádegismatur kl. 11:30. Salatbar kl. 11:30-12:15. Kríur myndlistarhópur kl. 13. Bridge kl. 13-16. Enska kl. 13-15. Tölvuleiðbeiningar kl. 13:10. Síðdegiskaffi kl. 14:30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790 Félagsmiðstöðin Vitatorgi Glerlist kl. 9:00. Bútasaumshópur hittist kl. 9:00. Hópþjálfun með sjúkraþjálfara kl. 10:30. Bókband kl. 13:00. Frjáls spilamennska kl. 13:00. Opin handverkstofa kl. 13:00-16:00. Söngstund kl. 13:30. Bókaklúbbur kl. 15:00. Hádegismatur frá 11:30 til 12:30 alla daga vikunnar og kaffi frá 14:30 til 15:30 alla virka daga. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Verið öll velkomin á Vitatorg. Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. kl.7:30/15:15. Qi-Gong Sjál. kl.8:30. Liðstyrkur Ásg. kl. 11:15. Karlaleikf. Ásg. kl.12:00. Boccia Ásg kl. 12:45. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14:45. Línudans í Sjál. dans kl. 13:30/14:30. Smíði í Smiðju Kirkjuh. kl.09:00/13:00 Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl.08:30-16:00. Keramik málun kl.09:00-12:00. Leikfimi gönguhóps kl. 10:00-10:30. Gönguhópur um hverfið kl. 10:30-. Leikfimi Maríu 10:30-11:15. Glervinnustofa m/leiðb. kl 13:00-16:00 Bridge 13:00-16:00 Allir velkomnir. Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 9.45 Stóla-leikfimi, kl. 13.00 Handavinna, kl. 13.30 Zumba, kl. 13.30 Alkort. Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13:00 – 15:30. Starfið hefst á samsöng og helgistund. Í kjölfarið verður fyrirlestur um Siðbótina. Þá er boðið upp á spil, spjall og handavinnu. Samverunni lýkur með kaffi kl. 15:00. Gullsmára Myndlistar hópur kl. 9.00. Boccia kl. 9.30. Málm- og Silfursmíði, Canasta og Tréskurður kl. 13.00. Leshópur kl. 20.00 Björg Guðrún Gísladóttir les úr bók sinni Skuggasól. Allir velkomnir. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11:30, 1340.-kr mánuðurinn, allir velkomnir og kostar ekkert að prufa. Hádegismatur kl. 11.30. Félagsvist kl. 13.15. Kaffi kl. 14.15. Hraunsel Ganga í Kaplakrika alla daga kl 8.00- 12.00 Dansleikfimi kl 9.00 Qi-gong kl 10.00 Bridge kl 13.00 Gaflarakórinn kl 16.00 Korpúlfar Listmálun með Marteini kl 9 í Borgum og post- ulínsnámskeið kl 9:30, Boccia kl 10 og 16 í Borgum í dag. Helgistund kl 10:30 í Borgum og leikfimishópur Korpúlfa í Egilshöll kl. 11:00 í dag og spjallhópur í listasmiðju Korpúlfa kl. 13:00 í Borgum í dag, allar velkomnir í gleðilega samveru. Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl 13:30 í dag og heimanámskennsla e.h. í borgarbókasafninu Spönginni. Neskirkja Krossgötur kl. 13. Ólöf Guðný Geirsdóttir, dósent og verkefnastjóri í öldrunarfræðum fjallar um næringu og hollustu. Kaffiveitingar. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl 07.10. Kaffispjall í króknum kl.10.30. Pútt í Risinu l 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl.11.30. Lomber og kennsla í króknum á Skólabr. kl. 13.30. Bridge í Eiðismýri kl.13.30. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14. Bókmenntakvöld í Bókasafni Seltj. með Sólveigu Pálsdóttur rithöfundi í kvöld kl. 19.30. fimmtud. 7. nóv. er félagsvist í salnum Skólabraut kl. 13.30 Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 – 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Stangarhylur 4, Skák kl. 13.00 allir velkomnir í hópinn. Vantar þig pípara? FINNA.is Smá- og raðauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bókhald NP Þjónusta Sé um liðveislu við bókhaldslausnir o.þ.h. Hafið samband í síma 831-8682. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. ✝ Unnur Stefáns-dóttir fæddist 7. febrúar 1934 í Miðbæ í Svarfaðar- dal. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 24. októ- ber 2019. Foreldrar henn- ar voru Stefán Sveinbjörnsson, f. 19. mars 1897, d. 12. september 1980, og Sigurlína Snjólaug Kristjánsdóttir, f. 9. október 1902, d. 14. júní 1967. Systkini Unnar eru Kristín Þorbjörg, f. 1925, d. 2012, Rósmundur Guð- laugur, f. 1927, d. 2013, Helga María, f. 1929, Jón Sölvi, f. 1931, Jóhannes Kristinn, f. 1935, d. 2002, Lára Ingibjörg, f. 1940. Þann 5. desember 1954 giftist Unnur Snæbirni Björnssyni, f. 14. maí 1917, bónda á Nolli í Grýtubakkahreppi. Foreldrar hans voru Björn Jóhannesson, f. 1. febrúar 1877, d. 10. desember 1951, og Anna Pálsdóttir, f. 14. mars 1883, d. 13. febrúar 1958. Börn Unnar og Snæbjörns eru: 1) Björn, f. 1953, giftur Möggu Kristínu Björnsdóttur, þeirra börn: a) Egill Ármann, giftur Írisi Fönn Gunnlaugs- dóttur, þau eiga tvö börn, fyrir átti Íris Fönn tvo syni, b) Jóhann Már, giftur Ellen Ýri Gunn- laugsdóttur, þau eiga tvær dæt- ur, c) Fjóla Björk, í sambúð með Jóni Björgvini Kristjánssyni, þau eiga tvö börn. Unnur ólst upp í Miðbæ í Svarfaðardal. Skólaganga var farandkennsla sem hún naut í einhverjum mæli. Hún fór ung að vinna fyrir sér og aðeins 17 ára réðst hún sem ráðskona í Noll í Grýtubakkahreppi þar sem hún varð síðan húsfreyja. Hún var víkingur til allra verka, skipti þá ekki máli hvort það voru úti- eða innistörf. Árið 1982 slitu þau Unnur og Snæ- björn samvistum og Unnur flutti til Akureyrar. Hún hóf þá störf í Niðursuðuverksmiðju Kristjáns Jónssonar og vann þar til 67 ára aldurs. Unnur var gestrisin og vinmörg og hafði unun af ferða- lögum og um árabil fór hún í all- ar ferðir sem Eining-Iðja bauð upp á, bæði innanlands og utan. Útför Unnar verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag, 5. nóv- ember 2019, klukkan 13.30. þeirra börn: a) Unnur Ósk, gift Óskari Aðalbjörns- syni, þau eiga tvær dætur. b) Guðbjörg Anna, gift Stefáni Þór Guðmundsyni, þau eiga tvo syni. c) Snæbjörn Ármann, giftur Kristbjörgu Ósk Svavarsdóttur, þau eiga eina dótt- ur. 2) Sigurbjörg, f. 1955, giftist Ragnari Þrúðmars- syni, d. 2014, þau skildu. Þeirra börn: a) Snæbjörn Sölvi, b) Þrúðmar Kári, giftur Bua Ar- born, þau eiga eina dóttur, c) Hildur Björg, gift Heiðari Inga Eggertssyni, þau eiga þrjú börn. 3) Stefán Sigurður, f. 1962, í sambúð með Randi Aarseth. Stefán giftist Súsönnu Poulsen, þau skildu. Þeirra börn: a) Heið- rún Tara, gift Ástþóri Sigurðs- syni, þau eiga tvo syni og eina fósturdóttur, b) Absalon, c) Unn- ur Lilja, d. 2010. Fyrir átti Sús- anna dótturina Ingibjörgu Ósk Þorvaldsdóttur, gift Eini Heið- arssyni, þau eiga þrjú börn. 4) Kristinn, f. 1964, giftur Kristínu Sigurbjörgu Jóhannsdóttur, Í dag kveðjum við elsku ömmu okkar. Við verðum ævinlega þakklát fyrir allar minningarnar sem við eigum um ömmu Unni. Hryggðar hrærist strengur hröð er liðin vaka ekki lifir lengur ljós á þínum stjaka. Skarð er fyrir skildi skyggir veröldina eftir harða hildi horfin ertu vina. Klukkur tímans tifa telja ævistundir ætíð lengi lifa ljúfir vinafundir. Drottinn veg þér vísi vel þig ætíð geymi ljósið bjart þér lýsi leið í nýjum heimi. (Hákon Aðalsteinsson) Elsku amma megi minning þín lifa um ókomna tíð. Guðbjörg Anna og Snæbjörn Ármann. Það bar brátt að, þó að heilsan hafi ekki verið upp á sitt besta mestan tíma þessa árs. Ég átti alls ekki von á því þegar mamma hringdi í mig og sagði mér að amma Unnur væri að fara að kveðja okkur. Það var reiðarslag að fá þær fréttir, þó að auðvitað væri aldurinn orðinn nokkuð hár. Þegar ég sest niður og hugsa til baka og rifja upp samveru- stundir með ömmu læðist að mér eplalykt því amma átti alltaf eplasjampó með lykt af grænum eplum sem ég var þvegin og skrúbbuð með í baðinu sem barn. Það var svakalega góð lykt og notalegt að sulla á eftir í baðinu, sem þá var blandað eplailmi. Ég var svo heppin sem barn að fá oft að skottast með í sveitinni, elta ömmu og reyna að aðstoða hana og afa í búskapnum, gefa kálfunum, þrífa mjaltavélarnar, raka heyinu saman, fara með ömmu út á bátnum og renna fyrir fisk. Yfirleitt komum við með góðan afla í land og þá var spenn- andi að fylgjast með ömmu gera að fiskinum. Þvottavélin í kjall- aranum var snilldartól. Til að vinda fötin þurfti að láta þau rúlla milli tveggja kefla sem áföst voru vélinni. Það var gert með handafli og gaman að fá að reyna sig við það. Reglulega fórum við amma svo með rusl og brenndum það fyrir neðan fjós. Þegar lítið var um að vera sat ég og hlustaði á ömmu ræða málin við sjálfa sig. Þarna inni á eldhúsgólfi voru daglegu málin rædd af mikilli ákefð og allir sammála, enda bara einn sem mælti fyrir. Svo hló ég með ömmu þegar sögurnar voru skemmtilegar. Eftir að amma flutti til Akur- eyrar byrjaði hún að vinna hjá K. Jónsson. Hún reddaði mér vinnu þar þegar ég var 13 eða 14 ára gömul og unnum við saman þar á sumrin í nokkur ár. Fyrsta sum- arið fór ég í hádeginu með henni heim til að borða hádegismat, ávaxtagraut með rjóma sem ég var aldrei hrifin af en lét mig hafa það. Hún átti svo alltaf eitthvað í frystinum á eftir. Amma átti einmitt alltaf eitt- hvað í frystinum og ekki bara eina köku eða tvær. Það var ekki vinsælt ef maður kom ekki svang- ur í heimsókn því hver tertan á fætur annarri var reidd fram, sama hve mikið maður reyndi að draga úr. Aldrei færri en fimm sortir. Ég er nokkuð viss um að margir minnast hennar þannig. Það er margs að minnast þeg- ar litið er til baka en kærust er mér minning frá því um síðast- liðna páska þegar við amma fór- um saman tvær í Nollarvík til að tína steina. Við komum við heima í Nolli til að byrja með og skoð- uðum þær miklu breytingar sem þar hafa átt sér stað. Síðan renndum við niður í víkina og tíndum steina, skoðuðum skeljar og veltum fyrir okkur ágangi hafsins og því niðurbroti sem haf- ið hefur unnið á bökkunum við Nollarvík. Þar hefur heilmikið kvarnast úr landinu og sjávar- málið færst innar á landið. Við rifjuðum upp hve langt þurfti að draga bátinn út í sjó hér áður, en nú er sjávarmálið rétt við verbúð- ina sem þarna stendur. Amma hafði ekki komið þarna í fjölda- mörg ár og henni fannst þetta dapurt að sjá. Þetta var góður dagur sem við enduðum með því að heimsækja leiðið hans afa í Laufási. Þessa minningu geymi ég í hjarta mér, elsku amma mín. Guð geymi þig. Unnur Ósk. Unnur Stefánsdóttir ✝ Þórarna V. Jón-asdóttir fæddist 2. maí 1951 á Bæjar- skerjum í Sandgerði. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Skjóli 20. október 2019. Faðir hennar var Jónas B. Jónasson, f. 24. maí 1914, og móðir hennar var Halldóra Thorlacius. Systkini hennar eru Ragnhildur, f. 16. apríl 1943, og Ólafur Th., f. 30. ágúst 1944, maki hans er Kristólína Ólafs- dóttir, f. 15. febrúar 1954. Þórarna giftist Sigfúsi Guðbrandssyni, f. 12. apríl 1950, og eignuðust þau tvo syni, Jón, f. 5. ágúst 1975, og Bjarna, f. 12. desember 1984. Jón er giftur Freyju Valsdóttur, f. 12. mars 1978, og eiga þau þrjú börn, Vil- berg Karl, f. 28. jan- úar 2009, Þórörnu Völu, f. 28. apríl 2012, og Val Sigfús, f. 11. júní 2016. Útför Þórörnu fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 5. nóvem- ber 2019, klukkan 13. „Jólagesturinn er kominn.“ Þessi setning hljómaði ósjaldan á heimili mínu um hádegisbilið á að- fangadag. Jólagesturinn var Þór- arna vinkona mín. Hún lagði það í vana sinn í nokkur ár að birtast á þessum degi og gleðja okkur fjöl- skylduna með nýbökuðum vest- firskum hveitikökum. Það var ljúft að setjast niður með henni á þess- um annasama degi og gæða sér á ylvolgum kökunum. Bragðið af þeim bar það með sér að þær voru bakaðar og gefnar af kærleika. Ég kynntist Þórörnu í Safamýrar- skóla þar sem við kenndum saman í nokkur ár. Það var ómetanlegt fyrir mig sem nýútskrifaðan kenn- ara að geta leitað til hennar með alla þá reynslu sem hún hafði sem sérkennari. Hún var óspör á tíma sinn, gaf mér góð ráð og með ár- unum óx vinátta okkar. Þórarna var stolt af fjölskyld- unni sinni og barnabörnin voru sannarlega augasteinar ömmu sinnar. Í veikindum sínum sýndi hún aðdáunarvert æðruleysi og einstakan baráttuhug. Ég minnist Þórörnu með hlý- hug og er þakklát fyrir yndislega vináttu. Ég votta fjölskyldu henn- ar innilega samúð mína og bið Guð að blessa minningu hennar. Kamilla H. Gísladóttir (Kamí). Þórarna V. Jónasdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.