Morgunblaðið - 05.11.2019, Side 25
maður spila og ég horfi jákvæðum
augum á það.“
Þeir „gömlu“ gefa ekki eftir
Í íþróttunum er gjarnan talað um
fyrirbærið hungur. Að fólk sé hungr-
að í að vinna leiki eða bikara. Í liði
KR eru margfaldir meistarar sem
komnir eru á nokkuð virðulegan ald-
ur á mælikvarða boltagreina. Jakob,
Jón Arnór, Helgi Már eru allir fæddir
árið 1982 og Sigurður Þorvalds árið
1980. Jakob segir að þegar menn hafa
um annað að hugsa en íþróttina þá
fylgi því jafnframt það hugarfar að
vilja nýta hverja æfingu sem best.
„Það sýnir sig á æfingum hjá okkur
að við sem eldri erum tökum það ekki
rólega heldur erum það við sem reyn-
um að ná upp ákefðinni og orkunni á
æfingum. Þegar maður verður eldri
og á ekki mikið eftir í þessum gæða-
flokki en er að taka tíma frá fjöl-
skyldunni með því að mæta á æfing-
ar, þá vill maður að sá tími sé nýttur
vel. Maður vill fá eitthvað út úr æf-
ingunum og áttar sig á að maður get-
ur ekki verið í boltanum að eilífu.“
Flestir spekingar reikna með að
hinir leikreyndu KR-ingar muni nota
gírkassann og skipta jafnt og þétt um
gíra eftir því sem líður á veturinn.
„Mér líst á vel á KR-liðið því við erum
með gott lið. En ef ég á að vera alveg
hreinskilinn þá finnst mér við ekki
hafa spilað vel hingað til. Við höfum
spilað fimm leiki í deildinni og mér
fannst frammistaðan í einum þeirra
vera nokkuð góð en það var á móti
Haukum. Við vitum það sjálfir að við
spiluðum ekki á okkar getustigi í öðr-
um leikjum,“ segir Jakob en KR hef-
ur unnið fjóra af fyrstu fimm leikj-
unum.
Finnur að
fólk er stolt
af liðinu
Morgunblaðið/Hari
Reyndur Jakob Örn Sigurðarson leikur nú í KR-treyjunni í fyrsta skipti
síðan 2009 en hann hefur leikið í Svíþjóð frá þeim tíma.
Jakob Örn kominn heim eftir áratug
í Svíþjóð Jákvætt andrúmsloft í KR
KR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
„Þegar ég var hérna síðast þá var
það veturinn eftir bankahrunið. Þá
var deildin ekki jafn sterk og hún er
núna. Það held ég að sé alveg
öruggt enda höfðu liðin ekki fjár-
magn til að ná í jafn góða leikmenn
og nú er gert. Deildin er því töluvert
sterkari í vetur og mér finnst mörg
lið vera rosalega góð. Ég hef tekið
eftir miklum framförum frá því ég
var hérna síðast. Ég held að liðin
æfi betur og skipulagið í þjálfuninni
er örugglega betra. Þar hafa orðið
framfarir,“ segir Jakob Örn Sig-
urðarson, leikmaður KR í Dominos-
deildinni í körfuknattleik, en hann
sneri aftur í uppeldisfélagið í sumar
eftir áratug í Svíþjóð.
Jakob varð Íslandsmeistari sem
ungur leikmaður árið 2000 og fór
fljótlega utan. Lék í Bandaríkj-
unum, Þýskalandi, Ungverjalandi
og á Spáni. Jakob lék hér heima
þegar KR stillti upp ógnvekjandi
liði 2008-2009 og varð Íslandsmeist-
ari. Nú kemur hann heim í sér-
stakar kringumstæður því KR hef-
ur orðið meistari sex ár í röð.
„Í því má finna margt jákvætt og
fleira sem er jákvætt en neikvætt.
Þessum árangri fylgir sjálfstraust
og jákvæðni í félaginu. Maður finn-
ur að fólk er ánægt og stolt af liðinu.
En einnig fylgja þessu kröfur og
það er pressa á liðinu að halda
áfram á sömu braut. Sérstaklega
þegar liðið styrkist og fær til sín
góða leikmenn þá aukast kröfurnar
til liðsins. Við þannig aðstæður vill
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. NÓVEMBER 2019
Stuðst var við myndbands-
dómgæslu í bandarísku NFL-
deildinni í fyrsta sinn árið 1985.
Ég er fæddur árið 1985 og man
því ekki vel eftir þessum tíma.
Það var ekki beint almenn
ánægja með þessa ákvörðun
Kanans á sínum tíma. „Mannleg
mistök eru hluti af leiknum“ var
stærsta röksemdafærslan hjá
þeim sem voru á móti mynd-
bandsdómgæslu og fannst
mörgum að mannlegi þátturinn
hyrfi um leið og stuðst yrði við
myndbandsdómgæslu.
Byrjað var að sýna frá leikjum
í NFL-deildinni að staðaldri í
kringum 1950 í Bandaríkjunum
en þá var sýnt frá öllum leikjum
Los Angeles Rams og Washing-
ton Redskins. Önnur lið fylgdu
svo fljótlega í kjölfarið og var
strax farið að kalla eftir því að
stuðst yrði við myndbands-
dómgæslu í deildinni. Enska úr-
valsdeildin í knattspyrnu tók ný-
lega upp á því að styðjast við
myndbandsdómgæslu.
VAR hefur ekki vakið mikla
lukku hjá stuðningsmönnum
hingað til. Dómarasamtökin á
Englandi virðast enn vera að
reyna að átta sig á því hvernig sé
besta að nota tæknina og eins og
staðan er í dag, eftir ellefu leikn-
ar umferðir, hefur VAR skapað
fleiri vandamál en lausnir. Þá las
ég það einhvers staðar að um-
ræður í kringum dómgæsluna á
Englandi væru mun meiri nú en
undanfarin ár, þrátt fyrir að öll
vafaatriði séu skoðuð í þaula.
Árið er 2019 og í Bandaríkj-
unum man enginn eftir því
hvernig leikirnir í NFL-deildinni
fóru fram án myndbands-
dómgæslu. Þannig verður þetta
að öllum líkindum líka með VAR á
einhverjum tímapunkti. Það mun
hins vegar klárlega taka tíma að
finna þægilegustu og bestu
lausnina eins og með allt annað í
þessu blessaða liði.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
BAKVERÐIR:
Alfonso Birgir Gomez Söruson
Benedikt Lárusson
Björn Kristjánsson
Brynjar Þór Björnsson
Gunnar Steinþórsson
Helgi Már Magnússon
Jakob Örn Sigurðarson
Jón Arnór Stefánsson
Matthías Orri Sigurðarson
Ólafur Þorri Sigurjónsson
Veigar Már Helgason
Þorvaldur Orri Árnason
Þórir Lárusson
MIÐHERJAR:
Michael Craion
Óli Gunnar Gestsson
Tristan Gregers Oddgeirsson
FRAMHERJAR:
Danil Krijanovskij
Kristófer Acox
Sigurður Ágúst Þorvaldsson
Sveinn Búi Birgisson
Þjálfari: Ingi Þór Steinþórsson.
Aðstoðarþjálfari: Arnoldas
Kuncaitis.
Árangur 2018-19: 5. sæti og Ís-
landsmeistari.
Íslandsmeistari: 1965, 1966, 1967,
1968, 1974, 1978, 1979, 1990, 2000,
2007, 2009, 2011, 2014, 2015, 2016,
2017, 2018, 2019.
Bikarmeistari: 1966, 1967, 1970,
1971, 1972, 1973, 1974, 1977, 1979,
1991, 2011, 2016, 2017.
KR vann Grindavík, Hauka,
Fjölni og Þór Þ. í fyrstu fjórum
umferðum tímabilsins en tapaði
síðan fyrir ÍR. Næsti leikur er
gegn Tindastóli á heimavelli á
föstudagskvöldið.
Lið KR 2019-20
KOMNIR:
Brynjar Þór Björnsson frá Tinda-
stóli
Jakob Örn Sigurðarson frá Borås
(Svíþjóð)
Matthías Orri Sigurðarson frá ÍR
Michael Craion frá ADA Blois
(Frakklandi) (lék með Keflavík
2018-19 og lauk tímabilinu í Frakk-
landi).
FARNIR:
Emil Barja í Hauka
Julian Boyd í kínverskt félag
Mike DiNunno í Coruna (Spáni)
Orri Hilmarsson í Fjölni
Pavel Ermolinskij í Val
Vilhjálmur Kári Jensson í Álftanes
Breytingar á liði KR
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR, gerði ofboðs-
lega vel á síðasta tímabili með því að vinna þann
stóra þegar enginn átti von á því.
Öfugt við síðasta tímabil reikna allir með sigri
KR í vetur og það er pressa sem allir í liðinu og
kringum liðið eru vanir.
KR-liðið mun lulla í gegnum deildarkeppnina og
tapa nokkrum leikjum en verður síðan ógnvæn-
legt í úrslitakeppninni.
Það er ekkert annað lið í deildinni með jafn mikil gæði og jafn
mikla þekkingu á að vinna leiki og titla og þetta sigursæla KR-lið.
Benedikt Guðmundsson
um KR-inga
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
Einfalt og nett hjartastuðtæki fyrir stofnanir og fyrirtæki. Tækið greinir sjálfkrafa
mögulega rafvirkni í hjartanu og sé þess þörf gefur það rafstuð. Tækið talar
til notandans og gefur fyrirmæli á íslensku*
*Einnig fáanlegt með ensku tali.
LIFEPAK CR PLUS
HJARTASTUÐTÆKI
TILBOÐSVERÐ
LIFEPAK CR PLUS
159.900
KR M/VSK
VEGGFESTING
19.000
KR M/VSK