Morgunblaðið - 22.11.2019, Page 1
F Ö S T U D A G U R 2 2. N Ó V E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 275. tölublað 107. árgangur
ÞORSTEINN
VEIÐIR SJÁLFUR
JÓLAMATINN
ERU LISTA-
VERKIN LÍKA
SIÐLAUS?
FÆR ÍSLAND
TVO HEIMALEIKI
Í UMSPILINU?
ILLIR LISTAMENN 29 DREGIÐ Í SVISS Í DAG 24FIMMTUGUR Í DAG 22
Biðla til hóps fjárfesta
Stofnendur Play reyna að kalla ferðaþjónustufyrirtæki sameiginlega að borðinu
Hlutafjársöfnun gengur hægt SAS hyggst hrista verulega upp í markaðnum
Með fundinum freista aðstandend-
ur félagsins þess að tryggja veru-
legan hluta þeirra 1,7 milljarða
króna sem ætlunin er að safna meðal
innlendra fjárfesta til verkefnisins.
Ekki tókst að ná í Arnar Má Magn-
ússon, forstjóra Play, og er hann
sagður í fundamaraþoni með mögu-
legum fjárfestum. Fjárfestar sem
Morgunblaðið hefur rætt við segja
að stofnendur félagsins muni mögu-
lega þurfa að slá af kröfum um 50%
hlut í félaginu, eigi markmið um 1,7
milljarða í nýju fjármagni inn í félag-
ið að nást. Á sama tíma og Play
hyggst hefja flug sem tengi saman
Evrópu og Bandaríkin með milli-
lendingu á Íslandi hefur SAS til-
kynnt að á næsta ári muni félagið
hefja beint flug milli Danmerkur og
Bandaríkjanna á nýjum og lang-
drægum A321LR-þotum.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Forsvarsmenn Play reyna nú að
kalla saman hóp fjárfesta í íslenskri
ferðaþjónustu í von um að fá megi
hann sameiginlega að fjárfestingu í
félaginu. Treglega hefur gengið að fá
fjárfesta til þess að skuldbinda sig til
þátttöku í hlutafjársöfnun sem stað-
ið hefur yfir um nokkurra vikna
skeið.
Vaxtaráform
» Play stefnir á að safna 1,7
milljörðum meðal fjárfesta.
» Félagið hyggst vera með 10
þotur í rekstri á árinu 2022.
» Play áformar flug til Banda-
ríkjanna á nýju ári.
MForsvarsmenn Play biðla … »12
Árleg mannréttindaherferð Íslandsdeildar Am-
nesty International var sett í gær og ber hún yf-
irskriftina Þitt nafn bjargar lífi. Markmiðið er að
safna undirskriftum fólks til að vekja athygli á
mannréttindabrotum gegn börnum og ungu fólki.
Viðburðurinn einkennist af gagnvirkri ljósainn-
setningu þar sem nafn viðkomandi birtist um leið
og skrifað er undir. Nanna Kristín Magnúsdóttir
leikkona setti viðburðinn formlega.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nöfnin
koma í ljós
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
Fimmta hvert heimili á leigumark-
aði er undir lágtekjumörkum á síð-
asta ári samanborið við 6% heimila í
eigin húsnæði, samkvæmt nið-
urstöðum lífskjararannsóknar Hag-
stofu Ísland. „Þetta er í samræmi
við það sem við höfum verið að halda
fram á síðustu árum og er meðal
annars hvatinn að því að við lögðum
gríðarlega mikla áherslu á að byggja
upp félagslegt húsnæðiskerfi fyrir
nákvæmlega þennan hóp,“ segir
Henný Hinz aðalhagfræðingur ASÍ.
9% undir fátækramörkum
Tölur um lágtekjumörk sem einn-
ig voru teknar saman í rannsókninni
sýna að 9% íbúa á Íslandi eru undir
lágtekjumörkum eða um 31.400 ein-
staklingar á 16 þúsund heimilum.
Hlutfallslega eru þó færri undir lág-
tekjumörkum hérlendis en á Norð-
urlöndunum þar sem hlutfallið er 16-
18%. Færri búa við skort á efnis-
legum gæðum nú en árið 2016, eða
4% einstaklinga samanborið við
6,1% árið 2016. »14
20% leigu-
taka undir
mörkum
Færri búa við
skort en árið 2016
Morgunblaðið/Hari
Uppbygging ASÍ hefur lagt áherslu
á félagslegt húsnæðiskerfi hér.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það er mikill áhugi á því að ala lax
á landi. Verð á laxi hefur verið
mjög hátt og eftirspurnin eykst
stöðugt. Menn hafa verið að skoða
þessa möguleika, sérstaklega þar
sem langt er til framleiðsluland-
anna,“ segir Jónas Jónasson, for-
stjóri Stofnfisks, en fyrirtækið er
þátttakandi í landeldisuppbygging-
unni sem nú er að ganga yfir víða
um heim.
Jónas segir að horft sé til þess í
þessum löndum að mikið er flutt
inn af laxi með flugi, ýmis heilum
eða í flökum. Með því að framleiða
laxinn á staðnum sparist flutnings-
kostnaður. „Enn er talið að fram-
leiðslukostnaður í landstöðvum sé
meiri en í sjókvíum. Margir telja sig
hins vegar geta unnið upp muninn
með því að draga úr flutningskostn-
aði,“ segir Jónas.
Stofnfiskur selur hrogn til nýrr-
ar landeldisstöðvar í Miami í
Bandaríkjunum sem er með stór
áform um stækkun og til landeldis í
Póllandi, Sviss, Danmörku, Kína og
Dubai, svo dæmi séu tekin. Hrognin
sem Stofnfiskur framleiðir hér á
landi geta í fyllingu tímast orðið að
500 þúsund tonnum af laxi. »4
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Klakstöð Estrela Abelleira vinnur með hrogn frá Stofnfiski í seiðastöð
Arctic Fish í Tálknafirði. Hún hreinsar egg og dauð seiði úr klakbökkum.
Laxahrogn til landeldis víða um heim
Nýjar landeldisstöðvar byggðar upp
Stofnfiskur sér eldi fyrir hrognum
Banaslys varð á Þjóðvegi 1 í ná-
munda við bæinn Viðborðssel í
Sveitarfélaginu Hornafirði síð-
degis í gær.
Slysið varð um klukkan 17.30
og bar að með þeim hætti að ekið
var á gangandi vegfaranda.
Samkvæmt tilkynningu frá lög-
reglu komu lögreglu- og sjúkra-
flutningamenn fljótlega á vett-
vang og rannsóknarnefnd
umferðarslysa ásamt tæknimönn-
um frá lögreglu fylgdi svo í kjöl-
farið.
Var þjóðveginum lokað um
tíma á meðan störfum var sinnt á
vettvangi og fyrir vikið voru
nokkrar umferðartafir fram eftir
kvöldi. Banaslysið er hið fimmta
sem verður í umferðinni það sem
af er ári. Síðasta banaslys í um-
ferðinni varð í september.
Banaslys varð í
Hornafirði í gær