Morgunblaðið - 22.11.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2019
Páll Vilhjálmsson kaupir ekkiskoðunarlaust að maðurinn
stjórni veðrinu með litlaputta:
ÞingmaðurVinstri grænna
og ráðherra, Svan-
dís Svavarsdóttir,
játar að trúin á
manngert veður er
vinstripólitík.
Ráherrann segirhægrimenn
hafa „efasemdir
gagnvart loftslags-
breytingum“ og
dregur þar fram að
málefnið er pólitískt
fremur en vís-
indalegt.
Í leiðinni, og líklega án þess aðætla sér það, varpar Svandís
ljósi á ólík eðliseinkenni hægri- og
vinstrimanna. Þeir fyrrnefndu
efast en fullvissan er öll til vinstri.
Efahyggja er til hægri en trúarhiti
til vinstri.
Karl Marx var hjáguð vinstri-manna á síðustu öld. Hann
brást þegar á daginn kom að meint
járnhörð lögmál sögulegrar efn-
ishyggju stóðust ekki. Kommúnism-
inn var veraldleg trú sem stóðst
ekki próf reynslunnar.
Vinstrimenn leituðu fyrir sérmeð nýja hugmyndafræði og
fundu hana í trú á manngert veður
og yfirvofandi heimsendi.
Hægrimenn gjalda varhug viðtrúarhitanum. Offorsinu
fylgir einatt yfirgangur, frekja og í
mörgum tilfellum hrein illska. Allt í
nafni málstaðarins, auðvitað.
Huggulegt af ráðherranum að
viðurkenna þetta. Takk, Svandís.“
Svandís
Svavarsdóttir
Má fá ósamsett
veður í IKEA?
STAKSTEINAR
Páll
Vilhjálmsson
Hafin er endurnýjun á sjúkrabíla-
flota landsins samkvæmt þeirri
ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands
að kaupa 25 nýja slíka bíla. Reiknað
er með að fyrstu bílarnir verði af-
hentir fullbúnir til notkunar í sept-
ember á næsta ári. Í útboði Ríkis-
kaupa átti fyrirtækið Fastus hf.
tilboðið sem skoraði hæst og var tek-
ið. Sjúkrabílarnir nýju verða alls 25
og af gerðinni Mercedes Benz Sprin-
ter. Þeir eru stórir og rúmgóðir sem
auðveldar sjúkraflutningamönnum
að hlúa að sjúklingum. Í útboðinu
var kostað kapps að nýir bílar
myndu uppfylla ströngustu kröfur
sérfræðinga varðandi öryggi, aðbún-
að og vinnuumhverfi.
Samkvæmt fyrrnefndu samkomu-
lagi milli Sjúkratrygginga Íslands og
Rauða krossins er gert ráð fyrir að
alls verði 68 sjúkrabifreiðar endur-
nýjaðar fyrir árslok 2022, en flotinn
samanstendur af um 80 bílum alls. Í
tilkynningu er haft eftir Svandísi
Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra
að í heilbrigðisstefnu stjórnvalda
sem gildir til ársins 2030 sé mikið
lagt upp úr skilvirkum sjúkraflutn-
ingum sem lið í því að jafna aðgengi
landsmanna að góðri heilbrigðis-
þjónustu óháð búsetu. Endurnýjun
sjúkrabifreiða og -búnaðar skipti þar
miklu máli. sbs@mbl.is
Samið um nýjar sjúkabifreiðar
Kaupa 25 nýja bíla í fyrstu lotu Að-
gengi að heilbrigðisþjónustu sé jafnað
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Bíll Alls 68 sjúkrabifreiðar verða
endurnýjaðar fyrir árslok 2022.
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
GOTT
VERÐ
ALLA DAGA
Gerið verðsamanburð
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra hleypti af stokkunum árlegu
eldvarnarátaki í gærmorgun. Sýndi
hún m.a. annars fimi sína þegar hún
slökkti elda á skólalóð Kópavogs-
skóla. Sagði hún af því tilefni frá því
að hún hafi eitt sinn þurft að kalla á
slökkviliðið þegar eldur kviknaði í
pottum í eldhúsinu hjá henni þegar
hún var að sjóða snuð. „Ég hef verið
sérstaklega passasöm síðan og það
sem við vorum að læra í dag [í gær]
var líka mikilvægt fyrir mig því það
þurfa allir að fara yfir þetta reglulega
á sínum heimilum. Hvort eldvarnir
séu í lagi því þetta getur gerst á svip-
stundu,“ segir Katrín í samtali við
mbl.is. Ráðherrann tók þátt í rýming-
aræfingu og ræddi við börn í þriðja
bekk um forvarnir á heimilum. Átak-
ið er að frumkvæði Landssambands
slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Farið er yfir helstu atriði eldvarna á
heimilinu með börnunum, svo sem
um nauðsyn þess að hafa reykskynj-
ara, slökkvitæki og eldvarnateppi á
heimilinu. Reynslan sýnir að fræðslu-
fundir með börnunum eru áhrifrík
leið til að fá börn og foreldra til að efla
eldvarnir heima fyrir.
Morgunblaðið/Hallur Már
Slekkur eld Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sýndi fimi sína þegar
hún slökkti eld með eldvarnartæki í Kópavogsskóla í gær.
Vör eftir snuðbruna
Katrín sinnti árlegu eldvarnarátaki