Morgunblaðið - 22.11.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2019
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hestamannafélagið Dreyri er að
undirbúa byggingu reiðskemmu í
hesthúsahverfinu Æðarodda á Akra-
nesi. Formaður félagsins vonast til
að framkvæmdir hefjist á næstu
mánuðum, í það minnsta rísi húsið á
næsta ári.
Reiðskemman verður 25 sinnum
50 metrar að gólfflatarmáli. Hún er
ætluð til að félagsmenn geti þjálfað
hesta sína inni að vetrinum. „Aðal-
hugsunin er sú að við höfum aðstöðu
fyrir æfingar og starf fyrir ungdóm-
inn allt árið,“ segir Ása Hólmars-
dóttir, formaður Dreyra.
Áætlað er að kostnaður við bygg-
inguna verði 120 milljónir kr., að
meðtöldum gatnagerðargjöldum til
bæjarins. Félagið leggur sjálft til 26
milljónir og Hvalfjarðarsveit 10
milljónir enda nær félagssvæðið til
beggja sveitarfélaganna. Akranes-
bær greiðir það sem upp á vantar.
Ása segir að félagið eigi ágætan sjóð
enda hafi það verið að spara fyrir
reiðskemmu í nokkur ár. Raunar séu
félagsmenn löngu orðnir óþreyju-
fullir í biðinni enda sé Akranes síð-
asti eða með allra síðustu bæjum
landsins sem ekki hafi reiðskemmu
til afnota fyrir æskulýðsstarf og
tamningamenn.
Gatan heiti Blautós
Beinast lá við að gefa reiðhöllinni
númerið 1 við Æðarodda en það hefði
þýtt að númera hefði þurft öll hest-
húsin upp á nýtt. Því var ákveðið að
búa til nýja götu sem þó verður ekki
lögð. Dreyri leggur til við bæinn að
nafn hennar verði Blautós. Það segir
Ása að sé gert með vísan til sam-
nefnds óss sem gatan liggur að en
neitar því að það hafi nokkuð með
gamlar syndir hestamanna að gera.
Ljósmynd/Ása Hólmarsdóttir
Æðaroddi Reiðhöllin verður byggð framan við hesthúsin.
Fáum aðstöðu
fyrir ungdóminn
Byltingarkennd nýjung
í margskiptum glerjum
50–65%
stærra
lessvæði
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Mér finnst aðdáunarvert að
Bændasamtök Íslands hafi tekið
þann pól í hæðina að hlusta á gras-
rótina. Það sýnir félagsþroska á
þeim stað. Ég vona að þau nái ár-
angri í viðræðunum,“ segir Þröstur
Aðalbjarnarson, bóndi á Stakkhamri
á Snæfellsnesi, um ákvörðun stjórn-
ar Bændasamtaka Íslands um að
fresta atkvæðagreiðslu meðal bænda
um endurskoðun búvörusamnings
og leita eftir viðræðum við ríkisvald-
ið um breytingar á samkomulaginu.
„Við erum hagsmunafélag bænda
og vinnum fyrir bændur. Við fengum
undirskriftalista þar sem bændur
lýsa áhyggjum yfir ákveðnum atrið-
um í samningnum. Ákveðið var að
fresta atkvæðagreiðslunni um viku
og láta reyna að það hvort við fengj-
um mögleika á breytingum,“ segir
Guðrún S. Tryggvadóttir, formaður
Bændasamtaka Íslands.
Atkæðagreiðslan hefst að
óbreyttu miðvikudaginn 27. nóvem-
ber. Fulltrúar Bændasamtakanna
hafa hafið viðræður við fulltrúa rík-
isins. „Þetta er tíminn sem við höf-
um. Það verður að koma í ljós hvort
við náum úrbótum eða ekki,“ segir
Guðrún þegar hún er spurð að því
hvort þessi tími dugi.
340 bændur höfðu á þriðjudag
skrifað undir áskorun um að aftur
verði sest að samningaborðinu. Eitt-
hvað hefur bæst við síðan og Þröstur
segir að áfram verði tekið við listum
næstu daga.
Verðlagsmál og kvótaviðskipti
Guðrún vill ekki fara út í einstök
atriði í viðræðum við ríkið. Gagnrýn-
in hefur beinst að því að ekki hafi
verið lokið við endurskoðun allra at-
riða samningsins, svo sem verðlags-
málanna, og að ekki hafi verið gengið
nógu vel frá umgjörð kvótaviðskipta.
Efna á til nýrrar atkvæðagreiðslu
um verðlagningu mjólkurafurða á
komandi vori.
Þröstur telur best fara á því að
gera ákveðnar breytingar strax til að
bændur geti átt viðskipti með kvóta
en efnt verði til atkvæðagreiðslu í
vor um heildarpakkann þegar end-
urskoðuninni verði að fullu lokið.
Kom á óvart
Guðrún segir að stjórnin hafi vitað
af ákveðinni óánægju með sam-
komulagið en undirskriftalistarnir
hafi þó komið henni á óvart. „Þegar
við gerðum samninginn töldum við
okkur vera komin með góðan samn-
ing í hendurnar,“ segir hún.
Látið reyna á hvort
breytingar nást fram
Fulltrúi óánægðra bænda vill kosningu um heildarpakka
Morgunblaðið/Eggert
Kýr Það kemur í ljós fyrir miðja næstu viku hvort samningamenn bænda ná
fram breytingum á samkomulagi um endurskoðun búvörusamnings.