Morgunblaðið - 22.11.2019, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2019
Atvinna
jakkafatajoga.is
ÁNÆGJA EFLING
AFKÖST
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Forsvarsmenn flugfélagsins Play
gera nú lokatilraun til þess að ná sam-
an hópi fjárfesta að félaginu sem von-
ir standa til að muni leggja því til 12
milljónir evra, jafnvirði um 1,7 millj-
arða króna. Heimildir Morgunblaðs-
ins herma að viðtökur fjárfesta við
uppleggi stofnendanna hafi verið
mjög tregar og að þrotlaus vinna síð-
ustu vikna hafi þokað félaginu lítt
áfram í leit að nýju hlutafé.
Nú mun stefnt að því að kalla sam-
an hóp eigenda stöndugra ferðaþjón-
ustufyrirtækja og kynna fyrir þeim
sameiginlega framtíðarsýn stofnend-
anna fyrir félagið. Standa vonir hóp-
isns til að á slíkum fundi megi byggja
upp samstöðu meðal fyrirtækjanna
um að leggja Play til fjármagn. Meðal
þess sem fundurinn á að ná fram er að
undirstrika mikilvægi þess fyrir ís-
lensk ferðaþjónustufyrirtæki að
framboð á flugleiðunum til og frá Ís-
landi verði aukið með lággjaldaflug-
félagi sem fylli með einhverjum hætti
skarðið sem WOW air skildi eftir sig.
Í síðasta lagi um helgina
Morgunblaðið hefur ekki fengið
staðfest hvenær fundurinn fer fram
en í gærdag var stefnt að því að hann
yrði haldinn í dag eða um helgina.
Miklu skiptir að sögn heimildar-
manna blaðsins að koma fjármögnun
félagsins í fastar skorður með hluta-
fjárframlagi innlendra fjárfesta.
Þann 11. nóvember síðastliðinn lýsti
Arnar Már Magnússon, forstjóri
Play, því yfir í Kastljósi í Ríkissjón-
varpinu að vonir stæðu til þess að
hægt yrði að hefja farmiðasölu innan
fárra daga og að félagið stefndi á
jómfrúarflug í desember. Enn hefur
flugrekstrarleyfi ekki verið gefið út.
Viðmælendur Morgunblaðsins, sem
hafa mikla reynslu af flugrekstri,
tengja töfina á útgáfu leyfisins beint
við það hökt sem orðið hefur á hluta-
fjársöfnuninni.
Þurfa mikið fjármagn í upphafi
Útgáfa flugrekstrarleyfis er bund-
in ströngum skilyrðum. Meðal þess
sem þar er krafist er að leyfisum-
sækjandi hafi „til afnota eitt eða fleiri
loftför í krafti eignarhalds eða samn-
ings um tómaleigu“. Play hefur gefið
það út að félagið hafi tryggt tvær vél-
ar til farþegaflutninga í upphafi
rekstrar. Sérfræðingar á flugmarkaði
segja að flugvélaleiga af þessu tagi sé
bundin ströngum skilyrðum og m.a.
framlagningu trygginga sem svari til
að minnsta kosti þriggja mánaða
leigu á vélunum. Miðað við upplýsing-
ar sem Morgunblaðið hefur birt upp
úr fjárfestakynn-
ingu Play má gera
ráð fyrir að leiga á
A320-vélum þeim
sem félagið hyggst taka í notkun nemi
um 50 milljónum á mánuði fyrir
hverja þeirra. Því þarf Play að öllum
líkindum að reiða fram 300 milljóna
króna tryggingu í tengslum við leigu
á vélunum tveimur áður en starfsem-
in kemst á fót.
Auk þessara trygginga þarf Play
að færa sönnur á gagnvart Sam-
göngustofu, útgefanda flugrekstrar-
leyfisins, að það geti hvenær sem er á
þeim tveimur árum sem líða frá upp-
hafi rekstrarins staðið við: „raunveru-
legar og mögulegar skuldbindingar
og aðrar skuldbindingar sem kann að
verða stofnað til“. Þá þarf félagið
einnig að geta í „þrjá mánuði frá upp-
hafi rekstrar staðið undir föstum út-
gjöldum og rekstrarkostnaði, sem
stofnað er til vegna starfsemi sam-
kvæmt viðskiptaáætlun og á grund-
velli raunhæfra forsendna, án þess að
tekið sé tillit til hvers konar tekna af
rekstrinum“. (Reglugerð Evrópu-
þingsins og Ráðsins nr. 1008/2008).
Telja skiptinguna óraunsæja
Morgunblaðið hefur á undanförn-
um vikum rætt við marga fjárfesta
sem forsvarsmenn Play eða Íslensk
verðbréf í þeirra umboði, hafa nálgast
í von um þátttöku í fjárfestingunni.
Hafa þeir allir lýst efasemdum um að
fjárfestar muni fást að borðinu með
12 milljónir evra gegn helmingshlut í
félaginu. Það feli í sér ofmat af hálfu
stofnenda Play að framlag þeirra
skuli metið á annað eins. Þannig sé
hlutur hvers og eins stjórnendanna
fjögurra metinn á u.þ.b. 400 milljónir
skv. fyrirliggjandi fjárfestakynningu.
Nefndi einn viðmælenda blaðsins að
sökum þess hve gríðarlega
fjárfrekur rekstur fé-
lags af þessu tagi væri
og áhættusamur, þyrfti
hlutdeild þeirra sem
legðu félaginu til 1,7 milljarða króna
að nema 80-90% af útgefnu hlutafé til
að tryggja 12 milljóna evra fjármögn-
un að félaginu.
Samkvæmt uppleggi hópsins munu
fjárfestar sem leggja fjármagn til fé-
lagsins fá helmingshlut í því, á móti
helmingshlut stofnenda og lykil-
starfsmanna.
Ekki hafa fengist upplýsingar um
hvort stofnendur Play hafi opnað á
þann möguleika, m.a. í aðdraganda
fyrrnefnds fundar sem nú er ætlunin
að halda, að breyta hlutaskiptingu
milli eigenda félagsins.
Forsvarsmenn Play biðla til
fyrirtækja í ferðaþjónustunni
Leita leiða til þess að fá fyrirtækin sameiginlega að fjármögnun flugfélagsins
Morgunblaðið/Hari
Örlagadagur Play var kynnt til sögunnar 5. nóvember síðastliðinn. Sléttu ári eftir að tilkynnt var um kaup Ice-
landair Group á WOW air. Þau kaup runnu út í sandinn. Forsvarsmenn Play, Þóroddur Ari Þóroddsson, Bogi Guð-
mundsson, Arnar Már Magnússon og Sveinn Ingi Steinþórsson, vinna nú að því að Play hefji sig til flugs.
● Hjónin Svanhild-
ur Nanna Vigfús-
dóttir og Guð-
mundur Þórðarson
seldu í gegnum fé-
lag sitt K2B 7,25%
hlut sinn í trygg-
ingafélaginu VÍS.
Voru þau þriðji
stærsti hluthafi fé-
lagsins og seldu
þau 142 milljónir
bréfa á genginu 10,96 fyrir um 1,55
milljarða króna. Þetta kom fram í til-
kynningu til Kauphallar Íslands í gær
vegna viðskipta innherja, en Svanhildur
er stjórnarmaður í félaginu. Í hlut-
hafalista VÍS sem síðast var uppfærður
30. september var Lífeyrissjóður versl-
unarmanna stærsti hluthafinn í trygg-
ingafélaginu með 8,13% hlut og næstur
kom vogunarsjóðurinn Landsdowne
partners sem fer með 7,69% hlut.
Svanhildur var áður stjórnarformaður
VÍS en sagði af sér stjórnarformennsku
í kjölfar rannsóknar héraðssaksóknara
á kaupum hjónanna og fleiri fjárfesta í
Skeljungi árið 2008. Í samtali við mbl.is
staðfesti Ólafur Þór Hauksson héraðs-
saksóknari að málið sé enn til rann-
sóknar og að yfirheyrslur hafi átt sér
stað í októbermánuði síðastliðnum.
Engin ákvörðun hefur verið tekin um
ákæru í málinu.
Svanhildur og Guðmundur selja hlut sinn í VÍS
Svanhildur Nanna
Vigfúsdóttir.
22. nóvember 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.5 123.08 122.79
Sterlingspund 158.14 158.9 158.52
Kanadadalur 91.99 92.53 92.26
Dönsk króna 18.132 18.238 18.185
Norsk króna 13.332 13.41 13.371
Sænsk króna 12.625 12.699 12.662
Svissn. franki 123.53 124.23 123.88
Japanskt jen 1.1292 1.1358 1.1325
SDR 168.44 169.44 168.94
Evra 135.52 136.28 135.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.0554
Hrávöruverð
Gull 1475.7 ($/únsa)
Ál 1734.0 ($/tonn) LME
Hráolía 60.94 ($/fatið) Brent
Eimskipafélag Íslands hagnaðist um
7,1 milljón evra á þriðja ársfjórðungi
2019, jafnvirði 965 milljóna íslenskra
króna. Þetta er hækkun um 0,8
milljónir evra á milli ára en á sama
tíma í fyrra nam hagnaður félagsins
6,3 milljónum evra, eða 862 millj-
ónum króna.
Eignir félagsins námu í lok tíma-
bilsins rúmum 526 milljónum evra,
eða jafnvirði 72 milljarða króna. Þær
hækkuðu um 7,8% milli ára, en eign-
irnar voru 488 milljónir evra á sama
tíma í fyrra.
Eigið fé Eimskips nam rúmum
237 milljónum evra í lok fjórðungs-
ins, eða 32 milljörðum króna, og
lækkaði um 2,2% milli ára. Eigið féð
var tæpar 243 milljónir evra á sama
tíma í fyrra.
Eiginfjárhlutafall félagsins lækk-
aði milli ára. Það er nú 45,1% en var
49,7% á sama tíma 2018.
Vilhelm Már Þorsteinsson for-
stjóri félagsins segist í tilkynningu
vegna uppgjörsins vera almennt
sáttur við afkomuna.
Morgunblaðið/Eggert
Flutningar Tekjur Eimskips voru 24
milljarðar á þriðja ársfjórðungi.
965 m.kr.
hagnaður
Eimskips
Eigið féð lækkar
milli ára um 2,2%
Hlutabréf í tryggingafélaginu VÍS
lækkuðu um 2,54% í kauphöll í gær
í viðskiptum upp á 1.619 milljónir
kr. Að stórum hluta til má rekja það
til sölu bréfa Svanhildar Nönnu
Vigfúsdóttur og Guðmundar Þórð-
arsonar í félaginu sem nánar er
fjallað um á síðunni. Hlutabréf Ice-
landair lækkuðu næstmest, eða um
1,48% í 60 milljóna króna við-
skiptum og standa í 7,33 kr. Sú
lækkun bætist við um 5% lækkun
bréfa félagsins á miðvikudag. Á
þriðjudag hækkuðu bréfin um tæp
10% sem rakið var til erfiðleika
með fjármögnun flugfélagsins Play
í fjölmiðlum. Hlutabréf Símans
hækkuðu mest, um 2,79% í 428
milljóna króna viðskiptum. Stendur
gengi bréfanna í 5,15 kr.
2,5% lækkun
bréfa VÍS
Samkeppnin á þeim leiðum sem Play stefnir á er síkvik og flugfélög vest-
anhafs og austan leita leiða til að styrkja stöðua sína á markaðnum. Nýj-
asta útspilið í þeim efnum kom frá SAS í liðinni viku þegar uppýst var að
félagið myndi taka A321LR-þotur í þjónustu sína 18. september á næsta
ári. Þær verða notaðar, sökum langdrægni sinnar, í beinu flugi milli Kaup-
mannahafnar og Boston í Bandaríkjunum. Fyrir þá sem vilja ferðast milli
Danmerkur og Bandaríkjanna mun því standa til boða beint flug í stað
millilendingar eins og verið hefur. SAS hyggst kynna fleiri áfangastaði
sem A321LR-vélunum verður beint inn á og nefnir félagið austurströnd
Bandaríkjanna í því sambandi, Kanada, Mið-Austurlönd og Indland.
Meðal þess sem SAS gerir út á með hinum nýju vélum er um-
hverfisvernd. Hinar nýju vélar eru sparneytnari en eldri útfærslur
og þá hlýst smærra kolefnisfótspor af beinu flugi milli fyrr-
nefndra staða en þar
sem millilenda þarf á
leiðinni.
Síkvikur markaður
KOMAST YFIR HAFIÐ ÁN MILLILENDINGAR