Morgunblaðið - 22.11.2019, Síða 14

Morgunblaðið - 22.11.2019, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Mótmælin íHongKong hafa nú staðið yfir í um fimm mánuði, og virðist nánast útséð um að þeim muni linna á næstunni af sjálfs- dáðum. Það er til merkis um al- varleika málsins að Xi Jinping, forseti Kína, hefur lýst því yfir að mótmælin tefli í hættu lof- orðinu um „eitt ríki með tveim- ur kerfum“, sem fól í sér að íbú- ar nýlendunnar myndu njóta áfram þeirra víðtæku réttinda sem breska yfirstjórnin hafði veitt þeim næstu fimmtíu árin. Það loforð er í raun ein af grunnástæðum þess að margir íbúar Hong Kong telja sig knúna til mótspyrnu. Réttindi af því tagi sem fólust í loforðinu rúmast illa innan sósíalískra stjórnarhátta, þar sem litið er á andstæða skoðun sem ógn við kerfið. Kínversk stjórnvöld hafa því þrengt að þeim réttindum með ýmsum hætti, og í raun hækkað jafnt og þétt undir þeim suðupotti sem Hong Kong er nú. Í orðum Xis felst að sjálf- sögðu sú hótun að ef mótmæl- unum linni ekki skjótt reynist nauðsynlegt fyrir stjórnvöld í Peking eða yfirstjórnina í Hong Kong að binda enda á þau með valdi, og um leið skrúfa fyrir það sem eftir er af réttindum Hong Kong. Og líkurnar á því að sú verði raunin hljóta að hafa aukist eftir að tveir létust í óeirðum síðustu viku. Hin mikla sérstaða Hong Kong innan Kína hefur hingað til haldið ákveðnum hlífiskildi yfir mót- mælendum, en mik- ið af viðskiptum og erlendri fjárfest- ingu í Kína fer í gegnum Hong Kong, einmitt vegna þess að hingað til hefur mátt treysta því að nýlendan fyrrverandi byggði á svipuðu réttarfari og leik- reglum og vestrænir við- skiptamenn Kínverja þekkja. Meðal annars má nefna að Hong Kong nýtur ákveðinna ívilnana í viðskiptum við Banda- ríkin sem meginland Kína gerir ekki, en Bandaríkjaþing sam- þykkti í þessari viku lög sem tækju fyrir þær ívilnanir ef Hong Kong teldist ekki lengur vera sjálfstæð eining innan kín- verska ríkisins, auk þess að setja viðskiptaþvinganir á þá einstaklinga sem reyndu að grafa undan mannréttindum Hong Kong-búa. Lögin bíða nú samþykkis Bandaríkjaforseta en stjórnvöld í Peking hafa mót- mælt þeim harkalega og sagt þau „grímulaus inngrip í innan- ríkismál Kína“. En mun þetta „inngrip“ Bandaríkjaþings duga sem fæl- ingarmáttur á kínversk stjórn- völd? Ætla má að lítið sé eftir af þolinmæði valdhafanna í Peking og hæpið að látið verði undan kröfum mótmælenda svo neinu nemi. Það kæmi því ekki á óvart þó að mótmælin yrðu barin nið- ur af hörku og þau réttindi Hong Kong-búar sem hafa notið yrðu afnumin fyrir fullt og allt. Kínversk stjórnvöld hóta Hong Kong og taka illa í ný lög frá Bandaríkjaþingi} Þolinmæðin að þverra Enginn endirvirðist vera á stjórnarkreppu þeirri sem myndast hefur í Ísrael, eftir að ljóst varð að hvorki Benjamín Netanyahu forsætisráðherra né Benny Gantz, formaður Bláhvíta bandalagsins, mun að óbreyttu ná að mynda starfhæfa rík- isstjórn. Munar þar mestu um að Avigdor Lieberman, fyrrver- andi varnarmálaráðherra lands- ins, hefur útilokað að hann muni mynda meirihluta með annarri hvorri blokkinni, en úrslit síð- ustu kosninga settu Lieberman í kjörstöðu. Nú fara í hönd þrjár vikur þar sem hvaða þingmaður sem er getur myndað stjórn ef hann getur sýnt fram á að hann hafi meirihluta þingmanna, eða 61 af þeim 120 sem kosnir eru til ísr- aelska þingsins. Það er hins vegar hægara sagt en gert, en helsti hvatinn sem gæti ýtt und- ir óvænta stjórnarmyndun er sú staðreynd að náist það ekki verður boðað til nýrra kosninga, þeirra þriðju á innan við ári. Einn möguleikinn er sagður vera þjóðstjórn á milli Likud-bandalags Netanyahus og Bláhvítra, en ljóst er að langt er á milli forsætisráðherrans og Gantz, svo að slíkt samstarf yrði snúið. Þá flækir málin að í gær kom fram að Netanyahu yrði sóttur til saka fyrir meinta spillingu, en Gantz sótti mjög hart að forsætisráðherranum vegna þeirra mála í kosninga- baráttunni. Gantz hefur í raun nær úti- lokað að hann vilji vinna með Netanyahu, en hefur sagst reiðubúinn að íhuga þjóðstjórn ef Likud-flokkurinn skipti um mann í brúnni. Þar á bæ eru menn skiljanlega ekki hressir yfir slíkum kröfum frá stjórn- arandstöðunni, sem síst eru fallnar til sátta. Aðstæður eru þannig í stjórn- málum í Ísrael að þessu sinni að þær kalla á lausnir sem annars hefðu ekki komið til greina. Þess vegna er þrátt fyrir allt ekki útilokað að ný ríkisstjórn verði mynduð áður en boða þarf til þriðju kosninganna í Ísrael. Hnúturinn í Ísrael virðist óleysanlegur en þó er enn von} Verður kosið enn einu sinni? Í slendingar hafa náð góðum árangri í efnahagsmálum á undanförnum ár- um. Skuldir ríkisins hafa helmingast frá árinu 2012 og svigrúm hefur myndast til skattalækkana. Rík- isstjórnin boðar lækkun tekjuskatts á næsta ári. Sú lækkun mun leiða til þess að ráðstöf- unartekjur þeirra tekjulægstu munu hækka um rúmar 120 þúsund krónur á ári. Þá verður dregið úr álögum á fyrirtæki með lækkun tryggingagjaldsins. Það er ástæða til að fagna þessum áformum enda hafa skattalækkanir lengi verið á stefnu- skrá Sjálfstæðisflokksins. En ávallt getum við þó spurt, er nóg að gert? Má ekki taka ákveðna skattstofna til gagngerrar endur- skoðunar? Þetta á ekki aðeins við um tekju- stofna ríkisins heldur einnig sveitarfélag- anna. Nefna má fasteignaskattinn í þessu sambandi en hann er næststærsti tekjustofn sveitarfé- laga á eftir útsvarinu. Fasteignaskattur ákvarðast af áætluðu markaðs- verðmæti fasteignar. Þetta mat er framkvæmt af Þjóð- skrá Íslands. Á grundvelli fasteignamatsins hafa tekjur sveitarfélaga – og um leið útgjöld heimilanna – af fast- eignaskatti hækkað mjög verulega á síðustu árum vegna hækkandi fasteignaverðs. Á milli áranna 2017og 2018 hækkaði heildarmat fasteigna á Íslandi um 12,8% en fyr- ir árið 2020 er hækkunin rúm 6%. Samtals nema tekjur sveitarfélaganna af innheimtu fasteignaskattsins vel yfir 40 milljörðum króna á ári. En er eðlilegt að sveiflukennt og áætlað söluverðmæti eignar myndi skattstofn? Að skattstofninn hækki vegna þess eins að það er húsnæð- isbóla í hagkerfinu? Hjá flestum er eignin er sú sama, nýting hennar hefur ekkert breyst og þjónusta sveitarfélagsins óbreytt. Í þessu felst að gengið er á eign þeirra sem búa í eigin húsnæði. Ef eignin er leigð út hækkar leigu- verðið. Skatturinn hækkar vegna þess að önn- ur hús hafa áhrif til hækkunar á áætlað sölu- verð fasteignarinnar. Framangreint fyrirkomulag hefur leitt til þess að tekjur sveitarfélaga af skattinum hafa hækkað sjálfkrafa um tugi prósenta á örfáum árum. Greiðendur skattsins sjá að vísu hærri tölur á blaði varðandi verðmæti eignarinnar en það er sýnd veiði en ekki gefin. Aðeins er um matskennda áætlun að ræða en ekki raun- veruleg verðmæti sem skattgreiðandinn get- ur nýtt sér. Hækkunin tengist ekki aukinni þjónustu. Staðreyndin er sú að álögur á viðkomandi hafa aukist og hann hefur minna á milli handanna ár frá ári vegna skattheimtunnar. Margar Evrópuþjóðir hafa afnumið skatta af þessu tagi. Norðurlandaþjóðir miða slíka álagningu við 70-80% af áætluðu fasteignamati og styðjast auk þess við lægra skatthlutfall. Þegar stefnt er að auknu gagnsæi, festu og fyrirsjáanleika í allri skattheimtu hljótum við að finna sanngjarnari leið en matskennt markaðsverðmæti fast- eigna til að afla sveitarfélögunum tekna. aslaugs@althingi.is Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Sjálfkrafa skattahækkun Höfundur er dómsmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is Fimmta hvert heimili áleigumarkaði var undirlágtekjumörkum á síðastaári samanborið við 6% heimila í eigin húsnæði, samkvæmt niðurstöðum lífskjararannsóknar Hagstofu Íslands. Henný Hinz, aðal- hagfræðingur Alþýðusambands Ís- lands, segir niðurstöðurnar ekki koma á óvart og vera í raun afleið- ingu óviðunandi húsnæðisúrræðis fyrir tekjulága hópa. „Þessar tölur eru ákveðin stað- festing á því sem við höfum séð með ýmsum vísbendingum á síðustu árum,“ segir Henný. Lágtekjuhlutfallið hefur ávallt verið hærra meðal leigjenda en með- al fólks sem býr í eigin húsnæði frá því að mælingar hófust árið 2004. Hlutfallið meðal leigjenda í fyrra var það sama og árið 2014, þegar það mældist 20%, og er það lægsta hlutfall frá upphafi mælinga. Hlutfall eigenda undir lágtekju- mörkum fór hæst í 11% árið 2007 en var lægst árin 2011 og 2012 þegar það var um 5%. Frá því að mælingar hófust hefur hlutfall leigjenda undir lágtekjumörkum verið 25% að meðaltali, en hæst fór það í 32% árið 2009. Hvatinn að almenna íbúðakerfinu Henný segir niðurstöður frá hruni vera hvatann að því að koma á fót almennu íbúðakerfi. „Þetta er í samræmi við það sem við höfum ver- ið að halda fram á síðustu árum og er meðal annars hvatinn að því að við lögðum gríðarlega mikla áherslu á að byggja upp félagslegt hús- næðiskerfi fyrir nákvæmlega þenn- an hóp, sem er almenna íbúðakerfið. Við sáum vísbendingar um þetta fyr- ir alllöngu og við teljum þetta meðal annars vera afleiðingu af því að það hafi ekki verið viðunandi húsnæðis- úrræði fyrir tekjulága hópa,“ segir hún og bætir við að ASÍ vilji sjá hlut- fallið lækka enn frekar. „Þess vegna teljum við mikil- vægt að halda áfram að byggja upp öruggar húsnæðislausnir á viðráðan- legum kjörum fyrir þessa hópa.“ Slíkar aðgerðir eru í farvatninu en meðal tillagna átakshóps um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismark- aði, sem kynntar voru í upphafi árs, er að hluti af uppbyggingu íbúða til að mæta óuppfylltri íbúðaþörf verði innan kerfis almennra íbúða með því að ríki og sveitarfélög auki fjárveit- ingu í stofnframlög á næstu árum. Skref í rétta átt „Það er skref í rétta átt að við erum komin með almenna íbúða- kerfið sem hefur það að skilgreindu markmiði að byggja upp öruggt leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði fyrir tekjulága hópa. Það kerfi er rétt að komast á fæturna núna, það mun bætast inn í það á næstu árum og það mun skipta máli,“ segir Henný. Það eitt og sér dugar þó ekki til að hennar mati. „Við munum áfram þurfa að huga að því að bæta hús- næðisbótakerfin og fjölga val- kostum. Almenna íbúðakerfið er fyr- ir tiltölulega þröngan hóp, sem þó á ekki aðgang inn í félagslegt húsnæði sveitarfélaganna. Við munum áfram þurfa að huga að því að byggja upp fjölbreyttar húsnæðislausnir sem tryggja húsnæðisöryggi og viðráðanlegan húsnæðiskostnað því þetta tvennt er svo sam- tengt. Um leið og húsnæð- iskostnaður er ekki við- ráðanlegur býr fólk ekki við húsnæðisöryggi.“ Afleiðing óviðunandi húsnæðisúrræðis Árið 2018 voru 9% íbúa á Ís- landi undir lágtekjumörkum eða um 31.400 einstaklingar sem bjuggu á um 16 þúsund heimilum. Lágtekjuhlutfall er hlutfall einstaklinga sem eru með ráðstöfunartekjur undir lágtekjumörkum. Hlutfallslega færri voru und- ir lágtekjumörkum hérlendis árið 2018 en á Norðurlöndun- um þar sem hlutfallið var 16- 18%. Þegar litið er til skorts á efnislegum gæðum reyndust 4% einstaklinga búa við skort og 0,7% búa við veru- legan skort árið 2018. Þetta er lækkun frá árinu 2016 þegar 6,1% bjó við skort og 1,9% við verulegan skort efnislegra gæða. 4% íbúa búa við skort LÆGRA HLUTFALL EN Á NORÐURLÖNDUNUM Henný Hinz hjá ASÍ. Hlutfall heimila undir lágtekjumörkum 2004-2018 eftir stöðu á húsnæðismarkaði 40% 30% 20% 10% 0% Í eigin húsnæði Í leiguhúsnæði '04 '05 '06 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 Heimild: Hagstofa Íslands Fimmta hvert heimili á leigumarkaði undir lágtekjumörkum Sex prósent heimila í eigin húsnæði undir lágtekjumörkum Þriðja hvert heimili á leigumarkaði undir lágtekjumörkum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.