Morgunblaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 19
mánuðir reyndust honum erfiðir en aldrei missti hann móðinn og alltaf var glettnin og jákvæðnin í fararbroddi. Að leiðarlokum kveðjum við þennan kæra vin og þökkum samfylgdina. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Helga Benediktsdóttir og Jónas R. Jónsson. Það er með miklum þunga og söknuði sem ég sest niður og rita hér hugleiðingar um minn ein- staklega góða vin, Jón Emil Árna- son, sem féll frá miðvikudaginn 6 nóvember sl. Við Jón gengum saman lífsins götu í rúman áratug og strax við fyrstu kynni tókst með okkur góð- ur vinskapur sem í áranna rás dafnaði og varð betri og dýpri þeg- ar á leið. Sameiginleg ganga okkar kom til vegna þekkingar Jóns á flugrekstri og því sem honum tengist erlendis. Þá starfaði hann lengi vel í slökkviliðinu á Keflavík- urflugvelli og sinnti þar hlutverki aðalvarðstjóra og trúnaðarmanns enda var hann ævinlega þannig að hann vildi veg sinna samstarfs- manna og vina sem og fjölskyldu sem bestan. Er ekki ofsagt að hann hafi látið hagsmuni þeirra sem næst honum stóðu og honum þótti vænt um, hafa forgang fram yfir sig sjálfan og lýsir þessi af- staða hans mínum fallega vini Jóni vel. Jón var einstakur maður í flesta staði. Húmorískur og orðsnjall, snöggur til athafna, úrræðagóður, fylginn sér, bóngóður, verndandi, einstaklega kærleiksríkur og hvað vini hans snerti, sannur í alla staði og ævinlega trúr. Þá var vinur minn ákaflega stoltur af sinni fjöl- skyldu og þreyttist aldrei á því að tala fallega um börnin sín, bræð- urna alla og gullmolann sinn, hana Ellu sína sem hann kynntist seint á lífsleiðinni og gerði seinni hluta ævinnar svo góðan og hamingju- ríkan sem raun bar vitni. Til er sannmæli sem lýsir þessu vel: „Ástfanginn kynnist maður betri hliðinni af sjálfum sér.“ Veit ég fyrir víst að hann Jón minn hefði glaður tekið undir þetta enda upp- lifði ég það að sjá hans lífsins gleði aukast til muna þegar leiðir þeirra hjóna lágu saman forðum daga. Það er ótrúlega margt sem leit- ar á hugann þegar maður horfir til baka og rifjar upp með sér allt það sem við Jón höfum tekist á við saman og óhætt að segja að hann hafi verið uppspretta mikils fróð- leiks og þekkingar sem hann miðl- aði til mín af nærgætni en umfram allt í mikilli vinsemd. Við Jón átt- um saman drauma um ýmis verk- efni sem við unnum að saman og er harmur að vita nú að hann skuli ekki sjá þau klárast enda honum ekki eðlislægt að ganga frá neinu ókláruðu verki. Eftir situr þó stað- festa þeirra sem að þessu unnu með honum að ljúka þessu öllu, ekki síst til að heiðra minningu hans og láta drauma hans rætast með okkur. Elsku hjartans vinur minn. Ég þakka þér fyrir allt og get ekki með neinum sanngjörnum hætti sagt hversu mikið þín verður saknað. Minningin um þig mun þó lifa áfram með mér og taka nú við því hlutverki að ylja mér og um- breyta söknuðinum yfir í gleðina fyrir þeim samverustundum sem við fengum að njóta saman og sem ég verð þér svo ævinlega þakklát- ur fyrir. Ég og eiginkona mín, Anna Silfa Þorsteinsdóttir, sendum henni Ellu þinni og fjölskyldunni allri okkar einlægustu samúðar- kveðjur með bæn til þess sem allt gefur og allt heyrir. Hann styrki ykkur öll, umvefji og huggi, á þessum erfiða tíma. Egill Örn Arnarson Hansen.  Fleiri minningargreinar um Jón Emil Árnason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2019 ✝ Gabríel Jae-lon Skarpaas Culver fæddist í Reykjavík 17. júlí 1998. Hann lést 9. nóvember 2019. Hann var sonur Evu Skarpaas og Lawrence Culver, barnabarn Gerd Skarpaas og Ein- ars Stefáns Ein- arssonar. Gabríel var alinn upp af móður sinni til rúmlega þriggja ára ald- urs, þá kynntist hún Þórólfi Inga Þórssyni sem gekk Gabríel í föðurstað. Við bætt- ust afi og amma í Keflavík, Þór Helgason og Cornelía Ingólfsdóttir (d. 2010). Eva og Þórólfur eignuðust tvær dætur, þær Lilju Skarpaas Þórólfsdóttur, f. 2007, og Sonju Skarpaas Þórólfsdóttur, f. 2011. Foreldrar Gabríels skildu árið 2015. Síð- ustu ár Gabríels stækkaði fjöl- skylda hans enn meir þegar Eva kynntist Þóri Jónssyni og við bættust börn Þóris í systkinahóp Gabríels, Helena María, Heiðar Ingi og Ragnheiður Gréta. Gabríel var í Langholts- skóla, útskrifaðist sem stúd- ent frá Menntaskólanum við Sund og var Þróttari. Útför Gabríels fer fram frá Langholtskirkju í dag, 22. nóvember 2019, klukkan 13. Elsku strákurinn minn. Loksins get ég sett mig í spor- in þín. Sársaukinn við að missa þig er óbærilegur, alveg eins og sársaukinn þinn síðustu mánuð- ina. Eini munurinn, hugur minn er frískur og ég veit að þetta verður ekki alltaf svona. Annars myndi ég líka velja hvíldina. Í örvæntingunni leita ég að táknum og rökum til að komast í gegnum það sem er ekki hægt að komast í gegnum. Þegar ég var aðeins eldri en þú og á svo vond- um stað í lífinu komstu til mín og breyttir öllu. Krossgöturnar mínar, tilgangurinn sem mig vantaði til að halda áfram, ham- ingjan holdi klædd, svo pínulítill í faðminum á mér. Elsku fallegi strákurinn minn, þá vorum við bara tvö í litlu íbúð- inni minni, áttum ekkert og það skipti ekki máli því þarna skildi ég leyndarmálið að lífshamingj- unni. Og þó að ég sé svo óend- anlega sorgmædd núna þá er ég samt glöð. Og þakklát. Við vorum svo lánsöm, fundum pabba þinn, fundum vini, vorum elskuð og elskuðum. Ég og þú, áttum bara hvort annað og eignuðumst svo allan heiminn. Og þegar þú týndir þér, ástin mín. Hversu aum og gagnslaus, þegar barnið mitt grætur í fang- inu á mér og segist vera ekkert, það sé allt tómt, hann sé búinn að skemma hausinn sinn. Þetta lagast ekki, mamma. Nei! Hvernig finnur maður tilgang í lífinu fyrir einhvern annan? Hvernig elskar maður einhvern sem er lamaður nógu mikið til að hann standi upp? Hvar er lausnin sem hefði dugað? Við sem elskum þig huggum hvert annað og spyrjum okkur hvort við höfum ekki örugglega leitað allra leiða til að hjálpa stráknum okkar. Endalaus ást, knús, hughreystingar, rökræður, ýta, toga, gráta, öskra, skamma, læknar, lyf, Píeta ... Var hægt að gera eitthvað meira, eitthvað annað? Ég hleyp í rokinu, rign- ingunni og myrkrinu og hugsa allt í einu að kannski hefði ég átt að gefa þér hund? Þig langaði ekkert í hund. Ég hendi mér inn í sorgina, læt grípa mig og hugga. Deili, því ég get ekki borið ein. Hlýja mér við minningar annarra og falleg orð. En í myrkrinu á morgnana leyfi ég mér að hugsa ... ég elsk- aði hann lengst, ég elskaði hann best og ég elskaði hann mest. Mamma. „Pabbi, ég sakna Gabríels.“ Þetta var það fyrsta sem Sonja yngri systir þín sagði við mig morguninn eftir að við vissum að þú hefðir yfirgefið okkur. Ég er ótrúlega heppinn að hafa fengið að kynnast þér og ganga þér í föðurstað eftir að ég og mamma þín kynntumst þegar þú varst rúmlega þriggja ára. Þetta var mín fyrsta reynsla af því að ala upp barn, þú tókst mér ótrúlega vel og við náðum vel saman. Á laugardagsmorgnum þegar mamma þín var í skólan- um þá fór ég með þig út að hjóla að skoða leikvellina í hverfinu og við lékum okkur saman. Ég minnist líka þegar við vorum í feluleik í Bugðulæknum og þú gast í fyrsta skipti talið upp í 30. Þvílík gleði þegar þú fékkst bláa hjólið þitt í sex ára afmæl- isgjöf, þú stóðst stoltur og brost- ir þínu allra breiðasta. Frá fyrstu stundu náðir þú vel saman við afa Þór og ömmu Kollý í Keflavík, sem tóku þér opnum örmum, svo glöð að hafa eignast annað barnabarn. Þú gistir oft hjá ömmu og afa í Keflavík, bakaðir pönnsur í morgunmat með afa og bjóst til ógeðsdrykk úr mjólk og sósum úr ísskápnum fyrir ömmu til að smakka. Aðalfjörið var að sjá ömmu gretta sig þegar hún smakkaði drykkinn. Þú varst sannkallaður gleðigjafi, Gabríel gleðigjafi var réttnefni fyrir þig. Ég minnist líka allra stund- anna þegar við röltum niður að leikskólanum Sunnuási og fórum í körfu, á lítilli körfu sem var fest upp við einn vegginn. Þú varst alltaf að reyna að troða, gast ekki beðið eftir að stækka svo þú gæt- ir það, loksins kom að því. Það var líka um það leyti sem ég átti ekki séns í að vinna þig í skotkeppni, þú varst svo ótrúlega hittinn. Við fórum líka í fótbolta heima með grjónabolta þar sem hurð- aropin voru mörkin, það var gaman. Líka þegar við fórum á Þróttaravöllinn, ég í marki og þú að þruma boltanum. „Gabríel, geturðu skotið að- eins lausar,“ man ég eftir að hafa beðið þig um. Íþróttir áttu mjög vel við þig, þú þurftir ekkert að hafa fyrir þessu, mér fannst þú samt alltaf bestur í handboltan- um, hittinn og skotfastur, þið voruð líka svo flottur hópur strákarnir í Þrótti. Á unglingsárunum minnkuðu samverustundir okkar, svo þegar ég og mamma þín skildum þegar þú varst 17 ára hittumst við sjaldnar, þú varst líka kominn í menntaskóla og vinir og félagslíf tók við, skiljanlega. Sem foreldri á maður von á þessu, ég beið bara eftir að þú kæmir til baka seinna á lífsleiðinni. Ég er þakklátur og að hafa haft þig hjá mér síðustu vikurn- ar, þú varst duglegur að hjálpa mér að koma mér fyrir í nýja húsinu. En gleðigjafinn Gabríel var horfinn. Ég er þakklátur fyrir síðasta kvöldið okkar, ég, þú, Lilja og Sonja að undirbúa matinn sam- an, borða saman og horfa á mynd saman, öll saman. Við söknum þín öll, ég sakna þín. Þú varst góð manneskja. Hvíl í friði. Ég elska þig. Pabbi. Ég man eins og gerst hafi í gær okkar fyrstu kynni, þið bjugguð á Bugðulæknum, við komum þangað í okkar fyrstu heimsókn, ég var nýsestur þegar mamma þín kom með þig þriggja ára snáðann, stillti þér upp fyrir framan mig og sagði: „Gabríel, þessi maður heitir Þór og hann er pabbi hans Þórólfs.“ Þarna varstu skilinn eftir hjá mér, þú horfðir á mig smástund og spurðir svo: „Kanntu að lesa?“ Ég kinkaði kolli, þú fórst burt en komst að vörmu spori með bók með þér, komst upp í kjöltu mína og sagðir: „Nú getur þú lesið þetta fyrir mig.“ Þarna hófst okkar vinátta sem aldrei bar skugga á og ekki leið á löngu þar til þú fórst að kalla mig afa Þór. Svo voru ferðirnar þegar þú komst til okkar í Keflavík og vildir fá að gista. Þú hafðir gam- an af að stússast í ýmsu, við fór- um stundum á bryggjuna að veiða, ég man að fyrsti fiskurinn sem þú dróst var krossfiskur. Áfram hélst vináttan, þú hringdir oft í mig og baðst mig að skutla þér hitt og þetta, til dæmis í Jóa Útherja, bara til að skoða fótboltamyndir sagðir þú. Eftir dágóða stund kom spurning: „Afi, ertu með kortið þitt?“ Svo var stundum farið í Kringluna og kíkt í dótabúð, svo kom spurning: „Kostar þetta mikið?“ Svo fórstu í íþróttir, það var gaman að fylgjast með þér í fót- boltanum. Svo komu unglingsár- in, í hvert skipti sem ég kom í heimsókn fagnaðir þú mér með knúsi. Í skólalok hringdir þú allt- af í mig og last upp fyrir mig ein- kunnirnar. Síðan kom að því að þú fórst út á vinnumarkaðinn og það var gott að leita til þín með smáað- stoð heima fyrir. En svo kom að því síðasta sumar að mér fannst eins og það væru að koma brestir í sálartetr- ið, það var eins og smám saman færi gleðigjafinn minn að fölna. Ég áttaði mig ekki á því að þitt lífsins ljós var að fölna. En nú er sálin laus frá lík- amanum og flögrar um í eilífu ljósi. Afi Þór. Við Gabríel kynntumst í sex ára bekk í Langholtsskóla og höfum verið bestu vinir síðan þá. Það er ekki auðvelt að kveðja góðan vin eins og þig, Gabríel minn. Við höfum brallað ýmislegt saman í gegnum tíðina og ófáar eru vitleysurnar sem við höfum lent í. Mér líður eins og það hafi verið í gær þegar afi þinn skutl- aði okkur út um allar trissur, brunandi um í „fluggírnum“, sem okkur fannst svo ógeðslega gam- an og töff. Við eigum óendanlega margar minningar sem ég mun aldrei gleyma og þykir svo vænt um. Ég man svo vel þegar við vorum í skíðaferðinni í 10. bekk og okkur fannst góð hugmynd að fara „off road“ í púðrið en lentum bara í sjúkasta klaka sem sögur fara af. Við runnum niður tæpa 200 metra og fórum svo hratt að það kom gat á úlpurnar okkar. Við rétt sluppum við að lenda á risastórum steinum, sem betur fer. Váá hvað við vorum hræddir. Þú varst svo glaður og smit- aðir alla af gleði í kringum þig og þess vegna er svo ósanngjarnt að þurfa að kveðja þig svona snemma. Þú varst alltaf tilbúinn að rífa mann upp þegar maður var lítill í sér og peppa mann upp. Þú vildir alltaf vera að gera eitthvað og duglegur að draga mann í einhver ævintýri. Margar hugsanir og endur- minningar fljúga í gegnum hug- ann. Ég mun aldrei fyrirgefa mér að hafa ekki tekið eftir hvað þér leið illa og að geta ekki knúsað Culverinn minn aftur. Það mun ekki líða sá dagur sem ég mun ekki hugsa til þín og ætla að gera allt sem ég get til að heiðra minn- ingu þína. En ég trúi að þú sért á betri stað núna, sitjandi alsæll í aux- inu með frosin ber eða góðan nammipoka í hönd. Ég veit að þú munt passa upp á mig það sem eftir er, elsku verndarengillinn minn. Þinn elsku vinur Breki Ben. Til þín, Gabbi: Ég er nokkuð viss um að ég tali fyrir hönd margra úr okkar vinahópi þegar ég segi að ég sef ekki rótt þessa dagana. Mér er ekki heldur rótt þegar ég vaki. Af því að þú ert farinn og kemur aldrei aftur. Ekki datt mér í hug að ég ætti eftir að fylgja vini mínum til grafar svona ungur. Ég er vanur því að slíkt komi aðeins fyrir annað fólk. Við brotthvarf þitt erum við harkalega minnt á að enginn veit hvað gerist næst í þessu lífi. Það er bæði gott og sárt að rifja upp ótal skemmtilegar sam- verustundir. Ég man vel þann dag er við hittumst fyrst fyrir hálfgerða tilviljun í kringum tólf ára aldurinn. Það leið ekki á löngu þar til við vorum saman hvern einasta dag frá morgni til kvölds. Við vorum eins og nokk- urs konar samloka, okkar vinátta var einstök og við pössuðum saman eins og púsl. Það er dýr- mætt að eiga slíka vináttu og fyr- ir hana er ég þakklátur. Við vor- um lengi vel samtaka í öllum þeim uppátækjum sem tilheyra unglingsárunum, hvort sem það var fikt við tóbak, stelpumál eða eitthvað annað. Enn er blekblett- ur í sófanum mínum eftir að við fengum okkur saman fyrsta húð- flúrið, 104, að sjálfsögðu. Ég vona að þessi blettur hverfi aldr- ei, því ég mun hugsa til þín í hvert skipti sem ég rek augun í hann. Við höfum upplifað saman bæði súrt og sætt í gegnum árin. Það er erfitt að hugsa til allra skiptanna sem við ræddum um framtíðina og það nístir hjarta mitt að þurfa að sætta mig við að í framtíðinni verðir þú einungis til í minningum mínum. Í stað þess að vera þar með mér. Elsku Gabbi, ég vildi óska þess að ég þyrfti ekki að kveðja þig svona snemma á lífsleiðinni, en þó að þú sért horfinn úr þessu jarðlífi munt þú lifa áfram í minningum mínum. Ég ætla að muna þig til æviloka. Ég vildi óska að við gætum átt góðar stundir saman seinna á lífsleið- inni sem gamlir karlar, eins og við töluðum oft um. Hjarta mitt hefur aldrei verið í jafn mörgum molum og það er núna. Laugar- dalurinn grætur. QB að eilífu. Hvíldu í friði. Þinn vinur, Kristinn. Gabríel kom til starfa hjá okk- ur í Sportís síðastliðið sumar. Hann var fljótur að tileinka sér starfið og naut sín vel við að þjónusta viðskiptavinina. Hann var sérstaklega ljúfur, bóngóður og kurteis í allri fram- komu og féll vel inn í hópinn. Það er ótrúlegt að hann skuli nú hafa kvatt þennan heim svona ungur. Mikil sorg ríkir nú í brjósti okkar og hugur okkar er hjá Evu, Þórólfi, dætrum og öllum ástvinum hans. Megi yndislegar minningar sefa þeirra miklu sorg. Fyrir hönd starfsfólks Sport- íss, Skúli Björnsson. Gabríel Jaelon Skarpaas Culver  Fleiri minningargreinar um Gabríel Jaelon Skarpaas Culver bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. flutningar á leið heim, það sem við hlógum. Allar göngurnar okkar kringum Hvaleyrarvatn með pabba. Svo í seinni tíð allir bíltúr- arnir okkar, það voru okkar gæða- stundir þar sem börnin mín fengu að njóta. Þá var keyptur ís, og gömlu hverfin í Hafnarfirði þrædd meðan minningarnar streymdu. Öll samtölin okkar um lífið og til- veruna sem ég er svo heppin að eiga á upptöku. Öll jólin okkar saman og það sem ég er þakklát fyrir að hafa verið með þér á að- fangadag í fyrra. Ég gæti lengi talið upp en þegar allt kemur til alls þá eru það oft litlu hlutirnir og orðin sem skipta svo miklu máli. Sama hvort við hittumst eða heyrðumst í síma spurðir þú alltaf „eru börnin hjá þér eða pabba sín- um“ þú vildir alltaf vita af þeim. Síðustu tvö árin bjóstu á Hrafn- istu, það sem þér þóttu annmark- ar þess að vera gömul og bundin hjólastól hroðalega leiðinlegir á stundum, þá þurfti oft lítið til að gleðja þig. Kíkja inn og drekka með þér kaffi, spjalla, segja þér frá dagsins amstri og minnast gamalla tíma var nóg, þú tókst gleði þína á ný og fannst lífið og annmarkarnir ekki svo slæmir enda hugsaði starfsfólkið á Hrafn- istu einstaklega vel um þig og þú varst svo þakklát fyrir það. Að lokum langar mig að segja við þig, mamma mín: Takk fyrir að vera mér sam- ferða. Takk fyrir að vera mér ávallt stuðningur. Takk fyrir að vera jafningi minn. Takk fyrir að kenna mér. Takk fyrir að grípa mig þegar ég átti í mestum krísum lífs míns. Takk fyrir að leiða mig. Takk fyrir ástina, umhyggjuna og öryggið sem þú veittir. Takk fyrir að tuða stundum yfir vitleysunum og leyfa mér. Takk fyrir að hlæja með mér og hafa húmorinn í lagi. Takk fyrir að vera kunningi vin- kvenna minna í denn. Takk fyrir að vera ferðafélagi minn erlendis og hérlendis. Takk fyrir að koma Tálknafirði inn í blóðið á mér. Takk fyrir að gefa mér öll systkin mín, þau eru best. Takk fyrir að vera alltaf svona stolt af mér. Takk fyrir að kenna mér hvað minningarnar skipta miklu máli. Takk fyrir að vera amma barna minna og vera alltaf inni í þeirra lífi. Takk fyrir samfylgdina, elsku hjartans mamma mín. Takk fyrir að halda í höndina á mér og leyfa mér að sofa við hlið þér þegar þú tókst þinn síðasta andardrátt. Ég, Emma Lind og Emil Örn elskum þig svo mikið endalaust, sendum fallegustu hugsanir sem hægt er til þín og pabba í Sum- arlandið. Þín dóttir Málfríður (Fríða). Elsku mamma mín. Ég minnist þín með ljóðum Guðrúnar Jóhannsdóttur frá Brautarholti. Við kveðjum þig með tregans þunga tár sem tryggð og kærleik veittir liðin ár. Þín fórnarlund var fagurt ævistarf og frá þér eigum við hinn dýra arf. Móðir, dóttir, minningin um þig er mynd af því sem ástin lagði á sig. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Blessuð sé minning þín. Þín dóttir Sigurveig Sjöfn.  Fleiri minningargreinar um Sólveigu Guðmunds- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.