Morgunblaðið - 22.11.2019, Page 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2019
Gefðu slökun í jólagjöf
Líkamslögun
25%afslátturaf gjafakortum
Gjafakortin fást í
likamslogun.is/vefverslun
Nýbýlavegur 8 (Portið) 200 Kópavogur | sími 777 6000 | likamslogun.is
40 ára Karl er Hólm-
víkingur en býr í Ár-
bænum í Reykjavík.
Hann er með BS-gráðu
í tölvunarfræði fra HR
og vinnur við hugbún-
aðargerð hjá Arion
banka.
Maki: Andrea Stefanía Björgvinsdóttir, f.
1972, kerfisfræðingur hjá Íslandsbanka.
Börn: Ívar Nói, f. 2008, og stjúpdóttir er
Emilía Rán, f. 1996.
Foreldrar: Kristján Jóhannsson, f. 1955,
vélsmiður, og Bára Karlsdóttir, f. 1956,
matreiðslumaður og rekur veitingastað-
inn Cafe Riis á Hólmavík. Þau eru búsett
þar.
Karl Elinías
Kristjánsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er ástæðulaust að ganga um
með sorgarsvip. Þakkaðu heldur fyrir það
sem þú hefur og átt. Einhver ruglar þig í
ríminu.
20. apríl - 20. maí
Naut Dylgjur af ýmsum toga kunna að
koma upp á yfirborðið í dag. Láttu þær sem
vind um eyru þjót. Tækifæri gefst til ferða-
lags fljótlega.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vertu viðbúin/n því að komast að
ýmsu óvæntu. Listsköpun þín nær út fyrir
landsteinana. Ekki leggja árar í bát þó móti
blási.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gættu þess að skapa ekki stærri
vandamál með framkomu þinni heldur en
þau sem þú ætlar að leysa. Þú rennir blint í
sjóinn með bílakaup.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú færð snjalla hugmynd um hvernig
losa má vinnustaðinn við óþarfa og drasl.
Það eru stórtíðindi í vændum í stórfjöl-
skyldunni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það hefur ekkert upp á sig að stytta
sér leið í gegnum vandann. Einhver kemur
til þín með skottið á milli lappanna og vill
fyrirgefningu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Auðvitað þarftu að styrkja þau sam-
bönd sem eru þér til góðs. Grasið er ekkert
grænna hinum megin.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Reyndu að halda ró þinni þó að
þér sé ekki hlátur í hug. Einhvern tíma verð-
ur að klippa á naflastrenginn milli fólks.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Í dag ættir þú að skoða hvernig
þú kemur fram við aðra. Leggðu þitt af
mörkum til að bæta umhverfi þitt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Stoltið kemur oft í veg fyrir að þú
náir markmiðum þínum. Allt sem þú kaupir
þarf að hafa langan endingartíma, finnst
þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Spilaðu rétt úr þeim spilum sem
lífið hefur gefið þér. Hlustaðu á þá sem eldri
eru og dragðu lærdóm af því sem þeir
segja. Þú þarft ekki að finna upp hjólið aft-
ur.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Málflutningur þinn fellur í góðan
jarðveg einkum vegna þess hversu skýr-
mælt/ur og ákveðin/n þú ert. Vonin er það
sem heldur öllu gangandi.
og finnst fátt skemmtilegra en að
vera með sög og hamar í hendi og
smiðssvuntuna reyrða um mig. Þar
„Áhugamálin eru margs konar, ég
er dómadagsiðnaðarmaður, hef
tvisvar byggt hús fyrir fjölskylduna
Þ
orsteinn Víglundsson er
fæddur 22. nóvember
1969 á Seltjarnarnesi og
ólst þar upp og bjó fram
yfir tvítugt.
Þorsteinn gekk í Mýrarhúsaskóla,
Valhúsaskóla og varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1990.
Hann var einn vetur skiptinemi í
Colorado í Bandaríkjunum. Hann
lauk BA-prófi í stjórnmálafræði við
Háskóla Íslands 1995, er AMP frá
IESE Business School, við Háskól-
ann í Navarra á Spáni og stundaði
framhaldsnám í stjórnun og stefnu-
mótun við HÍ 2011-2013.
„Fyrsta sumarstarf mitt var hjá
móðurafa mínum, sem stofnaði JS
Helgason, en þá var ég 12, 13 ára og
síðan var ég hjá BM Vallá. Ég vann
einnig sjálfstætt við hellulagnir á há-
skólaárunum.“
Þorsteinn var leiðbeinandi við
Grunnskóla Siglufjarðar 1994-1995,
blaðamaður á Viðskiptablaði Morg-
unblaðsins 1995-1998, forstöðumað-
ur hjá Kaupþingi/Kaupthing Bank
Lúxemborg 1998-2002 meðan allt
var í blóma þar en kom svo heim og
varð forstjóri og framkvæmdastjóri
BM Vallár hf. 2002-2010. Hann var
framkvæmdastjóri Samtaka ál-
framleiðenda 2010-2013 og fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins 2013-2016. Þorsteinn hefur verið
alþingismaður Viðreisnar frá 2016.
Hann var félags- og jafnréttis-
málaráðherra 11.1. 2017-30.11. 2017.
„Ég hef alltaf haft brennandi áhuga
á pólitík og þegar Viðreisn kom til
sögunnar fannst mér loksins komið
stjórnmálaafl sem ég gat samsamað
mig almennilega með. Ég ákvað að
taka slaginn og demba mér í þetta
og sé ekki eftir því.“
Þorsteinn sat í stjórn Samtaka
iðnaðarins 2004-2010 og var varafor-
maður frá 2007. Hann sat í stjórn Ið-
unnar, fræðsluseturs, 2006-2013 og
stjórn VIRK, starfsendurhæfing-
arsjóðs, 2013-2016. Hann var vara-
formaður og formaður Gildis, lífeyr-
issjóðs, 2014-2016. Þorsteinn hefur
verið varaformaður Viðreisnar síðan
2018. Hann sat í fjárlaganefnd 2016-
2017 og hefur setið í efnahags- og
viðskiptanefnd frá 2017.
fyrir utan hef ég mikinn áhuga á úti-
vist, bæði göngum og skíðum og svo
golfi. Ég er líka í veiði í og með,
reyni alltaf að sækja rjúpu í jóla-
matinn og í stangveiðinni þá er ég
aðallega í silungsveiði á sumrin. Ég
er ekki búinn að fara á rjúpu í vetur
en stefni á að fara um helgina ef
hægt er.“
Fjölskylda
Eiginkona Þorsteins er Lilja
Karlsdóttir, f. 24.12. 1970, ferða-
málafræðingur, grunnskólakennari
og deildarstjóri í Flataskóla. Þau
hafa verið búsett í Garðabæ frá
2002. Foreldrar Lilju eru hjónin Jón
Karl Kristjánsson, f. 23.9. 1948,
múrarameistari, og Ágústa Hafdís
Finnbogadóttir, f. 14.10. 1950,
sjúkraliði. Þau eru búsett í Reykja-
vík.
Dætur Þorsteins og Lilju eru 1)
Sara Ósk Þorsteinsdóttir, f. 5.10.
1997, nemi í hugbúnaðarverkfræði
við HÍ, Sóley Björk Þorsteinsdóttir,
Þorsteinn Víglundsson alþingismaður – 50 ára
Dæturnar og frúin Frá vinstri: Sóley Björk, Eva Bjarkey, Sara Ósk og Lilja staddar í Tékklandi í fyrrasumar.
Dómadagsiðnaðarmaður
Morgunblaðið/Golli
Hjónin Þorsteinn og Lilja á 100 ára afmæli Eimskipafélagsins 2014 þegar
Þorsteinn var framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
30 ára Agnes er Vest-
mannaeyingur en býr í
Hafnarfirði. Hún er að
klára leikskólakenn-
aranám við Háskóla
Íslands.
Maki: Aron Óttar
Traustason, f. 1985,
viðskiptafræðingur og vinnur hjá Reikni-
stofu bankanna.
Börn: Stefanía Aronsdóttir, f. 2011, og
Emil Óli Aronsson, f. 2019.
Foreldrar: Gústaf Ólafur Guðmundsson,
f. 1951, vélstjóri á Bylgjunni í Vest-
mannaeyjum, og Marta Jónsdóttir, f.
1959, leikskólakennari í leikskólanum
Sóla í Vestmannaeyjum.
Agnes
Gústafsdóttir
Til hamingju með daginn
Hafnarfjörður Emil Óli Aronsson fædd-
ist 6. mars 2019 á Landspítalanum.
Hann vó 4.012 g og var 52 cm langur.
Foreldrar hans eru Agnes Gústafsdóttir
og Aron Óttar Traustason.
Nýr borgari