Morgunblaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.11.2019, Blaðsíða 24
AFP EM 2020 Kári Árnason sækir að Sinan Bolat markverði Tyrkja í næstsíðasta leiknum í undankeppni EM í Istanbúl á dögunum. Í dag kemur í ljós hverjir verða andstæðingar íslenska liðsins í umspilinu í marsmánuði. EM 2020 Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Fær Ísland að spila á heimavelli í úrslitaleik um sæti á EM karla í fótbolta, komist liðið þangað? Það ræðst í hádeginu í dag í sérstökum umspilsdrætti, og eru einfaldlega helmingslíkur á því að Ísland fengi heimaleik. Einnig ræðst hvar Ís- land spilar á EM næsta sumar komist liðið þangað. Umspilið skiptist í fjórar leiðir; A, B, C og D, og kemst eitt lið á EM í gegnum hverja leið. Leikið er í stökum undanúrslitaleikjum 26. mars, með framlengingu og vítaspyrnukeppni ef til þarf, og úr- slitaleikir fara fram 31. mars. Svona mun drátturinn í dag ganga fyrir sig: Leið D: Undanúrslit: Georgía – Hvíta-Rússland Norður-Makedónía – Kósóvó  Dregið um það hvor sigurvegari undanúrslita verður á heimavelli í úrslitaleik. Leið C: Undanúrslit: Skotland – Búl/Ísr/Ung/Rúm Noregur – Serbía  Dregið um það hvert af Búlg- aríu, Ísrael, Ungverjalandi og Rúmeníu fer til Skotlands. Dregið um það hvor sigurvegari undan- úrslita verður á heimavelli í úr- slitaleik. Leið B: Undanúrslit: Bosnía – Norður-Írland Slóvakía – Írland  Dregið um það hvor sigurvegari undanúrslita verður á heimavelli í úrslitaleik. Leið A: Undanúrslit: Ísland – Ung/Rúm Búl/Ísr – Ísr/Ung  Liðin þrjú sem ekki voru dregin í leið C fara í leið A. Ísland fær heimaleik við það liðanna sem varð neðst í Þjóðadeildinni, sem verður Rúmenía nema Rúmenía dragist í leið C, en annars Ungverjaland. Búlgaría verður á heimavelli í hin- um undanúrslitaleiknum, nema lið- ið dragist í leið C en þá fær Ísrael heimaleik við Ungverjaland. Dregið um það hvor sigurvegari undanúrslita verður á heimavelli í úrslitaleik. Ísland í C- eða F-riðil? Og hvað ef Ísland kemst á EM? Þá verður dagskráin þar orðin mun skýrari í hádeginu enda þótt leikið verði í sex riðlum og tólf borgum víðs vegar um Evrópu:  Ef Ísland endar í umspili með Rúmeníu en ekki Ungverjalandi myndi Ísland spila í C-riðli á EM (með Hollandi og Úkraínu, spilað í Amsterdam og Búkarest).  Ef Ísland endar í umspili með Ungverjalandi en ekki Rúmeníu myndi Ísland spila í F-riðli (með Þýskalandi, spilað í München og Búdapest).  Ef Ísland endar í umspili með bæði Rúmeníu og Ungverjalandi mun dráttur í dag ráða því hvort Ísland færi í C- eða F-riðil. Einnig verður dregið um það í dag hvort það verður Danmörk eða Rússland, sem eru bæði gestgjafar og komin áfram í B-riðil, sem fær að spila alla þrjá leiki sína í riðla- keppninni á heimavelli. Hitt liðið mun spila tvo af þremur leikjum sínum í riðlakeppninni á heimavelli. Verður Ísland tvisvar á heimavelli í lok mars?  Umspilsdrátturinn í Sviss í dag  Ræðst hvar Ísland myndi spila á EM 24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2019 England Deildabikar kvenna, D-riðill: Reading – Crystal Palace ....................... 6:0  Rakel Hönnudóttir var ekki í leikmanna- hópi Reading.  Chelsea 12, Reading 9, West Ham 7, Tottenham 5, Crystal Palace 3, Lewes 0. Ein umferð eftir, tvö efstu liðin fara í átta liða úrslit. KNATTSPYRNA KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: IG-höllin: Þór Þ. – ÍR ........................... 18.30 Ásvellir: Haukar – Keflavík................. 20.15 Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Ásvellir: Haukar – Skallagrímur ............. 18 1. deild karla: Hveragerði: Hamar – Höttur.............. 19.15 Vallaskóli: Selfoss – Álftanes .............. 19.15 Ísafjörður: Vestri – Breiðablik............ 19.15 Í KVÖLD! HANDBOLTI Coca Cola-bikar karla 16-liða úrslit: ÍR – Mílan ............................................. 34:17 Grótta – FH .......................................... 17:36 Haukar – Valur..................................... 30:26 Stjarnan – HK ...................................... 27:24 Þýskaland Bergischer – Lemgo ........................... 35:33  Ragnar Jóhannsson skoraði ekki fyrir Bergischer. Arnór Þór Gunnarsson lék ekki með vegna meiðsla.  Bjarki Már Elísson skoraði 8 mörk fyrir Lemgo. Nordhorn – Flensburg........................ 20:29  Geir Sveinsson þjálfar Nordhorn. Melsungen – Göppingen ...................... 30:17 Magdeburg – Füchse Berlín ............... 27:29  Efstu lið: Flensburg 22, Hannover-Burg- dorf 20, Melsungen 19, Kiel 18, Magdeburg 18, RN Löwen 18, Füchse Berlín 18, Leip- zig 16, Bergischer 15, Göppingen 11, Wetzl- ar 10, Erlangen 10. B-deild: Lübeck-Schwartau – Aue................... 23:23  Sigtryggur Daði Rúnarsson skoraði 2 mörk fyrir Lübeck-Schwartau. Danmörk SönderjyskE – Mors-Thy.................... 26:24  Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 1 mark fyrir SønderjyskE og Sveinn Jó- hannsson ekkert. Vináttulandsleikir kvenna Frakkland – Brasilía ............................ 33:22 Japan – Slóvenía................................... 28:28 Tékkland – Sviss................................... 35:30 Þýskaland – Svartfjallaland ................ 29:33 Pólland – Austurríki............................. 19:29 Dominos-deild karla KR – Njarðvík ...................................... 75:78 Fjölnir – Tindastóll ............................ 88:100 Grindavík – Valur ................................. 85:69 Staðan: Keflavík 7 6 1 627:570 12 Tindastóll 8 6 2 715:664 12 Stjarnan 8 6 2 727:689 12 KR 8 5 3 672:630 10 Njarðvík 8 4 4 654:579 8 Haukar 7 4 3 643:614 8 Þór Þ. 7 4 3 576:580 8 ÍR 7 4 3 582:611 8 Grindavik 8 3 5 676:687 6 Valur 8 3 5 649:688 6 Fjölnir 8 1 7 678:736 2 Þór Ak. 8 0 8 619:770 0 1. deild karla Skallagrímur – Sindri .......................... 85:71 Staðan: Hamar 7 7 0 682:588 14 Höttur 8 7 1 699:632 14 Breiðablik 7 6 1 698:568 12 Vestri 7 4 3 628:551 8 Álftanes 7 3 4 552:593 6 Skallagrimur 8 2 6 643:723 4 Selfoss 7 2 5 533:577 4 Sindri 7 1 6 567:630 2 Snæfell 8 1 7 597:737 2 Evrópudeildin Alba Berlín – Olympiacos................... 80:99  Martin Hermannsson skoraði 6 stig, gaf 7 stoðsendingar og tók 2 fráköst og lék í um 27 mínútur fyrir Alba Berlin. NBA-deildin Washington – San Antonio .............. 138:132 Philadelphia – New York................. 109:104 Toronto – Orlando .............................. 113:97 Atlanta – Milwaukee ........................ 127:135 Miami – Cleveland............................ 124:100 Brooklyn – Charlotte ......................... 101:91 Dallas – Golden State......................... 142:94 Chicago – Detroit ............................... 109:89 Minnesota – Utah ............................... 95:103 Denver – Houston .............................. 105:95 LA Clippers – Boston.............. (frl.) 107:104 KÖRFUBOLTI Eftir að hafa mistekist að koma Rúmeníu beint á EM karla í fótbolta er Cosmin Contra hættur sem þjálf- ari liðsins. Það eru 75% líkur á að Rúmenía mæti Íslandi í undan- úrslitum EM-umspilsins. Contra hafði stýrt Rúmeníu í rúm tvö ár en rúmenska knattspyrnu- sambandið ætlar að gefa sér tvær vikur til að ráða nýjan þjálfara. Goðsagnirnar Gheorghe Hagi og Dan Petrescu eru sagðar koma til greina, ásamt Mirel Radoi, þjálfara U21-landsliðsins, sem þykir líkleg- astur til að fá starfið. sindris@mbl.is Stýrir Hagi Rúm- enum á Íslandi? AFP Hættur Cosmin Contra stýrði liði Rúmena frá því í september 2017. Stjarnan tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Coca Cola-bikarsins í handknattleik karla í gær með því að leggja HK, 27:24, í TM-höllinni í Garðabæ. Staðan var jöfn að lokn- um fyrri hálfleik, 13:13. Fyrrverandi HK-ingur, Leó Snær Pétursson, var markahæstur Stjörnumanna með sex mörk. Krist- ófer Andri Daðason skoraði átta mörk fyrir HK. FH vann öruggan sigur á Gróttu, 36:17, á Seltjarnarnesi. ÍR-ingar hrósuðu sigri á Mílunni, 34:17, á heimavelli. iben@mbl.is Stjarnan, FH og ÍR áfram í bikar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Markahæstur Leó Snær Pétursson skoraði sex mörk fyrir Stjörnuna. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is „Ungverjar vilja frekar mæta Skotum en Íslendingum í umspilinu,“ segir Matyas Szeli, íþróttafréttamaður hjá ungverska íþróttadagblaðinu Nemzeti Sport. Ungverjar eru önnur tveggja þjóða sem Ísland get- ur dregist gegn í dag þegar UEFA raðar endanlega niður í umspilsriðlana þar sem leikið er um sæti í loka- keppni EM 2020. Ísland getur einnig dregist gegn Rúmeníu en fær heimaleik, hvor sem niðurstaðan verður. Ungverjar munu hinsvegar leika á útivelli og þeirra möguleikar eru tvíþættir, annarsvegar að fara ann- aðhvort til Íslands eða Skotlands, eða þá að mæta Búlgaríu eða Ísrael. „Ungverskir fótboltaáhugamenn telja almennt Ís- land vera með sterkara lið en Skotland, enda þótt Skotar hafi unnið okkur 1:0 í vináttulandsleik í fyrra. Auðvitað munum við öll eftir 1:1 jafnteflinu gegn Ís- landi á EM í Frakklandi 2016 en okkar lið er líklega heldur veikara í dag en það var þá, þar sem mjög reyndir og mikilvægir leikmenn eins og Zoltán Gera, Roland Juhász og Gabor Király hafa lagt skóna á hill- una. Hinn möguleikinn er að við mætum Búlgaríu eða Ísrael. Ég held að flestir Ungverjar vilji helst af öllu dragast gegn Búlgaríu í þessu umspili. Síðan er ljóst að við þurfum að spila á útivelli í und- anúrslitunum og árangur ungverska liðsins á útivöll- um er ekki beysinn, svo vægt sé til orða tekið,“ sagði Matyas Szeli við Morgunblaðið í gær. Ungverjar vilja frekar Skota eða Búlgara  Telja að Ísland yrði erfiðari andstæðingur í umspilinu AFP Fagnað Ungverjar fagna marki í undankeppni EM þar sem þeir unnu fjóra leiki og töpuðu fjórum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.