Morgunblaðið - 22.11.2019, Page 28

Morgunblaðið - 22.11.2019, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 2019 samstarfi við Aude Busson og Alexander Roberts, en þar voru börn á aldrinum átta til tólf ára í aðalhlutverkum og dansverkið GRRRRLS sem Ásrún vann með 15 ung- lingsstelpum. „Mitt listræna markmið er alltaf að gefa röddum, sem alla jafna heyrast ekki, tæki- færi til að hljóma,“ segir Ásrún. Spurð hvað hafi komið sér skemmtilegast á óvart í vinnu- ferlinu fyrir nýju sýninguna svarar Ásrún um hæl: „Í raun bara hvað það hefur verið ótrú- lega gaman á æfingum. Við föttuðum snemma í ferlinu við þyrftum ekki endilega að fókusera á afurðina sem er afrakstur æf- inganna heldur væri ekki síður mikilvægt að fá rými til að vera saman og leika sér,“ segir Ásrún og tekur fram að hún sé sannfærð um að sú leikgleði skili sér til áhorfenda. Fegurð í mannlegri sambúð er annar tveggja viðburða sem Ásrún er í listrænu for- svari fyrir á yfirstandandi hátíð. Í samstarfi við Alexander Roberts og hóp unglinga samdi hún The Teenage Songbook of Love and Sex sem sýnd verður í Tjarnarbíói í Fegurð í mannlegri sambúð nefnist viðburður sem fram fer á sviðslistahátíðinni Reykjavík Dance Festival í dag og á morgun kl. 17. Listrænir stjórnendur viðburðarins eru Ásrún Magnúsdóttir, Gunnur Martinsdóttir Schlüter og Olga Sonja Thorarensen. Í sam- tali við Morgunblaðið segir Ásrún Fegurð í mannlegri sambúð vera leiðsöguferð um miðbæ Reykjavíkur þar sem leiðsögumenn- irnir eru ungt fatlað og ófatlað fólk. „Útgangspunkturinn í vinnunni var að finna eitthvað sem sameinaði hópinn og þá datt okkur borgin sem við deilum í hug. Við þekkjum Reykjavík á ólíkan hátt, höfum upp- lifað staði og augnablik með okkar augum og eigum mismunandi minningar af sömu stöð- um. Hver og einn í hópnum hefur valið sér einhvern stað í miðborginni sem hefur sér- staka þýðingu fyrir viðkomandi,“ segir Ásrún og bendir á að áhorfendur verði leiddir á milli staðanna, en ferðalagið hefst hjá Tjarn- arbíói kl. 17 í dag og á morgun. „Hér gefst möguleiki á að ferðast saman sem einn stór fjölbreyttur hópur og fá að kynnast miðbænum í gegnum augu nágranna okkar,“ segir Ásrún og tekur fram að fjöl- breyttar uppákomur verði í boði á áningar- stöðunum. „Þessir staðir geta verið ákveðinn veitingastaður, falin náttúruperla eða mikil- vægar stofnanir og allt þar á milli. Flytj- endur ætla að deila með okkur sögum, söng, dansi, draumum, örlagaríkum augnablikum eða fantasíum,“ segir Ásrún, en flytjendur eru Anna Björk Eldker Emilsdóttir, Glódís Erla Ólafsdóttir, Gunnar Þorkell Þorgríms- son, Haukur Hákon Loftsson, Hrannar Hall- dórsson Bachmann, Rebekka Sveinbjörns- dóttir og Salóme Sól. Spurð um tilurð sýningarinnar rifjar Ásrún upp að fatlaður ungur strákur hafi haft á orði við Olgu að honum stæði ekki til boða að taka þátt í sviðsverkum. „Hann plantaði þannig fræinu að þessum viðburði,“ segir Ásrún og tekur fram að sér hafi alltaf fundist gaman að vinna með áhugafólki. Í því samhengi má rifja upp að Ásrún hefur unnið ýmsar sýn- ingar með börnum og unglingum. Þeirra á meðal er Made in children, sem hún gerði í kvöld kl. 21.30. „Eins og nafnið gefur til kynna er það söngleikur þar sem 15 manna hópur unglinga á aldrinum 15-19 ára dansar og syngur um eigið ástar- og kynlíf. Lögin sömdu þau í samvinnu við okkur Alexander og Teit Magnússon,“ segir Ásrún og tekur fram að allir áhorfendur ættu að eiga auðvelt með að spegla sig í umfjöllunarefninu. Allar nánari upplýsingar um sviðslista- hátíðina má nálgast á reykjavikdance- festival.com/nvember-2019. Meðal annarra sýninga sem sýndar eru í dag eru Verk nr. 1,5 eftir Steinunni Ketilsdóttur sem sýnt er í Tjarnarbíói í kvöld kl. 19.30 og The Brogan Davison Show sem sýnt verður í heimahúsi í kvöld kl. 20. Á morgun verða auk Fegurðar í mannlegri sambúð kl. 17 sýndar Krakkaveldi eftir Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir í sam- vinnu við sýningarhópinn í Iðnó kl. 16 þar sem aðgangur er ókeypis; Ravemachine eftir Doris Uhlich og Michael Turinsky í Tjarnar- bíói kl. 20 og Takeover eftir Önnu Kolfinnu Kuran í Iðnó kl. 21.30 þar sem aðgangur er líka ókeypis. silja@mbl.is Með augum nágranna okkar  Fegurð í mannlegri sambúð sýnt á Reykjavík Dance Festival  Ásrún Magnúsdóttir á tvö verk á hátíðinni að þessu sinni  Finnst sem höfundi gaman að gefa ólíkum röddum tækifæri á að heyrast Mannleg Þátttakendur í viðburð- inum Fegurð í mannlegri sambúð. Fyrsta sýning St. Petersburg Festival Ballet og Sinfón- íuhljómsveitar Íslands á Svanavatninu við tónlist Pjotrs Tsjajkovskíj fór fram í Eldborg Hörpu í gærkvöldi. Næstu sýningar eru í kvöld kl. 19.30 og á morgun kl. 14. Ljósmyndari Morgunblaðsins leit inn á æfingu í gærdag. Svanavatnið er einn vinsælasti ballett allra tíma, en verkið var frumflutt í Bolshoi-leikhúsinu í Moskvu 1877. Verkið fjallar um prinsessuna Odette, sem illur galdra- maður breytir í svan. Prinsinn Siegfried verður ástfang- inn af henni og reynir árangurslaust að bjarga. Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Svanavatnið sýnt í Eldborg Hörpu Vetrarsól er umboðsaðili 40 ár á Íslandi Sláttuvélar Snjóblásarar Sláttutraktorar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði SÍÐAN 1969 FLOTTUSTU BÚNINGARNIR ÞÍNAR SÉR ÓSKIR UM FJÖLBREYTTA FRAMLEIÐSLU EÐAMERKINGAR 846 BLS BÆKLINGUR Á HEIMASÍÐUNNI HENSON.IS TIL MERKINGA EÐA EKKI SENNILEGA FJÖLHÆFASTI FATAFRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI ÍSLANDS ÞÓVÍÐARVÆRI LEITAÐ! Brautarholti 24 · 105 Reykjavík · S.: 562 6464 · henson@henson.is Hildur Guðnadóttir tónskáld er til- nefnd, eins og greint var frá í Morg- unblaðinu í gær, til bandarísku Grammy-verðlaunanna í flokki bestu tónlistar fyrir sjónræna miðla fyrir tónlistina sem hún samdi fyrir sjónvarpsþættina Chernobyl. Hildur er ekki eini Íslending- urinn sem kom við sögu þegar til- nefningar til Grammy-verð- launanna voru kynntar, því upptaka á verki Önnu Þorvalds- dóttur, Aequa, er tilnefnd sem besta upptakan á klassískri tónlist. Upptökustjórinn var Daniel Shores og annaðist einnig hljóðblöndun, en flytjendur eru International Con- temporary Ensemble. Þess má geta að í flokki bestu tónlistar fyrir sjónræna miðla eru auk Hildar tilnefndir Alan Silvestri fyrir Avengers: Endgame, Ramin Djawadi fyrir lokaþáttaröð Krúnu- leikanna, Hans Zimmer fyrir Kon- ung ljónanna og Marc Shaiman fyr- ir Mary Poppins Returns. Upptakan á verki Önnu tilnefnd til Grammy-verðlaunanna Morgunblaðið/Hari Tónskáldið Anna Þorvaldsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.