Morgunblaðið - 26.11.2019, Side 10

Morgunblaðið - 26.11.2019, Side 10
BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra, kveðst vera sammála sjónarmiðum danska stjórnvalda sem tóku í gildi hinn 1. nóvember sl., nýja túlkun á reglugerð Evr- ópuþingsins og -ráðsins nr. 1073 frá 2009 sem nær til gestaflutninga (d. buscabotage- kørsel). Með túlkunarbreyt- ingunni hafa Danir takmarkað verulega þann starfstíma sem erlendar rútur á vegum erlendra fyrirtækja hafa til þess að starfa innan Danmerkur. Var sú breyting gerð þar sem dönsk stjórnvöld óttast að launa- greiðslur til starfsmanna þessara fyrirtækja séu ekki í samræmi við danska kjarasamninga og að starf- semi þeirra fylgi félagsleg undir- boð (d. social dumping) sem séu skaðleg fyrir rútugeirann þar í landi. Sigurður Ingi segir í samtali við Morgunblaðið að hann hafi full- an hug á að skoða þessi mál hér á landi. Ekki tilgangur reglnanna Í frétt Morgunblaðsins frá 23. nóvember var haft eftir samgöngu- ráðherra Dana, Benny Engel- brecht, að ljóst væri að ekki hefði verið tilgangur fyrrnefndra reglna að leyfa tómum rútum að keyra þvert í gegnum Evrópu til þess eins að geta hafið starfsemi í öðru landi. Undir það tekur Sigurður Ingi. Um svokölluð bandalagsleyfi er að ræða en samkvæmt íslensk- um lögum takmarkast starfstími handhafa slíka leyfa hér á landi við eitt ár og er það byggt á tolla- reglum. „Ég er alveg sammála mati Dana að það var aldrei tilgangurinn með þessum reglum að tómar rútur keyrðu í annað land til þess síðan að taka við ferðamönnum frá því landi og keyra á rútum frá því landi. Og svo færi rútan aldrei. Það var ekki meiningin,“ segir Sigurð- ur Ingi og heldur áfram. „Í okkar tilfelli var meiningin sú að menn kæmu með fulla rútu af fólki í gegnum Seyðisfjörð, tækju einn rúnt og svo færi rútan heim. Ég er sammála því að það hljóti að hafa verið tilgangur þessara reglna að það sé ekki komið í veg fyrir slíkt, en það er ekki tilgangurinn að menn keyri hingað tómar rútur til þess að vera síðan að keyra ein- hverja aðra ferðamenn en komu með rútunni. Þess vegna hef ég fullan hug á að skoða þetta,“ segir Sigurður Ingi við Morgunblaðið. „Ég held að það sé mjög áhuga- vert að fylgjast með þessu og skoða hvort við getum tekið upp einhverj- ar sambærilegar reglur,“ segir Sig- urður Ingi enn frekar. Að sögn ráðherrans hefur enginn tímarammi verið settur á mögu- legar aðgerðir í málinu en að í ljósi þess að Danir hafa gripið aðgerða sé áhugavert að skoða jafnframt aðgerðir hér á landi. Í fyrrnefndri frétt Morgunblaðs- ins kom fram á bilinu 25-30 erlend- ar rútur á vegum erlendra fyrir- tækja væru starfandi hér á landi auk fleiri minni hópbifreiða. Í sömu frétt kom fram að tveir þriðju hlut- ar rútuflotans í Kaupmannahöfn væru erlendar rútur. Sjónarmið Dana áhugaverð  Sigurður Ingi Jóhannsson segir vert að fylgjast með þeim takmörkunum sem Danir hafa sett á starfstíma erlendra rútufyrirtækja  Skoðar aðgerðir hérlendis Sigurður Ingi Jóhannsson Morgunblaðið/Styrmir Kári Ferðamenn í rútu Samgönguráðherra segir vert að skoða hvort að hér eigi að fara að fordæmi Dana varðandi starfsemi erlendra rútufyrirtækja. Rútur » Starfstími erlendra rúta sem starfa hér á landi með svokallað bandalagsleyfi tak- markast við eitt ár. » Danir hafa endurtúlkað reglugerð ESB og takmarkast starfstíminn nú við 7 daga á 30 daga tímabili. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2019 hitataekni.is Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is Einstaklega hljóðlát tæki fyrir t.d. kerfisloft eða á vegg Baðviftur Ein sú hljóðlátasta 17 – 25 dB(A) atnskæld kælitæki Bjóðum upp á fjölbreyttan búnað svo sem loftræsingar, hitakerfi, kælikerfi, rakakerfi sem og stjórnbúnað og stýringar. Anddyris- hitablásarar Bjóðum upp á mikið úrval loftræstikerfa fyrir heimili og fyrirtæki Slökkva þurfti á báðum ljósboga- ofnum kísilverksmiðju PCC á Bakka, en starfsmenn fyrirtækisins hafa frá því í síðustu viku átt í vand- ræðum með búnað í verksmiðjunni. Þetta kemur fram á facebooksíðu PCC, þar sem segir að stoðkerfi ofn- anna hafi hætt að virka almennilega. Í kjölfarið þurfti að slökkva á ofn- inum Birtu. Það varð til þess að framleiðslan í ofninum Boga varð óstöðug vegna ójafnvægis í kerfinu og þurfti því einnig að slökkva á hon- um. Hitastigið í rykhreinsivirkinu lækkaði þegar slökkt var á ofnunum og við það myndaðist raki sem leiddi til þess að kísilrykið varð klístrað og stíflaði kerfið. Þá þurfti að opna neyðarskor- steina en við það getur reyk lagt frá verksmiðjunni. Birta er nú komin aftur í gang og gert er ráð fyrir að Bogi verði gangsettur í dag. Slökktu á ofnum PCC  Bæði drepið á Birtu og Boga Morgunblaðið/Hari Sílíkon Verksmiðjan á Bakka.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.