Morgunblaðið - 26.11.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.11.2019, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2019 Fundir/Mannfagnaðir ses.xd.is Samtök eldri sjálfstæðismanna, SES Hádegisfundur SES - Fjölþætt heilsuefling 65+ í sveitarfélögum Dr. Janus Guðlaugsson, PhD-íþrótta og heilsufræðingur, verður gestur á hádegis- fundi SES, miðvikudaginn 27. nóvember kl. 12:00, í Valhöll, Háaleitis- braut 1. Húsið opnar kl. 11:30. Boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi, 1000 krónur. Allir velkomnir. Með kveðju, stjórnin. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. Hreyfisalur- inn er opinn milli kl. 9.30-11.30, líkamsræktartæki, lóð og teygjur. Botsía kl. 10.15. Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun kl. 13. Vatnslitun kl. 13, leiðbeinandi, ókeypis og allt til staðar. Upplestur kl. 13.45, Mál- fríður Finnbogadóttir les úr bók sinni um Guðrúnu Lárusdóttur alþingiskonu. Kaffi kl. 14.30-15. Allir velkomnir. Árskógar Smíðar, útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Leikfimi með Hönnu kl. 9. Brids kl. 12. Handavinnuhópur kl. 12-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 12.45. MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir inni- pútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Leikfimi kl. 10.30. Fuglatálgun, brids og kanasta kl. 13. Bústaðakirkja Félagsstarfið verður á sínum stað á miðvikudaginn frá klk 13-16, Margrét kemur með fatabúðina sína Logy fatnað. Hægt að gera góð kaup, fullt af nýjum vörum á góðu verði. Kaffið á sínum stað ásamt því að prestur verður með hugleiðingu og bæn. spil og handavinna eins og vant er. Hlökkum til að sjá ykkur. Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 13.40, verslunarferð í Bónus kl. 15.05. Dalbraut 27 Djáknasamvera kl. 14 í setustofu á annarri hæð. Bæna- stund í bókastofu kl. 9.30 Leikskólabörn frá Laugasól koma og gera piparkökuhús, í bókastofunni kl. 10.30. Fella og Hólakirkja Eldriborgarastarf þriðjudag 26. nóvember Kyrrðarstund kl. 12. Súpa eftir stundina. Versluninn Logy kemur til okkar. Söngur og gleði og góð samvera. Hlökkum til að sjá ykkur Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8.50. Mynd- listarnámskeið kl. 9-12. Leikfimi kl. 10. Spekingar og spaugarar kl. 10.30-11.30. Hádegismatur kl. 11.30. Salatbar kl. 11.30-12.15. Kríur myndlistarhópur kl. 13. Brids kl. 13. Enskukennsla kl. 13. Tölvukennsla kl. 13.10. Síðdegiskaffi kl. 14.30. U3A kl. 16.30. Minnum á jólamarkað- inn 30. nóvember kl. 10-16. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýs- ingar í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Glerlist kl. 9. Bútasaumshópur hittist kl. 9. Hópþjálfun með sjúkraþjálfara kl. 10.30. Bókband kl. 13. Frjáls spila- mennska kl. 13. Opin handverkstofa kl. 13-16. Söngstund kl. 13.30. Bókaklúbbur kl. 15. Hádegismatur frá kl. 11.30 til 12.30 alla daga vik- unnar og kaffi frá kl. 14.30 til 15.30 alla virka daga. Heitt á könnunni fyrir hádegi. Verið öll velkomin á Vitatorg. Garðabær Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Vatnsleikfimi kl. 7.30/15.15. Qi-gong í Sjálandi kl. 8.30. Liðstyrkur Ásgarði kl. 11.15. Karlaleikfimi Ásgarði kl. 12. Botsía í Ásgarði kl. 12.45. Línudans Sjálandi kl. 13.30/14.30. Smíði í Smiðju Kirkjuhvoli kl. 9/13. Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik málun kl. 9-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Leikfimi Maríu kl. 10.30-11.15. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16. Brids kl. 13-16. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.45 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna, kl. 13.30 zumba, kl. 13.30 alkort. Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13-15.30. Starfið hefst á samsöng og helgistund. Þá er boðið upp á jólaföndur, spil og handavinnu. Samverunni lýkur með kaffi kl. 15. Grensáskirkja Kl. 12-12.20 á þriðjudögum er kyrrðarstund í Grens- áskirkju. Stundin hefst með orgelleik og síðan eru íhugunarorð, kyrrð og bæn. Hægt er að kaupa létta máltíð og síðan er notaleg samvera fyrir þau sem hafa tíma til að vera lengur. Gullsmára Myndlistarhópur kl. 9. Botsía kl. 9.30. Málm- og silfur- smíði og kanasta kl. 13. Hraunsel Ganga í Kaplakrika alla daga kl. 8- 12. Dansleikfimi kl. 9. Qi-gong kl. 10. Brids kl. 13. Gaflarakórinn kl. 16. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Hádegismatur alla virka daga kl. 11.30-12.20 og kaffi kl. 14.30-15.30. Brids í handavinnustofu kl. 13. Helgistund kl. 14. Korpúlfar Listmálun með Marteini kl. 9 í Borgum og postulínsnám- skeið kl. 9.30, botsía kl. 10 og 16 í Borgum í dag. Helgistund kl. 10.30 í Borgum og leikfimishópur Korpúlfa í Egilshöll kl. 11 í dag og spjall- hópur í listasmiðju Korpúlfa kl. 13 í Borgum í dag, allar velkomnir í gleðilega samveru. Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 13.30 í dag og heimanámskennsla e.h. í borgarbókasafninu Spönginni. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja 9-12, trésmiðja kl. 9- 16, opin listasmiðja kl. 9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, kaffihúsaferð kl. 14, Bónusbíllinn kl. 15, hugleiðslan kl. 15.30. Upp- lýsingar í síma 4112760. Selfoss Kl. 9-16: Dagskrá samkvæmt stundaskrá. Seljakirkja Menningarvaka eldri borgara í kvöld kl. 18. Halldór Ein- arsson í Henson, Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar Guð- mundsson sjá um dagskráina. Hátíðarmatur á eftir. Vinsamlegast til- kynnið þátttöku í síma 5670110. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í krókn- um kl. 10.30. Pútt í Risinu Eiðistorgi kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfi- landi kl. 11.30. Helgistundin í kirkjunni fellur niður í dag. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14. Munið skráninguna á Gaman saman nk. fimmtudag í salnum á Skólabraut. Veitingar, söngur og dans. Skrán- ing og upplýsingar í síma 8939800. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4 Skák kl. 13, allir velkomnir í hópinn. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bókhald NP Þjónusta Sé um liðveislu við bókhaldslausnir o.þ.h. Hafið samband í síma 831-8682. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Smá- og raðauglýsingar Vantar þig pípara? FINNA.is Færir þér fréttirnar mbl.is ✝ RagnheiðurGestsdóttir fæddist í Hraun- gerði í Flóa 12. febrúar 1932 og ólst upp í Hróars- holti í Vill- ingaholtshreppi. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Hrafnistu á Nes- völlum í Reykja- nesbæ 14. nóv- ember 2019. Hún var dóttir hjónanna Guð- rúnar Arnfríðar Tryggvadóttur, f. 13. september 1900, d. 26. jan- úar 1988, og Gests Jónssonar, f. 14. desember 1901, d. 1. maí 1993. Systkini Ragnheiðar eru: Tryggvi Gestsson, Guðjón Gestsson, Hólmfríður Gests- dóttir, látin, Haraldur Gestsson, látinn, og Kristín Gestsdóttir. Ragnheiður giftist Einari Þórarinssyni sjómanni, f. 7. febrúar 1935, d. 20. júní 2010, frá Suðureyri í Tálknafirði. For- eldrar hans voru Pálína Guðrún Einarsdóttir, f. 22. mars 1911, d. 31. maí 2002, og Þórarinn Jóns- sonar, f. 10. september 1904, d. 3. júní 1973. Dóttir Ragnheiðar er Sæunn Ásta Sigurbjörnsdóttir, f. 11. maí 1955, maki Kristinn Ár- mannsson, látinn. Börn þeirra eru: 1) Eygló Elísabet, maki Ás- björn Árni Árnason, dætur þeirra eru Elísabet Kristín og Aþena Sæunn, son- ur Ásbjörns er Theodór Árni, kær- asta hans er Rakel Lind Gísladóttir. 2) Ragnheiður, sam- býlismaður Jóhann Henry Ásgeirsson, börn þeirra eru Thelma Lind og Hannes Kristinn. 3) Hannes Kristinn, sambýliskona Ró- sey Kristjánsdóttir, sonur þeirra er Kristinn Rafn. Sambýlis- maður Sæunnar er Guðmundur Jónsson. Börn Ragnheiðar og Einars eru: Guðrún Hrönn, f. 21. júní 1957, fyrrverandi maki Ingimar Sigurðsson. Synir þeirra eru: 1) Einar Rafn, sambýliskona Sunna Líf Guðmundsdóttir. 2) Sigurður Kristinn, sambýlis- kona Mandy Reinhardt. Sam- býlismaður Guðrúnar er Jóhann Steinsson. Þórunn Drífa Deaton, f. 31. júlí 1963, maki John jesse Dea- ton, látinn. Börn þeirra eru: 1) Kristófer Þór, kærasta hans er Sara Katrín Rúnarsdóttir. 2) Alexandra Sól, kærasti hennar er Hilmar Hólm Guðjónsson. Aldís Dröfn, f. 18. apríl 1969, sonur hennar er Sindri Snær Sölvason, kærasta hans er Birta Sif S. Helenudóttir. Útför Ragnheiðar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 26. nóvember 2019, klukkan 13. Elsku mamma mín. Ég mun sakna þín mikið. Nú mun ég ekki geta hringt í þig. Þú varst svo fróð um margt og ráðagóð. Gaman var að sjá þig taka til verka í bakstri, man allar flottu og góðu kökurnar þínar enda varstu vinsæl í veislubakstur hjá fólki. Allt sem þú saumaðir á okkur systur fyrir jól og aðra merkis- daga. Þú kenndir okkur virðingu og stundvísi. Já, ég gæti talið upp svo margt fallegt um þig. Takk fyrir öll samtölin okkar og umhyggjuna í minn garð, þú varst góð mamma, góð fyrirmynd og mikill fagurkeri. Virðing og kærleikur ríkti í gegnum lífið. Oft skildi ég ekki hvað þú varst þolinmóð, sterk og hafðir úthald í að komast yfir allt sem þú gerðir. Elsku mamma, takk fyrir allt, einnig þakka synir mínir, Einar Rafn og Sigurður Kristinn, fyrir yndislegt ömmuhlutverk. Minning þín lifir í hjörtum okk- ar. Guðrún Hrönn Einarsdóttir, Einar Rafn Ingimarsson og Sigurður Kristinn Ingimarsson. Látin er elskuleg mágkona mín, Ragnheiður Gestsdóttir, og mig langar til að kveðja hana með nokkrum minningarbrotum. Mér verður hugsað til vetursins 1955- 1956 en þá voru tvö eldri systkini mín í Reykjavík, Einar og Sóley, hann í Sjómannaskólanum en hún að vinna á Laugavegi 11, vinsæl- um veitingastað. Það var til þess tekið hve Einar var duglegur að sækja systur sína í vinnuna á kvöldin, að lokinni vakt. En „það hékk nú fleira á spýtunni“ því þarna var líka að vinna ung og fal- leg stúlka, hún Ragnheiður, og hún fékk líka keyrslu heim og oft- ar en ekki var hún síðasti farþegi úr bílnum. Nokkru seinna byrjuðu þau að búa og giftu sig. Veturinn 1959-1960 var ég nemandi í Húsmæðraskóla Reykjavíkur en þar hafði Ragn- heiður líka verið nokkru fyrr. Þá voru þau Einar búsett í Sandgerði og þangað fór ég til þeirra í páskafríinu. Ég þurfti að taka með mér handavinnu og reyna að kom- ast áfram með „skyldustykkin“ og sat því oft við að sauma út í hvít- saumsdúk. Ragnheiður dekraði við mig, færði mér hressingu inn í stofu og reyndi á allan hátt að auð- velda mér þetta verkefni. Þetta sama ár hagaði svo til að ég þurfi að fara að heiman, frá Tálknafirði, rétt fyrir jólin, til að mæta í annan skóla milli jóla og nýárs. Einar sótti mig til Reykjavíkur og var ég hjá þeim í Sandgerði yfir jólin. Hjá þeim var gott að vera og Ragnheiður sá til þess að nóg væri á boðstólum, hvort heldur var á matar- eða kaffiborði, en hún var snillingur í allri matseld og bakstri. Heimilið þeirra var prýtt útsaumuðum munum eftir hana og fatasaumur lék henni líka í höndum, sem best sást á fatnaði dætranna fjögurra en hún tók líka að sér að sauma fyrir aðra. Samt vann hún líka utan heimilis og mörg fyrri árinn var Einar fjar- verandi vegna sjómennsku. Þau Einar byggðu sér mynd- arlegt hús í Sandgerði og þangað kom ég til þeirra með mína fjöl- skyldu. Stundum á sjómannadeg- inum og kom fyrir að við gistum öll hjá þeim. Nú erum við mágkon- ur Ragnheiðar sex talsins og skapaðist sá siður fyrir mörgum árum að borða saman þorramat ásamt mökum okkar. Í fyrstu heima hjá okkur til skiptis en síð- ari ár hjá Ragnheiði sem þá var komin í Njarðvík, þar sem henni fannst mjög gott að vera. Það var aðeins nú í ár sem þorrablótið okkar féll niður, en þá var heilsan farin að gefa sig, bæði hjá henni og sumum okkar systrum líka. Allra þessara stunda er gott að minnast og líka ótal símtala sem við áttum og sögðum hvor annarri fréttir af fjölskyldum okkar. Nú kveðjum við Ragnheiði með virð- ingu og þakklæti, veri hún Guði falin. Elsku Sæunn, Guðrún, Þór- unn, Aldís og fjölskyldur, innileg- ar samúðarkveðjur til ykkar allra og megi Guð vera með ykkur. Kristín Lára Þórarinsdóttir og fjölskylda. Kristbjörg Pálsdóttir. Ragnheiður Gestsdóttir Fallin er frá amma okkar Rósa, eða kökuamma, eins og börnin okkar kölluðu hana gjarnan. Við eigum margar góðar minningar af ömmu sem vildi allt fyrir okkur gera og dekraði okkur eins og sannri ömmu sæmir. Hjá ömmu og afa var allt í boði sem ekki var á boðstólnum heima, heill ísskápur af kökum, sykrað morgunkorn, ís og fleira góðgæti. Amma var einstaklega músík- ölsk og var ekki laust við smá von- brigði þegar í ljós kom að við syst- ur værum ekki gæddar sömu sönghæfileikum og hún. Hún var gædd listrænum hæfileikum og málaði keramik og gaf okkur barnabörnunum sem okkur þykir Sumarrós Lillian Eyfjörð Garðarsdóttir ✝ Sumarrós Lilli-an Eyfjörð Garðarsdóttir (Rósa), fæddist 15. september 1928. Hún lést 11. nóv- ember 2019. Útför Sum- arrósar fór fram 18. nóvember 2019. mjög vænt um. Amma hafði gott lag á að segja sögur. Hún hafði einstakt minni og sagði oft sögur frá bernsku- árunum í Felli og sem var gaman og fróðlegt fyrir okkur nútímabörnin að heyra. Hjá ömmu fund- um við fyrir hlýju og öryggi og minnumst hennar með þakklæti og söknuði. Við kveðjum hana með kvöldbæninni sem hún fór alltaf með fyrir okkur. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Prestshólum) Ásta Björk og Berglind Rósa. Kær vinkona og skólasystir, Rósa Garðarsdóttir, er fallin frá. Er mér ljúft að minnast hennar þar sem vinátta okkar telur ára- tugi eða allt frá barnsaldri. Minn- isstæð eru mér skólaárin í Gagn- fræðaskóla Akureyrar er við lásum saman fyrir próf heima hjá hvor annarri. Móðir Rósu, Sigur- veig, sá um að búa okkur sem besta aðstöðu og atlæti. Rósa var alin upp á miklu menningarheim- ili hjá foreldrum sínum og þrem- ur systkinum. Þar var tónlist í há- vegum höfð en móðir hennar stjórnaði kirkjukór og lék á orgel ásamt því að sinna fleiri störfum fyrir samfélagið. Í minningunni voru þetta gæðastundir sem mót- uðu okkur unga fólkið fyrir lífstíð. Eftir að hafa unnið við versl- unarstörf í nokkur ár starfaði Rósa við hlið eiginmanns síns, séra Birgis Snæbjörnssonar, sóknarprests í Akureyrarpresta- kalli, ásamt því að annast heimilið og börnin þeirra tvö sem nú syrgja móður sína. Eru þeim ásamt öðrum aðstandendum færðar einlægar samúðarkveðj- ur. Lækkar lífdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól, fegin hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (Herdís Andrésdóttir) Hjördís Á. Briem.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.