Morgunblaðið - 26.11.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2019
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Mikill sigur lýðræðissinna í kosning-
um til héraðsráða í Hong Kong á
sunnudag er álitinn ofanígjöf við
stjórnvöld í Kína og yfirlýsing um
stuðning við mótmælendur sem hafa
krafist lýðræðisumbóta í sjálf-
stjórnarhéraðinu síðustu fimm mán-
uði. Stjórnmálaskýrendur eru þó ef-
ins um að ósigur
bandamanna
stjórnvalda í Pek-
ing verði til þess
að þau fallist á til-
slakanir.
Lýðræðissinn-
ar fengu alls 388
sæti af 452 í átján
héraðsráðum
Hong Kong, 263
sætum meira en í
síðustu kosning-
um, að sögn fjölmiðla í sjálfstjórnar-
héraðinu. Þeir sögðu að stærsti
flokkur bandamanna kínverskra
stjórnvalda hefði goldið afhroð; að
minnsta kosti 155 af 182 frambjóð-
endum hans hefðu ekki náð kjöri.
Lýðræðissinnar eru nú í meirihluta í
sautján af átján umdæmisráðum
sem kosið var til.
Með lítil pólitísk völd
Ráðin eru með lítil pólitísk völd og
sjá aðallega um sveitarstjórnarmál á
borð við sorphirðu, holræsi og þjón-
ustu strætisvagna. Kjósendurnir
hafa yfirleitt sýnt kosningum til ráð-
anna lítinn áhuga en að þessu sinni
var kjörsóknin meiri en nokkru sinni
fyrr, eða 71%. Í síðustu kosningum
var hún aðeins 47%.
Þótt valdsvið ráðanna sé takmark-
að velja þau alls 117 fulltrúa úr sín-
um röðum í 1.200 manna kjörnefnd
sem gegnir því hlutverki að kjósa
héraðsstjóra Hong Kong sem stjórn-
völd í Peking skipa formlega. Líklegt
er talið að niðurstaða kosninganna á
sunnudag verði til þess að lýðræðis-
sinnar fái öll sæti ráðanna í kjör-
nefndinni, að sögn fréttavefjar
breska ríkisútvarpsins.
Stjórnmálaskýrendur segja að
sigur lýðræðissinna í kosningunum
hafi einnig mikla táknræna þýðingu
vegna þess að þetta var fyrsta tæki-
færi kjósendanna til að sýna afstöðu
sína til þess hvernig Carrie Lam hér-
aðsstjóri hefur tekið á mótmælun-
um. Hún hafði haldið því fram að
mótmælendurnir nytu ekki stuðn-
ings „þögla meirihlutans“ í sjálf-
stjórnarhéraðinu.
Lam viðurkenndi eftir kosning-
arnar á sunnudag að úrslitin væru til
marks um óánægju kjósendanna
með stjórn hennar og lofaði að
„hlýða í auðmýkt“ á skilaboð þeirra.
Hendur hennar eru þó bundnar og
hún getur ekki fallist á neinar til-
slakanir í deilunum við lýðræðis-
sinna nema ráðamennirnir í Peking
samþykki þær. Hugsanlegt er að
þeir vilji frekar að Lam víki fyrir
öðrum til að reyna að lægja öldurn-
ar, að sögn fréttaskýranda breska
ríkisútvarpsins.
Baráttan harðnar
Stjórnmálaskýrandinn Willy Lam,
aðjúnkt við Kínverska háskólann í
Hong Kong, sagði að niðurstaða
kosninganna væri „ekkert annað en
bylting“ og efldi lýðræðishreyf-
inguna. „Kjósendurnir höfnuðu hér-
aðsstjórninni og stefnu stjórnvalda í
Peking gagnvart Hong Kong,“ hafði
fréttaveitan AFP eftir honum. Hann
kvaðst telja mjög ólíklegt að kosn-
ingarnar yrðu til þess að stjórnvöld-
in féllust á tilslakanir. „Þær þyrftu
að koma frá ráðamönnunum í Kína
og ég hef ekki séð neinar yfirlýsing-
ar frá Xi Jinping [forseta Kína] eða
öðrum embættismönnum um að þeir
ljái máls á því að gefa eftir. “ Hann
bætti við að úrslit kosninganna gætu
orðið til þess að Carrie Lam yrði vik-
ið frá en taldi líklegt að mótmælin
héldu áfram. „Mótmælendurnir líta
á þetta sem mikinn sigur, telja að
kjósendurnir hafi veitt þeim umboð
til að halda áfram að mótmæla,
þannig að þeir eru líklegir til að
herða baráttuna. En á sama tíma
fallast stjórnvöld í Peking ekki á
neinar tilslakanir, þannig að gremja
mótmælendanna eykst.“
Mótmælendurnir hafa meðal ann-
ars krafist þess að héraðsstjórinn og
allt löggjafarþing Hong Kong – ekki
aðeins hluti þess eins og nú – verði
kjörin í almennum kosningum. Þeir
vilja einnig að ofbeldi öryggissveita
gegn mótmælendum verði rannsak-
að.
Litlar líkur taldar á tilslökunum
Ólíklegt þykir að stjórnvöld í Peking fallist á kröfur mótmælenda í Hong Kong eftir mikinn sigur lýð-
ræðissinna í kosningum til héraðsráða Úrslitin ofanígjöf við stjórnvöldin og efla lýðræðishreyfinguna
Flokkar lýðræðissinna fengumikinn meirihluta í héraðskosningum í Hong Kong á sunnudag,
að sögn fjölmiðla í sjálfstjórnarhéraðinu í gær.
Kosið til átján ráðaFjöldi sæta
Lýðræðissinnar
Skipting sæta samkvæmt fréttum fjölmiðlanna
Smáeyjaráð*
388
Stuðningsmenn yfirvalda
59
Óflokksbundnir
5
Heimildir: SCMP/RTHK/HKFP/fjölmiðlar í Hong Kong
Kjörsókn: 71%
(47% árið 2015)
Stórsigur lýðræðissinna í kosningum í Hong Kong
*Lýðræðissinnar fengu fleiri sæti í ráðinu í kosningunum
en bandamenn yfirvalda, sem héldu þó meirihluta vegna
átta manna sem eiga þar sæti í krafti embættis síns.
AFP
Stórsigur Stuðningsmenn lýðræðisflokka í Hong Kong fagna sigri þeirra í héraðsráðakosningunum á sunnudag.
Carrie Lam
héraðsstjóri.
Berlín. AFP. | Innbrotsþjófar stálu
þremur ómetanlegum demanta-
settum úr safni í Dresden í gær að
sögn lögreglunnar í borginni og
stjórnenda safnsins. Þýska dag-
blaðið Bild sagði að þetta væri „að
öllum líkindum mesti listmunaþjófn-
aður frá síðari heimsstyrjöldinni“.
Þjófarnir brutust inn í Grænu
hvelfinguna í konungshöllinni í
Dresden, eitt af elstu söfnum Evr-
ópu, eftir að þjófavarnakerfið varð
óvirkt vegna rafmagnsleysis. Í safn-
inu eru geymdir um 4.000 listmunir
úr gulli, silfri, gimsteinum og fíla-
beini.
Hafa ómetanlegt gildi
Á meðal gersemanna sem þjóf-
arnir stálu eru demantar úr gim-
steinasafni Ágústusar II hins sterka
(1670 til 1733), kjörfursta Saxlands
og konungs Póllands. „Þetta eru list-
munir sem hafa ómetanlegt gildi í
list- og menningarsögunni,“ sagði
Marion Ackermann, yfirmaður ríkis-
listasafna Dresden. „Við getum ekki
sagt til um verðmæti þeirra vegna
þess að þeir eru ómetanlegir,“ sagði
hann.
Þjófarnir brutust inn í Grænu
hvelfinguna eftir að eldur kviknaði í
rafmagnstöflu nálægt höllinni
snemma í gærmorgun. Eldurinn
varð til þess að götuljós slokknuðu,
auk þess sem þjófavarnakerfið varð
óvirkt, að sögn lögreglunnar. Þrátt
fyrir rafmagnsleysið voru öryggis-
myndavélar í gangi og lögreglan
sagði að myndir úr þeim hefðu leitt í
ljós að tveir menn hefðu brotist inn í
safnið. Þeir beittu öxi til að brjóta
rúðu, rimlagrind og sýningarkassa
þar sem demantarnir voru geymdir.
Þjófarnir flúðu á bíl og eru enn á
flótta, að sögn lögreglunnar.
Stálu ómetanleg-
um demöntum
„Að öllum líkindum mesti listmuna-
þjófnaður frá síðari heimsstyrjöldinni“
AFP
Rannsókn Tæknimaður lögregl-
unnar að störfum fyrir utan safnið.