Morgunblaðið - 26.11.2019, Blaðsíða 24
FRJÁLSAR
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Ásdís Hjálmsdóttir Annerud, Ís-
landsmeistari í spjótkasti, stefnir
ótrauð á þátttöku á Ólympíu-
leikunum sem fram fara í Tókýó í
Japan næsta sumar. Hún hefur hafið
æfingar á ný til undirbúnings fyrir
næsta keppnisár sem hún segir að
verði sitt síðasta á ferlinum sem hef-
ur verið langur. Stefnan hefur verið
tekin á þátttöku á fjórðu Ólympíu-
leikunum. Gangi allt eftir kveður
hún keppnisvöllinn sem íþróttamað-
ur á Evrópumeistaramótinu í frjáls-
íþróttum sem fram fer skömmu eftir
Ólympíuleikana næsta sumar.
„Mér finnst kjörið að enda ferilinn
á svona stóru ári og snúa mér að ein-
hverju öðru,“ sagði Ásdís þegar
Morgunblaðið sló á þráðinn til henn-
ar í gær. Ásdís hefur búið í Gauta-
borg í Svíþjóð um nokkurt skeið.
Ásdís rifaði seglin fyrr á liðnu
sumri en upphaflega stóð til. Mestu
réði að hún var ekki í því keppnis-
formi sem hún vildi vera í. Ástæðan
var að hún meiddist í baki snemma á
undirbúningstímabilinu í fyrravetur.
Meiðslin settu strik í reikninginn við
undirbúninginn og gerðu að verkum
að hún „treysti ekki bakinu“ til átaka
þegar keppnistímabilið hófst, þótt
hún hefði verið búin að jafna sig að
fullu. Hún lét þess vegna hjá líða að
gera atlögu að keppnisrétti á heims-
meistaramótið í Doha í september.
„Ég var einfaldlega á þeim stað að
mig langaði ekki til þess að reyna að
komast inn á HM bara til þess að
taka þátt. Það er ekkert gaman að
taka þátt í HM ef maður er ekki í
toppformi. Ég hef reynt þetta allt
áður, að taka þátt í stórmótum í góðu
formi, slöku eða hálf meidd. Síðast
keppti ég á HM fyrir tveimur árum,
komst í úrslit. Það er gott að ljúka
HM ferlinum með þeim góðu minn-
ingum,“ sagði Ásdís sátt við ákvörð-
un sína.
Ásdís gekk að eiga sambýlismann
sinn til nokkurra ára, Svíann John
Annerud ljósmyndara, í október og
tók upp eftirnafn hans.
Breyttar reglur
Ásdís hefur ekki öðlast keppnis-
rétt á Ólympíuleikunum í Tókýó.
Reglum um þátttökurétt hefur verið
breytt frá því sem áður var. Nú gild-
ir ekki aðeins fyrir fram ákveðinn
lágmarksárangur heldur einnig
staða á afrekslista í hverri keppnis-
grein frjálsíþrótta. Þetta þýðir að
safna þarf stigum á þeim mótum
sem þeir taka þátt í frá áramótum og
fram til 22. júní. Meðaltal stiga af
fimm bestu mótunum gildir.
„Tímabilið til þess að öðlast
keppnisrétt er snemma árs þegar lit-
ið er til þess að keppnistímabilið
hefst alla jafna ekki fyrr en í byrjun
maí. Af þessu leiðir að maður hefur
ekki nema fimm til sex vikur til þess
að ná fimm góðum mótum og það
helst mótum sem gefa sem flest stig.
Mótin hafa mismikið vægi, áttunda
sæti á Demantamóti Alþjóða frjáls-
íþróttasambandsins vegur til dæmis
mikið þyngra en að verða lands-
meistari,“ segir Ásdís.
Byrjar í Portúgal í mars
Sökum þess hversu snemma á
tímabilinu hún þarf að ná hámarks-
árangri hefur hún orðið að haga æf-
ingum og keppni með öðrum hætti
en síðustu ár. „Einn liðurinn í þessu
verður að taka þátt í Vetrar-
kastmóti Evrópska frjálsíþrótta-
sambandsins í Leiria í Portúgal í
seinni partinn í mars. Vetrar-
kastmótið gefur mörg stig. Þess
vegna stefni ég á það. Að öðru leyti
reikna ég ekki með að byrja að
keppa fyrr en í byrjun maí í stað
þess sem verið hefur þegar ég hef
keppt á einu, í mesta lagi tveimur
undir lok maí,“ segir Ásdís, sem
reiknar með að hefja keppnis-
tímabilið á mótum Alþjóða frjáls-
íþróttasambandsins sem haldin eru
í Asíu og í Suður-Ameríku í snemma
í maí. Það mun þýðir talsverð ferða-
lög með tilheyrandi kostnaði.
Ásdís segir að breyting á fyrir-
komulaginu geri að verkum að enn
erfiðara verður að komast inn á
sterkustu móti fyrir leikana. „Þetta
getur verið ósanngjarnt, ekki síst
fyrir þá sem verða nærri mörk-
unum. Í raun getur þetta snúist um
það hver hafi besta umboðsmann-
inn. „Ég er með góðan umboðsmann
en hins vegar skiptir miklu máli fyr-
ir mig að kasta sem lengst svo ég
eigi meiri möguleika á að vera þátt-
takandi á sterkustu mótunum,“
sagði Ásdís, sem er hvergi bangin.
Undirlögð í harðsperrum
„Nú er ég á þriðju æfingaviku og
er öll undirlögð í harðsperrum. Allt
er eins og það á að vera. Ég er komin
með keppnisrétt á Evrópumeist-
aramótinu næsta sumar. Þannig að
ég get einbeitt mér að því að komast
inn á Ólympíuleikana og ljúka ferl-
inum með stæl,“ sagði Ásdís.
Hvað tekur við að íþróttaferlinum
loknum skýrist með tíð og tíma. Ás-
dís er með doktorspróf í lyfjafræði
en hvort hún fer inn á þá braut er
óvíst um þessar mundir. Ásdís hefur
stofnað fyrirtæki ásamt eiginmanni
sínum. Fyrirtækið heldur m.a. utan
um fyrirlestra sem Ásdís hefur vakið
athygli fyrir hvar hún miðlar af yfir-
gripsmikilli reynslu sinni af íþrótta-
ferlinum, jafnt gleðistundunum sem
vonbrigðunum og eins hvernig ber á
að setja sér raunhæf markmið og
vinna eftir þeim. Ásdís var m.a. hér
heima í fyrirlestraferð í síðustu viku.
Fyrirlestrarnir eru jafnt fyrir al-
menning sem íþróttafólk. „Ef þetta
gengur vel getur vel verið að við þró-
um þetta áfram og vinnum í fyrir-
tæki okkar. Ef ekki, þá finnur maður
eitthvað annað að gera. Og hvort við
festum rætur í Svíþjóð eða á Íslandi
leiðir framtíðin í ljós,“ sagði Ásdís
Hjálmsdóttir Annerud glöð í bragði.
Vil ljúka
ferlinum
með stæl
Ásdís Hjálmsdóttir Annerud stefnir
á Tókýó á síðasta keppnisárinu sínu í
spjótkasti EM á að vera kveðjumótið
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Methafinn Ásdís Hjálmsdóttir Annerud hefur átt Íslandsmetið í spjótkasti
frá árinu 2005 og hennar lengsta kast er 63,43 metrar árið 2017.
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2019
England
Aston Villa – Newcastle........................... 2:0
Staðan:
Liverpool 13 12 1 0 30:11 37
Leicester 13 9 2 2 31:8 29
Manch.City 13 9 1 3 37:14 28
Chelsea 13 8 2 3 28:19 26
Wolves 13 4 7 2 18:16 19
Sheffield Utd 13 4 6 3 16:12 18
Burnley 13 5 3 5 20:18 18
Arsenal 13 4 6 3 18:19 18
Manch. Utd 13 4 5 4 19:15 17
Tottenham 13 4 5 4 21:19 17
Bournemouth 13 4 4 5 16:17 16
Brighton 13 4 3 6 15:19 15
Crystal Palace 13 4 3 6 11:18 15
Newcastle 13 4 3 6 11:20 15
Aston Villa 13 4 2 7 19:20 14
Everton 13 4 2 7 13:20 14
West Ham 13 3 4 6 16:23 13
Norwich 13 3 1 9 13:28 10
Southampton 13 2 3 8 13:31 9
Watford 13 1 5 7 8:26 8
Danmörk
OB – Midtjylland...................................... 1:2
Mikael Anderson lék ekki með Midtjyll-
and vegna meiðsla.
Staðan:
Midtjylland 17 14 2 1 27:8 44
København 17 12 1 4 32:20 37
Brøndby 17 10 1 6 34:24 31
AGF 17 9 2 6 28:19 29
AaB 17 8 2 7 29:20 26
OB 17 8 2 7 27:20 26
Nordsjælland 17 7 3 7 30:27 24
Randers 17 7 3 7 28:26 24
Lyngby 17 7 2 8 23:31 23
SønderjyskE 17 4 7 6 21:28 19
Horsens 17 5 3 9 14:30 18
Hobro 17 2 8 7 18:25 14
Esbjerg 17 3 4 10 15:28 13
Silkeborg 17 1 4 12 22:42 7
Þýskaland
B-deild:
Hannover – Darmstadt ........................... 1:2
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik-
inn með Darmstadt.
Portúgal
SL Benfica – Albergaria......................... 4:0
Cloé Lacasse skoraði eitt mark fyrir
Benfica og lagði annað upp.
Ítalía
Lecce – Cagliari........................................ 2:2
SPAL – Genoa .......................................... 1:1
Staða efstu liða:
Juventus 13 11 2 0 23:10 35
Inter Mílanó 13 11 1 1 29:12 34
Lazio 13 8 3 2 30:14 27
Cagliari 13 7 4 2 25:14 25
Roma 13 7 4 2 23:14 25
KNATTSPYRNA
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Dalhús: Fjölnir U – Stjarnan U .......... 19.30
Í KVÖLD!
HANDBOLTI
Olísdeild karla
ÍR – Haukar.......................................... 30:30
HK – Afturelding ................................. 26:32
Staðan:
Haukar 11 8 3 0 305:276 19
Afturelding 11 8 1 2 306:282 17
Selfoss 11 7 1 3 338:328 15
FH 11 6 2 3 310:295 14
ÍR 11 6 2 3 328:305 14
ÍBV 11 6 1 4 310:289 13
Valur 11 6 1 4 289:257 13
KA 11 4 1 6 304:317 9
Fram 11 3 1 7 273:289 7
Stjarnan 11 1 4 6 277:301 6
Fjölnir 11 2 1 8 280:328 5
HK 11 0 0 11 268:321 0
Danmörk
Skanderborg – Ribe-Esbjerg............. 30:27
Rúnar Kárason skoraði 1 mark fyrir
Ribe-Esbjerg, Gunnar Steinn Jónsson
skoraði ekki og Daníel Þór Ingason er
meiddur.
Vináttulandsleikir kvenna
Ungverjaland – Serbía......................... 23:25
Suður-Kórea – Rússland ..................... 22:29
Rússland
UNICS Kazan – Zenit Pétursborg .... 80:93
Haukur Helgi Pálsson var ekki í leik-
mannahópi Kazan.
NBA-deildin
Houston – Dallas............... ............... 123:137
New York – Brooklyn ...................... 101:103
Washington – Sacramento............... 106:113
Denver – Phoenix ............................. 116:104
LA Clippers – New Orleans ............ 134:109
KÖRFUBOLTI
Mikael Anderson, landsliðsmaður í
knattspyrnu, gat ekki leikið með
Midtjylland gegn OB í dönsku úr-
valsdeildinni í gærkvöld vegna
meiðslanna sem hann varð fyrir í
landsleiknum gegn Moldóvu um
fyrri helgi. Mikael, sem lagði upp
fyrra mark Íslands í 2:1 sigri, fékk
þá þungt högg á rifbeinin og varð
að fara af velli snemma í síðari hálf-
leik. Hann sagði við mbl.is í gær að
hann hefði sem betur fer ekki
brotnað og vonaðist eftir því að
vera tilbúinn að spila með liðinu á
nýjan leik eftir sjö til tíu daga.
Ekki tilbúinn eftir
höggið í Moldóvu
Morgunblaðið/Eggert
Midtjylland Mikael Anderson gat
ekki spilað í gærkvöld.
Rakel Hönnudóttir, landsliðskona í
knattspyrnu, hefur misst af síðustu
fjórum leikjum Reading í ensku úr-
valsdeildinni og deildabikarnum
vegna meiðsla í læri. „Það kom í
ljós vökvi á milli tveggja vöðva í
framanverðu lærinu. Þetta er ekk-
ert alvarlegt en ég reikna samt
ekki með því að geta verið með um
næstu helgi,“ sagði Rakel við mbl.is
í gær. Lið hennar er í sjötta sæti af
tólf liðum í úrvalsdeildinni og
stendur mjög vel að vígi með að
komast í átta liða úrslit deilda-
bikarsins.
Rakel að jafna sig
af meiðslum
Ljósmynd/Neil Graham
Reading Rakel Hönnudóttir býst
við að geta byrjað að spila fljótlega.
Guðmundur Helgi Pálsson er hættur þjálfun meist-
araflokks karla hjá Fram. Bjarni K. Eysteinsson, for-
maður handknattleiksdeildar, staðfesti þetta í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi.
„Við munum ekki fara fram á vinnuframlag frá Guð-
mundi varðandi meistaraflokkinn fram á vorið. Hann
þjálfar hins vegar einnig 4. flokk hjá okkur og ég geri
fastlega ráð fyrir því að hann starfi þar áfram. Guð-
mundur hættir störfum að okkar frumkvæði en ég vil
leggja áherslu á að félagið er honum gríðarlega þakk-
látt fyrir hans framlag á erfiðum tímum þegar enginn
vildi líta við okkur. Hann er því í miklum metum hjá
okkur og stóð sig vel,“ sagði Bjarni en væntanlega
verður tilkynnt um eftirmann Guðmundar í dag.
Af kunnum þjálfurum sem eru á lausu má nefna Hall-
dór Jóhann Sigfússon. Hann lék með Fram í mörg ár,
gerði kvennaliðið að Íslandsmeisturum og á börn í fé-
laginu. „Ég get ekki sagt til um það núna því ekkert er
frágengið,“ sagði Bjarni spurður hvort Jóhann væri
fyrsti kostur. kris@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hættur Guðmundur Helgi Pálsson,
fráfarandi þjálfari Fram.
Tekur Halldór við af Guðmundi?