Morgunblaðið - 26.11.2019, Side 14

Morgunblaðið - 26.11.2019, Side 14
SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Mikilvægt er að hjú-skaparlög endurspeglitíðarandann. Því erspurning hvort skiln- aður að borði og sæng eigi endilega að vera meginreglan eða hvort snúa ætti skilnaðarferlinu við – að meg- inreglan verði lögskilnaður nema hjón ákveði að óska eftir skilnaði að borði og sæng með tilheyrandi réttaráhrifum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í umsögn Sýslumannsins á Suðurlandi um frumvarp um breytingu á hjú- skaparlögum sem nú hefur verið lagt fyrir Alþingi. Umrætt frumvarp er lagt fram af þingmönnum fjögurra flokka; Viðreisnar, VG, Pírata og Samfylkingar. Lagðar eru til ferns konar breytingar á hjúskaparlögum. „Í fyrsta lagi er lagt til að tímamörk lögskilnaðar verði hin sömu hvort sem hann er að kröfu annars hjóna eða beggja. Í öðru lagi er lagt til að lögskilnaður verði einfaldaður þegar hjón eru ekki einhuga um að leita hans og tryggja fólki jafnframt auk- ið frelsi við ákvörðun hjúskapar- skráningar sinnar. Í þriðja lagi er lagt til að lögskilnaður á grundvelli heimilisofbeldis verði gerður að raunhæfu úrræði fyrir þolendur slíkra brota. Í fjórða lagi er hér lagt til að sáttaumleitan verði færð í form samtals um forsjá barna. Markmið framangreindra breytinga er að styrkja stöðu þolenda ofbeldis og tryggja rétt þeirra til að slíta hjú- skap,“ segir í greinargerð. Geti óskað beins lögskilnaðar Í áðurnefndri umsögn Sýslu- mannsins á Suðurlandi, sem Arndís Soffía Sigurðardóttir fulltrúi skrifar undir, segir að það geti verið þol- endum ofbeldis í hjúskap afar þung- bært að vera tengt hinu hjónanna lagalegum böndum þar til lögskiln- aður gengur í gegn þegar undan- þáguheimildir til beins lögskilnaðar duga ekki til. „Þá blasir við sú grundvallarspurning hvaða tilgangi skilnaður að borði og sæng þjóni í nútíma samfélagi og hvort skilnaður að borði og sæng endurspegli tíð- aranda samtímans, óháð því hvort um ofbeldissamband er að ræða eða ekki. Verði hjónum heimilt að óska beins lögskilnaðar án þess að telja upp sérstakar ástæður fyrir því við fulltrúa sýslumanns er um leið ekki þörf á flóknum skilgreiningum í hjú- skaparlögum eða skilyrðum fyrir skilnaði,“ segir í umsögninni. Geti einfaldað stjórnsýslu Í frumvarpinu er lagt til brott- fall ákvæðis hjúskaparlaga um að réttaráhrif skilnaðar að borði og sæng falli annars vegar niður ef makar halda áfram sambúð umfram stuttan tíma sem sanngjarnt er að ætla þeim og hins vegar ef hjón taka síðar upp sambúð nema um sé að ræða skammvinna tilraun til að endurvekja samvistir að nýju. Í umsögn Sýslumannsins á Suðurlandi segir að breytingin geti einfaldað stjórnsýslu og dregið úr forræðishyggju. „Öðru hverju kem- ur upp sú staða að hjón þurfi að endurtaka skilnaðarmál þar sem þau athuguðu ekki að færa lögheimili sitt í kjölfar útgáfu leyfis til skilnaðar að borði og sæng, þrátt fyrir viðvaranir Þjóðskrár Íslands um að færi a.m.k. ekki annað þeirra ekki lögheimili sitt verði þau skráð í hjúskap að nýju. Á hinn bóginn er með breytingunni verið að taka valkost af fólki sem vill halda áfram hjúskap eftir að leyfi hefur verið gefið til skilnaðar að borði og sæng og skv. tölulegum upplýsingum úr greinargerð frum- varpsins virðist vera tiltölulega hátt hlutfall hjóna sem kýs það.“ Vill skoða „norsku leiðina“ Arndís segir í samtali við Morgunblaðið að réttast væri að ráðast í heildarendurskoðun á hjú- skaparlögunum, í það minnsta á skilnaðarkafla þeirra. Í umræddu frumvarpi sé þó jákvætt að reynt sé að bæta stöðu fólks í ofbeldis- samböndum sem vilji losna strax úr hjónabandi. Yfirleitt sé þar um að ræða konur í félagslega og fjárhags- lega bágri stöðu. Þær losni ekki úr hjúskap vegna þess að ekki sé hægt að ljúka fjárskiptum. Skynsamlegt gæti verið að fara „norsku leiðina“ svokölluðu því þær breytingar sem boðaðar séu með frumvarpinu taki ekki á vanda þessa viðkvæma hóps. Arndís segir að í Noregi sé gefið út skilnaðarleyfi en ágreiningur um fjárskipti geti haldið áfram þrátt fyrir skilnað og geti verið leystur með sama hætti og áður. Fjárskiptin standi þannig ekki í vegi fyrir hjóna- skilnaði. „Önnur leið til að koma til móts við þennan hóp væri að heimila gjafsókn í fleiri tilfellum eða lækka þröskuldinn til að hljóta gjafsókn í umræddum málum,“ segir í umsögn- inni. Hjúskaparlögin end- urspegli tíðarandann Getty Images/Thinkstock Skilnaður Frumvarp um breytingar á hjúskaparlögum liggur nú fyrir. Arndís Soffía Sigurðardóttir 14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Litríkur for-seti Neðrideildar breska þingsins er loks hættur og var það ekki vonum fyrr. Sá var radd- sterkur og kraft- mikill en ekki á lengdina. En þrátt fyrir mikil tilþrif var það of áberandi að þingforsetinn taldi að hinn aldagamli þingsal- ur og fundahaldið þar snerist eingöngu um hann. Vandi hans, auk yfirþyrm- andi og þreytandi sjálfhverfu, var að auki sá að hann var yfir sig hlutdrægur sem er meg- inatriði að forsetinn sé ekki. Bercow þingforseti var ekki bara grunaður um það heldur hrópaði sú ásökun af allri hans framgöngu, vafasömum úr- skurðum og ósvífinni misneyt- ingu valds. Er ekki hægt að nefna hliðstæðu hjá neinum for- vera hans á síðari tímum. Allt liggur þetta fyrir og eins hitt að þingforsetanum tókst að valda illbætanlegum skaða í bresku þjóðlífi, ýta undir sundurlyndi þar og í þinginu og staðfesti þá mynd í augum almennings að valdamenn færu sínu fram í trássi við þjóðarvilja. En eins og fyrr sagði hafði þessi misvitri þingforseti sumt með sér. Hann lét þingmenn í sínum sal, hátt á sjöunda hundrað ef allir mæta, ekki komast upp með rugl og fleipur. Þannig hefði hann örugglega ekki látið þinginu haldast uppi að niðurlægja sjálft sig eins og gert var síðast í gær á Alþingi. Þá héldu nokkrir þingmenn uppi undarlegri tilraun til að- farar að fjármálaráðherranum með svigurmælum um lögbrot án þess að nokkur leið væri að botna í hvað óvitarnir voru að fara. Það er auðvitað ekki hægt að gera mál úr Ágústi Ágústs- syni þingmanni. Hann er sér- stök blaðsíða. Án þess að hans ferill hafi verið kannaður sér- staklega mætti auðveldlega ætla að hann hefði átt erfiða æsku. Það kæmi því ekki á óvart ef upplýst væri að hann hefði ungur þurft að fikra sig út úr ljóslitlu braggahverfinu í átt að skólanum og þegar hann nálgaðist í götóttum sokkum í gúmmískónum, gerðum úr dekkjaafgöngum frá hernum, hefðu olíugreiddir kvótadreng- ir, puntaðir úr P. og Ó. veist að honum með oflæti. Það gæti hæglega verið ástæðan fyrir því að komi mál upp sem tengjast þorskum eða þilförum, þótt fjarlægt sé, eins og uppistand neðan úr Nami- bíu, ýti það svo illa við beiskum minningum sultaráranna að ekki verði við ráðið. Þeir sem fylgdust með þinginu fyrir alllöngu muna þegar að jafnaði stilltur maður, sennilega með áþekku nafni um- turnaðist í ræðu- stól yfir óréttlæti kvótans og þeirri ósvinnu að ekki hefði verið ákveðið að sporður yrði sendur inn um hverja lúgu og fyrr mætti enginn fá sporð númer tvö. Skammaði riddari réttlætisins þessa 62 kvóta- eigendur í salnum eins og hunda fyrir græðgi þeirra og skilningsleysi sem hann væri einn um að andæfa. Það fór ekki á milli mála að óréttlætið sveið þessa við- kvæmu sál samfylking- armannsins sárlega. Ef ekki inn að beini þá örugglega lang- leiðina inn að veskinu hans. Það var aldrei fundið að óskiljan- legum stóryrðum þáverandi enda töldu menn að hann hefði sjálfsagt ekki verið minna fórn- arlamb misskiptingar og einelt- is vegna ævilangrar fátæktar en sá sem síðar fetaði á gat- slitnum gúmmískónum í sporin hans. Kannski væri hægt að ná þessum tveimur þjökuðu sálum saman til skilningsríkra sér- fræðinga sem gætu þrætt sig í gegnum þetta böl fátæktar og óréttlætis sem þjakar þá alla tíð. En þrátt fyrir þessa ógnar- fátækt tveggja kynslóða jafn- aðarmanna, þá hefði þing- forsetinn frekar átt að ná í áfallahjálp handa Ágústi og senda áfallahjálp 20 ár aftur í tímann handa hinum, þar sem hann hímir kannski undir skektu á hvolfi úti í Örfirisey eða öðru hreysi ekki fjarri. En að þessum erfiðu örlögum slepptum var uppþotið í þinginu í gær ekki að tilefn- islausu, eins og það er þó að jafnaði. Því var spólað upp í óskiljanlegt rugl eftir að fjár- málaráðherra hafði bent á að nokkurra daga gömul uppsetn- ing á „RÚV“-fjölunum leiddi ekki af sér sjálfkrafa fjár- vöntun, frekar en önnur mál sem spryttu upp. Eins og allir ættu að vita væri töluvert svig- rúm fyrir hendi í víðtækum rík- isrekstri og að auki úrræði til að bregðast við sérstaklega ef þyrfti. Þetta var almennur og réttur fróðleikur hjá ráðherranum sem hefur legið fyrir áratugum saman. Þingmenn sem eitthvað þekkja til hljóta að vita það. Þingmönnum sem ekkert þekkja til verður hins vegar ekki bjargað nú fremur en áð- ur. Það var að vísu skrítið að einn þingmaður Samfylkingar, þrútinn af reiði, sem hafði verið fjármálaráðherra í einhverja mánuði í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og verðskuldar því alla samúð, skyldi vera úti að aka í þessum efnum. Það er afrek að álit- ið á þinginu komist ekki niður úr gólfinu eins og það reynir mikið til þess} Ys og þys og enginn nær T R greiddi út 6 milljarða og helm- ingur fór til þeirra sem hæstu hafa greiðslurnar.“ Þetta skrifaði Sigurður Jónsson, formaður kjaranefndar Landsambands eldri borgara (LEB) og Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrennis í Morgunblaðsgrein 15. nóvember sl. Hann hélt áfram: „Nú má skilja það á málflutningi Flokks fólksins að þannig vilji þau hafa þetta. Allar skerðingar í burtu hvað varðar greiðslur frá TR. Er þetta virkilega það réttlæti sem Flokkur fólksins vill?“ LEB deildi grein á vefsíðum sínum. For- ystufólk LEB reyndi þannig að gera lítið úr máli sem Flokkur fólksins stóð að fyrir hönd eldri borgara. Dómur Landsréttar í því varð þess valdandi að ríkið greiddi öldruðum sex þúsund milljónir króna vegna ólögmætra skerðinga. Með dómsmálinu vorum við að draga fram óvönduð vinnubrögð þingsins á breytingum frumvarps þar sem heimildir til skerðinga féllu niður og löggjafinn beitti ótrúlegri valdníðslu með því að ætla íþyngjandi aft- urvirkt að skerða aldraða án nokkurrar lagastoðar. Í þessu máli skiptir engu hvort sá sem lögbrotið bitnar á er efnaður eða ekki. Það sætir furðu og veldur miklum vonbrigðum að for- ystufólk í samtökum aldraðra sem eiga að verja hags- muni þeirra, skuli ganga fram með þeim hætti sem gert er. Þetta fólk ræðst beint á stjórnmálaflokk á þingi sem er að reyna að gera sitt ýtrasta til að rétta hag aldraðra í þessu landi. Hvað gengur fólki eins og Sig- urði Jónssyni til með þessu? Hví velur hann þá leið að ala á úlfúð þegar samstaðan er svo mikilvæg meðal þeirra sem berjast fyrir hag aldraðra? Er hann sem gamall varðhundur Sjálfstæðisflokksins með þessu sleifarsparki sínu í garð Flokks fólksins að taka hagsmuni síns stjórnmálaflokks fram yfir hag umbjóð- enda sinna í LEB? Það skyldi þó aldrei vera. Loksins þegar aldraðir eiga málsvara á þingi, þ.e. Flokk fólksins, sem berst með kjafti og klóm fyrir bættum hag þeirra velur LEB þá leið að ráðast á okkur með dylgjum og ótrúlegri lágkúru. Aldrei hafa þessi sam- tök samband við okkur að fyrra bragði. Hér skulu nefnd þingmál sem Flokkur fólksins hefur þegar lagt fram á Alþingi nú í haust:1. Bú- setuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum. 2. Kostnaður við framkvæmd greiðslna frá TR inn á erlenda banka- reikninga. 3. 100.000 kr. frítekjumark vegna lífeyris- tekna. 4. Hækkun bóta fylgi ávallt launaþróun eins og hún kemur fram í launavísitölu. 5. Hjálpartæki und- anþegin virðisaukaskatti. 6. 300 þús. kr. lágmarks- framfærslu almannatrygginga. 7. Afnám vasapeninga. 8. Aukið lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum. 9. Hagsmuna- fulltrúi aldraðra. 10. Skattleysi launatekna undir 350.000 kr. 11. Afnám skerðinga vegna launatekna aldraðra. Okkur í Flokki fólksins er fúlasta alvara og við erum bara rétt að byrja. Við frábiðjum okkur hælbíta. Inga Sæland Pistill Um vindhögg trúnaðarmanns Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.