Morgunblaðið - 26.11.2019, Page 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2019
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Leðurskór
Verð 14.995
Stærðir 36-41
50 ára Dóra er Reyk-
víkingur en býr á Sel-
fossi. Hún er hjúkr-
unarfræðingur og
vinnur á bráða-
móttökunni í Fossvogi.
Maki: Birgir Ásgeir
Kristjánsson, f. 1969,
framkvæmdastjóri umhverfissviðs Ís-
lenska gámafélagsins.
Börn: Birna Rún, f. 1993, Eva Björk, f.
1996, og Eydís Arna, f. 1998.
Foreldrar: Björn Bjarnason, f. 1938, d.
1988, kennari, og Guðrún Magnúsdóttir,
f. 1948, kennari, bús. í Reykjavík. Stjúp-
faðir er Sigurður G. Þorsteinsson, f.
1946, kennari, bús. í Kópavogi.
Dóra
Björnsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Því afslappaðri sem maður er, þeim
mun afkastameiri verður maður. Frestaðu
nú ekki lengur því sem þú hefur lofað að
framkvæma.
20. apríl - 20. maí
Naut Ferðaáætlanir vekja með þér til-
hlökkun. Fólk vill leggja þér lið í öllu sem þú
tekur þér fyrir hendur á viðskiptasviðinu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér finnst eins og þú náir ekki til
fólks og ættir því að endurskoða með
hvaða hætti þú talar til þess. Þú munt hitta
spennandi aðila í kvöld.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Mundu að það er ekki sjálfgefið að
aðrir vilji endilega heyra það sem þú hefur
til málanna að leggja.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu vera að taka áhættu í dag. Vertu
ekki of hörð/harður við sjálfa/n þig og
mundu að þú getur ekki borið ein/n byrðar
heimsins.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú munt koma miklu í verk sökum
jákvæðni þinnar. Boð og/eða hádegisverðir
ganga svo vel að þú hefur skrifað undir
samning áður en þú yfirgefur svæðið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Duldir kraftar leysast skyndilega úr
læðingi og koma þér og ástvinum þínum til
góða. Dagar víns og rósa eru fram undan.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gefstu upp fyrir löngun þinni,
það má af og til. Þú manst óljóst eftir at-
burði í fortíðinni en skyndilega rofar til og
þú sérð hlutina í nýju ljósi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Eitthvað hvílir þungt á þér og
hindrar þig í að njóta lífsins. Taktu það al-
varlega ef þú ert beðin/n um að þegja yfir
leyndarmáli.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur mikla sköpunargáfu og
ættir að snúa þér að listsköpun í meira
mæli en hingað til. Þú ert önnum kafin/n
við að pakka niður.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þeir eru margir sem öfunda þig
af skemmtilegu verkefni. Reyndu að skapa
sem mest í dag. Vinur þinn vaknar upp við
vondan draum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt þú sért ekki hlynnt/ur því sem
ættingi þinn er að gera skaltu láta það af-
skiptalaust. Hvernig getur þú átt að vita
hvað gera skal, þegar þú hefur ekki kynnt
þér vandamálið?
hann stjórnaði m.a. vinnu og útgáfu
Hvítbókarinnar sem fjallar um upp-
byggingu og nýtingu svæðisins. Hann
var formaður stjórnar Oddfellowa
1986-1994 og formaður Golfklúbbs
Oddfellowa 1993-1995 og beitti sér
mikið fyrir stækkun golfvallarins.
„Maður er enn að fá hugmyndir og
er vonandi frjór enn þá. Það síðasta
sem ég hef verið að vinna að er að
lýsa kirkjur, gamlar og nýjar. Þær
eru orðnar átta þannig að það ætti að
með ljóskösturum. Yoko hreifst mjög
af hugmyndinni og stuðlaði að því með
eigin fjárframlögum að hún yrði að
veruleika. Jón Otti hannaði einnig
minnisvarða sem reistur var við Vífils-
staði í tilefni af 100 afmæli hælisins.
Um árabil var Jón Otti í skipulags-
og byggingarnefnd Garðabæjar. Jón
Otti gekk í Oddfellowregluna 1961 og
innan hennar gegndi hann fjölmörg-
um trúnaðar- og embættisstörfum,
ekki síst í tengslum við Urriðavatn en
J
ón Otti Sigurðsson fæddist
26. nóvember 1934 á Báru-
götu 31 í Reykjavík og ólst
þar upp. „Ég bar út Morg-
unblaðið á unglingsárunum
og eitt sumarið bar ég út á elliheim-
ilinu Grund og umhverfi. Það voru
ýmsir sem vildu ekki gerast áskrif-
endur en vildu kaupa blaðið beint af
mér og einn af þeim var Þórbergur
Þórðarson rithöfundur, hann vildi
ekki láta kenna sig við það að vera
áskrifandi að Mogganum.“
Jón Otti lauk sveinsprófi í rafvéla-
virkjun í Iðnskólanum í Reykjavík og
prófi frá rafmagnsdeild Vélskóla Ís-
lands 1958. Hann stundaði síðar nám í
hagræðingu í Noregi.
Jón Otti var starfsmaður Raf-
magnsveitu Reykjavíkur 1958-1974 og
vann þar aðallega að hönnun rafkerfa
og rekstri rannsóknarstofu. Árið 1979
var hann tveggja stofnenda fyrir-
tækisins Rafhönnunar þar sem hann
starfaði síðan og auk þess var hann
einn af stofnendum fyrirtækisins Raf-
tákns á Akureyri.
„Árið 1995 stofnaði ég með syni
mínum verkfræðistofuna Víking, en
það nafn átti ég til. Fyrstu árin vorum
við bara tveir og hægt og rólega
stækkaði fyrirtækið okkar. Árið 2000
fengum við mjög stórt verkefni, að
hanna allt rafmagn í hús Íslenskrar
erfðagreiningar. Þetta var stærsta
verkefnið okkar en við leystum málið
með því að fara í samstarf við Raf-
tákn. Árið 2004 var svo fyrirtækið
okkar keypt af Verkfræðistofu Sig-
urðar Thoroddson, VST, þar sem ég
lauk ferlinum mínum með son minn
sem næsta yfirmann.“
Meðal fleiri verkefna sem Jón Otti
hefur unnið að er hönnun rafmagns og
lýsingar í Þjóðarbókhlöðunni og
Seðlabanka Íslands. Rafhönnun var
alla tíð með mikil verkefni í Vest-
mannaeyjum, meðal annars við að
koma skikkan á rafmagnsmálin þar
eftir gosið 1973.
Meðal hönnunarverka Jóns Otta er
friðarsúlan í Viðey sem tendruð var
fyrst á dánardegi Johns Lennon 9.10.
2007. Ýmsar hugmyndir höfðu komið
fram um friðarsúluna en Yoko Ono
leist ekki vel á þær. Þá kom Jón Otti
með þá lausn að mynda friðarsúluna
vera pláss fyrir mann uppi þegar það
að kemur.“
Fjölskylda
Eiginkona Jóns Otta var Sigríður
Kristín Kristjánsdóttir, f. 7.1. 1939, d.
8.2. 1997, röntgentæknir. Foreldrar
hennar voru hjónin Kristján Þor-
steinsdóttir, f. 1908, d. 1989, og Vil-
borg Þjóðbjarnardóttir, f. 1903, d.
1984, þau voru búsett á Akranesi.
Sambýliskona Jóns Otta er Ragn-
Jón Otti Sigurðsson tæknifræðingur – 85 ára
Morgunblaðið/Kristinn
Friðarsúlan og hönnuðurinn Jón Otti kom með hugmyndina um að friðarsúlan yrði mynduð með ljóskösturum.
Hannaði friðarsúluna í Viðey
Morgunblaðið/Golli
Minnismerkið við Vífilsstaði Lárus Helgason læknir, Stefán Veturliðason
Oddfellowi og hönnuðirnir Jón Otti og Þorkell Gunnar Guðmundsson. Parið Jón Otti og Ragnheiður.
30 ára Hannes er frá
Kálfshóli á Skeiðum
en býr í Bugðugerði í
Skeiða- og Gnúp-
verjahreppi. Hann er
vélfræðingur að
mennt frá Tækniskól-
anum og er skólabíl-
stjóri og ferðaþjónustubóndi.
Maki: Þorbjörg Anna Steinarsdóttir, f.
1991, hjúkrunarfræðingur.
Dóttir: Una Margrét, f. 2019.
Foreldrar: Gestur Þórðarson, f. 1949,
vélfræðingur og bóndi, og Margrét
Jóna Ólafsdóttir, f. 1952, leikskólakenn-
ari í Álfheimum á Selfossi. Þau búa á
Kálfshóli.
Hannes Ólafur
Gestsson
Til hamingju með daginn
Bugðugerði, Skeiða- og Gnúp-
verjahreppi Una Margrét Hann-
esdóttir fæddist 18. maí 2019 kl.
00.25 Hún vó 3.340 g og var 49
cm löng. Foreldrar hennar eru
Hannes Ólafur Gestsson og Þor-
björg Anna Steinarsdóttir.
Nýr borgari