Morgunblaðið - 28.11.2019, Page 1

Morgunblaðið - 28.11.2019, Page 1
JÓLABLAÐIÐ JÓLAMATUR, GJAFIR OG JÓLAHEFÐIR Í 128 SÍÐNA SÉRBLAÐI F I M M T U D A G U R 2 8. N Ó V E M B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  280. tölublað  107. árgangur  Erfðir og skattur » Sýslumenn sjá um að leggja erfðafjárskatt á dánarbú og eru skattleysismörkin ein og hálf milljón » Á síðustu tíu árum hafa 47.270 einstaklingar talið fram fenginn arf á skattframtölum Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Einstaklingar erfðu samtals tæplega 47 milljarða króna á síðasta ári sam- kvæmt skattframtölum fyrir árið 2018. Alls töldu 5.552 framteljendur fram arf á árinu vegna tekna á síð- asta ári. Af þessari fjárhæð renna tæplega 4,5 milljarðar til ríkisins í erfðafjárskatt. Þessar upplýsingar fengust hjá embætti Ríkisskattstjóra. Upphæð fengins arfs hækkaði á milli ára en til samanburðar þá töldu 5.367 fram- teljendur fram arf í fyrra sem þeir fengu á árinu 2017, samtals rúmlega 38,4 milljarða á verðlagi þess árs. Á fimm ára tímabili, þ.e.a.s. á ár- unum 2014 til 2018, fengu lands- menn samanlagt tæplega 165 millj- arða kr. í arf að því er fram kemur í skattframtölum og voru erfingjar á þessu tímabili um 24.350 talsins. Tekjur ríkisins af erfðafjárskatti á þessum árum voru rúmir 15,8 millj- arðar. Á síðasta ári létu 1.604 eftir sig arf. Fjöldi þeirra sem telja fram arf hefur sveiflast í gegnum árin. Á síð- ustu 14 árum náði fjöldi þeirra há- marki 2010 þegar 6.611 töldu fram arf. Þeir voru 3.550 ári síðar en síðan þá hefur erfingjum fjölgað ár frá ári. 47 milljarðar í arf í fyrra  5.552 framteljendur töldu fram fenginn arf á síðasta ári  Fjárhæð erfðafjár- skatts var um 4,5 millj. kr. á árinu samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra MLandsmenn erfðu » 6 Reynslusigling á frumgerð af rafbátnum Magn- eu í Reykjavíkurhöfn í gær gekk vel að sögn Bjarna Hjartarsonar, hönnuðar hjá Navis. Þessi íslenski rafmagnsbátur er hannaður þannig að rafhleðslan er inni í byggingarefninu og hluti af bátsskrokknum. Um er að ræða tækni sem ís- lenska fyrirtækið Greenvolt er að þróa og vonast menn til að slíkir rafmagnsbátar verði að veru- leika á næstu misserum. »10 Reynslusigling á rafmagnsbátnum Magneu Morgunblaðið/Árni Sæberg  Fólk í sveit- arfélögum sem eru langt frá stórum þjónustu- kjörnum hefur áhyggjur af end- urskoðun framtíðarfyrir- komulags al- mennings- samgangna í landinu þar sem litið verður á sam- göngur á landi, í lofti og á láði sam- an. Vegagerðin tekur yfir rekstur landsbyggðarstrætós nú um ára- mótin. Verður reksturinn með óbreyttu sniði á meðan unnið er að framtíðarskipulagi. Hugsanlegt er að ný stefna leiði til niðurskurðar leiða á landi eða í lofti. »14 Áhyggjur af skert- um samgöngum Strætó Farið í vagn til Selfoss. „Spilafíkn er alvarlegasta fíkn sem ég hef kynnst,“ segir viðmælandi Morgunblaðsins, en undanfarna daga hefur verið rætt við ein- staklinga sem glíma við spilafíkn. Hann segist hafa áttað sig á því fyr- ir rúmum tuttugu árum að hann glímdi við alvarlegan vanda. Segir hann að fólk átti sig kannski ekki á því hversu djarflega sé hægt að leggja undir í spilakössum og stundum hafi hann unnið meira en 300.000 krónur á einu kvöldi. Skiptin séu þó mun fleiri þar sem hann hafi tapað svipuðum fjárhæðum eða hærri. »6 Hægt að spila ansi djarft í kössunum  Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, baðst í gær afsökunar fyrir hönd Íhaldsflokksins á meintri andúð á múslimum sem þar hefði viðgengist. Afsökunarbeiðni John- sons kemur í kjölfar þess að Jeremy Corbyn, formaður Verkamanna- flokksins, neitaði í fyrradag að biðj- ast afsökunar á gyðingaandúð inn- an flokks síns eftir að æðsti rabbíni Bretlands hafði gagnrýnt Corbyn og sagt hann óhæfan til forystu. Rétt rúmar tvær vikur eru þar til gengið verður til almennra þing- kosninga í Bretlandi og hafa vand- ræði Verkamannaflokksins vegna gyðingaandúðar verið í hámæli í kosningabaráttunni undanfarna daga sem annars hefur að megin- stofni snúist um Brexit. »14 AFP Bretland Boris Johnson heimsótti Corn- wall í gær vegna bresku þingkosninganna. Biðst afsökunar á múslimaandúð í Íhaldsflokknum Baldur Arnarson baldura@mbl.is Verktaki í Reykjavík segir bankana hafa dregið mikið úr lánum til upp- byggingar íbúða. Bankarnir kvarti undan skorti á lánsfé. Karl Kvaran, formaður Arkitekta- félags Íslands, segir hafa dregið úr umsvifum arkitekta að undanförnu. Vegna óvissu hafi nokkrar arki- tektastofurnar fækkað starfsfólki. „Arkitektastofurnar eru orðnar varkárari. Þær vilja forðast sömu erfiðleika og eftir hrunið. Þá var mörgum stofum lokað og aðrar sögðu upp mörgum starfsmönnum. Arkitektar vona að ef verkefnum í einkageiranum fækkar muni ríkið og borgin grípa inn með verkefni til að halda greininni og öðrum byggingar- greinum gangandi,“ sagði Karl. Önnur birtingarmynd kólnunar er að verktakar hafa lækkað verð nýrra íbúða í miðborg Reykjavíkur. Þá hefur Íbúðalánasjóður endurmetið áætlaða uppsafnaða íbúðaþörf. Hún var 5.000-8.000 íbúðir í byrjun árs en hefur minnkað í 3.900 til 6.000 íbúðir. Ásmundur Einar Daðason félags- málaráðherra segir fyrirhugaðar að- gerðir ríkisins í húsnæðismálum munu auka framboð íbúða. Raun- hæft sé að um mitt næsta ár muni ríkið byrja að lána fyrstu kaup- endum vaxtalaus íbúðalán. »4 Vitnar um kólnun í hagkerfinu  Arkitektar finna fyrir samdrætti  Verktakar lækka verð íbúða í miðborginni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Byggt í borginni Arkitektar finna fyrir samdrætti í eftirspurn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.