Morgunblaðið - 28.11.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.11.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2019 595 1000 Gefðu góðar minningar Jólagjafabréfin komin í sölu! 10.000 = 15.000 20.000 = 30.000 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Engar breytingar verða gerðar á reglugerðum varðandi flugeldafram- boð og flugeldasölu fyrir næstu ára- mót, samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Ástæðan er sú að innkaup á flugeldum eru gerð með löngum fyrirvara og taka þarf ákvarðanir um breytingar á flug- eldaframboði eða flugeldasölu áður en kemur að innflutningi. Slíkar ákvarðanir hafa ekki verið teknar. Starfshópur umhverfis- og auð- lindaráðuneytis, velferðarráðuneytis og dómsmálaráðuneytis vinnur nú að því að móta tillögur um hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum mengunar frá flugeldum á lýðheilsu og loftgæði. Ráðherrarnir sem skip- uðu starfshópinn bíða eftir tillögum hans og munu byggja ákvarðanir sínar á þeim. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur þegar óskað eftir því við Um- hverfisstofnun að hún komi almenn- um upplýsingum og varnaðarorðum til almennings nú í desember. Einnig upplýsingum tengdum veðurfari og væntanlegum loftgæðum á þeim tíma sem heimilt er að skjóta upp flugeldum. Stofnunin komi þessum upplýsingum jafnframt á framfæri við hagsmunaaðila, m.a. Astma- og ofnæmisfélag Íslands og Samtök ferðaþjónustunnar, að því er segir í svari ráðuneytisins. Flugeldasalan óbreytt  Starfshópur ráðuneyta hefur ekki lokið störfum Morgunblaðið/Hari Flugeldasala Nýjar tillögur eru í mótun um hvernig draga megi úr mengun. Reykjavíkurborg hefur verið í for- ystu hins opinbera við að bjóða starfsmönnum sem ná 70 ára aldri upp á sveigjanleg starfslok. Í kjarasamningum Reykjavíkur- borgar og við- semjenda borg- arinnar hefur um skeið verið að finna ákvæði um heimildir til að endurráða starfs- menn sem hafa náð 70 ára aldri. Heimilt er að ráða starfsmann í allt að tvö ár til fyrstu mánaðamóta eft- ir að 72 ára aldri er náð, nema ann- ar hvor aðili segi ráðningunni upp með þriggja mánaða uppsagn- arfresti. Nokkur reynsla er komin á þetta. „Frá því í janúar 2016 til dagsins í dag hafa 186 starfsmenn 70 ára eða eldri verið við störf hjá Reykja- víkurborg. Á þessu árabili hefur því að meðaltali 31 starfsmaður 70 ára eða eldri verið við störf í hverjum mánuði,“ segir Lóa Birna Birgis- dóttir, sviðsstjóri mannauðs- og starfsumhverfissviðs Reykjavík- urborgar, í svari til blaðsins. Skoða frekari aðgerðir um sveigjanleg starfslok Ríkisstarfsmönnum ber skv. lög- um að láta af störfum þegar þeir verða 70 ára og sambærilegt ákvæði hefur verið í kjarasamn- ingum Sambands íslenskra sveitar- félaga. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær er nú rætt um m.a. í kjaraviðræðum sveitarfé- laga og á vettvangi Alþingis að auka svigrúmið víðar en hjá borg- inni og afnema aldurstakmörkin að einhverju leyti. Lóa Birna segir Reykjavíkurborg taka þátt í verkefninu aldursvænar borgir og hluti af verkefninu lúti að því að vinnustaðurinn verði aldurs- vænn. „Reykjavíkurborg er því að skoða hugmyndir að frekari aðgerð- um um sveigjanleg starfslok sem falla að því að gera Reykjavíkur- borg að enn aldursvænni vinnu- stað,“ segir hún. omfr@mbl.is 186 hafa verið yfir sjötugu  Fyrirhuga að gera borgina aldursvænni Lóa Birna Birgisdóttir Sigurður Bogi Sævarsson Þórunn Kristjánsdóttir Staða ríkisstjórnarinnar veiktist í gær þegar Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboð, tilkynnti við upphaf þingfundar að hann hefði sagt sig úr þingliði flokksins og mundi héðan í frá standa utan þingflokka. Ríkis- stjórn VG, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks nýtur nú formlegs stuðnings 34 þingmanna af 63. Sem kunnugt er kusu Andrés Ingi og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, sem einnig er úr VG, að styðja ekki núver- andi ríkisstjórnarsamstarf þegar til þess var stofnað fyrir réttum tveimur árum. Andrés er eftir tíðindi gær- dagsins nú kominn í stjórnarand- stöðu. Rósa Björk vildi í samtali við Morgunblaðið ekki tjá sig um ákvörð- un Andrésar eða hvað hún sjálf hygð- ist fyrir. Erfitt að veita mótspyrnu Fjárlög fyrir árið 2020 voru sam- þykkt á Alþingi í gær. Alls 31 þing- maður greiddi atkvæði með lögunum, sjö sögðu nei og 19 sátu hjá. Þeirra á meðal var Andrés Ingi sem raunar studdi sumar breytingartillögur sem stjórnarmeirihlutinn gerði við frum- varpið áður en það gekk til endan- legrar afgreiðslu. Una Hildardóttir, sem nú situr á Alþingi sem varamað- ur Rósu Bjarkar, greiddi atkvæði með samþykkt fjárlagafrumvarpsins. Andrés Ingi sendi frá sér yfirlýs- ingu í gær þar sem hann sagði að á daginn hefði komið það sem hann ótt- aðist að vinstri græn ættu sífellt erf- iðara með að veita samstarfsflokkum sínum mótspyrnu, þannig að stjórn- arsamstarfið færðist fjær því sem það ætti að standa fyrir. Oft hafi málamiðlanir í stjórnarsamstarfinu fallið fjarri VG, svo sem í útlendinga- og loftslagsmálum. Fullreynt fyrir samviskuna „Nú er svo komið að ég tel full- reynt að ég geti sinnt þingstörfum eftir samvisku minni,“ sagði Andrés Ingi. – „Það er alltaf leiðinlegt þegar leiðir skilur,“ sagði Katrín Jakobs- dóttir, formaður VG og forsætisráð- herra, í samtali við Mbl.is um ákvörð- un Andrésar. Þetta hafi komið bæði sér og þingflokknum á óvarp, enda þótt andstaða þingmannsins við stjórnarsamstarfið hafi alltaf legið ljós fyrir. Staða ríkisstjórnar veikari  Andrés Ingi yfirgefur VG  Studdi sumar breytingar meirihlutans við fjárlög Andrés Ingi Jónsson Katrín Jakobsdóttir Grá mengun var áberandi í Reykjavíkur í gær og styrkur köfnunarefnis- díoxíðs yfir heilsuverndarmörkum fjórða daginn í röð. Síðdegis var klukkutímagildi efnisins á mælistöðinni við Grensásveg 152,5 míkrógrömm á rúmmetra, samanber að heilsuverndarmörkin miðað við sólarhring eru 75 míkrógrömm á rúmmetra. Gert er ráð fyrir svipuðu veðri næstu daga og því líkur á að þetta ástand verði viðvarandi. Köfnunarefnisdíoxíð- mengun kemur frá útblæstri bifreiða og er mest á morgnana og síðdegis þegar umferð er þung. Til að draga úr mengun hefur Reykjavíkurborg hvatt fólk til þess að draga úr notkun einkabíla og börn og þau sem eru með viðkvæm öndunarfæri ættu að halda sig fjarri fjölförnum götum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Mengunin langt yfir heilsuverndarmörkum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.