Morgunblaðið - 28.11.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2019
Árið 1896 flutti Björn Þorláksson bóndi áVarmá inn vélar til að
vinna ull og notaði til þess vatnsorku úrÁlafossi. Verksmiðjan
átti stóran þátt í stofnun og vexti byggðar íMosfellsbæ
Álafoss , Álafossvegi 23 Mosfellsbæ, Laugavegi 4-6, alafoss.is
Brynjar Níelsson flutti stutta enathyglisverða ræðu á Alþingi í
gær. Hann fjallaði um tvennt, ann-
ars vegar um þá ákvörðun stjórnar
Ríkisútvarpsins að birta ekki lista
yfir umsækjendur
um stöðu útvarps-
stjóra.
Brynjar sagðiuppgefna
ástæðu þá að það að
birta listann „gæti
hindrað mjög hæfa
umsækjendur í að
sækja um starfið.
Þetta er mjög sér-
stakt í ljósi þess að
þessi ágæti fjölmiðill
hefur verið upptek-
inn af gegnsæi ann-
ars staðar sem
greinilega gildir ekki um hann sjálf-
an. Í sjálfu sér er ég eiginlega sam-
mála stjórn Rúv. Það getur verið
mikilvægt að birta ekki lista yfir um-
sækjendur, en ég held að það ætti að
gilda líka annars staðar í stjórnsýsl-
unni, til dæmis hjá dómstólunum,“
sagði hann og hvatti til að tekið yrði
til umfjöllunar hvort heimila ætti
sama fyrirkomulag í stjórnsýslunni
og annars staðar.
Hins vegar nefndi Brynjar að þaðhefði gerst í stjórnsýslunni „að
það er skipað í embætti æðstu emb-
ættismanna ríkisins án auglýsingar.
Undir vissum kringumstæðum er
það heimilt, þ.e. með færslu innan
Stjórnarráðsins en það er líka gert
án þess að viðkomandi hafi starfað
innan Stjórnarráðsins. Ég hef efa-
semdir um að það standist og þykist
vita að það standist ekki. Það er
samt gert“.
Nýjasta dæmið um þetta og vænt-anlega það sem vísað er til er
skipun ráðuneytisstjóra í forsætis-
ráðuneytinu. Katrín Jakobsdóttir
taldi henni ekkert til fyrirstöðu en
getur verið að svo sé engu að síður?
Brynjar Níelsson
Tvennt
umhugsunarvert
STAKSTEINAR
Katrín
Jakobsdóttir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Vilborg Jónsdóttir, tón-
listarkennari og skóla-
stjóri, lést á Landspít-
alanum 22. nóvember
eftir baráttu við hvít-
blæði, 55 ára gömul.
Hún fæddist í
Reykjavík 27. maí 1964
og ólst þar upp. For-
eldrar hennar eru Jón
Freyr Þórarinsson, fv.
skólastjóri í Laugar-
nesskóla, og Matt-
hildur Guðný Guð-
mundsdóttir, fv.
kennari og kennsluráð-
gjafi.
Vilborg hóf tónlistarnám hjá Páli
P. Pálssyni 1973 í Barnalúðrasveit
Reykjavíkur. Þaðan lá leiðin í
Lúðrasveitina Svan og síðan Tónlist-
arskólann í Reykjavík þar sem hún
stundaði nám á básúnu og baríton
hjá Birni R. Einarssyni og Oddi
Björnssyni. Vilborg lærði á túbu
sem aukahljóðfæri. Hún lauk kenn-
arprófi frá blásarakennardeild skól-
ans 1988. Eftir útskriftina sótti Vil-
borg tíma í hornleik hjá Josef
Ognibene í eitt ár. Að því loknu lærði
hún í Kennaraháskóla Íslands til al-
mennra kennararéttinda og lauk
þaðan B.ed.-gráðu árið 1991.
Vilborg hóf að kenna á málmblást-
urshljóðfæri 1984 og
kenndi lengst við Tón-
menntaskóla Reykja-
víkur en einnig í Skóla-
hljómsveit Laugar-
nesskóla og Tónskóla
Sigursveins. Hún var
aðalstjórnandi blás-
arasveitar Tónskóla
Sigursveins frá 2001.
Vilborg var skólastjóri
og stjórnandi Skóla-
hljómsveitar Austur-
bæjar frá 2004. Hún
var formaður Lúðra-
sveitarinnar Svansins
1994-2000, var hjá
Sambandi íslenskra lúðrasveita
1998-2006 og hjá Samtökum ísl.
skólalúðrasveita árið 2012.
Vilborg og eftirlifandi eiginmaður
hennar, Össur Geirsson tónlistar-
maður, hófu sambúð 1985 og gengu í
hjónaband 4. nóvember 2000. Börn
þeirra eru Saga, dýralæknir í Nor-
egi, og Freyþór læknanemi. Sam-
býlismaður Sögu er Anders Olsen
Setså og dóttir þeirra er Freyja
Matthildur Andersdóttir Setså.
Unnusta Freyþórs er Sophie Louise
Webb.
Útför Vilborgar fer fram frá Hall-
grímskirkju miðvikudaginn 4. des-
ember klukkan 13.
Andlát
Vilborg Jónsdóttir
tónlistarkennari
„Það er fremur stór hópur fólks sem kemur að
þessu verkefni en ástæður þess að menn vilja
leggja upp í þessa vegferð eru jafn misjafnar og
við erum mörg. Grunntónninn er þó sá að við er-
um ekki ánægð með hvert Sjálfstæðisflokkurinn
stefnir og það sést vel í skoðanakönnunum
hvernig fylgið virðist vera að fara,“ segir Ólafur
Hannesson í samtali við Morgunblaðið. Er hann
einn þeirra sem standa að stofnun Félags sjálf-
stæðismanna um fullveldismál.
Stofnfundur félagsins verður haldinn næst-
komandi sunnudag, 1. desember, í Valhöll við
Háaleitisbraut í Reykjavík. Hefst fundurinn kl.
14 en húsið verður opnað 30 mínútum áður.
Dagskrá fundarins verður auglýst nánar síðar.
Ólafur segir markmið félagsins vera að efla
samhug sjálfstæðismanna um fullveldið með því
að halda til haga og verja, með fræðslu og upp-
lýsingum, grunngildi Sjálfstæðisflokksins um
frjálst og fullvalda Ísland.
„Þessi hópur ber hlýjan hug til flokksins og
þykir vænt um land og þjóð. Með þessu viljum
við reyna að halda utan um þann hóp flokks-
manna sem um þessar mundir eru að íhuga að
segja sig úr Sjálfstæðisflokknum,“ segir Ólafur.
Spurður hvort forysta flokksins sé búin að
tapa áttum svarar hann: „Að vissu leyti hafa þau
tapað áttum. Það er þó erfitt að fullyrða hvort
þau séu orðin algerlega villt í sinni stefnu.“
khj@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Pólitík Stofnfundur hins nýja sjálfstæðisfélags
fer fram í Valhöll næstkomandi sunnudag.
Stofna félag vegna óánægju með stefnu