Morgunblaðið - 28.11.2019, Page 13

Morgunblaðið - 28.11.2019, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2019 BORÐPLÖTUR OG SÓLBEKKIR • Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré • Mikið úrval efna, áferða og lita • Framleiðum eftir óskum hvers og eins • Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987. Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is Alnæmisstofnun Sameinuðu þjóð- anna, UNAIDS, segir í nýrri skýrslu að dauðsföllum af völdum alnæmis hafi fækkað og fleiri feng- ið lyf við sjúkdómnum en áður. Stofnunin segir að 24,5 milljónir manna, eða um tveir þriðju al- næmissmitaðra, hafi fengið lyfjameðferð við sjúkdómnum á fyrri helmingi ársins, 1,2 milljónum fleiri en í lok síðasta árs. Stefnt hef- ur verið að því að 30 milljónir manna fái lyf við alnæmi ekki síðar en í lok næsta árs. Dauðsföllum fækkaði um 33% Í skýrslunni kemur ennfremur fram að 770.000 manns dóu úr al- næmi á síðasta ári, tæpri milljón færri en árið 2004 þegar dauðs- föllin voru flest. Dauðsföllunum af völdum alnæmis hefur fækkað um 33% í heiminum frá árinu 2010, mest í austan- og sunnanverðri Afr- íku þar sem um 44% alnæmissmit- aðra búa. Þar fækkaði dauðsföll- unum um 44% frá 2010. Nýgengið minnkaði um 16% Nýgreindum smittilvikum fækk- aði um 16%, eða úr 2,1 milljón árið 2010 í 1,7 milljónir á síðasta ári. Stefnt hefur verið að því að ný- greind tilvik verði færri en hálf milljón á næsta ári, þannig að mikið þarf að breytast til að það markmið náist. Nýgengið minnkaði mest í austan- og sunnanverðri Afríku, eða um 28% frá 2010. Nýgreindum tilvikum fjölgaði hins vegar um 29% í Austur-Evrópu og Mið-Asíu, 10% í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku og 7% í Rómönsku Ameríku. Gunilla Carlsson, framkvæmda- stjóri UNAIDS, segir í formála að skýrslunni að nýgengi sjúkdómsins meðal stúlkna og kvenna á aldr- inum 15-24 ára hafi minnkað um 25% milli áranna 2010 og 2018. Hún bætir við að þetta séu góðar fréttir en samt sé það óviðunandi að í viku hverri smitist um 6.000 stúlkur og ungar konur af alnæmi. Alnæmi í heiminum á síðasta ári Austur- og sunnanverð Afríka Asía og Kyrrahafslönd 20,6 800.000 280.000 310.000 5,9 310.000 200.000 Mið-Austurlönd og Norður-Afríka 0,24 20.000 8.400 Austur-Evrópa og Mið-Asía 1,7 150.000 38.000 Vestur- og Mið- Evrópa og Norður-Ameríka 2,2 68.000 13.000 160.000 Vestur- og Mið-Afríka 5,0 16.000 6.700 Karíbahafslönd 0,34 100.000 35.000 Rómanska Ameríka 1,9 1,7 milljónir nýrra tilvika 770.000 dauðsföll 100.000 37,9 milljónir smitaðra 160.0001,7 milljónir Börn undir 15 ára aldri Eftir heimshlutum Alls Heimild: Skýrsla UNAIDS Fleiri fá alnæmislyf og dauðsföllum fækkar  Tveir þriðju alnæmissmitaðra fá lyfjameðferð Korojov. AFP. | Elvíra Kovtún bjó til fyrsta ostinn sinn í potti í eldhúsi sínu fyrir fjórum árum þegar hún var heimavinnandi húsmóðir. Hún er að mestu sjálflærð í ostagerð en fór á svo miklum kostum í faginu að hún og eiginmaður hennar ákváðu að gera áhugamálið að atvinnu með þeim árangri að þau urðu fyrst Rússa til að fá gullverðlaun í virtri keppni, Alþjóðlegu ostaverðlaununum, sem eru ígildi Óskarsverðlauna í osta- gerð. Hjónin fengu verðlaunin í október fyrir harðan „pesjernji“ – ost sinn. „Ég taldi ekki að þetta væri hægt. Núna tel ég allt hægt,“ sagði eigin- maður Elvíru, Vjatsjelav Kovtún, sem féll fyrir henni þegar þau voru í framhaldsskóla og á nú með henni þrjú börn. Jókst um þriðjung Velgengni fjölskyldufyrirtækisins er til marks um árangurinn sem rússneskir ostagerðarmenn hafa náð frá því að Vladimír Pútín Rússlands- forseti bannaði innflutning á mat- vælum frá Vesturlöndum árið 2014 eftir að þau gripu til refsiaðgerða gegn Rússum vegna hernaðar þeirra í Úkraínu. Margir Rússar höfðu orð- ið veikir fyrir frönskum og ítölskum ostum fyrir innflutningsbannið en rússnesk stjórnvöld notuðu tækifær- ið til að stuðla að aukinni framleiðslu í Rússlandi með því að styðja frum- kvöðla sem vildu hefja framleiðslu á varningi sem var áður fluttur inn. Þetta bar þó ekki alltaf tilætlaðan ár- angur og margir rússneskir neyt- endur kvörtuðu yfir því að rússneski varningurinn væri dýrari og oft verri en innfluttu vörurnar. Öðru máli gegndi hins vegar um ostagerðina og framleiðsluna á öðrum mjólkuraf- urðum. Framleiðslan á ostum jókst um þriðjung á milli áranna 2013 og 2018 og hún er nú 670.000 tonn á ári, að sögn samtaka rússneskra mjólkurframleiðenda. Pútín viðurkenndi í vikunni sem leið að hann hefði orðið „fremur áhyggjufullur“ út af refsiaðgerðum Vesturlanda í fyrstu en þróunin síð- ustu ár sýndi að þær hefðu orðið „efnahag Rússlands til framdráttar“. Hundruð lítilla rjóma- og mjólkur- búa hafa verið stofnuð víða um landið og sum þeirra hafa fengið háa ein- kunn í öðrum löndum. Gömul hefð endurvakin Elvíra og Vjatsjeslav Kovtún eru fertug og stofnuðu ostagerðina á síð- asta ári. Þau bjuggust ekki við því að ná svo skjótum árangri. Þegar Elvira hringdi í eiginmann sinn til að segja honum frá verðlaununum var hún grátandi. „Ég varð hræddur, hélt að eitthvað hræðilegt hefði gerst,“ sagði hann. Vefsíða ostagerðarinnar hrundi vegna þess að áhuginn á henni var svo mikill eftir að skýrt var frá því að hún hefði fengið alþjóðlegu verðlaun- in. Osturinn sem hjónin voru verð- launuð fyrir seldist upp og ljóst er að þau anna ekki eftirspurn næstu mán- uði. Rúmlega 3.800 ostar frá 42 löndum voru lagðir fram til Alþjóðlegu osta- verðlaunanna í keppni sem fór fram í borginni Bergamo á Ítalíu. Enginn rússneskur ostur fékk verðlaun í keppninni á síðasta ári en fjórir rúss- neskir ostagerðarmenn fengu alls níu verðlaun í ár. John Farrand, framkvæmdastjóri samtaka sem annast keppnina, sagði að Kovtún-hjónin hefðu sett „Rúss- land á alþjóðlega ostakortið“. „Þeir sem vinna til gullverðlauna í keppn- inni eru á meðal bestu ostagerðar- manna heimsins og aðeins lítill hluti ostanna ná svona langt,“ sagði Farr- and. Vjatsjeslav sagði að rússneskir ostagerðarmenn væru að endurvekja gamla rússneska hefð. „Við erum ekki að búa neitt nýtt til,“ sagði hann. „Rússar framleiddu osta í miklum mæli fyrir hundrað árum og fluttu þá út til Eystrasaltslanda og fleiri Evr- ópuríkja. Við erum að endurvekja uppskriftir forfeðra okkar.“ AFP Verðlaunaostur Elvíra Kovtún (t.h.) framleiðir ost í borginni Koroljov í Rússlandi. Hún og eiginmaður hennar hafa gert garðinn frægan í ostagerð. Ostar Rússa fá háa einkunn  Nutu góðs af innflutningsbanninu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.