Morgunblaðið - 28.11.2019, Síða 19

Morgunblaðið - 28.11.2019, Síða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2019 ✝ Sveinn KjartanHjartarson, Laugarásvegi 20, fæddist í Reykjavík 24. janúar 2002. Hann lést 16. nóv- ember 2019. Hann var sonur Snjólaug- ar Sveinsdóttur barnalæknis, f. 21. febrúar 1973, og Hjartar Georgs Gíslasonar skurð- læknis, f. 23. febrúar 1958. For- eldrar Snjólaugar eru Lára Pálsdóttir félagsráðgjafi, f. 25. október 1952, og Sveinn Kjart- 2011, og Jóhanna Svava, f. 11. janúar 2013. Hálfsystkini Sveins Kjartans af fyrra hjónabandi föður eru Sigurbjörg verkfræðingur, f. 27. október 1979. Sigurbjörg á eina dóttur. Hildur hjúkrunarfræð- ingur, f. 23. ágúst 1983. Hildur á þrjá syni. Gísli Bragi, nemi, f. 9. mars 1991. Sveinn Kjartan fluttist þriggja ára til Svíþjóðar með foreldrum sínum. Hann hóf skólagöngu í Karstorpsskolan i Lomma. Ellefu ára gamall flutti hann til Íslands og gekk eitt ár í Laugarnesskóla og lauk síðan grunnskólanámi frá Laugalækj- arskóla 2018. Hann hóf nám í Kvennaskólanum en flutti sig yfir á listabraut FB sl. haust. Útför Sveins Kjartans fer fram frá Langholtskirkju í dag, 28. nóvember 2019, klukkan 13. ansson barnalækn- ir, f. 13. febrúar 1951. Foreldrar Hjartar eru Að- alheiður Alfreðs- dóttir, fv. banka- starfsmaður, f. 13. janúar 1940, og Gísli Bragi Hjart- arson, múrari og fv. bæjarfulltrúi á Akureyri, f. 20 ágúst 1939. Sveinn var elsta barn Snjó- laugar og Hjartar. Systur hans eru Lára Lilja, f. 20. september 2003, Aðalheiður, f. 25. mars Lítill, ljúfur, dúnmjúkur og hlýr kemur á hverjum morgni í hálft ár í ömmuból. Ég anda að mér hvítvoðungsilminum, renni fingri um fíngerða nasavængi og silkimjúkan vanga og hamingja umlykur okkur tvö. Við kúrum undir hlýrri sænginni og amma strýkur með vísifingri mjúka blettinn milli augnabrúna. Þetta nýja hlutverk, ömmuhlutverkið, bætir nýrri vídd í lífið. Þegar afi og Jói frændi eru farnir út í dag- inn förum við á fætur og hjölum saman. Við látum renna í rassabað og drengurinn buslar í eldhúsvaskin- um hennar ömmu. Silkiþráðurinn á milli ömmunn- ar og drengsins verður sterkari með hverju ári. Inn í veröldina okkar kemur systir sem kann ekki að segja r. Stóri bróðir er óþreytandi við að þylja fyrir hana rómverskur riddari. „Lára, sjáðu tunguna í mér þegar ég segi rass.“ Jass segir litla systir þang- að til hún fer í r-skólann og enginn er glaðari en stóri bróðir þegar errin fara að rúlla. Í sumarbyrjun koma þau til afa og ömmu og syngja sínum tæru og hreinu barnsröddum söngva sem þau hafa lært í skólanum. Allir dagar eru bjartir langir sumardagar, við förum í kvöldgöngur og miðnæt- ursund og síðan eru lestrarstund- ir fyrir svefninn. Saman ferðumst við um ævintýraheima, við kveikj- um varðelda, berjumst við illþýði og alltaf sigrar það góða. Eitt sumarið er Gleðilímonaði sf. stofnað. Keyptar eru 47 sítrón- ur og kíló af sykri og svo er kreist og blandað. Flöskur þvegnar og límmiðar teiknaðir. Drengurinn er sölumaður góður. Allt selst. Ágóðinn rennur í ferðasjóð fjög- urra frækinna. Ferðaklúbburinn tvær Lárur og tveir Sveinar leggja land undir fót sumar hvert. Síðasta vikan í júní frátekin fyrir jónsmessuævintýri, sögur og skoðunarferðir. Við förum út og suður, hingað og þangað, upp og niður. Við njótum þess sem landið geymir, músareyru, blágresi, hvannir, fossa, flúðir og fjöll. Þar fer drengurinn fremstur í flokki, óþreytandi í göngum og næmur fyrir litbrigðum náttúrunnar. Náttúrubarnið mitt. Síðustu ferð- ina förum við á Hesteyri og þar gengur drengurinn yfir í Aðalvík og blæs ekki úr nös. Þetta vor finnur amma að eitt- hvað er að brjótast um í drengn- um. Augun eru ekki lengur jafn tær, gullna hárið mattast og stundum er eins og mara hvíli á herðunum. Við ræðum málin og reynum að finna lausnir en óveð- ursskýin hrannast upp. Það sést ekki lengur til sólar. Vanlíðanin verður að skugga sem hleypir birtunni ekki að. Í launsátri bíða sölumenn dauðans með gylliboð um betri líðan. Og drengurinn bjarti er auðveld bráð. Þessir drýsildjöflar gleypa hann með húð og hári. Hann streitist á móti og reynir og reynir. En fjöreggið hans er viðkvæmt og að lokum brotnar það. Svei ykkur grimmu tröll sem hendið af léttúð á milli ykkar fjör- eggjum ungmenna. Svei ykkur sem virðið ekki lífið. Megið þið hvergi þrífast. En við þig, drenginn minn bjarta og fagra, segi ég farðu vel hvert sem þú ferð. Og út í kosmós- ið sendi ég þakklæti fyrir að hafa fengið að hafa þig hjá mér í næst- um 18 ár. Vertu sæll, ljúfur. Lára amma. Elsku Svenni, takk fyrir allt. Þú áttir svo mikið að gefa okk- ur, lýstir upp ævikvöldið okkar ömmu. Manstu „buskaferðirnar“ sem við „afgarnir“ fórum í þegar við áttum heima í Svíþjóð? Við tókum næsta strætó, fórum eitthvert út í buskann og urðum stundum strandaglópar. Minningabrotin eru endalaus, en við amma ætlum að kveðja þig, elsku Svenni, með ljóði eftir lang- afa þinn Hjört Gíslason. Sorgarauður Við eigum margt, sem aldrei, aldrei deyr þótt okkur brygðist fjögralaufa-smárinn. Að sorg er auður, sannast vita þeir, er sjá hið liðna bezt í gegnum tárin. Og jafnvel þótt við mættum brjóta blað og byrja að nýju ævi vora að skrifa, þá myndi oss á svipstund sannast það, að sorgin gistir þá er fegurst lifa. Og löngu fyrr en okkur órar flest, við erum þrotin, horfin viðnámsárin, en kvíðum, – þó að garði beri gest, sem græðir mein og þerrar sorgartárin. Aðalheiður (Lilla) amma og afi Bragi. Í dag kveðjum við kæran frænda okkar og vin. Við frænkurnar höfum alltaf verið miklar og nánar vinkonur. Þess vegna var sérstaklega skemmtilegt þegar við urðum all- ar barnshafandi og eignuðumst strákana okkar með stuttu milli- bili. Frændurnir voru ekki gamlir þegar Eurovision var kynnt fyrir þeim. Það er jú eitt af áhugamál- um fjölskyldunnar. Heimsóknirn- ar til Svíþjóðar standa upp úr og nokkrar skemmtilegar minningar koma upp í hugann, þá sérstak- lega uppáhaldslag frændanna með hinum sænska Eric Saade, „Manboy“. Þá keyrðum við frænkur um hálfa Svíþjóð að finna rauða leðurjakka til að klæða þá í, til að geta verið eins og hann. Þá var sko gaman, sungið og dansað. Strákarnir okkar voru að mörgu leyti mjög ólíkir þrátt fyrir að vera allir ljóshærðir og blá- eygðir. Gunnar Hrafn og Húni Páll algjörir boltastrákar en Sveinn Kjartan listhneigður, þekkti himingeiminn allan og gat farið með pláneturnar í stafrófs- röð afturábak. Þeir dáðu og virtu hæfileika hver annars. Tíminn leið og þrátt fyrir mis- munandi áhugamál og að þeir hafi farið í hver í sinn skólann var vin- skapurinn aldrei langt undan og alltaf hlökkuðu þeir til að hittast. Gamlárskvöldi eyddum við saman á hverju ári, með mat frá öðrum heimsálfum, tilheyrandi skemmtiatriðum og sprengjum. Ferð okkar allra saman vestur að Berserkseyri fyrir rétt tæpum mánuði reyndist okkur dýrmæt- ari en okkur grunaði þá. Við frænkurnar fórum á undan með yngstu frændsystkinin og eldri komu saman keyrandi daginn eft- ir. Strákarnir fóru saman á „buggy“-bílum um sveitina, skelltu sér í gufu í sjávarmálinu, syntu í Seljafirðinum og ræddu allt milli himins og jarðar. Eldri og yngri saman að njóta. Við frænkurnar horfðum út á fjörðinn og vorum svo innilega ánægðar og þakklátar að þau ættu þessa stund. Ekki óraði okkur fyrir að þetta yrði í síðasta skiptið sem við hittumst öll saman. Minningar um góðan frænda, son, bróður, vin og barnabarn munu ylja okkur áfram og styrkja okkur í sorginni. Við tökum undir orð Láru Lilju systur hans, um að hún ætli að lifa áfram fyrir þau bæði, halda áfram og vera ham- ingjusöm – það ætlum við líka að gera. Elsku Snjóka, Hjörtur og systkini Sveins Kjartans, nú stöndum við saman sem aldrei fyrr og förum saman í gegnum þennan ólgusjó. Við þökkum góð- ar og dýrmætar stundir og hlýjar minningar. Við sjáumst í Nangijala, elsku frændi. Takk fyrir allt og allt. Katrín Rós og Linda Gunnarsdætur. Fátt er harmrænna en þegar börn og ungt fólk fer úr þeirri sameiginlegu vegferð okkar sem kallast lífið, þá er nær það eitt til huggunar að dvelja við liðnar stundir, einstök atvik, rifja upp og leyfa tárum að falla, það er vísast sá sjóður sem í er að sækja og vitna ég því í hendingu úr ljóði Hjartar langafa hans: „Að sorg er auður, sannast vita þeir er sjá hið liðna best í gegnum tárin.“ Svenni frændi, ungur listrænn ljúflingur, er farinn í hina miklu för. Ég hitti hann síðast í afmæli Braga afa og Lillu ömmu á Ak- ureyri þar sem hann var að segja mér frá teikningum sínum sem við ætluðum að skoða saman við tækifæri, það verður að bíða. Foreldrum, systkinum, öfum og ömmum vottum við samúð og vonum að fró finnist við yl minn- inganna. Á nýjum vegi Birtan dvín og brestur ljós, byrgist sýn að landi. Líkt eru tár og lækjarós, loga sár af hvössum brandi. Enginn gleymir ilmi af rós, andinn geymir spor í sandi. Sorgarklungur, sól er svört svellur þungur tregi. Stirnir engin stjarna björt, stígur gengin, hallar degi. Bærum streng í brjósti ört blessum dreng á nýjum vegi. (RH) Reynir og Margrét. Litli frændi, nafni og vinur minn, Sveinn Kjartan, kvaddi þennan heim laugardaginn 16. nóvember. Svenni var einstakur, og mér finnst hrikalega erfitt að koma tilfinningum mínum í orð þegar ég hugsa til þess að þurfa að kveðja hann. Ég hef alltaf trúað á karma. Ef þú ert góður munu góðir hlutir koma fyrir þig en ef þú ert slæm- ur mun það einmitt snúast við. Sveinn Kjartan litli frændi minn var algjör undantekning á karma. Svenni var alltaf svo ótrúlega góð- ur við alla, auðvitað þegar maður glímir við andleg veikindi, fíkn, og að vera unglingur ofan á það, er eðlilegt að verða stundum pirrað- ur og nenna ekki fullorðna fólkinu alveg alltaf, en hann var aldrei vondur við neinn, alltaf góður. Það er nokkuð sem við getum öll tekið til okkar frá Svenna, að vera góð við hvert annað. Þegar ég hugsa til Svenna og alls þess sem við gerðum saman á ég svo margar góðar minningar úr Hjartakoti, bústaðnum hans Svenna. Þar gátum við alltaf fund- ið okkur eitthvað að gera. Hvort sem það var að stífla lækinn eða klára tvo kassa af rauðum Sun- lolly yfir mynd, þá var alltaf gam- an. Svo voru Svenni og pabbi hans búnir að byggja tréhús í skógin- um hjá bústaðnum. Í tréhúsinu var lífið alltaf næs, þar voru engin vandamál og enginn til að bögga mann. Þar gátum við spjallað, gist og horft á Pewdiepie endalaust. Þá voru öll lífsins vandamál fjarri okkur. En þrátt fyrir að ganga Svenna í þessum heimi hafi ekki verið löng mun hann lifa í hjarta mínu og okkar sem þótti vænt um hann um ókomna tíð. Við elskum þig, kæri frændi. Gunnar Sveinn. Það var komið haust og ný önn að byrja. Bjartur og fallegur drengur kom inn í stofuna ásamt öðrum samnemendum. Með klút um sítt ljóst hárið og augljóslega töffari. En það var eitthvað annað og meira við þennan dreng. Eitt- hvað einlægt og svo hreint. Sterkt en um leið svo brothætt. Hann var ekki auðveldasti nemandinn í tím- um. Ég þurfti að reka vel á eftir honum til að klára þau verkefni sem sett höfðu verið fyrir, en þeg- ar þau komu þá voru þau virkilega góð. Hann var hæfileikaríkur. Hann talaði út í eitt en stoppaði svo öðru hvoru til að biðjast afsök- unar á þessu málæði eða spyrja hvort þetta væri í lagi. Hann vissi að hann væri að tala mikið og um erfið mál en honum fyndist það svo gott. Ég stoppaði hann aldrei af því oftast voru þetta umræður um það sem við hin höfðum gott af að tala um eða hlusta á, djúpar pæl- ingar um lífið, fíkn, æðri mátt og gildi þess að vera góð við hvert annað. Oft fannst mér ég vera að tala við mér þroskaðri mann- eskju. Hann var góður í mannleg- um samskiptum við þá sem kannski þurftu meira á hlýju, skilningi og leiðbeiningum að halda og þegar ég hrósaði honum fyrir það svaraði hann öruggur: „Já, takk fyrir það, ég veit það.“ Hann var opinn, klár, kurteis og talaði fallega um foreldra sína. Eitthvað sem ekki margir 17 ára strákar eyða tíma sínum í. „Hann var með svo fallegt bros, hann vildi alltaf öllum vel.“ „Hann var alltaf svo skemmtileg- ur.“ „Með góðan húmor, stór per- sónuleiki og svo hlustaði hann á svo góða tónlist,“ voru setningar sem samnemendur létu falla þeg- ar við minntumst hans saman í tíma. Það verður tómlegt að halda áfram án hans en við vorum hepp- in að fá að kynnast honum og þó að stutt væri þá skildi hann mikið eftir. Við vottum aðstandendum okk- ar dýpstu samúð og hugsum til Sveins með hlýju, væntumþykju og söknuði. Fyrir hönd okkar sem vorum honum samferða í Fjölbraut í Breiðholti. Gréta S. Guðjónsdóttir. Sveinn Kjartan Hjartarson Fallinn er frá góður drengur, Ólafur Búi Gunn- laugsson. Óli Búi, eins og hann var alltaf kallaður, ólst upp við norðanverðan Byggðaveg og varð snemma eins konar hverfisforingi enda stór eftir aldri og bráðþroska. Ég, þremur árum yngri, naut verndar Óla Búa og var gott að vera undir verndarvæng hans enda var Óli mikill ljúflingur þótt rammur væri að afli. Mér er minnisstæð ein lítil saga, sennilega frá vorinu 1963. Verið var að múrhúða húsið hjá Sillu í númer 140. Handlangari múraranna var tæplega tvítugur töffari sem var alltaf til í að spjalla við okkur strákana. Hann burðaðist með 50 kílóa sementspoka og var bara nokk- uð drjúgur með sig. Hann taldi víst að við gætum ekki bifað þessari þyngd. Óli sagðist til í að prófa og lagði töffarinn 25 kr. undir að Óli gæti ekki borið pok- ann ákveðna vegalengd, sem hann fór síðan létt með og fékk fyrir vikið bláan seðil. – Mikið voru brúnu Akra-karamellurnar úr Kaupfélagi verkamanna góð- ar í sólinni þennan seinni part … Ég gæti talið upp margar Ólafur Búi Gunnlaugsson ✝ Ólafur BúiGunnlaugsson fæddist 5. sept- ember 1953. Hann lést 15. nóvember 2019. Útför Óla Búa fór fram 26. nóv- ember 2019. sögur í þessum dúr en læt hér við sitja. Minning um góð- an dreng lifir. Við Maja send- um Agnesi, sonun- um, systrum og öðrum ástvinum innilegustu sam- úðarkveðjur. Hallgrímur Ingólfsson. Óli Búi, samstúdent minn frá MA, 1974, er nú skyndilega all- ur. Ég man er við settum upp stúdentshúfurnar, að hann reyndist með ennþá stærri hattastærð en ég; sökum hæðar sinnar. Þetta varð mér seinna innblástur að smásögu. Og seinna fékk hann ljóðabók frá mér er ég var hættur að kenna og orðinn skáld, en hann var kominn í stjórn Háskólans á Ak- ureyri. Og nú, þegar ég er að gera úttekt á skáldsagnatilraun- um mínum frá námsárunum í MA, kemur þetta óvænta áfall yfir okkur, útskriftarsystkinin hans! Ég vil kveðja hann með til- vitnun í ljóð eftir mig, en það heitir: Handan rennidyranna; og segir þar m.a. svo: ... En enn um þær rennidyr sem lokast: Líkt og meginþorri Íslendinga hef ég lúmskan grun um framhald í eftirlífsúrræði hjá Friggju; ellegar Freyju, Appóloni eður Orfeifi! Líkt og ég fann svo glöggt í svefnrofunum! Tryggvi V. Líndal. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.