Morgunblaðið - 28.11.2019, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2019
✝ Kristín Jó-hanna Eiríks-
dóttir (Dídí) fædd-
ist 31. ágúst 1927 í
Reykjavík. Hún lést
á Hjúkrunarheim-
ilinu Sóltúni 20.
nóvember 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Friðgerður
Sigurðardóttir, f.
25. mars 1900, d.
20. mars 1960 og
Eiríkur Magnússon, f. 4. júlí
1899, d. 23. september 1981.
Kristín var elst af fjórum systk-
inum en þau eru: Leifur, f. 31.8.
1929, d. 18.8. 2010, Sigurður
Friðgeir, f. 17.6. 1931, d. 30.3.
2001, Anna Soffía, f. 13.2. 1942.
Kristín giftist 20.8. 1951 Jens
Ríkharði Pálssyni, f. 18.1. 1924
frá Stóru-Völlum í Landsveit, d.
11. desember 2015. Börn þeirra
eru:
1) Sigríður Erla, f. 17.11.
1947, d. 22.3. 1980. Börn hennar
eru: a) Jens Reynir, f. 28.12.
1966, barnsfaðir James Douglas
Kane. Börn hans eru Ívar Örn,
Katrín Erla og Kári Freyr,
barnsmóðir Guðríður Alda Guð-
mundsdóttir. b) Orri Freyr, f.
17.12. 1958. Eiginmaður Stefán
Svanberg Gunnarsson. Börn
þeirra eru: a) Gunnar Páll, f.
27.6. 1980. Eiginkona Hrefna H.
Guðlaugardóttir, börn þeirra:
Stefán Ari, f. 27.11. 2015 og
Helgi Ragnar, f. 30.8. 2017. b)
Samúel Orri, f. 29.11. 1982. Eig-
inkona Jóhanna Fylkisdóttir.
Börn þeirra eru: Grétar Smári,
f. 23.10. 2006, Heimir Logi, f.
4.1. 2010 og Vigdís Birna, f. 1.3.
2012. c) Stefán Birnir, f. 21.10.
1991. 5) Eiríkur Bragi, f. 31.7.
1960. Eiginkona Aðalheiður
Þorsteinsdóttir. Börn þeirra
eru: a) Óskar Andri Víðisson, f.
15.4. 1983 stjúpsonur, sonur Að-
alheiðar. Eiginkona Inga Rúna
Guðjónsdóttir. Börn þeirra eru
Þráinn Freyr, f. 16.7. 2014 og
Heiðdís Arna, f. 22.12. 2016. b)
Kristín Alísa, f. 4.3. 1990. Eig-
inmaður Andri Freyr Þorsteins-
son. c) Ásgeir Þór, f. 24.11.
1993.
Kristín var húsmóðir með
stórt heimili og vann samhliða
því m.a. í sjoppum og á
skemmtistöðum bæjarins. Síð-
ustu starfsárin starfaði hún sem
stuðningsfulltrúi í Hlíðaskóla
þar sem hún aðstoðaði fjölfötluð
börn. Kristín starfaði með kven-
félagi Bústaðasóknar og BSR
og hverfafélagi Sjálfstæð-
isflokksins.
Útför hennar fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 28. nóv-
ember 2019, klukkan 15.
4.1. 1974, barns-
faðir Indriði Jóns-
son. 2) Gerður, f.
28.11. 1948. Eig-
inmaður Böðvar G.
Baldursson, látinn.
Börn þeirra eru: a)
Grétar, f. 21.9.
1968. Eiginkona
Sigrún Hrefna
Sverrisdóttir. Börn
þeirra eru Fannar,
f. 5.3. 2006 og Lilja,
f. 5.10. 2007. b) Signý Marta, f.
29.7. 1970. Eiginmaður Páll
Gunnar Pálsson. Börn þeirra
eru Oliver, f. 23.8. 1990, eig-
inkona Arna Björk Óðinsdóttir,
barn þeirra Mikael Freyr,
barnsfaðir Ómar Ingi Friðleifs-
son. Arnór, f. 23.6. 1997, barns-
faðir Hörður Theódórsson.
Börn Signýjar Mörtu og Páls
Gunnars eru Böðvar Bragi, f.
28.5. 2003 og Helga Signý,
f.22.6. 2006. Sigurður Páll, f.
24.3. 1992, stjúpsonur Signýjar,
sonur Páls Gunnars, c) Haukur,
f. 30.4. 1972. Eiginkona Siri-
porn Kaitawai. Barn þeirra er
Anna Kristín, f. 27.3. 2016.
3) Páll Reynir, f. 27.9. 1955,
d. 19.10. 2001. 4) Anna Birna, f.
Mamma var lengst af með
stórt heimili. Heimili sem stóð
öllum opið, fyrst í Sigtúni og
síðan í yfir sextíu ár á Soga-
vegi.
Hún var besta mamma sem
hægt er að hugsa sér, alltaf svo
hlý, góð og hvetjandi. Hún var
glæsileg og glaðlynd og óspör á
brosið sem kallaði það besta
fram í fólki.
Mamma og pabbi voru nátt-
úrubörn og ferðuðust mikið um
landið með okkur systkinin.
Einnig ferðuðust þau víða er-
lendis og þá gjarnan í vinahópi,
sem í voru vinnufélagar á BSR
og eiginkonur þeirra.
Þau komu sér upp sumarpa-
radís í landi Stóru-Valla í
Landsveit og nutu lífsins þar
síðustu áratugi með fjölskyld-
unni við útivist og trjárækt. Í
sveitinni var einnig líflegt og
gefandi samfélag stórfjölskyldu
pabba, þar sem mörg systkina
hans eru þar með sumarhús.
Mamma var ávallt að rækta og
huga að, bæði blómum og öðr-
um gróðri og ekki síst fólkinu í
kringum sig.
Mamma og pabbi voru mikið
dansfólk og voru lengi í Dans-
skóla Hermanns Ragnars.
Minnisstæðar eru flottu veisl-
urnar á Sogaveginum, enda
mamma afbragðskokkur og þau
góð heim að sækja.
Dugnaður og áræði ein-
kenndi mömmu, dæmi um það
var þegar pabbi þurfti að fara í
mjaðmaraðgerð, þá gerði hún
sér lítið fyrir og tók meira-
prófið og leysti hann af í leigu-
bílaakstrinum meðan hann var
að jafna sig.
Á þeim tíma voru fáar konur
að keyra leigubíl. Við mamma
fórum tvær saman í eftirminni-
lega ferð til Vancouver í Kan-
ada að heimsækja Önnu systur
hennar í kringum síðustu alda-
mót.
Þar hittum við líka Ritu
mágkonu hennar sem var kom-
in frá Kaliforníu.
Þetta var fagnaðarfundur, en
mjög hlýtt var á milli mömmu
og þeirra.
Síðustu starfsárin starfaði
mamma sem stuðningsfulltrúi í
Hlíðaskóla þar sem hún aðstoð-
aði fjölfötluð börn. Hún hafði
einstakt lag á börnum og hafði
trú á getu þeirra til að læra og
ná árangri í verkefnum sínum
og lífinu.
Hún var næm fyrir fólki sem
átti við bágindi að stríða og gaf
þeim sérstaklega mikla um-
hyggju og stuðning.
Mamma tók því sem bar að
með æðruleysi og jafnaðargeði.
Hún var ævinlega þakklát fyrir
lífið og það sem það gaf henni
og talaði mikið um það hvað
það væri gefandi að sjá hvað
afkomendum hennar vegnaði
vel í lífinu og hvað hún ætti fal-
legt og gott fólk að.
Síðastliðið eitt og hálft ár
dvaldi hún í Sóltúni þar sem
hún naut einstakrar þjónustu
og umhyggju frá starfsfólkinu.
Anna Birna.
Kristín Jóhanna
Eiríksdóttir
✝ Helga SólveigJensdóttir
fæddist í Stærri-
Árskógi 7. febrúar
1926. Hún lést á
hjúkrunarheimil-
inu Lögmannshlíð
Akureyri 17. nóv-
ember 2019.
Foreldrar Helgu
Sólveigar voru
Jens Óli Kristjáns-
son, f. 23. mars
1881, d. 18. október 1951, og
Signý Jónasdóttir, f. 3. ágúst
1890, d. 16. febrúar 1975.
Systkini Helgu Sólveigar voru
Sigrún, f. 7. febrúar 1915, d.
26. apríl 1993, stúlka (fædd
andvana) 1923, og Kristján
Halldór, f. 1. janúar 1930, d.
30. október 1977.
Hinn 18. október 1952 giftist
Helga Sólveig Sigurði Jóhanni
Stefánssyni frá Efstalandi í
1959, Signý, f. 16. maí 1960,
maki Sigþór Harðarson, f. 28.
október 1956, Jónas Ingi, f. 15.
nóvember 1963, maki Berglind
Sigurpálsdóttir, f. 15. ágúst
1968, Brynja, f. 10. febrúar
1966, maki Jón M. Jónsson, f.
24. janúar 1963. Barnabörnin
eru 19 og barnabarnabörnin
24.
Helga Sólveig ólst upp hjá
foreldrum sínum í Stærri-
Árskógi við almenn bústörf.
Hún starfaði meðal annars við
símstöðina á Krossum og á
Hjalteyri og einnig starfaði hún
einn vetur á Sjúkrahúsinu á
Akureyri. Helga Sólveig og
Sigurður Jóhann tóku við búi
af foreldrum hennar 1953. Hún
undi hag sínum vel í sveitinni,
var virk í félagsstörfum, var
m.a. í kvenfélaginu Hvöt og
kirkjukórnum. Stærri-Árskógs-
kirkja var henni mikils virði og
hugsaði hún vel um hana. Árið
2000 fluttu þau hjónin til Ak-
ureyrar.
Útför Helgu Sólveigar fer
fram frá Stærri-Árskógskirkju
í dag, 28. nóvember 2019,
klukkan 14.
Öxnadal, f. 27. nóv-
ember 1926, d. 26.
ágúst 2013. For-
eldrar hans voru
Stefán Guðmunds-
son, f. 15. apríl
1886, d. 5. ágúst
1969, og Anna
Margrét Kristjáns-
dóttir, f. 13. ágúst
1880, d. 4. júlí
1948. Börn Helgu
Sólveigar og
Sigurðar Jóhanns eru: Anna
Lilja, f. 14. janúar 1952, d. 16.
desember 2014, maki Erlingur
Tryggvason, f. 23. febrúar
1953, Jens Sigþór, f. 14. febr-
úar 1953, kærasta Ingibjörg H.
Kristjánsdóttir, f. 7. október
1961, Margrét, f. 23. júlí 1954,
maki Hannes R. Reynisson, f.
11. janúar 1953, Stefán Júlíus,
f. 11. ágúst 1958, maki Guðrún
Jóna Karlsdóttir, f. 9. október
Elsku amma, mikið verður nú
skrítið að koma til Akureyrar og
ekki koma í heimsókn til þín.
Það var oftast mitt fyrsta verk
þegar við komum norður að
heimsækja þig og afa þegar
hann lifði, enda ávallt verið mikil
ömmu- og afastelpa.
Hugurinn reikar aftur í tím-
ann og ótal minningar úr æsku
koma upp. Oftar en ekki kom ég
með flugi, stundum ein og stund-
um mamma með og það fyrsta
sem var gert var að fara á KEA
og fá sér að borða áður en haldið
var út í sveit. Í sveitinni var
gaman að vera sem krakki hjá
ykkur afa, þar er alger paradís
fyrir börn að vera og blessunar-
lega erum við svo heppin að fá
að koma þangað á hverju sumri
og börnin mín fá tækifæri til að
upplifa það sem ég upplifði sem
barn og meira til, því þau elska
sveitina jafn mikið og ég og bíða
ávallt spennt eftir því að koma
norður í sveitina, og mikið er ég
þakklát fyrir það að geta komið
á þennan yndislega stað.
Amma, ég man ennþá hvar
rjómakúlurnar voru geymdar í
efri skápnum í sjónvarpsstof-
unni, þær fékk ég stundum við
góð tækifæri og bleiku vínar-
brauðin og happaþrennurúntur-
inn með afa niður á Hauganes
og þú alltaf jafn hissa og slóst á
læri þér þegar við afi komum
heim með bunka af happaþrenn-
um og skófum í lengri tíma við
eldhúsborðið. Það eru litlu hlut-
irnir sem koma upp í huga mér
sem eru mér svo kærir en þeir
eru efni í lengri texta heldur en
er við hæfi hér. Elsku amma, þú
varst alltaf svo stolt af öllu fólk-
inu þínu og varst dugleg að
segja okkur það. Þú varst ánægð
með samheldnina og glöð varstu
með litla ættarmótið sem við
höfum haldið síðustu ár í sveit-
inni.
Ég lofa því elsku amma að
gera mitt besta í að halda í
þessa hittinga því þeir gefa okk-
ur öllum svo mikið, því betri
stórfjölskyldu er ekki hægt að
hugsa sér og er það þér að
þakka.
Elsku amma, síðustu ár hafa
ekki verið þér auðveld, hvíl í
friði, nú trúi ég því að þú sért
sameinuð mömmu og afa og það
hlýtur að hafa verið einhver
veislan á afmælisdegi afa í gær.
Signir sól, sérhvern hól.
Sveitin klæðist geislakjól.
Blómin blíð, björt og fríð
blika fjalls í hlíð.
Nú er fagurt flest í dag.
fuglar syngja gleðibrag.
Sumarljóð, sæl og rjóð,
syngja börnin góð.
(Gunnar M. Magnússon)
Takk fyrir allt, elsku amma,
þangað til síðar,
þín
Sólveig Erlingsdóttir.
Þar sem ég næ ekki að kom-
ast í tæka tíð til að vera við útför
þína, elsku amma, langar mig að
senda þér nokkrar línur. Það er
nú margt hægt að segja um
þessa merku konu hana ömmu
mína og margar góðar minning-
ar sem koma upp í hugann núna
þegar komið er að því að kveðja
ömmu í sveitinni.
Ég var svo lánsamur að fá að
koma til þín og afa mjög ungur
strákur og dvelja hjá ykkur á
sumrin í sveitinni. Minningar frá
þessum árum eru ógleymanlegar
enda töluðum við oft saman um
dagana í sveitinni og rifjuðum
upp skemmtilegar minningar og
hlógum mikið þegar við hittumst
og minnist ég sérstaklega sam-
verustundanna með þér í eldhús-
inu í Stærri-Árskógi á kvöldin;
þar töluðum við mikið saman um
lífið og tilveruna. Svo þegar ég
fluttist suður og fór að starfa við
að keyra rútu hringduð þið afi
oft í mig, sérstaklega ef það var
vont veður, og báðuð mig að fara
varlega enda vildir þú fá að
fylgjast með mér alla tíð. Síðast
þegar ég kom til þín vorum við
að skoða myndir sem þú hafðir á
hillunni hjá þér, þá sagðir þú við
mig hvað þú værir rík, ættir svo
mikið af góðum börnum og
barnabörnum sem öll hefðu
komist til manns og þú gætir
ekki beðið um meira.
Ég gæti skrifað heila bók til
minningar um þig, elsku amma.
Ég þakka þér fyrir allar góðu
stundirnar sem við eyddum sam-
an. Með tár í augum kveð ég
með þessum sálmi:
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
(23. Davíðssálmur)
Hvíldu í friði, elsku amma.
Þinn
Reynir.
Helga Sólveig
Jensdóttir
Ástkær eiginkona, móðir, dóttir, systir,
mágkona og tengdadóttir,
HAFDÍS BJÖRK HALLGRÍMSDÓTTIR,
Hjaltabakka 28, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
22. nóvember.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
29. nóvember klukkan 13.
Sæmundur Ólafsson
Margrét Alda Sæmundsdóttir
Hallgrímur Sigurðsson Margrét Helena Högnadóttir
Elín S. Hallgrímsdóttir Sigurjón Einarsson
Anna Helga Hallgrímsdóttir
Auðun Ólafsson Róbert Ólafur Jónsson
Oddrún Ólafsdóttir John-Paul Fortune
Vilhelmína Þorsteinsdóttir
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
BALDUR SIGFÚSSON,
Herjólfsgötu 40,
Hafnarfirði,
lést á heimili sínu mánudaginn
18. nóvember. Útförin fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 2. desember klukkan 15.
Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er
bent á styrktarsjóð Heru.
Elsa Hanna Ágústsdóttir
Fríða Rut Baldursdóttir Jóhann Ríkharðsson
Sigrún Hrönn Baldursdóttir Ásgrímur Jónas Ísleifsson
Ágúst Baldursson
Ásta Lilja Baldursdóttir Hreiðar Gíslason
og afabörnin
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi og afi,
HAUKUR PÁLMASON
fyrrverandi aðstoðarforstjóri
Orkuveitu Reykjavíkur,
áður Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
lést sunnudaginn 24. nóvember.
Útförin fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn
4. desember klukkan 11.
Anna Soffía Hauksdóttir
Jóhannes Hauksson Inga Björg Hjaltadóttir
Helga Hauksdóttir Hafþór Þorleifsson
Haukur Óskar og Auður Tinna
Margrét Aðalheiður og Friðgeir Ingi
Hringur Ásgeir og Ívar
Hildur Ylfa, Haukur Oddur, Urður
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og vinur,
GUÐJÓN VIGGÓSSON
frá Rauðanesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands að
morgni 22. nóvember. Jarðarförin fer fram
frá Borgarneskirkju föstudaginn 6. desember klukkan 14.
Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er
bent á Krabbameinsfélagið.
Guðbjörg Guðjónsdóttir Unnsteinn Þorsteinsson
Kristján Viggó Guðjónsson Hugrún Sif Símonardóttir
Inga Lóa Guðjónsdóttir Hilmar Páll Jóhannesson
Fjóla Veronika Guðjónsdóttir
Ómar Hafberg Guðjónsson Árný Sigtryggsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur
Jóna Gunnarsdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
JÓHANN SIGURÐSSON
flugumferðarstjóri,
Víkurströnd 8, Seltjarnarnesi,
lést á líknardeildinni í Kópavogi
mánudaginn 25. nóvember.
Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn 3. desember
klukkan 13.
Ingibjörg Steinunn Sigurðardóttir
Berglind María Jóhannsd. Ásgeir Kröyer
Karen Bjarney Jóhannsd. Ingvi Steinn Ólafsson
Steinunn Kristín Jóhannsd. Ásgeir Jónasson
Sigurður Jóhann Jóhanns. Hannah Pearl Conroy
og barnabörn