Morgunblaðið - 28.11.2019, Side 25

Morgunblaðið - 28.11.2019, Side 25
þau hjónin stóðu saman í gegnum þykkt og þunnt í lífsins ólgusjó. Samband þeirra einkenndist af mikilli ást og virðingu en ekki síð- ur af jákvæðni og gleði. Slíkur jarðvegur skilar góðri uppskeru enda bera börn þeirra með sér að hafa alist upp við gott atlæti og lifandi áhuga foreldra sinna. Andrés og Dúnna áttu einnig ein- staklega fallegt samband við tengdabörn sín og barnabörn. Þau skilja eftir sig mikla auðlegð í myndarlegri og samhentri fjöl- skyldu. Þótt brotthvarf Andrésar hafi verið óvænt þá er gott til þess að vita að hann fékk að fara án þess að þurfa að kveljast vegna þess sjúkdóms sem hann hafði nýlega greinst með. Andrés var einstakur maður sem okkur þótti afskaplega vænt um og minningin um þennan hlýja og trausta mann mun lifa með okkur og börnunum okkar um ókomna tíð. Við hjónin erum ákaflega þakklát fyrir að hafa hitt Andrés óvenju oft síðustu mánuði og mikið þótti okkur vænt um að sjá hann í útgáfuboði Sólveigar 23. október sl. Blessuð sé minning góðs manns. Sólveig og Torfi. Vinur minn og Kiwanisbróðir til 30 ára, en þá gekk ég í Kiw- anisklúbbinn Eldborg í Hafnar- firði. Þar kynntist ég Andrési Magnússyni rafvirkjameistara og konu hans Guðrúnu Torfa- dóttur. Andrés var fæddur 31.10. 1938 og var því nýorðinn 81 árs. Andr- és var einn af stofnendum Eld- borgar sem verður 50 ára 27.11. næstkomandi, þar stóð til að heiðra hann ásamt öðrum núlif- andi stofnfélögum. Nú hefur Andrés góðvinur minn setið sinn síðasta fund hjá okkur í Eld- borgu. Það verður öðruvísi að sjá ekki lengur Andrés vin minn neins staðar á vegi mínum, það er stórt skarð að fylla þar sem Andrés vantar í hópinn. Ég vil fyrir hönd allra í Kiwi- anisklúbbnum Eldborgu þakka Andrési fyrir veru sína hjá okk- ur, það fór ekki mikið fyrir hon- um, en orð hans voru hnitmiðuð og innihaldsrík, hann vissi upp á hár hvað hann vildi í sínum ráð- leggingum. Ég vil svo fyrir hönd Eldborgarfélaga senda börnum hans og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúðarkveðjur. Forseti Eldborgar, Magnús Pálsson Sigurðsson. Andrés: iðnaðarmaður; raf- virki; góðkunningi okkar starfs- manna á elliheimilinu Grund, er allur; eftir rúman starfsaldur! Hann, sem var svo glaðbeitt and- lit í starfsmannamötuneytinu og á göngum húsanna. Hann var síð- ast farinn að minnka við sig; og að vinna í útibúinu Mörkinni; en vildi þó ekki hætta að vinna al- veg, á meðan eftirsókn virtist eft- ir starfskröftum hans; sem raf- virkjameistara! Andrés fylgdist með dagblaða- skrifum; og nefndi hann við mig að honum fyndist fréttaumfjöllun Guðmundar Andra Thorssonar, bókmenntafræðings og vinstri- sinna, í hans vikulegu pistlum í Fréttablaðinu segja honum það sem þurfti í dægurmálum. Einnig varð hann var við það ef einhverj- ir skrykkir komu á gengi mitt sem rithöfundar í Morgun- blaðinu! Við starfsfólkið á Grund minn- umst þessa vel liðna starfsmanns með eftirsjá og þakklæti. Ég vil kveðja hann með tilvitn- un í ljóð mitt sem heitir Dóms- málaráðuneytið; en þar yrki ég m.a. svo: En hvað með alla elliæru dómarana? Hvar á svo allt gamla fólkið að vera? Lögin hafa svosem ekki skoðun á því: þeirra er bara að tryggja reglu og regl- ur. Og það vill svo til að fólkið hefur brjóst- vit og vill gefa eftir skattpeninga í þau. Tryggvi V. Líndal. MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2019 ✝ Ólafur Helga-son fæddist 27. apríl 1957 í Borg- arnesi. Hann lést 18. nóvember 2019. Foreldrar hans voru Helgi Runólfs- son og Gunnfríður Ólafsdóttir, þau eru bæði látin. Ólafur var annar í röðinni af fjórum systkin- um, systur hans eru Særún, Hrönn og Friðborg. Eiginkona Ólafs er Sigríður Karlsdóttir og eiga þau þrjú börn saman en fyrir átti Sigríð- ur eina dóttur. Börn Ólafs og Sigríðar eru Gunnfríður, gift Inga Rúnari og eiga þau þrjú börn, Val Daða, Tómas Hrafn og Ilmi Tinnu. Elfar Már, sambýliskona hans er Erla Katrín og eiga þau einn son, Arnar Má. Styrmir Már, sem hann gat eytt ómældum tíma í það eitt að horfa á bílana og stússast í kringum þá. Ólafur undi sér best í kring- um sína nánustu og fátt sem veitti honum jafn mikla ánægju og að fara út með börnin og síð- ar barnabörnin að sinna garð- inum og bílunum. Ólafur hóf ásamt félaga sín- um rekstur íþróttavöruversl- unarinnar Borgarsport. Eftir að því samstarfi lauk rak Ólaf- ur verslunina í nokkur ár og samhliða því starfaði hann við bókhaldsstörf á eigin vegum og starfaði við það til dánardags. Ólafur tók mikinn þátt í fé- lagslífi í Borgarnesi og var á tímabili formaður körfuknatt- leiksdeildar Skallagríms auk þess sem hann var einn af stofnendum Fornbílafjelags Borgarfjarðar og gegndi þar stjórnarformennsku í nokkur ár. Útför hans fer fram frá Borgarneskirkju í dag, 28. nóv- ember 2019, klukkan 14. sambýliskona hans er Bessý og eiga þau saman eina dóttur, Camillu Kristínu, fyrir átti Bessý einn son, Hilmi Bjarna. Dóttir Sigríðar er Berglind Ólöf og á hún einn son, Matthías Karl. Ólafur hóf nám við Samvinnuskól- ann árið 1978 og lauk þar stúd- entsprófi árið 1980. Árið 1990 lauk Ólafur samvinnuháskóla- prófi í rekstrarfræðum. Árið 1998 kláraði Ólafur bachelor- gráðu frá Samvinnuháskólanum í rekstrarfræðum. Fornbílar, sérstaklega Mer- cedes Benz-bifreiðar, voru í miklu uppáhaldi hjá Ólafi en hann átti nokkra slíka. Hann hafði komið sér upp afdrepi þar Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt. (Vilhjálmur Vilhjálmsson) Það að þeir ungu kveðji þessa jarðvist á undan þeim sem eldri eru, er þyngra en tárum taki og ekki hinn vanalegi gangur lífsins. En í dag kveðjum við með söknuði kæran systurson, Ólaf Helgason, sem féll frá á besta aldri fyrir vá- gesti þeim sem fáu eirir. Óli, eins og hann var alltaf kallaður, bar veikindi sín ekki á torg síðustu mánuðina og kom fráfall hans mörgum á óvart, Ég var svo lánsöm að fá að dvelja nokkur sumur í Nesinu og passa systkinabörn mín, tvö elstu börn þeirra Gógóar systur minn- ar og Helga Runólfssonar. Ég minnist þessara sólskinsdaga með gleði og þá sérstaklega hversu Óli minn var meðfærilegur og rólegur drengur sem auðvelt var að passa og dekra við. Og ekki var heldur fyrirferðinni fyrir að fara þegar hann eltist. Rólyndi og yfirvegun einkenndi Óla alla tíð. Á unga aldri fékk Óli lömunar- veikina sem olli því að hann missti mátt í öðrum handleggnum. Hann lét það ekki stoppa sig heldur náði ótrúlegum tökum á öllu því sem 6 og 7 ára ærslabelgir hafa fyrir stafni og klifraði upp um alla veggi og upp á skúra jafnt og þeir sem höfðu fullan mátt. Hann sótti endurhæfingu hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra á meðan það var til húsa á Sjafnargötu 14 í Reykjavík, og kom annan hvern dag í bæinn um hádegisbil með Helga pabba sínum sem þá ók áætlunarbíl á milli Borgarness og Reykjavíkur. Hann var orðinn heimavanur hjá okkur á Bragagötunni þar sem hann dvaldi meðan hann var í bænum og labbaði sjálfur á æfing- ar. Hann átti orðið sína félaga í hverfinu sem hann lék sér við meðan hann beið eftir farinu heim aftur kl. 5. Eflaust hefur hann fengið ein- hverja bót meina sinna í þessum æfingum því hann virtist hafa náð að beita handleggnum þannig að ekkert var honum til trafala, hvorki körfuboltinn né önnur vinna, og ég held að það hafi ekki margir vitað af þessari fötlun hans. Ekki slitnaði þráðurinn við elskulegan frænda því eftir skóla- vist á Bifröst sótti Óli framhalds- nám í Samvinnuskólanum í Reykjavík og dvaldi hjá okkur hjónunum vetrarlangt. Alltaf sami ljúflingurinn og hjálpsemin. Þegar horft er á textabrotið hér fyrir ofan og til æskuáranna í Borgarnesi virðist tíminn hafa lið- ið allt of fljótt því nú er komið að kveðjustund og skammdegið fær- ist yfir. Við kveðjum Óla okkar með söknuði og biðjum góðan Guð að styrkja eiginkonu, börn, tengda- börn, barnabörn og systur og fjöl- skyldur því þeirra er missirinn og söknuðurinn sárastur. Ljúfar samverustundir og minningar um góðan dreng munu ylja og lifa með okkur og öllum þeim sem þekktu hann. Blessuð sé minning Ólafs Helgasonar. Erla Ólöf Ólafsdóttir. Einhvern tíma á áttunda ára- tug síðustu aldar kynnti Sísí syst- ir mín Óla fyrst fyrir sinni stóru fjölskyldu. Þar mætti hann tilvon- andi tengdaforeldrum sínum en auk þess fjórum bræðrum, tveim- ur systrum og tilvonandi svilkon- um og svila. Allir glottandi og örugglega erfitt að átta sig á hvort það var stríðnisglott eða eitthvað annað. Þetta var á sunnudegi og það var veisla í anda þess tíma, borð svignuðu undan heimabökuðum kökum og brauðmeti húsmóður- innar. Hún stóð við veisluborðið, dá- lítið nervös með þennan væntan- lega tengdason fyrir framan sig og afsakaði óhrjálegheitin eins og henni var tamt. Óli lét ekkert slá sig út af laginu og mætti þessu fólki öllu af hógværð og virðingu. Og frá þessum degi var okkur öll- um ljóst að góður drengur hafði bæst í hópinn. Óli var einstaklega hjálpsamur og bóngóður. Hann reyndist tengdaforeldrum sínum sérlega vel og mörgum okkar rétti hann hjálparhönd við bókhald og skattaskil enda einstakur fag- maður á því sviði. Hann var snöggur að leysa mál og oftar en ekki beið maður bara í símanum á meðan. Hann var haldinn skemmtilegri bíladellu og í hvert sinn sem þau skötuhjúin skutust í bæinn um helgi tók hann rúnt á bílasölur. Ef hann sá bíl sem hon- um leist vel á hikaði hann ekki við að gera tilboð og þá gat hann ver- ið ansi harður í horn að taka. Hann var því sjaldan lengi á sama bílnum og oft á tíðum átti hann nokkra í einu. Hann safnaði eldri bílum og var búinn að gera nokkra upp. Í sumar buðu Sísí og hann stórfjölskyldunni til veislu og í lok hennar var haldið í skemmuna þar sem hann geymdi gömlu bílana. Óli setti nokkra í gang og svo var farið í bíltúra á Bjöllunni og Willys-num. Þetta var stór stund fyrir okkur öll og ekki síst börnin, sem höfðu ein- staklega gaman að þessu. Óli var áhugasamur um gamlar bækur og oftar en ekki gaukaði hann að mér fágætum bókum sem honum hafði áskotnast. Síðast hafði hann samband við mig fyrir nokkrum vikum og bauð mér að koma og kíkja á gamlar skræður sem hann hafði nýlega rekist á í geymslunni. Við Ebba renndum við hjá þeim Sísí og áttum gott spjall við þau. Þá var ljóst að hann var að heyja úrslitabaráttuna við illvígan sjúkdóm. Hann tókst á við hann af einbeitni og æðruleysi en varð að endingu að láta undan síga í þeim slag og játa sig sigr- aðan. Við sem eftir sitjum söknum Óla. Við Ebba vottum Sísi, börn- unum, tengdabörnum og barna- börnum samúð okkar og biðjum allar góðar vættir að veita þeim styrk í þeirra mikla missi. Hafsteinn Karlsson. Í dag kveðjum við kæran vin og félaga Óla Helga sem fallinn er frá eftir hetjulega baráttu við erf- ið veikindi. Hann bar veikindi sín ekki á torg og vildi sem minnst um þau tala. Óli var vinur vina sinna er lát hans okkur félögum og vinum mikill harmdauði. Hver minning dýrmæt perla er að liðn- um lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki er gjöf sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum sem fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku Sísí, við gufufélagarnir biðjum algóðan Guð að vaka yfir þér og fjölskyldunni allri og veita ykkur styrk á erfiðum tíma. Minningin um góðan vin og fé- laga lifir. Elsku Óli, takk fyrir vináttu og góðar stundir á liðnum árum þín verður sárt saknað í gufuhópnum. Hvíl í friði, kæri vinur. Gufufélagarnir: Jón Haraldsson, Jón Georg Ragnarsson, Jakob Skúlason Sigurgeir Erlendsson, Guðjón Karlsson, Þorsteinn Benediktsson, Eyjólfur Torfi Geirsson, Sigurður Már Einarsson, Guðmundur Eiríksson, Hilmar Arason og Hallgeir Pálmason. Við félagar í Fornbílafjelagi Borgarfjarðar kveðjum góðan fé- laga, Ólaf Helgason, fyrsta for- mann okkar, sem fallinn er frá langt fyrir aldur fram. Það var snemma árs 2011 sem boðað var til fundar í gærusalnum í Brákarey. Tilgangur fundarins var að stofna félag áhugamanna um gamla og forna bíla, varðveita þá og sýna. Þarna fór fremstur í flokki Ólafur Helgason, sem var kosinn formaður félagsins, og gegndi hann formennsku fram á síðasta vor er hann lét af henni vegna heilsubrests. Stofnfundur félagsins var hald- inn 24. mars 2011 og fékk félagið nafnið Fornbílafjelag Borgar- fjarðar. Stofnfélagar voru um 70 talsins en í dag eru félagar orðnir rúmlega 200. Gerður var leigu- samningur við Borgarbyggð um að núverandi sýningarsalur yrði gerður upp og nýttur þannig fyrir félagið. Síðan hafa félagar unnið markvisst að lagfæringum á hús- næðinu og á Þorláksmessu voru fyrstu bílarnir teknir í hús. Fyrsti bíllinn var gjöf frá Gunnari Ei- ríkssyni bónda frá Grjóti en hann er af gerðinni Land Rover, ein al- gengasta bílategund í sveitum upp úr miðri síðustu öld. Sam- göngusafn var svo opnað um Jónsmessuna árið 2012. Síðar var fjárréttin tekin í notkun og þá meira fyrir stærri bíla fé- lagsmanna. Einnig hefur verið komið fyrir í sýningarsalnum lög- regluhorni og Latabæjarsafni. Ég heyrði af því að áhugi Ólafs hefði snemma kviknað á gömlum bílum, en hann var með föður sín- um Helga Runólfssyni að gera upp gamlan Chevrolet sem er einn elsti bíll héraðsins og er nú í eigu félagsins. Sjálfur eignaðist Ólafur nokkra bíla og man ég eftir honum eða þeim hjónum akandi á blárri Volkswagen-bjöllu og eins á Mercedes Benz svo einhverjir séu nefndir. Við þökkum Ólafi fyrir hans mikla þátt í stofnun þessa félags okkar og fórnfúst starf í þess þágu. Við vottum Sigríði eiginkonu hans, börnum þeirra og fjölskyld- um innilega samúð. F.h. Fornbílafjelags Borgar- fjarðar, Skúli G. Ingvarsson, formaður. Ólafur Helgason Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR VIBEKU BJARNADÓTTUR frá Neskaupstað. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Eiri fyrir góða og kærleiksríka umönnun. Viðar Norðfjörð Guðbjartss. Kulrapas Kaewin Þorleifur Guðbjartsson Bjarni Geir Guðbjartsson Kristín Ósk Gestsdóttir Elín Guðbjartsdóttir Marten Ingi Løvdahl Guðbjartur Guðbjartsson Perechta Kazi Pàta Signý Guðbjartsdóttir Sigurður Reynisson ömmubörn og langömmubörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LILJA VESTMANN DANÍELSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, lést á Landakoti laugardag 9. nóvember í faðmi fjölskyldu sinnar. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Svavar Guðmundsson Margrét Svavarsdóttir Reynir Geirsson Guðríður Svavarsdóttir Friðrik Gíslason Guðbjörn Svavarsson Anna Maren Svavarsdóttir Daníel Svavarsson Ruth Linda-Marie Blom barnabörn og barnabarnabörn Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR SIGRÚNAR RAGNARSDÓTTUR Sérstakar þakkar færum við starfsfólki á Grund fyrir hlýtt viðmót, virðingu og góða umönnun. Ásta R. Jóhannesdóttir Einar Örn Stefánsson Guðrún Jóhannesdóttir Ragnar Jóhannesson Bjarni Jóhannesson Auður Þórarinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓREY HREFNA PROPPÉ Gullsmára 11, Kópavogi, lést á heimili sínu 22. nóvember. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 2. desember klukkan 13. Elínborg Proppé Vilhjálmur Óskarsson Ingólfur Proppé Anna Jóhanna Sigurjónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður grein- in að hafa borist eigi síðar en á há- degi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.