Morgunblaðið - 28.11.2019, Side 26

Morgunblaðið - 28.11.2019, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2019 ✝ Magnea Stíg-rún Sigmars- dóttir fæddist á Ak- ureyri 12. júní 1943. Hún lést á Hrafnistu Boða- þingi 14. nóvember 2019. Foreldrar henn- ar voru Guðbjörg Stígsdóttir, f. 15.2. 1904, d. 13.12. 1990, og Sigmar Hóseasson, f. 6.6. 1900, d. 22.11. 1985. Magnea átti eldri bróður, Sigurð Inga, f. 1942, d. 2014, og yngri systur, Guðlaugu, f. 1948. barnabörnin Filip og Ella. 4) Eg- ill, f. 7.8. 1966. Börn hans eru Daníel Þór, Almar Þór og Berg- hildur Björt og barnabörnin Júl- ía Björk og Kristel Eva. 5) Anna Eygló, f. 24.10. 1976, gift Jó- hannesi Níelsi Sigurðssyni. Börn þeirra eru Egill Andri og Birta Magnea. Magnea og Karl skildu árið 1998. Magnea bjó alla tíð á Vatns- endasvæðinu í Kópavogi. Hún útskrifaðist úr Miðbæjarskól- anum árið 1956 og tók eftir það landspróf á Akureyri. Hún hóf síðar nám við Sjúkraliðaskóla Íslands og lauk því árið 1982. Magnea starfaði við umönnun nánast allan sinn starfsferil, lengst af á augndeild Landakots en síðar á sömu deild á Land- spítalanum. Útför Magneu fór fram í kyrrþey að hennar ósk. Hún átti einnig sjö eldri hálfsystkini, samfeðra. Magnea giftist Karli Martínssyni árið 1961. Börn þeirra eru: 1) Mar- teinn, f. 30.10. 1961, giftur Esther Gerði Högnadóttur. Börn þeirra eru Hadda Rakel, Magnea Rut og Birgir Þór. 2) Óskírður, f. 6.4. 1963, d. 23.7. 1963. 3) Sigmar Örn, f. 1.12. 1964. Börn hans eru Selma Rún og Karl Kristófer og Elsku yndislega amma. Við vissum svo sem hvert stefndi en það gerir þetta ekkert auðveldara. Alzheimer er ömur- legur sjúkdómur, honum tekst að taka manneskju frá þér, ekki einu sinni heldur tvisvar. Fyrst týnist sú sem maður þekkti og eftir situr einhver sem þekkir hvorki sig né sína nánustu, svo fer manneskjan alveg. Frá því sjónarhorni þá eru nokkur ár síðan við misstum ömmu okkar en það var þó ein- hver huggun í því að vita af henni þótt það hafi ekki endilega verið amma Magga sem farið var að heimsækja. Þessi frábæra mann- eskja sem vildi allt fyrir alla gera, gaf manni endalaust magn af pönnukökum og vöfflum, þessi sem var aldrei reið og pirruð, sem sönglaði með sjálfri sér, full- komin amma. En núna er engin til að heim- sækja, eftir eru bara brotin hjörtu. Tíminn og minningar um þig koma þeim saman að einhverju leyti, en það verður alltaf brot sem vantar, það tekur þú með þér. Góða nótt, amma. Við elskum þig. Hadda Rakel, Magnea Rut og Birgir Þór. Elsku amma. Nú er komið að kveðjustund. Við minnumst þín með hlýju í hjarta og innilegri væntumþykju. Þú tókst alltaf á móti okkur með hlýju brosi, gleði og alúð. Auka ömmubörnunum þínum tveimur. Það sem er okkur efst í huga þegar við hugsum til baka um stundirnar okkar saman er allt spjallið við eldhúsborðið í Kleifa- kórnum. Alltaf höfðum við um nóg að tala og gátum gantast fram og til baka með málefni sem ollu okkur kátínu. Frá okkar yngri árum eru það stundirnar á eldhúsbekknum hjá þér í Brekkuhvarfinu þar sem þú bauðst upp á veitingar og þá sérstaklega pönnsurnar þínar. Það gerir enginn jafn góðar og þunnar pönnukökur og þú. Við munum líka seint gleyma sykur- molunum sem þú notaðir í kaffið þitt. Alltaf gat maður stungið nokkrum molum upp í sig úr syk- urmolakarinu á eldhúsborðinu. Okkur leið alltaf vel í Brekku- hvarfinu, þar var nóg að gera, óbyggð allt í kring og fullt af tækifærum fyrir prakkarastrik. Tveggja hæða hænsnakofinn á næstu lóð entist endalaust sem afþreying og alltaf var nóg af leikfélögum þar sem börnin þín og barnabörn vildu alltaf koma og vera hjá þér. Þú hafðir svo góða og notalega nærveru. Við kveðjum þig með þakklæti og ást fyrir öll árin sem við áttum með þér. Hvíldu í friði, elsku amma okkar. Hver fugl skal þreyta flugið móti sól, að fótskör guðs, að lambsins dýrðarstól, og setjast loks á silfurbláa tjörn og syngja fyrir lítil englabörn. Nú fljúga mínir fuglar, góða dís. Nú fagna englar guðs í Paradís. (Davíð Stefánsson) Silja Guðbjörg og Hafliði. Með þessum orðum vil ég minnast móðursystur minnar, Möggu frænku, sem var mér afar kær. Það var erfitt að fylgjast með henni berjast við alzheim- ersjúkdóminn í fimm ár og ekki síst þegar hún þurfti fyrir nokkr- um árum að yfirgefa heimili sitt og flytja á hjúkrunarheimili. Magga frænka var með ein- dæmum ljúf og glæsileg kona. Hún átti einstaklega fallegt heimili, var mikill fagurkeri og flink hannyrðakona. Allt lék í höndum hennar. Oft nutum við fjölskyldan góðs af. Ég var svo heppin að fá að alast upp í nágrenni frænku minnar. Fjölskyldan bjó öll uppi á Vatnsenda; amma og afi, Magga og Kalli, Ingi bróðir þeirra og Fanney konan hans og mamma og pabbi ásamt öllum börnunum. Samgangur var mikill og fyrir mér voru það forréttindi að fá að alast upp í þessu umhverfi, með alla í kringum mig sem mér þótti vænt um. Það var alltaf gott að koma til Möggu frænku og minnist ég sér- staklega kökuboðanna. Þá var fína stellið tekið fram, og svo bak- aði hún bestu kökur í heimi. Draumatertan fræga er enn bök- uð fyrir nánast öll afmæli. Skemmtilegast var að fylgjast með þegar mamma, Magga og Fanney hittust. Þær þrjár voru góðar vinkonur og ekkert var meira spennandi en að láta lítið fyrir sér fara og hlusta á þær masa svo ég tali nú ekki um hlátrasköllin. Mamma og Magga voru afar samrýndar og fóru saman í sjúkraliðanám. Ég gleymi aldrei útskriftardegi þeirra og fæ enn stjörnur í augun þegar ég minn- ist hans. Þær voru glæsilegar í hvítu kjólunum með rauð blóm í barmi og fallegu gullúrin sem amma gaf þeim í útskriftargjöf. Hún var afar stolt af dætrum sín- um. Eftir útskrift fór Magga að vinna á augndeildinni á Landa- koti sem síðar fluttist á Landspít- alann. Þær voru ófáar ferðirnar sem ég heimsótti hana og mömmu í vinnuna. Fyrir mér var einhver ljómi yfir þessu göfuga starfi og kannski ekki skrítið að ég skyldi velja mér þennan starfsvettvang, með þessar fyrir- myndir. Okkur gafst góður tími til að spjalla um þessa hluti þegar ég kom suður í verknám og bjó hjá mömmu í þrjár vikur. Þá fékk ég far með Möggu í og úr vinnu. Það var dýrmætur og lærdómsríkur tími sem ég fékk með frænku minni. Ekki má gleyma jólatiltekt- inni. Þá var nú aldeilis tekið til hendinni og að mörgu hlegið. En maður gat líka orðið þreyttur á tiltektaræði þeirra systra. Þær bókstaflega héngu uppi um öll loft og veggi, uppi á skápum eða úti að viðra tau, gardínur, bækur og guð má vita hvað. Held nú að amma hafi smitað dætur sínar af þessu uppátæki. Ég minnist líka búðarferðanna og eru heimsóknirnar í Verðlist- ann og Guðrúnarbúð minnisstæð- ar. Stundum keyptu þær sér föt í stíl en kannski hvor sinn litinn. Man sérstaklega eftir þeim í rauðu og bláu dressunum. Þær voru ómótstæðilegar. Missir mömmu er mikill, hún hefur misst bæði systkini sín sem voru henni afar kær en lífið held- ur áfram og eftir lifa góðar og kærar minningar sem við eigum eftir að rifja upp og njóta. Ég kveð frænku mína með söknuði og þakka henni sam- fylgdina um leið og ég votta fjöl- skyldu hennar og ástvinum ein- læga samúð. Guð geymi Möggu frænku. Meira: mbl.is/andlat Jóna Ósk. Ég kynntist konu sem var um- hyggjusöm og góð, hvatti börnin sín til þess að borða líka kartöfl- urnar, sneri öllu á hvolf ef eitt- hvað týndist, setti búslóðina út í snjóinn í jólahreingerningunni, lagði sig alla fram við að gera nýja herbergi dóttur sinnar full- komið fyrir afmælið hennar, und- irbjó aðfangadag eins og ég átti að venjast og bauð mig velkomna, var mikil hannyrðakona, prjónaði vettlinga, sokka, peysur varð amma, lék við barnabörnin, bar þau á höndum sér, hjálpaði þeim með dönskuna, elskaði sitt fólk, bakaði pönnukökur alla sunnu- daga og geymdi þá fyrstu fyrir mig, fannst gaman að gefa gjafir og gleðja, undirbjó heitt súkku- laði og með því, á meðan við hin fórum í nýársgöngutúrinn í Heið- mörk eða á Vatnsendanum, bjó til bestu púðursykurstertur í heimi, var mín stoð og stytta á erfiðum tímum, var dugleg sjálfstæð kona, var vinkona mín og tengda- móðir, sem síðan veiktist, gleymdi, hægt og rólega fjar- lægðist okkur. Kvaddi. Með sorg í hjarta kveð ég líka. Magga, takk fyrir að vera vin- kona mín. Esther. Magnea S. Sigmarsdóttir ✝ Kristín SveineyBjarnadóttir fæddist á Ísafirði 27. október 1932. Hún lést á dvalar- heimilinu Grund í Reykjavík 5. nóv- ember 2019. Foreldrar henn- ar voru Benedikt Bjarni Hansson, sjó- maður á Ísafirði, f. 7. apríl 1901, d. 18. ágúst 1995, og Kristín Gradíana Jóhannsdóttir verkakona, f. 18. ágúst 1896, d. 5. júní 1982. Systkini Kristínar voru: Jóhann Sigurður Gunnar Aðalsteinn Sig- urðsson, f. 15. júní 1913, d. 23. október 1986, Benjamín Páll Sig- urðsson, f. 15. maí 1917, d. 15. febrúar 2013, Guðmundur Jósep þeirra eru: Guðbjartur Atli Bjarnason, f. 16. mars 1976, Guð- jón Páll Bjarnason, f. 28. júní 1981, Auður Erla Bjarnadóttir, f. 23. september 1987 og Kristinn Snær Bjarnason, f. 26. mars 1995. 2) Fríða Kristín Alberts- dóttir, f. 17. janúar 1957, fyrrum maki Hörður Kristjánsson, f. 8. júní 1955. Börn þeirra eru: Hauk- ur Már Harðarson, f. 23. október 1976, Jón Albert Harðarson, f. 12. mars 1979, Hörður Páll Harð- arson, f. 18. ágúst 1981, Auðunn Birgir Harðarson, f. 26. febrúar 1988. Sambýlismaður Fríðu er Magnús Pétursson, f. 31. maí 1959. 3) Auður Erla Alberts- dóttir, f. 15. september 1958, d. 5. apríl 1986, börn: Kristín Sveiney Baldursdóttir, f. 18. janúar 1982, Erla Björk Pálmarsdóttir, f. 16. apríl 1985, d. 5. apríl 1986. Útför Kristínar fór fram í kyrrþey í Fossvogskapellu 15. nóvember 2019 að ósk hinnar látnu og var jarðsetning í Ísa- fjarðarkirkjugarði 16. nóv- ember. Sigurðsson, f. 21. maí 1924, d. 7. ágúst 1992, Guðrún Guð- ríður Sigurðar- dóttir, f. 21. maí 1924, d. 3. mars 2019, Hermann Al- freð Bjarnason, f. 28. janúar 1928, d. 3. júní 1946, Hákon Guðberg Bjarnason, f. 28. janúar 1928, d. 27. október 2009, Oddur Jakob Bjarnason, f. 27. október 1932, d. 9. október 2004. Kristín giftist hinn 11. júní 1955 Alberti Ingibjartssyni, f. 11. febrúar 1929, d. 11. nóvember 1996. Börn þeirra eru: 1) Bene- dikt Bjarni Albertsson, f. 20. febrúar 1953, maki Guðrún Guð- bjartsdóttir, f. 24. maí 1955. Börn Elsku amma mín, Kristín Sveiney Bjarnadóttir er dáin. Þó það sé mér huggun að vita af henni á betri stað, þá er sökn- uðurinn mikill. Amma var mér kær vinkona og áttum við marg- ar góðar stundir í gegnum árin. Hjá henni dvaldi ég mikið sem barn og þær stundir gleymast aldrei. Oftar en ekki sofnaði amma á undan mér eftir að hafa sungið fyrir mig gömul lög og vísur í þeim tilgangi að svæfa mig. Tók ég þá af henni gler- augun, slökkti ljósið og hjúfraði mig svo upp að henni, því að af ömmu stafaði mikil hlýja og kærleikur sem ég sótti í alla tíð. Hjá ömmu átti ég mitt skjól. Sem barni kenndi amma mér að fara með Faðir vorið og í hvert sinn sem ég gisti hjá henni fór- um við með það saman. Í lokin báðum við svo góðan Guð um að blessa okkar nánasta fólk og að sjálfsögðu hvora aðra. Það reyndist mér því afar erfitt að fara með Faðir vorið í útför hennar. Amma samdi vísur um allt mögulegt og skrifaði þær í bók sem enginn mátti lesa fyrr en eftir hennar dag. Á fermingar- daginn minn gaf hún mér vísu, sem á þeim tíma höfðaði engan veginn til mín. Ég geymdi vísuna á góðum stað og þegar ég les hana í dag þá er það mér mikil ráðgáta hvernig henni datt í hug að semja þessi orð um mig, því vísan er eins og töluð úr mínu hjarta. Eitthvað hefur amma því séð í mér sem ég vissi ekki af sjálf, fyrr en mikið seinna. Þessi vísa mun ávallt eiga sérstakan stað í mínu hjarta. Amma hafði mjög gaman af kvikmyndum og man ég varla eftir að hafa komið í heimsókn til hennar öðruvísi en að hún hafi legið í sófanum, með Stöð 2 í gangi og Diet-Coke flösku á borðinu. Mér er einnig mjög minnisstæð heilsan hennar, sem alltaf var sú sama: Nei, komdu sæl. Amma var stolt kona og vildi alltaf koma vel fyrir. Hún lagði því mikið upp úr því að vera snyrtilega til höfð og það voru ófá skiptin sem ég tók hana í dekur. Henni leiddist það nú ekki. Þá voru augabrúnirnar lit- aðar og plokkaðar, hárið blásið eftir hennar óskum og oft fylgdi fótanudd á lúnar lappir. Þegar ég eignaðist mitt fyrsta barn, Lindu Rós þá var amma mikið hjá okkur. Hún kenndi mér að búa til barnamat og hvernig ég ætti að brjóta saman þvott. Það voru góðar stundir sem við átt- um saman allar þrjár. Amma hafði síðastliðin sjö ár dvalið á Grund í Reykjavík og með árunum var amma farin að gleyma. Hún var aftur orðin ung stúlka á Ísafirði undir lokin. Mér er það mikil huggun að hugsa til þess að nú er hún komin aftur heim, heim til foreldra sinna, systkina, dóttur og dótturdóttur. Elsku amma mín, ég óska þér hvíldar og friðar. Ég þakka þér fyrir alla þá ást og hlýju sem þú gafst mér og dætrum mínum. Þar til við hittumst á ný, þín litla Stína. Nú til þín, faðir, flý ég, á föðurhjartað kný ég, um aðstoð eg bið þig. Æ, vert með mér í verki, ég veit þinn armur sterki í stríði lífsins styður mig. En verði, Guð, þinn vilji, þó veg þinn ei ég skilji, ég fús hann fara vil. Þó böl og stríð mig beygi, hann brugðist getur eigi, hann leiðir sælulandsins til. (Guðmundur Guðmundsson) Kristín Sveiney Baldursdóttir. Kristín Sveiney Bjarnadóttir Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐRÚN FILIPPÍA EYJÓLFSDÓTTIR Kambaseli 47, Reykjavík, lést þriðjudaginn 12. nóvember. Útförin hefur farið fram. Kristinn Grímsson Eydís S. Ástráðsdóttir Geir W. Kinchin Elín H. Ástráðsdóttir Þórður Bogason Ástráður K. Ástráðsson og fjölskyldur Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför ástkærs sonar okkar, HALLGRÍMS ÞORMARSSONAR. Þuríður Hallgrímsdóttir Finnbogi Kjartansson Þormar Ingimarsson Þórunn Stefánsdóttir systkini og fjölskyldur þeirra Ástkær móðir okkar, sambýliskona, systir og amma, VÉDÍS DRAFNARDÓTTIR Dalseli 29, lést á Landspítalanum í Reykjavík laugardaginn 2. nóvember. Útför fór fram í kyrrþey miðvikudaginn 13. nóvember að ósk hinnar látnu. Vignir Þór, Eygló Huld, Hrefna Björt Þorbjörn Unnar systkini og barnabarn Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.