Morgunblaðið - 28.11.2019, Page 27

Morgunblaðið - 28.11.2019, Page 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2019 ✝ ÞorvaldurKristján Sverr- isson, búsettur að Staðarhrauni 36 í Grindavík, fæddist í Reykjavík 4. ágúst 1954. Hann lést 16. nóvember 2019 á Land- spítalanum við Hringbraut. Hann var sonur hjónanna Jóhanns Sverris Jóhannssonar, f. 18. janúar 1928, d. 7. júní 1989, og Sæunnar Kristjánsdóttur, f. 3. mars 1934, d. 9. febrúar 2017. Baldur Jóhann Þorvaldsson, f. 13. janúar 1981, og Sverrir Kristján Þorvaldsson, f. 18. júní 1983. Þorvaldur flutti ungur að ár- um til Grindavíkur og bjó þar alla tíð. Hann var sjómaður í eðli sínu og sigldi á ýmsum skipum, en lengst af starfaði hann sem háseti á Helgafelli Samskipa. Árið 2007 hóf Þor- valdur störf hjá Martaki í Grindavík, en neyddist til að láta af störfum sumarið 2012 þegar hann greindist með mergfrumuæxli. Hann komst aftur inn á vinnumarkaðinn 2018 þegar hann hóf störf hjá höfninni hjá Grindavíkurbæ en lét af störfum þegar veikindin létu aftur á sér kræla. Útför Þorvalds fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag, 28. nóvember 2019, klukkan 14. Þorvaldur giftist 26. nóvember 1981 Helgu Eysteins- dóttur, f. 31. júlí 1954. Foreldrar hennar eru Val- gerður María Guð- jónsdóttir, f. 17. mars 1928, og Ey- steinn Sigfússon, f. 22. mars 1923, d. 10. ágúst 2016. Uppeldisfaðir Helgu var Baldur Sigurbald- ursson, f. 26. janúar 1930, d. 15. desember 2016. Synir Þorvalds og Helgu eru Pabba nægði aldrei meðal- mennska. Hann þurfti alltaf að fara út fyrir skyldur sínar. Hann var ekki aðeins eiginmaður mömmu. Hann var stoð hennar og styrkur. Hann var ekki aðeins faðir okkar bræðranna. Hann var besti vinur okkar. Hann var ekki aðeins tengdasonur Gerðu ömmu. Hann var henni sem eig- inlegur sonur. Pabba nægði ekki að vera að- eins til staðar fyrir ættingja og vini alltaf þegar á þurfti. Hann var líka til staðar fyrir ókunnugt fólk með tíðum blóðgjöfum í gegnum tíðina. Að vísu þurfti hann að taka út úr blóðbank- anum nokkuð oft á síðastliðnum sjö árum, en Blóðbankinn er meðal annars til fyrir fólk í hans stöðu. Ekkert frekar en með aðra óeigingjarna blóðgjafa, þá átti pabbi aldrei eftir að fá þakk- ir frá blóðþegum fyrir örlæti sitt. En hann vissi það, og var alveg sama. Pabbi bar ómælda virðingu fyrir starfsfólki Landspítalans, hvort sem það var á Bráðamót- tökunni, Gjörgæslunni, Blóð- og krabbameinslækningadeild, Meltingar- og nýrnadeild eða Grensási. Helsti löstur hans sem manneskja var sennilega hvað hann átti erfitt með að biðja starfsfólk Landspítalans um hjálp sem honum var ekki boðin að fyrra bragði. Jafnvel í gegn- um erfiðustu veikindin átti hann erfitt með að slíta sig frá sam- úðinni sem hann hafði með lækn- unum, hjúkrunarfræðingunum og sjúkraliðunum, sem hann vissi að væru að vinna gífurlega erfitt og oft vanþakklátt starf daginn út og daginn inn. Við sem fylgdum honum alla leið getum sömuleiðis vottað að á Landspít- alanum vinnur toppfólk, og stöndum við í þakkarskuld við það. Sverrir Kristján Þorvaldsson. Þorvaldur Kristján Sverrisson var aldrei kallaður annað en Valdi innan minnar fjölskyldu. Við vorum þremenningar og báðir fæddir sumarið 1954. Tengingarnar voru fleiri. Móðir Valda, Guðmunda Sæunn Krist- jánsdóttir, ólst upp á heimili föð- urömmu minnar og -afa, þeirra Sigríðar Daníelsdóttur og Magn- úsar Guðmundssonar, en Kristín Guðmundsdóttir, systir Magnús- ar og móðir Sæju, lést þegar Sæja var á þriðja aldursári. Sæja var því uppeldissystir föð- ur míns, Guðmundar Magnús- sonar, og voru þau mjög náin. Af öllum þessum ástæðum var mik- ill samgangur á milli fjölskyldn- anna. Við heimsóttum þau í Grindavík og þau okkur í Reykjavík. Eftir að amma Sig- ríður flutti til okkar á Kleppsveg 84 þegar ég var undir fermingu urðu heimsóknirnar frá Grinda- vík jafnvel enn tíðari. Vegna þessara aðstæðna urð- um við Valdi á fyrstu árum ævi okkar góðir vinir og leikfélagar og var vettvangurinn ýmist í Grindavík eða í Reykjavík. Reyndar dvaldi ég á unga aldri einhver sumur hjá Heiðu systur ömmu og manni hennar Bjarti á Bjarmalandi í Þórkötlustaða- hverfinu í Grindavík og hitti þá líka Valda. Í minningunni er þetta góður tími. Valdi var glað- vær og fjörugur og áttum við vel saman. Ég held reyndar að við höfum verið töluverðir grallarar á þessum tíma. Ömmu Sigríði varð tíðrætt um þegar við hleyptum út úr hænsnakofa í Garðbæ. Hún átti í miklum erf- iðleikum með að hlaupa okkur uppi því við vorum sprettharðir en svo litlir að við sáumst hálfilla í háu grasinu. Þegar ég hélt upp á sextugs- afmælið mitt mættu Valdi og Helga og var hann nokkuð sposkur á svip. Það kom í ljós að systkini mín höfðu heimsótt Valda við undirbúning afmælis- ins og las Snorri bróðir sem var veislustjóri upp úr bréfi sem ég hafði sent Valda en var að vísu með rithönd móður minnar enda hvorugur okkar skrifandi á þess- um tíma. Í bréfinu þakka ég hon- um fyrir bréf og flyt honum svo nokkuð spaugilegar fréttir af mér og fjölskyldunni auk þess sem ég lýsti nokkuð nákvæm- lega afmælisgjöfum sem ég hafði þá nýlega fengið. Þetta rifjaði upp fyrir okkur Valda þessa tíma. Þegar við urðum eldri varð sambandið stopulla enda dvaldi ég yfir lengri tímabil erlendis og hjá báðum tóku annir fullorðins- áranna við vinnu og fjölskyldu- uppbyggingu sinn skerf. Það urðu hins vegar alltaf góðir fundir þegar tilefni leiddu okkur saman. Síðast þegar ég hitti Valda vissi ég ekki betur en að hann hefði náð bata eftir krabbamein sem sótti hart að honum um hríð. Hann hafði auðvitað látið á sjá við þá raun og var líklega ekki með fulla krafta. Það var samt stutt í léttleikann og bros- ið. En skjótt skipast veður í lofti og nú er hann allur. Ég kveð góðan vin og frænda og við Elsa vottum Helgu, sonunum og fjöl- skyldunni allri innilega samúð. Már Guðmundsson. Já, en Valdi er með Helgu! Á þessa leið svaraði sonur okkar, þá ungur að árum, þegar við átt- um orðastað við hann og sögðum að við yrðum að taka hann með valdi en sá stutti var ekki alveg tilbúinn að hlýða. Bragð er að þá barnið finnur og börn eru oft skemmtileg þegar þau túlka orð. En það var alveg rétt hjá honum og sagði svo margt, Valdi var auðvitað með Helgu og þau voru einstaklega samhent hjón. Þau ferðuðust mikið og nutu lífsins, í sérstöku uppáhaldi voru sameig- inlegar ferðir þeirra til heitari landa, í sól og sumaryl. En nú er Valdi lagður af stað í aðra og lengri ferð sem hann kemur því miður ekki til baka úr. Hans er sárt saknað. Valdi var sínu fólki allt í senn traustur, góður og greiðvikinn. Það sem hann tók sér fyrir hendur vann hann af krafti, dugnaði og samviskusemi. Hann hugsaði vel um fjölskylduna sína. Aldraða móður sína ann- aðist hann af einstakri natni. Var hann alla tíð tilbúinn að rétta tengdaforeldrum sínum hjálpar- hönd, redda alls konar málum, lagfæra, sendast og veita góð ráð. Valdi var áhugasamur um nærumhverfi sitt og duglegur að fylgjast með þjóðmálaumræð- unni enda var hann vel inni í ótrúlegustu málum. Hann sýndi sínu fólki áhuga á því sem það var að gera og naut þess að vera innan um fólk. Hann hafði af- dráttarlausar skoðanir um menn og málefni, að kíkja við í kaffi, spjalla og spá í hin ýmsu mál og segja sögur var honum að skapi. Valdi sýndi ótrúlega sterkan lífsvilja og aðdáunarvert æðru- leysi þegar hann tókst á við erfið veikindin sín sem spönnuðu tæp- an áratug. Þau tóku sinn toll en aldrei kvartaði hann. Hann reyndi að njóta lífsins með Helgu sinni eins og honum var frekast unnt. Nú er komið að kveðjustund. Við trúum því að látnir ástvinir taki vel á móti honum. Við minn- umst mágs og svila með kæru þakklæti fyrir góðar fjölskyldu- stundir og velvilja alla tíð í garð barnanna okkar. Við munum sakna Valda. Elsku Helgu, Baldri og Sverri sendum við okkar innilegustu samúðarkveðj- ur og biðjum Guð að vaka yfir þeim og styrkja á komandi tím- um. Megi minningarnar vera ljós á vegi ykkar. Rósa Signý Baldursdóttir og Þorsteinn Gunnarsson. Kær mágur og svili er horfinn á braut alltof snemma. Við áttum samleið með honum í mörg ár bæði í gleði og veikindum hans. Valdi sýndi mikinn styrkleika í veikindum sínum og væri hann spurður um líðan var svarið allt- af ég hef það fínt, þó stöðugt væri eitthvað að bíta í hann. Fjölskylda hans var honum afar hugleikin ásamt því að fylgjast með stórfjölskyldunni. Sjó- mannslífið var stór þáttur í vinnuferli Valda og kom sjó- mannafélag hans sérstaklega vel fram við hann eftir að hann veiktist. Við söknum Valda mikið og þökkum fyrir öll árin og biðj- um góðan Guð að halda vel utan um Helgu, Baldur og Sverri. Sigurjón og Guðrún. Þú grætur vegna þess sem var gleði þín á sannarlega við þegar við kveðjum kæran vin. Þorvaldur Sverrisson, Valdi, hefur nú kvatt þessa jarðvist eft- ir langa og stranga baráttu við meinið illa. Valdi okkar er að fara héðan langt um aldur fram, rétt 65 ára. Valdi var með heilbrigðari mönnum, bæði á sál og líkama framan af. Já heilbrigður í sál- inni og hafði mjög jákvæð við- horf allt fram á síðustu daga. Hann hafði lifað með krabba- mein í mörg ár en þegar nýrun voru líka farin og hann sá fram á að þurfa að vera bundinn vél það sem eftir var fór verulega að draga af honum. Valdi var duglegur að hreyfa sig, hjólaði, synti og gekk á með- an heilsan leyfði. Jákvæður, geðgóður, þægileg- ur í viðmóti, hjálpsamur, hress og skemmtilegur. Mikill sögu- maður. Var stundum að „fara með okkur“ þegar hann var að segja okkur sögur af sjálfum sér, samstarfsfólki sínu og sveitung- um. Valdi var líka einstakur eig- inmaður Helgu sinnar, sem hann var svo ánægður með og talaði svo fallega bæði til og um. Veit að hann var þakklátur fyrir að eiga hana alltaf að, enda vart tryggari kona til. Ég er til vitnis um tryggð Helgu við fjölskyldu og vini, enda höfum við verið vin- konur frá 7 ára aldri. Öll hjón eiga sína sögu um upphaf kynna. Helgu og Valda saga er þannig að þær systur Helga og Peta fóru til Kanarí, um jól 1977. Gerða móðir þeirra þekkti Valda í Grindavíkinni og vissi að hann var líka að fara til Kanarí á sama tíma og bað hann að líta til með stelpunum sínum. Valdi tók Gerðu á orðinu og hef- ur haldið vel utan um Helgu sína alveg síðan þá. Við erum nokkrar vinkonurn- ar sem höfum haldið hópinn allt frá barnæsku og unglingsárum. Hópurinn hefur brallað margt saman í gegnum áratugina. Eft- irminnilegar eru ferðirnar á Dönsku dagana í Stykkishólm sem við fórum í nokkuð mörg skipti og gistu flest okkar á tjaldstæðinu. Valdi lét það ekki aftra sér frá að mæta, þó hann væri stundum fárveikur, „við gistum bara á gistiheimili eða hótelinu“ sagði hann og þau Helga mættu. Ótal fleiri minningar leita á huga minn. Svo oft höfum við verið saman á góðum stundum, vinahópurinn. Svo sem á páskum á Ísafirði, Sólarkaffi Ísfirðinga, Sjómannadaginn í Grindavík, Tenerife og svo ótal margar aðr- ar stundir og ferðir höfum við átt saman. Alls þessa ber að þakka. Valdi var líka einstakur faðir, einlæglega áhugasamur um flest það sem synir þeirra hafa tekið sér fyrir hendur í námi og starfi. Elsku Helga, Baldur, Sverrir og Gerða, missir ykkar er mikill en minningarnar eru margar og flestar vel skrásettar í fjölda myndaalbúma sem elskulegur eiginmaður, faðir og tengdason- ur sá um að halda svo vel utan um. Að lokum vil ég þakka elsku Valda fyrir vináttu og tryggð við mig og mína. Bestu kveðjur eru hér líka frá æskuvinkonum frá Ísafirði þeim Ásu og Svanfríði, einnig frá Laugarvatnssystrunum og mök- um. Okkur finnst við hæfi að kveðja með þessum orðum, úr lagi sem við höfum sungið svo ótal sinnum. „Góða ferð, góða ferð, góða ferð. Það er allt og síðan bros.“ Hinsta kveðja María Kristjáns og börn. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Þorvaldur eða Valdi eins og hann var ávallt kallaður lést á Landspítalnum 16. nóvember sl. Hann lést eftir baráttu við krabbameinið sem hann átti við að stríða í rúmlega 7 ár. Kynni okkar hófust um jól 1977 á Kanaríeyjum þegar við systurnar (Helga og Peta) fórum þangað yfir jól og áramót. Þann- ig var að Helga bauð yngri syst- ur sinni með sér til Kanarí og þótti það mikið ævintýri þá. Móðir okkar systra hafði haft áhyggjur af því að dæturnar væru á leið yfir hafið um hátíð- ina og hitti Sæunni móður Valda á viðburði í Festi þar sem þær tóku tal saman. Frétti hjá henni að Valdi væri á leið til Kanarí og bað hún um að skila því til hans að passa nú stelpurnar sínar. Valdi tók skilaboðunum það al- varlega að samfylgd hans og Helgu systur minnar í gegnum lífið hófst þarna á Kanarí. Sam- fylgd sem aldrei bar á skugga á. Valdi var einkabarn foreldra sinna og því fylgdi því mikill spenna og eftirvænting þegar þau Helga rugluð saman reytum sínum, eignuðst með stuttu milli- bili synina tvo sem hafa verið augasteinar þeirra frá fæðingu. Helga varð tengdadóttir þeirra sæmdarhjóna Sæunnar og Sverris. Valdi hafði marga góða eig- inleika sem persóna og naut fjöl- skylda okkar góðs af því. Hann var traustur maður og bóngóður. Gott var að leita til hans með viðvik og skipti þá aldrei máli hvort um var að ræða kaup er- lendis á vöru, aðstoð við flutn- inga, eða hvað sem er, ná í fólkið okkar upp á Stapa og í Reykja- vík. Hann var sjómaður og stundaði sjóinn lengi, fyrst á loðnuskipum og seinna meira á millilandaskipum, lengst af á Helgafellinu. Hann hafði gaman af ferðalögum og hvenær sem tækifæri gafst tók hann fjöl- skylduna með í ferðir með Helgafellinu. Þannig gat hann uppfyllt ánægju sína af að ferðast og skoða sig um, m.a. með Helgu og sonum sínum um fjarlæg lönd og ævintýri þeirra þar voru mörg. Helga og Valdi ferðuðust einnig mikið meðan heilsa Valda leyfði. Hann hafði mikla ánægju af ljósmyndun og tók mikið af myndum og þannig á fjölskyldan margar minningar festar á ljós- myndum af góðum tímum og æv- intýrum með góðum fjölskyldu- föður. Dýrmætar minningar og gott að geta rifjað upp góðan tíma. Valdi hafði einnig mjög mikla ánægju af því að fara í sund og sundferðir hans voru æði marg- ar, reiðhjólið var hans lífi og yndi og göngur meðan honum entist heilsa til. En lífið tók óvænta stefnu ár- ið 2012 þegar hann hafði verið eitthvað slappur um tiltekinn tíma og ekki fór á milli mál að eitthvað var ekki eins og það átti að vera. Þá kom greining um mergæxli. Valdi tókst á við veik- indi sín af miklu æðruleysi og átti allan stuðning Helgu í gegn- um allt það ferli. Að leiðarlokum viljum við þakka góðum dreng, mági og svila fyrir samfylgd sem aldrei bar skugga á og eigum við minn- ingar um einstakan mann, fjöl- skylduföður og fjölskyldumeðlim í stórfjölskyldunni. Með kærleikskveðju, Petrína og Frímann. „Hæ gæ“ var ávallt hvernig þú heilsaðir mér, Valdi, þegar ég var lítill og fyrsta minningin sem ég á um þig, standandi í dyra- gættinni á númer 44 að taka á móti okkur í heimboð hjá ykkur Helgu frænku. Seinna þegar ég var orðinn eldri og fluttur í bæ- inn spurðir þú mig ætíð: „Hvern- ig baráttan gengi í Reykjavík?“ og ég hafði gaman af því, enda getur borgarlífið oft verið flókn- ara en bæjarlífið í Grindavík. Þú varst duglegur, Valdi, sí- fellt á sjó hér áður fyrr á frakt- skipum og eitt skiptið komstu færandi hendi til mín þegar ég var nýfæddur og færðir mér bangsa sem ég á enn þann dag í dag og mér þykir vænt um. Ég vona að hann verði dóttur minni, henni Júlíu Ósk, jafnkær. Mér þykir það leitt Valdi að þú hafir ekki náð að hitta hana, þar sem þú veiktist fljótlega eftir fæðingu hennar. Ég vona að ljósmyndin af henni sem ég sendi á þig hafi veitt þér sömu gleði og þú fékkst af öðrum ljósmyndum. Þú varst ótrúlega iðinn við ljósmyndun í ættarboðum og öðrum mann- fögnuði og eftir þig liggur mjög skemmtileg skrásetning af fjöl- skyldulífi okkar og fyrir það verðum við þakklát. Ég hefði nú átt að bjóðast nokkrum sinnum til þess að fá myndavélina hjá þér og smella af þér myndum. Þú ert velviljaður maður Valdi og í öll þau skipti sem ég kom ungur í heimsókn til ykkar Helgu og tók þótt í strákapörum með frændum mínum leystir þú úr þeim rólegur og yfirvegaður. Fyrir þær minningar sem og aðrar er ég þakklátur. Á sama tíma og ég kveð votta ég Helgu, Baldri og Sverri innilega samúð. Eftir situr minning um góðan mann. Guð geymi þig Valdi. Sigurbaldur P. Frímannsson. Þorvaldur Kristján Sverrisson Sálm. 17.5-6 biblian.is Skref mín eru örugg á vegum þínum, mér skrikar ekki fótur. Ég hrópa til þín því að þú svarar mér, Guð,... Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undirbúnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbús- skiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Ellert Ingason, umsjón sálmaskrár Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.