Morgunblaðið - 28.11.2019, Qupperneq 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2019
www.gilbert.is
VELDU ÚR MEÐ SÁL
50 ára Bogi er frá
Ólafsvík en býr í Graf-
arholti í Reykjavík.
Hann er íþróttakennari
að mennt og löggiltur
fasteignasali. Hann
rekur eigin fast-
eignasölu – Heimili
fasteignasala. Áhugamálin eru heilsu-
rækt og golf.
Börn: Þorbjörg Sigríður, f. 2005, og Pét-
ur Ófeigur, f. 2008.
Foreldrar: Pétur Bogason. f. 1949, fv.
sjómaður, bæjarverkstjóri, hafnarvörður
og margt fleira, og Kristjana Höskulds-
dóttir, f. 1950, heimavinnandi. Þau eru
búsett í Ólafsvík.
Bogi
Pétursson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Að hjálpa öðrum er besta leiðin
til að gleyma eigin áhyggjum. Vertu
heima í kvöld.
20. apríl - 20. maí
Naut Lestu smáa letrið vandlega ef þú
ert að skrifa undir einhvern samning.
Þér verður trúað fyrir leyndarmáli.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það sem þú kallar dekur
finnst öðrum lífsnauðsyn. Þér tekst að
kalla fram það allra besta í öðrum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Fyrir löngu áttir þú óafvitandi
þátt í að skapa tiltekið ástand milli þín
og ástvinar. Hlustaðu vel á innri rödd
þína.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Láttu ekki ljós þitt skína um of,
því það þreytir bara þá sem þig um-
gangast. Með réttu hugarfari er allt
mögulegt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það eru einhver atriði sem þú
þarft að fara betur í gegnum áður en
þú ert tilbúinn til nýrra átaka. Taktu það
ekki nærri þér, þótt einhverjir fetti fing-
ur út í verk þín.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú er ekki rétti tíminn til að vera
ein/n. Varpaðu hugmyndum á milli þín
og makans og vittu hvort lausnin lætur
ekki á sér kræla. Horfðu fram á veginn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gefðu þér tíma til þess að
sinna vandamálum þeirra sem til þín
leita. Ferðalag á framandi slóðir er á
döfinni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Allt sem þú hefur verið að
gera undanfarið hefur tekist framar
vonum. Vertu bjartsýn/n. Þér verður
boðið í mat.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú er kominn tími til að fara
út, hitta skemmtilegt fólk eða finna sér
nýtt áhugamál. Ástin svífur yfir vötnum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það jafnast fátt á við
skemmtilegar samræður, sérstaklega
þegar góður vinur er viðmælandinn. Að-
dáun þín á börnum og vinum er einlæg.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einhver í vinnunni hefur góða
hugmynd varðandi betrumbætur. Taktu
þér pásu seinnipartinn og einbeittu þér
að fallegustu draumsýn sem þú getur
hugsað þér.
d. 13.10. 1983, húsmóðir í Reykja-
vík.
Börn Sigfúsar og Jóhönnu eru 1)
Ingólfur Sigfússon, f. 21.4. 1967,
fiskeldisfræðingur og svæðisstjóri
Laxeldis Austfjarða á Fáskrúðs-
firði, sambýliskona er Katrín Pét-
og ferðaþjónustubóndi, fyrrverandi
kennari við Barnaskóla Mjóafjarðar
og stöðvarstjóri Íslandspósts. For-
eldrar hennar voru hjónin Lárus
Jóhannsson, f. 1.10. 1909, d. 7.2.
2003, vélsmiður í Reykjavík, og
Margrét Þórarinsdóttir, f. 6.9. 1909,
S
igfús Mar Vilhjálmsson er
fæddur: 28. nóvember
1944 á Brekku í Mjóa-
firði og ólst þar upp. „Ég
fæddist uppi á loftinu, ég
hef síðan sofið í mörgum her-
bergjum í húsinu og er núna aftur
kominn í sama herbergi og ég fædd-
ist í.“ Sigfús gekk í Barnaskóla
Mjóafjarðar og var einn vetur í
Eiðaskóla.
Sigfús varð útvegsbóndi á
Brekku 1964. „Ég og bróðir minn
Páll vorum í 19 ár með trillu og þá
kallaði ég mig útvegsbónda og hef
alltaf verið ánægður með það heiti,
en bæði afi minn og langafi kölluðu
sig alltaf útvegsbændur.“ Það hafa
verið margir fleiri titlarnir sem Sig-
fús hefur borið, en hann hefur verið
hreppstjóri, oddviti, formaður sókn-
arnefndar Mjóafjarðarkirkju, verk-
taki vinnuvéla, umboðsaðili N1, vél-
gæslumaður RARIK, hafnarstjóri
Fjarðabyggðar og landpóstur Ís-
landspósts. Auk þess er hann ann-
álaður grínisti og skemmtikraftur.
Hann var oddviti þar til Mjóafjarð-
arhreppur sameinaðist Fjarðabyggð
en hann heldur enn þá flestum hin-
um titlunum. „Ég hef stundum sagt
að ég taki að mér störf sem aðrir
nenni ekki að sinna.“
Sigfús og Jóhanna eru með
fjárbúskap á Brekku, voru mest
með 200 hundruð kindur en þær eru
núna 100. Þau eru einnig með ferða-
þjónustu á sumrin, tvo sum-
arbústaði, Sólbrekku, sem er einnig
félagsheimili og yfirgefið einbýlis-
hús.
Þótt Sigfús hafi alla tíð búið á
Brekku þá hafa þau hjónin verið
dugleg að ferðast og farið m.a. til
Kúbu og Indlands og sigldu um á
skútu milli Seychelles-eyjanna sem
eru fyrir sunnan Indland. Þrettán
síðustu haust hefur Sigfús svo verið
fararstjóri í ferð til Færeyja ásamt
Sveini Sigurbjarnarsyni. „Það er
því ekki hægt að segja að máltækið
heimskur er heimaalinn hundur eigi
við um mig.“
Fjölskylda
Eiginkona Sigfúsar er Jóhanna
Lárusdóttir, f. 16.10. 1948, húsmóðir
ursdóttir; 2) Lárus Sigfússon, f.
22.12. 1968, vinnur hjá Össuri í
Kaliforníu, giftur Birgit Þórðar-
dóttur; 3) Margrét Sigfúsdóttir, f.
9.9. 1971, kennari á Egilsstöðum,
gift Guðjóni Halldórssyni; 4) Anna
Guðrún Sigfúsdóttir, f. 14.6. 1976,
vinnur hjá Brúnás innréttingum,
bús. á Egilsstöðum, sambýlismaður
er Magnús Sigurðsson, bóndi á Vík-
ingsstöðum á Völlum. Barnabörnin
eru 7.
Systkini Sigfúsar: Hjálmar Vil-
hjálmsson, f. 25.9. 1937, d. 20.8.
2011, fiskifræðingur hjá
Hafrannsóknastofnun; Páll Vil-
hjálmsson, f. 23.5. 1940, fyrrverandi
sjómaður, búsettur á Seyðisfirði;
Stefán Vilhjálmsson, f. 11.9. 1949,
matvælafræðingur, búsettur á Ak-
ureyri, og Anna Vilhjálmsdóttir, f.
7.3. 1954, kennari á Selfossi.
Foreldrar Sigfúsar voru hjónin
Vilhjálmur Hjálmarsson, f. 20.9.
1914, d. 14.7. 2014. bóndi á Brekku,
kennari, þingmaður og ráðherra, og
Anna Margrét Þorkelsdóttir, f. 15.2.
1914, d. 21.4. 2008, húsmóðir á
Brekku.
Sigfús Mar Vilhjálmsson, fyrrverandi útvegsbóndi – 75 ára
Fjölskyldan Sigfús, Jóhanna, barnabörn og Vilhjálmur Hjálmarsson stödd í félagsheimilinu Sólbrekku árið 2013.
Grínistinn á Brekku
Börnin Margrét, Lárus, Anna og
Ingólfur.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Afmælisbarnið Sigfús Mar.
40 ára Karl er Húsvík-
ingur, fæddur þar og
uppalinn. Hann er
tölvunarfræðingur að
mennt frá HR og
starfar sem slíkur hjá
VÍS. Áhugamálin eru
tónlist og tækni.
Maki: Unnur Ösp Guðmundsdóttir, f.
1980, leikskólakennari á Grænuvöllum á
Húsavík.
Börn: Jakob Fróði, f. 2007, og Nína
Fanney, f. 2011.
Foreldrar: Hreiðar Karlsson, f. 1944, d.
2009, kaupfélagsstjóri á Húsavík, og
Jónína Hallgrímsdóttir, f. 1943, fv. sér-
kennslustjóri. Hún er búsett á Húsavík.
Karl
Hreiðarsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is