Morgunblaðið - 28.11.2019, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 28.11.2019, Qupperneq 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2019 Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Fjarstjörnur og fylgihnettir nefnist sýning sem Katrín Matthíasdóttir opnar í Galleríi Gróttu í dag kl. 17. Þar getur að líta á annan tug olíu- málverka Katrínar í samspili við ljóð eftir Pálma R. Pétursson, eiginmann hennar. Spurð um tilurð sýningar- innar rifjar Katrín upp að hún hafi á flóamarkaði í Berlín sumarið 2018 rekist á gamla kvikmyndabæklinga alþjóðlegra kvikmynda frá sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. „Ég heillaðist af þessum bækl- ingum og ætlaði að kaupa nokkur stykki. Sá sem var að selja þá bauð mér að kaupa einn bækling á eina evru eða alla hundrað bæklingana á fimm evrur, þannig að ég sló til og tók þá alla,“ segir Katrín sem á þess- um tíma bjó í íbúð sem Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) á við Neue Bahnhofstrasse í austur- hluta Berlínar. Hamfarahlýnun sýnileg „Bæklingarnir eru allir svart- hvítir, en skemmtilega fjölbreyttir enda prýða þá stjörnur frá ýmsum löndum á borð við Japan, Finnland, Frakkland, Ungverjaland, Tyrk- land, Ítalíu og Bretland,“ segir Katr- ín og bendir á að leikkonur prýði flestar forsíðurnar, en einstaka leik- ari fái að fljóta með. „Stjörnurnar á myndunum kunna að vera fjarri okkur í tíma og rúmi og kannski má segja að járntjald, kynslóðir og ljós- ár skilji þær frá okkur, að ógleymd- um Berlínarmúrnum sjálfum. Stjörnurnar eru þó ekki fjær okkur en svo að ég er sjálf fædd um það leyti sem bæklingarnir komu út og því má segja að kvikmyndir þessara stjarna hafi ferðast í hálfa öld og séu því komnar 50 ljósár frá okkur,“ seg- ir Katrín sem í verkum sínum vinnur iðulega með samfélagslega og póli- tíska skírskotun og er nýja sýningin hennar þar engin undantekning. „Ég hef verið loftslagsaktívisti frá 2007, eða frá því ég sá kvikmynd Als Gore, An Inconvenient Truth. Í 800 þúsund ár hefur magn koltvísýrings í andrúmsloftinu verið nokkuð stöð- ugt, en frá iðnbyltingu hefur það rokið upp. Það eru bein tengsl milli magns koltvísýrings í andrúmsloft- inu og hitastigs á jörðinni. Við lifum nú á tímum þar sem við komumst ekki hjá því að hugsa um hamfara- hlýnun á hverjum degi, enda snertir þetta málefni allt okkar líf. Málefni hamfarahlýnunar birtist því óhjá- kvæmilega í minni myndlist. Í olíumálverkunum á sýningunni hef ég gætt stjörnurnar lit og lífi og staðsett í ókunnugri framtíð – ein- mitt þeirri þar sem tilvera okkar snýst um hamfarahlýnun af manna- völdum,“ segir Katrín og bendir á að viðvörunarbjöllur hafi þegar verið byrjaðar að hljóma þegar kvik- myndastjörnur bæklinganna skinu sem skærast á sínum tíma. „Núna eru stjörnunar komnar til nútímans og sjá að ekkert hefur ver- ið gert þrátt fyrir varnaðarorð vís- indamanna. En þó erfiðleikar steðji að okkur speglast óstöðvandi afl breytinga, nýrrar hugsunar og von- ar í augum okkar og í bliki stjarn- anna,“ segir Katrín og tekur fram að það sé engin tilviljun að aðeins kon- ur fái andlit á sýningu hennar. Karlarnir hafa ekki staðið sig „Á þeim forsíðum þar sem bæði kyn eru sýnileg valdi ég að má burt andlit leikarans. Það er ekkert leyndarmál að karlmenn hafa stjórn- að heiminum í gegnum árhundruðin, en þeir hafa ekki staðið sig þegar kemur að loftslagsvánni. Ég er sannfærð um að ef konur komast til áhrifa og valda þá verði farið hraðar í þær nauðsynlegu breytingar sem við stöndum frammi fyrir. Og ég vona að við förum nægilega hratt í þær aðgerðir sem þarf að fara í til að bregðast við þeirri hamfarahlýnun sem ógnar tilvist jarðarinnar,“ segir Katrín og bendir á að jörðin sé eina lífvænlega heimilið í geimnum sem við þekkjum í dag. „Það er ekkert plan B ef jörðin verður óbyggileg.“ Að sögn Katrínar munu valdir bæklingar liggja frammi í sýningar- rýminu gestum til ánægjuauka, en gaman sé til dæmis að skoða hvernig allir kvikmyndatitlar séu þýddir á þýsku. „Ég er ekki búin að vinna með alla þá bæklinga sem mig lang- ar að vinna með. Þetta er sá fjöldi sem ég komst yfir að vinna með fram að þessari sýningu. Ég mun hins vegar halda áfram að vinna með bæklingana í verkum mínum í fram- tíðinni,“ segir Katrín að lokum. Morgunblaðið/Eggert Litur og líf „Í olíumálverkunum á sýningunni hef ég gætt stjörnurnar lit og lífi og staðsett í ókunnugri framtíð,“ segir Katrín Matthíasdóttir um sýninguna Fjarstjörnur og fylgihnettir sem hún opnar í Galleríi Gróttu í dag kl. 17. „Í bliki stjarnanna“  Katrín Matthíasdóttir opnar sýninguna Fjarstjörnur og fylgihnettir  Olíumálverk unnin út frá gömlum svarthvítum kvikmyndabæklingum Streymisfyrirtækið Netflix hefur tekið á leigu sögufrægt kvikmynda- hús á miðri Manhattan í New York, Paris-bíóið sem var lokað í sumar sem leið eftir að hafa verið í rekstri í sjötíu ár. Ástæðan fyrir leigunni er sú að streymisfyrirtækið mikilvirka, sem hefur að markmiði að færa bíó- upplifun inn á heimilin, vill jafn- framt stuðla að því að bestu mynd- irnar sem það framleiðir hreppi sem flest verðlaun. En til að vera gjald- gengar fyrir Óskarsverðlaun þurfa kvikmyndir fyrst að vera sýndar í kvikmyndahúsum. Hingað til hefur Netflix því látið sýna slíkar myndir, eins og verðlaunamyndina Roma, um hríð í hinum og þessum bíó- húsum, en nú verður Paris miðstöð slíkra sýninga í New York-borg. Verðlaunamynd? Netflix hefur látið sýna The Irishman eftir Scorsese í bíóhúsum. Netflix hefur leigt kvikmyndahús Odee, eða Oddur Eysteinn Frið- riksson, opnar sýninguna Odee Popup í Gallery O í Ármúla 4-6 í dag kl. 17. „Odee hefur á stuttum tíma vakið mikla athygli bæði hér heima og erlend- is fyrir áhugaverða listsköpun. Odee vinnur mest með svokallaða digital fusion eða visual mashup list, sem hann kallar samrunalist. Þar blandar hann saman efni úr vinsælli menningu til þess að skapa ný sjálfstæð listaverk,“ segir í til- kynningu. Þar kemur fram að á sýningunni verði sérvalin álverk og eftirprent frá listamanninum Odee. Sýningin stendur til 19. desember. Odee opnar sýn- ingu í Gallery O Eitt verka Odee. Sýning á nýrri ljósmyndaröð Ólafs Elíassonar, Bráðnun jökla 1999/ 2019 verður opnuð í F-sal Lista- safns Reykjavíkur – Hafnarhúsi í kvöld klukkan 18. Myndröðinni hef- ur einnig verið bætt inn á yfir- gripsmikla yfirlitssýninguna á verkum Ólafs sem stendur nú yfir í Tate Modern í Lundúnum. Áður en sýningin verður opnuð munu Ólafur og Andri Snær Magnason ræða saman í fjölnota- safni Listasafnsins um hlut listsköp- unar í umræðunni um hamfara- hlýnun. Hefst samtal þeirra kl. 17. Árið 1999 ljósmyndaði Ólafur tugi skriðjökla og jökultunga hér á landi, sem lið í langtímaskráningu hans á náttúrufyrirbærum á Ís- landi. Úr myndunum setti hann saman verkið „The Glacier Series“ sem víða hefur verið sýnt. Nú í ár flaug hann aftur yfir sömu jökla, myndaði hvað þeir hafa bráðnað og hopað og stillir nýju myndunum upp með þeim gömlu í nýju mynd- röðinni. Þessi þrjátíu pör sýna vel áhrif hnattrænnar hlýnunar. Birt með leyfi listamannsins og i8 gallerís Bráðnunin Hluti hins nýja verks Ólafs sem fjallar um bráðnun jökla. Sýna nýja jöklamynd- röð Ólafs Elíassonar  Í Hafnarhúsinu og Tate Modern

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.