Morgunblaðið - 28.11.2019, Side 40

Morgunblaðið - 28.11.2019, Side 40
Söngsveitin Blær heldur þrenna tónleika á næstu dögum. Í kvöld kl. 20 í Grundarfjarðarkirkju, á laugar- dag kl. 17 í Laugarneskirkju í Reykjavík og á sunnudag kl. 17 í Stykkishólmskirkju. Á efnisskránni eru ljúfar ballöður og létt jólalög. Blæ skipa Elín Elísabet Hallfreðs- dóttir, Kristín Rós Jóhannesdóttir, Lucia de Korte, Eydís Eyþórsdóttir, Hólmfríður Friðjónsdóttir, Halla Dís Hallfreðsdóttir, Hrefna Gissurar- dóttir og Ragnheiður Valdimars- dóttir. Með þeim leika Hólmgeir Þórsteinsson, Haukur Garðarsson og Martin Markvoll. Blær í tónleikaferð FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 332. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Enn er óvíst hvenær Ómar Ingi Magnússon, landsliðsmaður í handknattleik, snýr aftur á völlinn. Hann glímir enn við höfuðáverka síðan í úrslitakeppninni síðasta vor. „Við töldum og teljum enn að um fólskubrot hafi verið að ræða,“ segir Arnór Atlason, aðstoðarþjálf- ari Aalborg, sem er í viðtali í blaðinu í dag. Ómar Ingi glímir enn við höfuðáverka ÍÞRÓTTIR MENNING Söngvararnir Einar Ágúst Víðisson, Gunnar Ólason, Hreimur Heimisson og Magni Ásgeirsson blása til jóla- tónleika í Bæjarbíói á föstudag kl. 20. Þeir eru þekktir fyrir að hafa staðið í framlínunni hjá hljómsveit- unum Skítamóral, Landi og sonum og Á móti sól. Þeir hafa í gegnum tíðina einnig sungið ýmis vinsæl jólalög. Á tónleikunum á föstudag flytja þeir jólalög og fleira og segja sögurnar að baki lögunum. Með þeim leika Þórir Úlfarsson á hljómborð, Árni Ólason á bassa og Stefán Ingi- mar Þórhalls- son á trommur. Hátíðarstund félaga í Bæjarbíói á föstudag „Líkamlega álagið er mikið og það á vel við mig,“ heldur hún áfram. „Ég berst í mold og drullu, er í kulda, stekk ofan í vatn, sjó, ár og læki og ber tíu kílóa skjöld fyrir mig. Þetta er ekki auðvelt og ekki fyrir hvern sem er, en sundferillinn er góður grunnur.“ Fimmta serían var frumsýnd í byrjun árs þannig að nær ár er lið- ið frá þeim viðburði. Ragga verður viðstödd frumsýninguna í Los Ang- eles. „Þetta er stór áfangi og við verðum þarna nokkur saman að halda upp á hann,“ segir hún. Með auknum verkefnum hefur staðan breyst. Ragga er komin með umboðsmann og fram- kvæmdastjóra og það vegur þyngra þegar kemur að áheyrnar- prufum og fundum. „Ég fer mikið á milli en sonur minn er í Ísaks- skóla og því reyni ég að vera eins mikið og ég get á Íslandi, en hoppa út þegar nauðsyn krefur vegna verkefna.“ Auk hlutverks Gunnhildar er Ragga í ýmsum öðrum verkefnum og þegar hún er ekki að leika sinn- ir hún meðal annars fatahönnun og heldur merki Margrétar Árnadótt- ur, ömmu sinnar, M-Design, á lofti. „Hún lést fyrir um tveimur árum en við erum að reyna að halda áfram á sömu braut.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Sýningar á sjöttu seríu sjónvarps- þáttaraðarinnar Vikings, sem History Channel framleiðir, hefjast í Bandaríkjunum 4. desember og eins og í fimmtu seríunni verður Ragnheiður Ragnarsdóttir í hlut- verki Gunnhildar, eiginkonu Björns Járnsíðu, sonar Ragnars Loð- brókar. „Hlutverkið stækkar með hverjum þætti og Björn og Gunn- hildur eru í hópi helstu persóna, þegar hér er komið sögu,“ segir Ragga, eins og hún er gjarnan kölluð. Um árabil var Ragga ekki aðeins ein besta sundkona landsins heldur í hópi bestu íþróttamanna Íslands. Hún var margfaldur Íslandsmeist- ari, lét að sér kveða á alþjóðavett- vangi og keppti meðal annars á Ól- ympíuleikunum í Aþenu 2004 og Peking 2008. Þegar fyrsta serían var sýnd fyrir um sex árum féll Ragga fyrir henni. „Þá ákvað ég að ég ætlaði að leika í þessum þáttum og vann mig í átt að því eins og í öllu öðru, sem ég hef tekið mér fyrir hendur.“ Hún segist hafa tamið sér þennan hugsunarhátt í sundinu, að setja sér markmið og vinna að því að ná þeim í kjölfarið. Sundið góður grunnur Ragga var í leiklistarnámi í Los Angeles og segist hafa rætt við alla sem hún gat talað við til þess að komast í samband við einhverja sem voru viðriðnir þættina. „Það tók mig langan tíma að ná mark- miðinu en hvert samtal, hver dag- ur, færði mig nær því. Ég var ekki með umboðsmann, þegar ég land- aði hlutverkinu, heldur kynntist fólki, sem kynnti mig fyrir fólki, sem kom mér á endanum í sam- band við handritshöfundinn Mich- ael Hirst, þegar búið var að taka upp fjórar seríur. Ég sagði honum að ég væri sú sem hann væri að leita að og hann tók mig á orðinu.“ Hlutverkið er mun veigameira en Ragga segist hafa gert sér grein fyrir. „Ég sá fyrir mér flotta búninga, hár, förðun, sverð, mikla bardaga og fleira en þetta er í raun miklu meira.“ Hún segir að keppnisskapið komi að góðum not- um og hún lifi sig inn í bardagana. Er fær í flestan sjó  Ragnheiður í stóru hlutverki í bandarískri sjónvarpsseríu Morgunblaðið/RAX Leikari Ragnheiður Ragnarsdóttir hefur víða látið til sín taka. Ljósmynd/MGM/History Channel Gunnhildur Ragnheiður í ham. Í VERSLUNUM ICEWEAR OG VEFVERSLUN S M Á R A L I N D Kr. 7.990.- Áður kr. 11.990.- EIR / BarnajaKKi Kr. 8.994.- Áður kr. 14.990.- BRÁ DÚNVESTI BRÁ DÚNÚLPA Kr. 13.794.- Áður kr. 22.990.- Kr. 29.994.- Áður kr. 49.990.- HINRIK DÚNÚLPA Kr. 29.994.- Áður kr. 49.990.- Kr. 7.630.- Áður kr. 10.900.- 30%AFSLÁTTUR HLÝJA 100% ULLartePPi HELENA DÚNÚLPA BRANDUR DÚNVESTI Kr. 8.994.- Áður kr. 14.990.- 33%AFSLÁTTUR REYKJAVÍKAUSTURSTRÆTI 5 • ÞINGHOLTSSTRÆTI 2-4 • LAUGAVEGUR 91 • FÁKAFEN 9 OUTLET • SMÁRALIND KÓPAVOGUR • AKUREYRIHAFNARSTRÆTI 106 • VESTMANNAEYJAR BÁSASKERSBRYGGJU 2 VERSLANIR ICEWEAR VEFVERSLUN ICEWEAR.IS BRANDUR DÚNÚLPA Kr. 13.794.- Áður kr. 22.990.- 40%AFSLÁTTUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.