Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2019, Page 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2019, Page 8
VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.11. 2019 Ég minnist samtals í aðdrag-anda bankahrunsins þar semrætt var um ráðningu fjár- festingastjóra í lífeyrissjóði. Margir vildu finna klókan fjármálabraskara, aðila sem þekkti kerfið af eigin raun og innan frá, með öðrum orðum, sér- hæfðan „fagmann“. Slíkir aðilar væru að vísu dýrir á fóðrum en á móti kæmi að þeir væru þyngdar sinar virði í gulli. Þeirra fag væri að græða. Einn þessara viðmælenda var á öndverðum meiði. Sá vildi láta kanna hvort í Hagaskólanum fyrirfyndist ekki góður reikningskennari, gáfuð hófsemdarmanneskja með góða dómgreind. Að þessu var hent gaman eða þar til fjárfestingarblöðrur sýndarveru- leika fjármálalífsins tóku að springa hver af annarri, líka hjá lífeyris- sjóðum. Þetta gamla samtal kom upp í hugann þegar eftirfarandi var orð- rétt haft eftir nýjum forstjóra Isavia um einkavæðingu Leifsstöðvar, al- þjóðaflugvallar þjóðarinnar: „Ef það kæmi hér inn erlendur fjárfestir sem sérhæfir sig í að fjár- festa í alþjóðlegum flugvöllum þá kemur með honum mikil þekking sem væri mjög jákvæð fyrir okk- ur.“ Þekking á hverju? Fyrir nokkrum árum vorum við sum hver óánægð þegar íslenskum fyrirtækjum var hent út úr Leifsstöð, ég nefni Kaffitár og Epal. Okkur var sagt að verið væri að endurskipuleggja stöðina, er- lendir sérfræðingar hefðu verið kallaðir til en séð yrði til þess að ís- lensk séreinkenni héldu sér og þyrftu innlend fyrirtæki engu að kvíða. Þetta reyndust orð út í loftið. Nú er erlendur „fagaðili“ nánast búinn að gleypa allan veitingarekstur í Leifsstöð. Hann yfirbauð sam- keppnisaðila, en náði því svo aftur sem þannig tapaðist upp úr vösum okkar í krafti einokunarstöðu sinnar. Svona fara sannir fagmenn að. Gott fyrir okkur viðskiptavin- ina? Nei, en gott fyrir þeirra eigin vasa. Og nú er verið að gefa þessum að- ilum fyrir markið. Flugrekstri skal skipt upp. Alþjóðaflugvöllurinn mun blómstra en innanlandsflugið mun ekki lifa af í sérfélagi. Þá verður beð- ið um viðbótarfé fyrir Reykjavík, Ísafjörð, Akureyri, Egilsstaði, Vest- mannaeyjar, Húsavík, Höfn … Þeirri beiðni verður hafnað enda ekkert aflögu í ríkissjóði – nema náttúrlega að við seljum hlut í Leifs- stöð! Sigurður Ingi Jóhannsson sam- gönguráðherra virðist hafa séð þessa fléttu fyrir því þegar hann var spurður í sjónvarpi hvort hann væri sammála fulltrúa Framsóknar- flokksins í stjórn Isavia sem hefði greitt atkvæði gegn uppstokkun Isavia á framangreindum nótum kvað hann svo vera. Hann vildi ekki einkavæða starfsemina. Gall þá við úr horni: Hlutabréfið í Isavia er á vegum Bjarna Bene- diktssonar fjármálaráðherra. Sam- göngukerfið hætti að vera sam- göngukerfi við hlutafélagavæðingu og varð að fjármálakerfi. Og vel að merkja, slíkt kerfi hugsar ekki á samfélagsvísu og ræður ekki reikn- ingskennara úr Hagaskóla sem for- stjóra! Hver er skoðun ríkisstjórnar og Alþingis? Á að láta þetta yfir okkur ganga? Ráðum reikningskennara úr Hagaskóla Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’Og nú er verið að gefaþessum aðilum fyrirmarkið. Flugrekstri skalskipt upp. Alþjóðaflugvöll- urinn mun blómstra en innanlandsflugið mun ekki lifa af í sérfélagi. Haraldur Jónasson Dolorin Hita- og verkjastillandi paracetamól Á HAGSTÆÐUVERÐI! Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is Lesiðvandlegaupplýsingarnaráumbúðumogfylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til lækniseða lyfjafræðingsséþörfá frekari upplýsingumumáhættuogaukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Þú færð Dolorin í næsta apóteki Dolorin500mg paracetamól töflur - 20stkog30stk Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI, TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI? Fjölmör stuttnáms í handve g keið rki. Skráning og upplýsingar á www.handverkshusid.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.