Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2019, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2019 ● Auka blóðflæði í höfði; ● Slaka á vöðvum í hnakka; ● Bæta öndun með því að slaka á axlasvæði; ● Samhæfa ósjálfráða taugakerfið; ● Slaka á vöðvum í efri hluta kviðar; ● Bæta virkni meltingarkerfisins; ● Bæta blóðflæði í nára. ÖRVUN MEÐ SVÆÐANUDDSINNLEGGI MIÐAR AÐ ÞVÍ AÐ: SLÖKUN OG VELLÍÐAN RAUÐ IR , B L Á I R , B L E I K I R , L JÓS I R OG GRÁ IR BARA Í BETRA BAKI Með fimm svæða nuddinnleggi UNDRA nærðu slökun og vel­ líðan sem dregur úr spennu og örvar blóðflæði. Heilsu­ inniskórnir eru fallegir, hlýir og einstaklega þægilegir. Fáanlegir í dökkgrárri, ljósri, blárri, bleikri eða rauðri merínóull. Komdu og prófaðu! BYLTINGAKENNT 5 SVÆÐA NUDD- INNLEGG ÚR LEÐRI BYLTING FYRIR ÞREYTTA FÆTUR UNDRI HEILSUINNISKÓR V E F V E R S L U N A LLTAF OP IN www.betrabak.is FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 UNDRI HEILSUINNISKÓR RAUÐIR STÆRÐIR: 37–42 BLÁIR STÆRÐIR: 36–42 BLEIKIR STÆRÐIR: 35–42 LJÓSIR STÆRÐIR: 35–42 GRÁIR STÆRÐIR: 35–47 7.900 kr. HÖFUM LAGT GRUNN AÐ GÓÐUM DEGI Í „Það var eitthvað geggjað við það að sjá José Mourinho með Tottenham- treyjuna í vikunni og ég er mjög spenntur að sjá hvað gerist. Auðvitað getur brugðið til beggja vona en mér segir svo hugur að það séu spennandi tímar fram undan hjá liðinu,“ segir Björn Bragi Arnarsson, uppistandari og bókaútgefandi með meiru, en hann hefur fylgt hinu fornfræga enska knatt- spyrnufélagi Tottenham Hotspur að málum frá blautu barnsbeini. Fyrir utan frábæran árangur í Meistaradeild Evrópu síðasta vor hefur gengi Tottenham á þessu almanaksári verið slakt og enda þótt Mauricio Pochettino hafi gert frá- bæra hluti með liðið og stuðningsmönnum hljóti að þykja vænt um hann er Björn Bragi sáttur við stjóraskiptin. „Allt tekur enda og líklega var tími Pochettino liðinn,“ segir hann. Björn Bragi á ekki von á öðru en að Mourinho fái hlýjar móttökur þegar Tottenham sækir West Ham United heim um helgina. „Hann er auðvitað súperstjarna í fótbolta- heiminum og einn sigursælasti þjálfari sem sögur fara af. Og eins og Eiður Smári hefur bent á, þá hlusta allir þegar hann talar. Síðasta verkefni, hjá Manchester United, gekk að vísu ekki vel en þess heldur ætti hann að vera staðráð- inn í að standa sig vel. Það virðist liggja prýðilega á honum og sennilega er hann búinn að átta sig á því að það þarf að gefa til að fá. Ég trúi ekki öðru en að stuðningsmenn Tott- enham sýni honum virðingu og gefi honum tækifæri. Mað- ur styður alltaf liðið sitt, ekki bara þegar gengur vel. Það vita engir betur en við Tottenham-menn!“ José Mourinho er ekki allra en ekki verður deilt um afrek hans. AFP Spark-Móri gengur aftur Björn Bragi Arnarsson Skiptar skoðanir eru um ráðningu José Mourinho til Tottenham Hotspur en Björn Bragi Arnarsson, aðdáandi liðsins, hefur mikla trú á kappanum. Að gefnu tilefni sendi Samband íslenskra samvinnufélaga, SÍS, Morgunblaðinu eftirfarandi at- hugasemd á þessum degi fyrir fjörutíu árum, 24. nóvember 1979: „Í Morgunblaðinu 20. nóv. er birt grein um njósnamál brezka listfræðingsins Anthony Blunt, sem verið hefur í fréttum und- anfarið. Meðal annars segir þar frá þeim atburði, þegar Blunt játaði sekt sína árið 1964, og segir í greininni, að „þetta af- drifaríka viðtal fór fram í auðri íbúð tilvonandi forstöðumanns SIS, sem var fjarverandi“. Án þess að ástæða sé til að gera þetta að stórmáli, þá má gera ráð fyrir því, að þegar lesendur Morgunblaðsins sjá skammstöf- unina SIS, þá detti þeim fyrst af öllu í hug Samband ísl. sam- vinnufélaga. Þetta á enn frekar við, þar sem Sambandið hefur rekið innkaupa- og söluskrif- stofu í London frá 1962, og svo vill til, að árið 1964 urðu þar ein- mitt framkvæmdastjórnarskipti. Þess vegna skal það upplýst, að Sambandinu er ekki kunnugt um, að nokkur starfsmaður þess hafi komizt í minnstu snertingu við þetta umrædda njósnamál. Þvert á móti má þykja trúlegast, að skammstöfunin SIS eigi hér við ekki ómerkari stofnun en leyniþjónustu hennar hátignar Bretadrottningar. Sú stofnun heitir á ensku Secret Intelli- gence Service, sem í daglegu tali er skammstafað SIS.“ GAMLA FRÉTTIN SÍS ekki tengt njósnum SÍS kannaðist ekkert við að hafa tengst gömlu njósnamáli í Bretlandi. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Philip Seymour Hoffman leikari Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona Þórhildur Sunna Ævarsdóttir alþingismaður

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.