Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2019, Síða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2019, Síða 10
VIÐTAL 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.11. 2019 A ugu okkar mætast þegar ég er í þann mund að stíga inn á kaffi- húsið. Sjón veifar kumpánlega til mín, hefur komið sér mak- indalega fyrir í einu horninu. Hann er vel til hafður, að vanda, brosmildur og nærveran hlý og notaleg. Ekki veitir líklega af enda erum við að fara að dýfa okkur ofan í eld- fimt efni – nýnasisma. Nýjasta skáldsaga Sjóns, Korngult hár, grá augu, kom út fyrr í haust og hefur þegar vakið umtal og athygli en þar er hermt af ungum manni sem stofnar nýnasíska hreyfingu í Reykjavík seint á sjötta áratugnum. Að Fríveldishreyfingunni, eins og hún heitir í bókinni, stendur ungt fólk sem fætt er rétt fyrir seinna stríð og man fyrir vikið eftir stríðs- lokum. Það er því ekki eins og ryk hafi verið farið að falla á þessa atburði. Saga Noregs í stríðinu var einnig vel þekkt og hefur án efa ekki farið fram hjá söguhetjunni Gunnari Kam- pen, enda er hann norskur í föðurættina. En hvers vegna tók nasismi sig upp svo skömmu eftir hildarleikinn? Var ekki fullreynt með þá hugmyndafræði? „Seinni heimsstyrjöldin leiddi til hrikalegra ofbeldisverka, eins og við þekkjum. Eigi að síð- ur vil ég svara þessu þannig að nasisminn hafi aldrei farið; það hefur bara verið misdjúpt á honum,“ segir Sjón. „Og af hverju hefði hann svo sem átt að fara? Ekki fór kommúnisminn og ekki tölum við um nýkommúnista í samtím- anum. Þessi þjóðernishreyfing, sem ég fjalla um í bókinni, sprettur upp um hálfum áratug eftir stríðið en þegar maður skoðar það þá sér maður að eldri þjóðernisfasistar voru í bak- grunninum; reiðubúnir að leggja baráttunni lið með fjárhagslegri aðstoð og upplýsingagjöf eða með því að koma á samböndum við skoð- anasystkini í útlöndum. Er þetta ekki saga mannsandans? Hugmyndir lifa og taka sig upp aftur. Og það eina sem við getum lært af sög- unni er að við getum ekki lært af sögunni!“ Í návígi við sláttumanninn slynga Fram hefur komið að fyrirmyndin að Gunnari Kampen er Bernhard Haarde sem var aðal- hvatamaður að stofnun Þjóðernissinnaflokks Íslands sem starfaði um hríð. Hann fór aldrei í felur með skoðanir sínar og lítillega var fjallað um hreyfinguna í blöðum hér á landi á þessum tíma, ekki síst þegar nýnasistarnir héldu hátíð- legan afmælisdag Adolfs Hitlers, sem bar upp á sumardaginn fyrsta, við leiði þýskra hermanna í Fossvogskirkjugarði. Fór gjörningurinn fram undir fánum. Bernhard Haarde veiktist ungur af krabba- meini sem dró hann til dauða aðeins 24 ára. Í minningargrein í Morgunblaðinu sumarið 1962 komst Jón Júl. Sigurðsson, samstarfsmaður hans í Landsbankanum, svo að orði: „Þegar aðrir ungir menn byggðu glæstar framtíðarvonir, þá var hann í návígi við sláttu- manninn slinga [sic]. Það þarf því engan að undra, þótt hann hafi ekki bundið bagga sína allskostar sömu hnútum og samferðamenn. En hvar, sem Bernhard Haarde fór, þá bar hann með sér, að hann var af góðu fólki kominn, glæsimenni í sjón og engum gat blandast hugur um, að hann var alinn upp á góðu og ástríku heimili. Að slíkum mönnum er hin mesta eft- irsjá, er þeir deyja í blóma lífsins.“ Sjón staðfestir að Bernhard og Þjóðern- issinnaflokkurinn hafi komið honum á bragðið við ritun bókarinnar og greina megi fleiri raun- verulegar persónur í útlínum sögunnar. Hann stígi þó í reynd býsna langt frá Bernhard. „Ég las eitt bréf frá Bernhard Haarde og studdist við skrif úr tímariti heyfingarinnar til að ná í ákveðinn anda og stemningu. Gunnar Kampen er eigi að síður sinn eigin maður og í reynd veit ég lítið sem ekkert um persónuleika fyrirmyndarinnar. Í þessari bók bregð ég upp svipmynd af ungum manni sem fer þessa óvenjulegu leið. Skoða hvernig þetta liggur og hvað á sér stað en forðast að koma með tilgátu um það hvernig svona maður verður til. Þegar það gerist í fjölskyldum, að einhver tekur að hneigjast til nasisma eða annarra öfgaskoðana, reynir fólk auðvitað að finna skýringar á því. Og sumir eru alveg varnarlausir gagnvart þessu; það er alls ekki sjálfgefið að þessir ein- staklingar komi úr fjölskyldum sem aðhyllast þessi sömu sjónarmið. Gunnar Kampen er ung- ur maður í bókinni og við vitum ekki hvað orðið hefði um hann hefði honum enst aldur.“ Það sem gerði söguna enn þá forvitnilegri fyrir Sjón var að tvær lykilpersónur í stofnun Heimssamtaka þjóðernissósíalista (nýnasista) árið 1962 eru með tengingu við Ísland; annars vegar Bandaríkjamaðurinn George Lincoln Rockwell, sem bjó hér um tíma og var giftur ís- lenskri konu, og hins vegar hin ensk/fransk/ grísk/indverska Savitri Devi Mukherji, sem dvaldist hér í nokkra mánuði skömmu eftir stríð og varð meðal annars vitni að Heklugosi. Rétt eins og það hefði verið planað. Koma þau að vonum við sögu í bókinni. „Það er með ólíkindum að þau hafi bæði haft þessi tengsl við Ísland. Saga Rockwells er vel þekkt og Savitri Devi skrifaði hér leikrit um Akhenaten faraó sem hún leit á sem forvera Adolfs Hitlers í því að koma á betri heimi. Það er mjög forvitnilegt að lesa endurminningar þessa fólks en Savitri Devi varð fyrir miklum vonbrigðum með fólk hér um slóðir sem henni þótti illa upplýst um nasismann, foringjann og hið lævísa eðli gyðinga. Það hlýtur að teljast þjóðinni til tekna.“ Sjón byrjaði að huga að bókinni fyrir all- mörgum árum. „Það þekkja fáir þessa sögu og sáralítið hefur verið um hana fjallað. Það eru tvær blaðsíður helgaðar Þjóðernissinnahreyf- ingu Íslands í bók Illuga og Hrafns Jökulssona um íslenska nasista, auk þess sem Illugi skrif- aði um hana grein í Mannlíf, að mig minnir. Það er það eina sem ég fann á prenti. Þetta var týnd saga. Þess vegna vildi ég vera trúr því að hún kemur til okkar í brotum; þetta eru slitrur af sögu sem ég reyni að endurskapa með þrenns- konar stílbrögðum; bernskuminningum, sendi- bréfum og öðrum skrifum Gunnars og loks sagnfræðilegri nálgun.“ Ekki bundinn á klafa „eigin stíls“ Það minnir mig á það að fyrir réttum 25 árum vorum við Sjón í sömu sporum, ég að spjalla við hann um nýútkomna skáldsögu, Augu þín sáu mig. Þá trúði hann mér fyrir því, sem ég gleymi aldrei, að hann væri ekki bundinn á klafa „eigin stíls“. Hver bók mótist af efninu sem jafnan hafi hönd í bagga með þróun hennar. „Það passar,“ segir hann brosandi. „Hluti af því að halda mér á lífi sem höfundur er að setja mér nýjar áskoranir.“ – Þú verður seint sakaður um formúluskrif! „Það vona ég. Annars hef ég fengið útrás fyr- ir slík skrif í samstarfi, kvikmyndahandrit eru mun formfastari en það sem ég fæst við alla jafna og í fyrra leyfði ég mér meira að segja að vera melódramatískur í óperu sem ég myndi aldrei gera í skáldsögu eða ljóðum.“ Hann segir nýnasismann hafa heillað sig sem rithöfund enda hafi hann lengi haft áhuga á efn- inu, auk þess sem sagan kallist á við það sem er að eiga sér stað í nútímanum. „Ég hef fylgst lengi með nýnasistahreyf- ingum í heiminum. Raunar er fyrsta sjónvarps- minning mín tengd nasistum; móðir mín keypti fyrsta sjónvarpið á sjöunda áratugnum og þeg- ar kveikt var á kassanum þá blöstu við storm- sveitarmenn í gæsagangi á götum Vínarborgar. Fyrir um þrjátíu árum hitti ég svo fólk úr þess- ari deild í London. Það samtal var mjög áhuga- vert enda var þetta fólk uppfullt af rómantík gagnvart Íslandi og hinum norræna kynstofni, eins og gengur. Þarna kom einnig í ljós að breskir nýnasistar höfðu verið í sambandi við íslensku hreyfinguna í kringum 1960 sem und- irstrikar hversu vel hún var tengd. Eflaust vek- ur það einhverjum hroll að félagatal íslensku hreyfingarinnar sé mjög líklega til í gagnasöfn- um sænskra og enskra nýnasistafélaga.“ Að mati Sjóns höfum við gott af því að skoða sögu sem þessa út frá sjónarhorni eldhugans og hugsjónamannsins, burtséð frá hugmynda- fræðinni sem slíkri. Brenniviðurinn í hug- sjónaeldinn geti verið misjafn en eldurinn eigi að síður alltaf jafn heitur. „Demoniseringin á nýnasistunum kemur okkur ekkert áfram; í henni felst afmennskunin. Við viljum ekki vita af þessu fólki enda er um að ræða hugmyndir sem smætta veruleikann. Í skáldsögunni kem- ur ekkert annað til greina en að fara í ferðalagið með manneskjunni.“ Sjón segir það alltaf hafa höfðað til sín hvern- ig manneskjan reynir að fóta sig í heiminum í gegnum hugmyndafræðina. „Ég þekki þetta sjálfur í gegnum súrrealismann sem ég hreifst af ungur að árum. Eldri menn reyndust mér þá vel og studdu dyggilega við bakið á mér, bæði Alfreð Flóki og Jóhann Hjálmarsson. Alfreð Flóki kom meira að segja á mig lista yfir súr- realista úti í heimi og allt í einu vorum við Me- dúsumenn í Breiðholtinu farnir að skrifast á við þá. Sjálfur hélt Flóki sig til hlés, erfitt var að fá hann til að þiggja boð eða skrifast á við ein- hverja, en hann fann að þetta gæti gagnast mér. Þarna áttaði maður sig á því að við Íslend- ingar erum ekkert svo langt frá öllu og boð- skiptaleiðirnar eru alltaf opnar og sama grunn- teikningin í gangi, hvort sem það eru sendibréf eða internetið. En auðvitað ferðast upplýsingar hraðar í dag og aðgengið er betra. Bæði til góðs og ills, eins og alltaf. Þessi reynsla kom mér tví- mælalaust til góða meðan ég var að skrifa þessa bók.“ Jafnvel þótt heimsstyrjöldin síðari sé ekki með beinum hætti til umfjöllunar í Korngult hár, grá augu þá svífur hún yfir vötnum enda bar þá mest á nasismanum í sögunni. „Ég er fæddur árið 1962 og þá er seinni heimsstyrj- öldin enn þá mjög lifandi minning. Út komu endalausar bækur, bæði skáldverk og sögu- legar bækur. Foreldrar mínir eru fæddir 1936 og 1939 og í leit minni að því úr hverju ég er bú- inn til þá hef ég alltaf staðsett núllpunktinn þarna. Heimurinn sem ég fæðist í byrjar.“ Sjón kann raunar prýðilega við sig í fortíð- inni. „Ein af ástæðunum fyrir því að ég sæki í sögulegt efni er sú að það gefur mér næði til að hugleiða efnið með yfirveguðum hætti – og von- andi lesandanum líka. Eins og við þekkjum þá þurfa nýjustu fréttir að vera æsilegar.“ Korngult hár, grá augu er knöpp saga og kveðst Sjón tiltölulega snemma hafa ákveðið að Sjónarhorn mennskunnar Í nýrri skáldsögu, Korngult hár, grá augu, skoðar Sjón nýnas- isma á Íslandi á árunum í kringum 1960. Týnd saga, eins og hann orðar það, sem ber að nálgast út frá manneskjunni enda komi demonisering á nýnasistunum okkur ekkert áfram. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.