Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.11.2019, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.11. 2019
LÍFSSTÍLL
Fyrir 8
4 eggjahvítur
250 g sykur
2 msk maizena-mjöl
1 tsk. hvítvínsedik
½ tsk. vanilludropar
1 peli rjómi, þeyttur
ferskir ávextir að eigin
vali
HINDBERJASÓSA
150 g hindber
50 g sykur
Þeytið eggjahvítur og
sykur þar til blandan
er orðin stíf og glans-
andi. Gefið ykkur
góðan tíma í þetta og
þeytið á mesta hraða
í allt að 10 mínútur.
Blandið maizena-
mjöli, ediki og van-
illudropum varlega
saman við með sleif.
Teiknið á bökunar-
pappír hring sem er
20-23 cm í þvermál
og látið marengsinn á
hann. Hafið hann
frekar háan.
Látið marengsinn í
180°C heitan ofn,
lækkið hitann strax
niður í 150°C og bak-
ið í eina klukkustund
og 15 mínútur.
Slökkvið á ofninum
og látið marengsinn
kólna í honum. Gott
er að gera hann að
kvöldi og láta hann
vera í ofninum yfir
nótt. Setjið rjómann
á marengsinn rétt áð-
ur en tertan er borin
fram og skreytið með
ávöxtunum.
Setjið hindber í
matvinnsluvél og
maukið vel. Setjið
maukið í pott ásamt
sykri og hitið við væg-
an hita. Hrærið í
pottinum þar til
sykurinn er upp-
leystur. Setjið í ílát og
kælið, sósan má vera
volg eða köld. Berið
fram með pavlov-
unni.
Veislu-pavlova
Vefsíðan grgs.is, eða Gulur,rauður, grænn og salt, hefurnotið mikilla vinsælda í sjö ár.
Hjúkrunarfræðingurinn og fjögurra
barna móðirin Berglind Guðmunds-
dóttir byrjaði að blogga um helsta
áhugamál sitt, matargerð, haustið
2012. Í fyrra sagði hún starfi sínu
lausu sem hjúkrunarfræðingur enda
á matreiðslan hug hennar allan.
„Hjartað mitt var þarna. Auk þess að
sjá um vefsíðuna hef ég verið að halda
„Það má segja að þetta sé upp-
skerubókin. Þarna eru allar vinsæl-
ustu uppskriftirnar frá árinu 2012
komnar saman í eina bók,“ segir hún
og segir hafa verið af nógu að taka.
„Það var erfitt að gera upp á milli,“
segir Berglind og segir eitthvað fyrir
alla í bókinni.
„Bókin er fjölbreytt og þótt það sé
kaka á forsíðunni er þetta alls ekki
bara kökubók. Í bókinni er ekki eitt-
hvað eitt; aðallega er maturinn ein-
faldur og fljótlegur.“
Elska litríkan mat
Er eitthvað sem þú vissir að yrði að
fara í bókina?
„Já, eins og döðlupestóið sem er
eitt það allra vinsælasta. Og pipar-
ostakjúklingurinn.“
Hvað finnst þér skemmtilegast að
elda?
„Ég elska að gera litríkan mat.
Eins og fallegt kjúklingasalat. Ég fæ
mikið út úr því, enda er nafnið á vef-
síðunni lýsandi fyrir mína matargerð;
Gulur, rauður, grænn og salt,“ segir
hún og hlær.
En að baka, ertu mikill bakari?
„Nei, ekkert sérstaklega. Ég er
hræðileg að skreyta kökur og börnin
hafa beðið mig um að gera það aldrei
aftur fyrir barnaafmæli. En ég geri
alveg góðar kökur en þá skiptir ein-
faldleikinn miklu máli.“
Morgunblaðið/Hari
Hræðileg að
skreyta kökur
„Ég elska að gera
litríkan mat. Eins
og fallegt kjúk-
lingasalat. Ég fæ
mikið út úr því,“
segir Berglind.
Vinsæli matarbloggarinn Berglind Guðmundsdóttir hefur gefið út
nýja bók með uppáhaldsréttum lesenda. Bókin er stútfull af girnileg-
um uppskriftum að litríkum mat sem allir geta eldað. Morgunblaðið
fékk að birta nokkrar sem fá bragðlaukana til að dansa.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
matreiðslunámskeið í fyrirtækjum og
nýlega byrjaði ég með matreiðslunám-
skeið fyrir börn sem hafa áhuga á mat-
argerð. Það hefur heldur betur slegið í
gegn. Einnig hef ég haldið námskeið og
fyrirlestra fyrir konur sem vilja láta
hugmyndir sínar verða að veruleika.“
Þetta er uppskerubókin
„Þetta byrjaði allt með hugmynd sem
ég fékk í lok sumars 2012 en ég hef
alltaf haft mikinn áhuga á matargerð.
Svo hefur þetta vaxið og dafnað og er
alltaf jafn gaman. Fólk er farið að
færast mikið inn á Instagram en það
virðist ekki hafa mikil áhrif á vinsæld-
ur vefsíðunnar sem fær um 5-7 þús-
und síðuflettingar á dag. Lykillinn er
stöðugleiki en ég set oftast inn að
minnsta kosti tvær nýjar uppskriftir í
viku og hef gert það síðan ég byrjaði
með vefsíðuna. Á síðasta ári fékk ég
til liðs við mig nýja aðila til að koma
inn með uppskriftir, en það eru mat-
armennirnir þeir Bjarki og Anton, Ír-
is Blöndahl, Valgerður eða Valla og
Hafliði Már. Það er algjör lukka að
hafa fengið þau til mín en þau gera
gott enn betra,“ segir Berglind.
Einfalt og fjótlegt
Áður hefur Berglind gefið út tvær
matreiðslubækur en þriðja bókin,
Vinsælustu réttirnir frá upphafi, var
að detta í hillur bókaverslana.
Berglind hefur sett
allar uppáhaldsupp-
skriftir sínar í eina bók.
- FOLALDAKÖGGLAR -
NÝJUNG HJÁ FÓÐURBLÖNDUNNI
Selfoss
Austurvegur 64a
5709840
Hella
Suðurlandsvegur 4
5709870
HvolsvÖLLUR
Ormsvöllur 2
5709850
WWW.FODUR.IS - NETVERSLUN
Fyrir Folöld -
unghross og
graðhesta
Hágæða
prótein
INNIHELDUR
FISKIMJÖL