Fréttablaðið - 20.02.2020, Page 1

Fréttablaðið - 20.02.2020, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —4 3 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 2 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 DÓMSMÁL Mál Karls Wernerssonar og tveggja endurskoðenda Mile- stone fá efnismeðferð hjá Mann- réttindadómstóli Evrópu (MDE), samkvæmt ákvörðun sem kynnt var fyrr í mánuðinum. Karl, sem var bæði hluthafi og stjórnarmaður í Milestone, var ákærður fyrir umboðssvik og fleiri brot árið 2013. Karl var sýknaður í héraði en Hæstiréttur sneri dómn- um við og sakfelldi hann fyrir alla ákæruliði og dæmdi hann í fangelsi í þrjú og hálft ár. Endurskoðendurnir voru einn- ig sýknaðir í héraði en sakfelldir að hluta í Hæstarétti fyrir stórfelld brot á lögum um ársreikninga. Kærur þeirra til MDE lúta meðal annars að því að Hæstiréttur hafi snúið við sýknudómi í héraði án þess að hlýða á vitnisburði sak- borninga eða annarra vitna. Í stað þess hafi Hæstiréttur endurmetið trúverðugleika og sönnunargildi framburðar, sem veittur var í hér- aði, en dómarar í Hæstarétti sjálfir ekki hlustað á, í andstöðu við rétt þeirra á réttlátri málsmeðferð, samanber 6. grein Mannréttinda- sáttmála Evrópu. Í kæru Karls til MDE er því einn- ig haldið fram að hann hafi ekki verið dæmdur af óvilhöllum dóm- stóli vegna fjárhagslegra hagsmuna dómara í Hæstarétti. Er í kvörtun- inni vísað til hlutafjáreignar fjög- urra af fimm dómurum Hæstaréttar sem felldu dóm í máli hans; Grétu Baldursdóttur, Markúsar Sigur- björnssonar, Ólafs Barkar Þorvalds- sonar og Viðars Más Matthíassonar. MDE hefur áður kveðið upp áfell- isdóma gegn íslenska ríkinu á þeim forsendum sem vísað er til í mál- unum. Fjallað var um milliliðalausa sönnunarfærslu í Vegasmálinu svo- kallaða og í máli um verðsamráð Húsasmiðjunnar og Byko. Þá var til dæmis fjallað um hlutafjáreign dómara í máli Sigurðar Einarsson- ar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings, og von er á dómi MDE í máli Sigríðar Elínar Sigfúsdóttur gegn Íslandi á þriðjudag. – aá Milestone-mál á dagskrá MDE Kærur Karls Wernerssonar og tveggja endurskoðenda Milestone fá efnismeðferð hjá Mannréttindadóm- stóli Evrópu. Dómur verður kveðinn upp í máli Sigríðar Elínar Sigfúsdóttur í Strassborg í næstu viku. Nýr réttur! MEÐ BÉARNAISE-SÓSU OG KARTÖFLUGRATÍNI Lambasteik Heit máltíð, tilbúin á 12 mín. Hægeldun tryggir að vítamín og næringarefni halda sér. Íslensk framleiðsla, íslenskt kjöt, án allra rotvarnarefna. Karl Wernersson. SÖFN „Þau voru búin að tilkynna um komu sína en við bjuggumst ekki við þessari veglegu gjöf frá þeim,“ segir Sæmundur Ámunda- son, framkvæmdastjóri Melrakka- setursins í Súðavík, sem fékk jafn- virði 300 þúsund króna framlags frá kínverskum nemendum. Sæmundur leitar nú að einhverj- um sem getur skipt á kínverskum peningaseðlum og íslenskum krón- um, því bankar hérlendis taka ekki við kínverskum seðlum. Kínverska sendiráðið getur heldur ekki leyst vandann. – khg / sjá síðu 2 Bjóða kínverska seðla í skiptum Avi Feldman, rabbíni verðandi trúfélags gyðinga á Íslandi, heldur hér á Torah rollu sem er grundvöllur hvers samfélags gyðinga, og litli söfnuðurinn fékk að gjöf frá svissneskum hjónum. Söfnuðurinn hyggst gerast formlegt trúfélag hér á landi. „Við lesum og lærum úr Torah og það gefur okkur andagift, gildi og leiðsögn,“ segir rabbíninn. sjá síðu 6 FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.