Fréttablaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 7

Fréttablaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 7
Verðmæti Tora rollu samsvarar árslaunum einstaklings. Álverið í Straumsvík er fyrirtæki sem margir byggja afkomuna á, ítrekar bæjar- stjórnin í Hafnarfirði. best núna! Afgreiðslutímar á www.kronan.is Krónan mælir með! Mmm ... mangó TRÚMÁL Íslenski gyðingasöfnuð- urinn fékk í síðustu viku af henta Torah rollu að gjöf. Avi Feldman rabbíni segir þetta einstaklega mikilvægt því Torah sé undirstaða hvers gyðingasamfélags. „Torah er biblían, handskrifuð á fornhebresku, á pergamenti sem hvert samfélag gyðinga verður að eiga. Við lesum og lærum úr Torah og það gefur okkur andagift, gildi og leiðsögn,“ segir Feldman. „Torah skilgreinir okkur sem þjóð.“ Segir hann Torah eins konar stjórnarskrá gyðinga, sem eru ekki þjóðríki. Gyðingar hafi orðið þjóð áður en þeir áttu land. Gjöfin kom frá svissnesku hjón- unum Adinu og Uri Krausz, í til- efni af 50 ára afmæli Uri, en þau eru búsett í borginni Zürich. Komu þau til Íslands til þess að afhenda gjöfina með viðhöfn. „Þau vildu gera eitthvað sérstakt og ákváðu því að gefa Torah til safn- aðar sem þarfnaðist ritsins. Af ein- hverjum ástæðum völdu þau okkur og við erum vitaskuld afar þakklát,“ segir Feldman. Torah er engin smásmíði í fram- leiðslu og það tekur heilt ár að skrifa rolluna upp. Feldman getur ekki nefnt neina ákveðna tölu hvað rollan kostar, en það samsvari heildarárslaunum einnar mann- eskju. „Síðasti stafurinn var ritaður hérna á Íslandi, sem hefur sérstaka merkingu fyrir okkur.“ Það tekur nokkra þjálfun að lesa úr rollunni, en textarnir eru einnig til í venjulegum prentuðum bókum. Rollan er aðeins notuð þegar söfn- uðurinn kemur saman, svo sem í athöfnum og á helgidögum okkar. Feldman, sem er upprunalega frá Brooklyn í New York, kom til landsins með fjölskyldu sinni vorið 2018. En fram að því hafði ekkert utanumhald verið um sam- félag gyðinga á Íslandi, sem er mjög fámennt. Feldman segir að verið sé, í samstarfi við lögmann, að koma því í kring að söfnuður gyðinga verði skráður sem trúfélag. En það er meðal annars forsenda fyrir því að hægt sé að afla sóknargjalda. „Við erum búin að fylla út alla pappíra og skila þeim inn. Lög- maður okkar býst við því að þetta verði samþykkt í næsta mánuði,“ segir Feldman. Félagið fékk 25 meðmælendur, sem er lágmarksfjöldi til þess að sýslumaður geti staðfest það. Með- mælendurnir þurfa hins vegar ekki að vera skráðir í félagið og Feldman segist ekki vita hversu stór söfnuð- urinn verður. kristinnhaukur@frettabladid.is Torah rolla fyrir nýtt félag gyðinga á Íslandi Íslenski gyðingasöfnuðurinn hefur fengið að gjöf Torah rollu frá svissneskum hjónum. Samkvæmt rabbína safnaðarins er slík rolla grundvöllurinn að hverju samfélagi. Söfnuðurinn er nú að sækja um að gerast formlegt trúfélag. „Við erum vitaskuld afar þakklát,” segir Avi Feldman. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Í viðbragðsstöðu gegn hryðjuverkum Rússneska alríkislögreglan hélt viðbragðsæfingar gegn hryðjuverkum í gær. Hér má sjá þungbúna sérsveitarmenn á stífum æfingum á Shuvakish lestarstöðinni í Jekaterínburg, Rússlandi. Þar réðust þeir inn í lestirnar og skutu þar á myndir af meintum hryðjuverkamönnum. MYND/GETTY STÓRIÐJA „Bæjarstjórn Hafnar- fjarðar skorar á stjórnvöld og aðra hlutaðeigandi að vinna að því að Ísland verði samkeppnishæft fyrir fyrirtæki sem nýta umhverfisvæna orku fyrir starfsemi sína,“ segir í bókun sem bæjarstjórn Hafnar- fjarðar samþykkti samhljóma í gær. Kveðst bæja r st jór nin ha fa áhyggjur af óvissu um starfsemi álversins í Straumsvík. Er þar vænt- anlega vísað til fregna um að Rio Tinto boði samdrátt í framleiðslu í Straumsvík eða að hún verði jafnvel alveg lögð af. Er það sagt vera vegna orkuverðs sem félagið greiðir sam- kvæmt samningi þess við Lands- virkjun og félagið segir ekki vera samkeppnisfært við það sem öðrum álverum standi til  boða, bæði  á Íslandi og erlendis. „Er um að ræða rótgróið fyrirtæki sem margir Hafnfirðingar byggja afkomu sína á,“ undirstrikar bæjar- stjórnin. – gar Orkan hér verði samkeppnishæf Álver Ísal. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR 2 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.