Fréttablaðið - 20.02.2020, Side 2
Okkur var bent á að
næsti staður sem
við gætum skipt seðlunum
væri í London.
Sæmundur Ámundason,
framkvæmdastjóri
Melrakkaseturs Íslands
SALTVATNSPOTTAR
HEITIRPOTTAR.IS
HÖFÐABAKKI 1
SÍMI 7772000
PLUG & PLAY
HITAVEITUSKELJAR
• Tilbúin til notkunar
• Tengja 2 rör
• Eyðir minna vatni
Veður
Norðaustan 13-23 m/s, hvassast
NV til. Snjókoma eða él N-lands,
en bjart með köflum syðra. Hiti
kringum frostmark. Minnkandi
norðanátt seinni partinn og
kólnar í veðri. SJÁ SÍÐU 20
Hafa mikilvægum skiltum að gegna
Á morgun verður eitt ár liðið frá því að fyrsta loftlagsverkfallið var haldið á Austurvelli. Af því tilefni buðu aðstandendur verkfallsins
til skiltagerðar á Loft í gær þar sem gestir spreyttu sig á að útbúa skilti. Mótmælin halda svo áfram á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SAMFÉLAG Melrakkasetur Íslands
leitar nú að einhverjum sem getur
skipt við það á kínverskum peninga-
seðlum sem stofnunin fékk í gjöf á
síðasta ári. Um er að ræða um 300
þúsunda króna verðmæti í mynt-
inni yuan sem kínverskir nemendur
skildu eftir til rannsókna á íslenska
refnum á Hornströndum.
Um nokkurra ára skeið hafa
komið hópar skólanema f rá
Wycombe Abbey School í borginni
Changzhou í Kína, til að upplifa
víðernið á Hornströndum. Um tíu
nemendur, 18 og 19 ára, og tveir
kennarar. Árið 2018 kom hópurinn
í fyrsta skipti við á Melrakkasetri
Íslands í Súðavík, fékk fræðslu um
íslensku refina og hreifst af.
Sæmundur Ámundason, fram-
kvæmdastjóri Melrakkasetursins,
segir að setrið taki mest við inn-
lendum skólahópum en einstaka
sinnum við erlendum og þá oftast
háskólahópum.
„Þau voru búin að tilkynna um
komu sína en við bjuggumst ekki við
þessari veglegu gjöf frá þeim,“ segir
Sæmundur en nemendurnir höfðu
safnað peningunum fyrir ferðina.
„Það eru mikil viðbrigði fyrir þau
að koma frá milljóna borg til Horn-
stranda þar sem engin föst byggð
er. Þar er mikið af ref og hann vakti
áhuga þeirra.“
Starfsmenn setursins lentu hins
vegar í vanda með gjöfina því enginn
hérlendur banki vildi taka við seðl-
unum. Þá gat kínverska sendiráðið
heldur ekki leyst vandann.
„Okkur var bent á að næsti staður
sem við gætum skipt seðlunum væri
í London,“ segir Sæmundur. „Við
vitum heldur ekki hversu auðvelt er
að ferðast á milli landa með svona
háa upphæð í reiðufé.“ Melrakka-
setr ið leit ar
nú að ein-
hverjum sem
hefur áhuga á
að skipta fénu.
Þó að sjálfsagt
séu fáir á leiðinni
til Kína á þessum
tímapunkti þar sem
Covid-19 veiran geis-
ar í landinu. Reynt
var að hafa uppi á
ferðamanninum
Wei Li, sem kom
hingað til lands til þess að skipta
íslenskri smámynt en hafði ekki
erindi sem erfiði. Ekki náðist þó í
Wei, sem er farinn af landi brott og
búinn að gefa smámyntina til góð-
gerðarmála.
Þangað til tekst að skipta seðl-
unum liggur gjöf in óhrey fð.
„Peningarnir skemmast ekkert,“
segir Sæmundur. Þetta séu ekki
krumpaðir seðlar úr búðar-
kössum, heldur nýir seðlar
úr banka.
Nemendurnir góð-
hjörtuðu ætla að koma
aftur á þessu ári og
hyggjast færa Mel-
rakkasetrinu gjöf á
nýjan leik. „Rektor
skólans hefur hins
vegar í huga að
hafa hana í auð-
skiptanlegri mynt.“
kristinnhaukur@
frettabladid.is
Gáfu Melrakkasetrinu
peningaseðla frá Kína
Kínverskir nemendur færðu Melrakkasetri Íslands veglega peningjagjöf til
rannsókna. Þar sem seðlarnir eru í kínverskri yuan mynt fæst þeim ekki skipt
hér á landi. Setrið leitar nú að einhverjum til að skipta á seðlunum við sig.
Kínverskir nemendur hafa sýnt Melrakkasetrinu mikinn áhuga.
+PLÚS
Eflingarfólk við samningaborðið.
KJARAMÁL Reykjavíkurborg hafn-
aði í gær tilboði Eflingar til lausnar á
kjaradeilu félagsins og borgarinnar.
Verkfall Eflingar heldur því áfram.
Lýsti samninganefnd Eflingar von-
brigðum með þetta. Tilboð félagsins
hafi verið sanngjarnt og hófsamt.
Í yfirlýsingu samninganefndar
Ef lingar sem beint er til fulltrúa
meirihlutans í borgarstjórn segir að
í sáttmála meirihlutans frá því í júní
2018 sé tekið fram að hann ætli að
leiðrétta laun kvennastétta. Stuðn-
ingur sé í samfélaginu við að þetta
loforð verði efnt.
„Eina málsvörn ykkar gegn kröf-
um okkar hefur verið að vísa í kjara-
samning á almennum vinnumark-
aði, svokallaðan Lífskjarasamning,“
segir nefndin. Aðilar samningsins
úr röðum verkalýðshreyfingarinnar
telji hann ekki leysa borgina undan
því að semja við Eflingu á sjálfstæð-
um forsendum.
„Í okkar hópi eru þeir sem fá
lægstu útborguðu laun allra á
íslenskum vinnumarkaði sökum
þess að lágir taxtar eru þakið í
launasetningu okkar og vegna þess
að mörg okkar hafa ekki aðgang að
yfirvinnu eða vaktavinnu,“ segir
samninganefndin áfram.
„Meirihluti okkar eru konur
sem eru dæmdar til að lifa á barmi
fátæktar, þrátt fyrir að vera í fullri
vinnu og halda úti grunnþjónustu
sem er svo mikilvæg að jafnvel
örfárra daga verkfall setur allt úr
skorðum.“ – gar
Efling segist
vonsvikin
DÓMSMÁL Tólf hundruð blaða-
menn frá 98 löndum fordæma í
sameiginlegri yfirlýsingu meðferð
réttarkerfisins á Julian Assange,
stofnanda Wikileaks, sem leitt hafi
til kröfu Bandaríkjanna um framsal
hans. Verið sé í fyrsta sinn að beita
bandarískum lögum um njósnir
gegn einhverjum sem birt hefur
upplýsingar frá uppljóstrara.
„Allir blaðamenn nota upplýsing-
ar frá heimildarmönnum í trúnaði
svo lögsókn setur mjög hættulegt
fordæmi sem ógnar blaðamönnum
í heiminum og fréttamiðlum,“ segir
í yfirlýsingu blaðamannanna.
Kveðast blaðamennirnir telja
fangelsun Assange í Bretlandi og
meðferðina á máli hans fyrir dóm-
stólum vera gróft réttarfarsbrot.
Fram kemur að yfir Assange
vofi allt að 175 ára fangelsisdómur
í Bandaríkjunum vegna ákæra á
hendur honum þarlendis. – gar
Blaðamenn
fordæma mál
gegn Assange
2 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð