Fréttablaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 11
Fá svæði á Íslandi skarta öðrum eins fjalla-hring og Siglufjörður nyrst á Tröllaskaga. Þetta eru snarbrött og sérlega tignarleg fjöll sem mörg teygja sig vel yfir 800 m og eru snævi þakin stóran hluta ársins. Þessi fjöll eru mikil staðarprýði en áður en vegurinn
yfir Siglufjarðarskarð var lagður fyrir bílaumferð til
Siglufjarðar árið 1946 voru þau hinn mesti farartálmi.
Með Strákagöngum 1967 opnaðist heilsársvegur og
frá 2010 liggur greiðfærasta leiðin til Siglufjarðar í
gegnum Héðinsfjarðargöng.
Á Siglufirði morar allt í göngu- og fjallaskíðaleiðum
og það er kostur hversu stutt er að uppgöngustöð-
unum. Ein þeirra skemmtilegustu liggur á tind sem
heitir því sérstaka nafni Móskógahnjúkur (690 m).
Hann sést víða að en frá Siglufirði minnir hann á fal-
lega slípaðan demant eða píramída. Gangan hefst í
Skútudal við mynni Héðinsfjarðarganga Siglufjarðar-
megin. Fyrst er fylgt vegi meðfram heitavatnsbóli
Siglfirðinga en síðan haldið áfram inn dalinn með
ána og gljúfur og foss í henni á hægri hönd. Stefnt er á
norðurvegg „demantsins“ sem sífellt verður tilkomu-
meiri. Á vinstri hönd opnast smám saman útsýni upp
á stórkostlega tinda eins og Dísina og snarbrattan
Syðri-Fýlaskálahnjúk sem er ein mest krefjandi fjalla-
skíðabrekka í nágrenni Siglufjarðar. Smám saman er
sveigt til hægri og eykst þá brattinn. Stefnt er á 767 m
háan Presthnjúk fyrir botni dalsins en af honum er
gríðarlegt útsýni, m.a. yfir fjöllin umhverfis Héðins-
fjörð, en líka þau sem umlykja Fljótin og Siglufjörð.
Presthnjúk er tiltölulega auðvelt að ná gangandi og
fyrir sæmilega vant fjallaskíðafólk.
Af tindinum er hægt að halda sömu leið til baka en
vant skíðafólk getur haldið ofan í botn Héðinsfjarðar
eða skíðað niður brattar norðurhlíðar Presthnjúks.
Enn skemmtilegra er að þræða sig eftir hryggjum sem
leiða frá Presthnjúki að Móskógahnjúki „bakdyra-
megin“. Þetta er aðeins fyrir vant göngu- og skíðafólk
og ekki fyrir lofthrædda. Einnig verður að gæta vel
að snjóflóðum og hafa snjóflóðabúnað með í för. Til-
finningin að standa á tindi Móskógahnjúks er engu
lík. Vel sést að Illviðrahnjúk í vestri og fallegu
bæjarstæði Siglufjarðar, Hólshyrnu, fjöllum
upp af Hestskarði og ofan í Héðinsfjörð.
Brekkurnar niður í Skútudal eru langar
en brattar og því mikilvægt að fara með
gát. Einnig er hægt að skíða niður í
Héðinsfjörð og láta sækja sig þar við
gangamunnann.
Demanturinn
upp af Sigló
Fjallaskíðahópur skinnar upp Móskógahnjúk. Í fjarska sést í Siglufjörð. MYND/ÓMB
Norðurveggur
Móskógahnjúks
líkist óneitan-
lega demanti
eða píramída.
MYND/ÓMB
Horft í suður af Syðri-Fýlaskálahnjúk. Mógskógahnjúkur er fyrir miðri mynd og Presthnjúkur aftar til hægri. MYND/TG
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð-
læknir og
náttúruunnandi
og Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
2 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð