Fréttablaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 23
Það er mikið búið
að vera um
spennur og fallegar
stórar spangir með
demöntum í allan vetur.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Flestar stelpur fara í hár-greiðslu á fermingardaginn og strákarnir fara yfirleitt
í klippingu fyrir ferminguna
til að vera sem flottastir á stóra
deginum. Sunna Jóhannsdóttir,
hárgreiðslukona á hárgreiðslustof-
unni Skuggafall í Hafnarfirði, segir
að tískan í fermingargreiðslum í ár
sé náttúruleg og falleg.
„Það er mikið um létta liði,
lausar fléttur og hárið hálf-
tekið upp frá andlitinu. Mér finnst
f lestar sækja í það núna og jafnvel
að vera með styttur í hárinu. Svona
krúttlegt og seventíslegt,“ segir
Sunna.
„Það er mikið búið að vera um
spennur og fallegar stórar spangir
með demöntum í allan vetur svo ég
sé fyrir mér að það verði mikið um
það hjá fermingarstelpunum í ár.
Jafnvel að það komi inn í staðinn
fyrir blóm og þannig skraut.“
Í gegnum árin hefur það nánast
Léttir liðið og lausar fléttur
Nú nálgast fermingarnar og undirbúningur kominn á fullt hjá flestum fermingarbörnum og fjöl-
skyldum þeirra. Eitt af því sem þarf að huga að er hárgreiðslan eða klippingin á fermingardaginn.
Sunna segir að fermingarbörn í dag hafi mjög ákveðnar skoðanir á hvernig þau vilja hafa hárið. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
Hárið er gjarnan tekið lauslega saman að aftan. Fermingarstelpurnar vilja margar hafa létta liði í hárinu. Stórar spangir eru í tísku og fara þær vel við fallega fléttu.
alltaf verið þannig að fermingar-
stelpur vilja vera með sítt hár að
sögn Sunnu, henni finnst þó vera
minna um það að stelpur í dag
séu með hár niður á rass. „Það er
meira um millisídd eða hár sem
nær rétt niður fyrir herðablöðin,“
segir hún.
„En það er mjög algengt að
stelpur komi í fermingargreiðslu
og komi svo stuttu seinna og vilji
breyta hárinu. Það er mikið sport.“
Sunna segir að tískan hjá
fermingarstrákunum sé alltaf svo-
lítið svipuð. „Það er búið að vera
svolítið mikið í tísku undanfarið
að vera mjög snögghærður. Margir
ungir strákar í dag eru að biðja um
þessa svokölluðu þjónaklippingu,
að hafa toppinn svolítið fram. Þeir
eru orðnir opnari fyrir því að leyfa
til dæmis náttúrulegum liðum að
vera í hárinu en þeir vilja lang-
flestir vera vel snöggir í hliðum.“
Nú þegar eru komnar einhverjar
bókanir í fermingargreiðslur og
klippingar hjá Sunnu. „Flestar
stelpurnar koma fyrst í prufu-
greiðslu. Það er svolítið skemmti-
legt að út af bæði Instagram
og Pinterest og þess háttar þá
koma þær margar inn með mjög
ákveðnar hugmyndir um hvað
þær vilja gera. Það er mjög fínt,
þegar ég var krakki sem dæmi
þá hafði maður ekkert viðmið og
þurfti bara að treysta hárgreiðslu-
konunni. Krakkar í dag eru með
svo ákveðnar skoðanir á persónu-
legum stíl sínum. Þau eru orðin svo
sjálfstæð.“
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R