Fréttablaðið - 20.02.2020, Page 25

Fréttablaðið - 20.02.2020, Page 25
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Grunnurinn að allri förðun er að hafa undirlagið gott. Öll forvinna er algjörlega nauðsynleg og ég undir­ bjó húðina með góðu ljómakremi. Elsie Kristinsdóttir veit hvað skiptir máli þegar kemur að fermingarförðun. Elsie lærði förðunarfræði í Snyrtiaka- demíunni í Kópavogi árið 2011, en hún er menntuð sem bæði förðunarfræðingur og stjórn- málafræðingur og kennir sam- félagsgreinar í Vallaskóla á Selfossi ásamt því að vera í mastersnámi í kennslufræði við HÍ. Hún hefur starfað sem förðunarfræðingur í níu ár og hefur haldið sér við með því að fara á masterclass nám- skeið, en hefur aldrei gert förðun að aðalstarfi sínu. „Mig langar að halda áfram að farða, en ég sé ekki fram á að leggja þetta fyrir mig því ég er mikill bókaormur,“ segir Elsie. „En þetta er samt það skemmtilegasta sem ég geri.“ Elsie segir að það sé töluverður munur á fermingarförðun og almennri tískuförðun. „Tískuförðun er voðalega bundin því hvað er í tísku hverju sinni, en fermingarförðun er miklu meira tímalaus. Það er helsti munurinn,“ segir Elsie. „Tískuförð- un snýst því um það sem er vinsælt hverju sinni, hvort sem það eru skærir litir, dökkar varir, ýktur augnblýantur eða hvað annað, en fermingarförðunin er látlausari og tímalausari.“ Hægar breytingar í fermingarförðun Tískan breytist hægar í ferm- ingarförðun, en hún breytist samt. „Þetta hefur breyst rosalega mikið í gegnum árin,“ segir Elsie. „Ég man að þegar ég fermdist var ég bara með maskara. Þetta hefur aukist, en almenna viðmiðið er samt að vera ánægður með sjálfan sig og að minna er meira. Það þýðir samt ekki endilega að nota bara litað dagkrem og hyljara, heldur frekar að fara hóflega og velja náttúru- legu leiðina.“ Elsie segir að tískubylgjur í förðun hafi áhrif á áhersl- urnar í fermingarförðun. „Það sem breytist á milli ára eru áhersl- urnar. Stundum er kannski aukin áhersla á augabrúnirnar og annað ár er aukin áhersla á varirnar og þá er náttúrulegum blýanti bætt við gloss,“ segir hún. „Síðustu árin Minna er meira í fermingarförðun Elsie Kristinsdóttir hefur starfað sem förðunarfræðingur síðan árið 2011 og býr því yfir mikilli reynslu og þekkingu á faginu. Hún segir fermingarförðun almennt vera náttúrulega og látlausa. Elsie Kristinsdóttir förðunarfræðingur og Berglind Jónsdóttir fyrirsæta. MYNDIR/SIGTRYGGURARI hefur verið í tísku að húðin sé ljómandi og náttúruleg og það er mjög góður útgangspunktur fyrir fermingarförðun að hafa húðina í aðalhlutverki.“ Elsie segir að fólk verði að hafa í huga að það vilji geta skoðað fermingarmyndirnar eftir tíu ár án þess að hugsa „guð minn almátt- ugur!“. „Ekki fara þér óðslega, ekki hafa þetta of ýkt. Minna er meira,“ segir hún. „Ef þú kannt ekki að mála þig skaltu fá fagaðila eða ein- hvern í fjölskyldunni sem er með reynslu til að hjálpa þér, ekki bara fara af stað og reyna að líkja eftir einhverri mynd af Pinterest.“ Vönduð en látlaus förðun Elsie sýndi okkur dæmi um glæsi- lega fermingarförðun á fyrirsæt- unni Berglindi Jónsdóttur. Þrátt fyrir að Berglind líti út fyrir að vera lítið máluð er töluverð vinna að baki þessari náttúrulegu og lát- lausu förðun. „Grunnurinn að allri förðun er að hafa undirlagið gott. For- vinna er algjörlega nauðsynleg og ég undirbjó húðina með góðu ljómakremi,“ segir Elsie. „Svo bar ég á hana litað BB-dagkrem með rökum beauty blender svampi og passaði að hafa húðina jafna og fal- lega, en ég vann BB-kremið vel inn í húðina með svampinum. Svo setti ég hyljara undir augu og á öll þau svæði sem þurfti. Svo áður en lengra var haldið setti ég væna skvettu af rakaspreyi yfir allt andlitið,“ segir Elsie. „Eftir það púðraði ég niður helstu svæðin sem ég vildi ekki að glönsuðu mikið, en ekki of mikið, því ég vildi halda í náttúrulegan ljóma húðarinnar. Svo tók ég sólarpúður og skyggði undir kinnbein og upp við hár- línuna og við kjálkann, þannig að það var létt skygging á andlitinu,“ segir Elsie. „Svo setti ég ferskju- litaðan kinnalit á kinnarnar og ljómapúður (highlighter) á kinn- bein, nef brodd, efri vör og aðeins á hökuna. Ég notaði ljómapúður til að fá fallega ljómandi áferð á húðina. Svo fór ég í augabrúnirnar,“ segir Elsie. „Ég byrjaði á að greiða þær mjög vel með greiðu til að ná öllu púðri eða kremi úr þeim og svo setti ég augabrúnagel í þær og mótaði þær á fallegan og náttúru- legan hátt og passaði að þær væru ekki of afgerandi í laginu. Svo tók ég alveg matt sólarpúður og fór aðeins í globus-línuna, línuna þar sem augnlok og bein mætast,“ segir Elsie. „Ég bjó til létta skyggingu þar til að fá smá dýpt í augnsvæðið. Eftir það tók ég brúnan eyeliner og gerði örmjóa línu meðfram augum til að ramma inn augnsvæðið. Svo brettum við augnhárin og settum lítinn maskara, en því næst tók ég stök augnhár og setti á til að fá smá þykkingu og þétta,“ segir Elsie. „Svo rammaði ég var- irnar inn með náttúrulegum vara- blýanti og setti gloss yfir. Svo tók ég aftur upp ljómapúður og setti í augnkrók og á augnbeinið undir augabrúninni,“ segir Elsie. „Eftir það tók ég aftur upp raka- sprey og spreyjaði vel yfir andlitið og það síðasta sem ég gerði var að setja svo setting sprey yfir. Þessi tvö sprey í lokin eru rosa mikil- vægur lokahnykkur. Þá vorum við tilbúnar,“ segir Elsie að lokum. Hægt er að fylgjast með förðun Elsie á Instagram-síðu hennar, @ makeupbyelsiek. Síðustu árin hefur náttúruleg og ljómandi húð verið í tísku og Elsie segir að það henti vel í fermingarförðun að hafa húðina í aðalhlutverkinu. FERMINGARBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Veglegt sérblað Fréttablaðsins um ferminguna kemur út þriðjudaginn 10. mars. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Áhugasamir auglýsendur hafi samband við: Jón Ívar Vilhelmsson Sími 550 5654 jonivar@frettabladid.is Arnar Magnússon Sími 550 5652 arnarm@frettabladid.is Atli Bergmann Sími 550 5657 atlib@frettabladid.is Ruth Bergsdóttir Sími 694 4103 ruth@frettabladid.is 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.