Fréttablaðið - 20.02.2020, Side 45
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
KVÍÐI, REIÐI, FEIMNI,
EINMANALEIKI, SORG,
ADHD, FÉLAGSFÆLNI, RANG-
HUGMYNDIR, STRESS, VON-
LEYSI, ÞUNGLYNDI OG MEÐ-
VIRKNI ERU ÞANNIG ORÐIN AÐ
FYLGIHLUTUM SEM ÓÞARFI ER
AÐ SKAMMAST SÍN FYRIR.
MARIA
BAPTIST
23. febrúar
Kl. 20.00
Silfurberg
BEINT FRÁ BERLÍN
2 0 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R32 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Viktor Weisshappel opnar sý ning una Lífshlaupið í Máli og menningu á laugar-daginn en yfirskrift sýningarinnar segir
hann vísa til hraðans í samfélaginu
sem verður stöðugt meiri frá degi
til dags.
Sýningin stendur á löngum löpp-
um í jakkafataskóm sem birtast í
útskornum veggverkum sem lista-
maðurinn segir ætlað að myndgera
á kómískan hátt hversu erfitt getur
verið að lifa og fóta sig í núinu.
Skrítnir tímar
„Við gerð nýju verkanna var ég að
hugsa um samfélagið í dag. Þetta
eru skrítnir tímar sem við lifum
akkúrat núna,“ segir Viktor um inn-
blásturinn sem hann sótti í ólíkar
áttir. „Það virðist allt vera að fara
til fjandans og fólk er of upptekið
til að spá í því. Allir í kappi um að
ná sem lengst og brenna jafnvel út
í kjölfarið. Ég vildi myndgera þetta
á einhvern fyndinn hátt. Verkin
samanstanda af löngum útskornum
löppum í jakkafataskóm sem sveigj-
ast og teygjast í ýmsar áttir,“ segir
Viktor og bætir við að hugsjónin í
verkunum á sýningunni hafi þróast
hægt og rólega.
„Formið kom bara eftir á. Fyrst
kom hugmyndin og svo fór ég að
vinna myndirnar. Þegar þær voru
tilbúnar fór ég að hugsa um hvernig
lokaafurðin gæti verið. Ég ákvað að
skera verkin úr rauðu plexigleri sem
hægt er að hengja á vegg.
Fann köllunina í menntó
„Ég var á menntaskólaaldrinum
þegar ég áttaði mig á því að mig
langaði að verða grafískur hönn-
uður. Þá byrjaði ég að skanna inn
teikningar og vinna þær áfram í
tölvunni. Þar opnaðist nýr heimur
fyrir manni. Einnig var ég bara
hrifinn af alls kyns plötuumslögum
og slíku sem leiddi mig í þessa átt,“
segir listamaðurinn sem lærði graf-
íska hönnun í Listaháskóla Íslands
að loknum menntaskóla. „Árið
2012 byrjaði ég að læra almenni-
lega hvað grafísk hönnun væri og
fór að fá áhuga á leturgerðum og
uppsetningu.“
Eftir námið í LHÍ fór Viktor að
vinna á auglýsinga- og hönnunar-
stofum og sinnti eigin verkefnum
samhliða því. „Ég hef mestmegnis
verið að vinna hér heima en fór til
Stokkhólms að vinna á stofu sem
heitir Essen International sem hafði
mikil áhrif á nálgun mína. Þar byrj-
aði ég að kafa dýpra og vinna meiri
hugmyndavinnu áður en ég hófst
handa. Mér finnst það mikilvægt
því hugmyndin er það sem skiptir
mestu máli,“ segir Viktor.
Ódysseifskviða hönnuða
„Ég var að opna hönnunarstofu með
Alberti Muñoz,“ segir Viktor þegar
talið berst að þeim mörgu járnum
sem hann er með í eldinum. „Við
vorum að vinna saman á Jónsson
& Lemack’s og ákváðum að opna
eigin stofu sem ber nafnið Ulysses.
Við sérhæfum okkur í mörkun með
það að markmið að skapa grípandi
ásýnd fyrir okkar kúnna og fram-
kvæma djarfar hugmyndir.“
Þá rekur Viktor einnig prentsölu
ásamt Þórði vini sínum. „Við erum
að selja prent eftir breiðan hóp
listamanna og viljum virka sem
hvetjandi afl í listflóru Íslands. Við
leggjum upp úr breiðu úrvali verka
og að það endurspegli þá grósku
sem ríkir í íslensku prenti og mynd-
list. Vefnum er ætlað að hvetja til
sköpunar og auðvelda milliliðalaus
kaup á íslensku prenti,“ segir hann.
Alls konar umslög
Viktor hefur aldrei misst sjónar
á plötuumslögunum sem höfðu
mótandi áhrif á hann í byrjun og
fjölmörg verkefna hans tengjast
tónlist á einhvern hátt og þá ekki
síst hljómplötum.
„Ég er heppinn að eiga vini í tón-
list og listum og hef gaman af því að
vinna með þeim í alls kyns verkefn-
um,“ segir Viktor sem hlaut nýlega
verðlaun frá ADCE fyrir Útmeða-
bæturnar sem hann gerði fyrir
Geðhjálp og Rauða krossinn. Með
verkefninu tók hann fyrir tilfinn-
ingar og andlegt ástand sem fólk er
gjarnt á að fela og bera í hljóði.
„Ég gerði ellefu bætur sem hægt
er að strauja á föt og bera þannig
utan á sér. Kvíði, reiði, feimni, ein-
manaleiki, sorg, ADHD, félagsfælni,
ranghugmyndir, stress, vonleysi,
þunglyndi og meðvirkni eru þann-
ig orðin að fylgihlutum sem óþarfi
er að skammast sín fyrir.“
Gallery Port: Upplagt stendur að
sýningunni sem verður opnuð á
laugardaginn klukkan 16 í Máli og
menningu við Laugaveg 18.
steingerdur@frettabladid.is
Lífshlaup á
löngum leggjum
Grafíklistamaðurinn Viktor Weisshappel
stígur fram á löngum leggjum og pússuð-
um skóm um helgina þegar hann afhjúpar
afrakstur tilrauna sinna til þess að mynd-
gera flókið nútímalífið á kómískan hátt.
Viktor Weisshapel fangar flókið líf í nútímanum með löngum löppum í fínum skóm. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK