Fréttablaðið - 20.02.2020, Page 49
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg. ehf
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Kolbeins
Marteinssonar
BAKÞANKAR
buzzador®
Njóttu
Af hverju ætla ég að fá mér raf-bíl núna?Jú, af því að tíminn fyrir
rafbíl hefur aldrei verið betri. Á
markaðinn eru komnir bílar sem
draga auðveldlega 500 km á einni
hleðslu og fyrir venjulegt íslenskt
heimili er það nóg í 99% tilfella.
Einnig er kominn markaður fyrir
notaða bíla sem fást nú á einkar
góðu verði.
Í verstu frosthörkum minnkar
drægnin en það kemur ekki að sök
því búið er að leggja hraðhleðslu-
stöðvar hringinn í kringum landið.
Orka náttúrunnar og íslensk stjórn-
völd mega alveg fá hrós fyrir það.
Unnið er að því að koma upp enn
kraftmeiri hleðslustöðvum þar sem
þörfin er mest, þannig að innviðir
eru traustir.
En staðreyndin er sú að ef hægt er
að hlaða heima hentar það lang-
flestum og er auk þess ódýrast. Það
kostar um þrjár krónur að aka hvern
kílómetra á rafbíl en um 11 krónur á
sambærilegum sparneytnum dísil-
bíl. Miðað við 15.000 km akstur er
það sparnaður upp á 120.000 kr. á
ári. Aldrei þarf að fara með rafbíla í
smurningu og viðhaldið er lítið fyrir
utan dekk. Rafmagnsverð sveiflast
heldur ekki líkt og olía þannig að
rekstrarkostnaður liggur fyrir.
Næstu árin munu rafbílaeigendur
jafnframt njóta skattleysis frá hinu
opinbera, það er að ekki eru lagðir
skattar á akstur líkt og jarðefnaelds-
neyti. Það er skynsamleg ráðstöfun
sem flýtir fyrir orkuskiptum hér
á landi og er raunveruleg kjarabót
fyrir rafbílaeigendur.
En það sem mestu máli skiptir
er að það er miklu skemmtilegra
að keyra rafbíla því krafturinn,
aksturseiginleikarnir og hljóðleysið
gera þá ómótstæðilega. 19. öldin var
öld gufuvélarinnar, 20. öldin var
öld sprengihreyfilsins og sú 21. mun
verða öld rafmótorsins. Gættu að
því næst þegar þú kaupir þér bíl.
Skynsemin
ræður
Auðvelt að versla á byko.is
Komdu og gramsaðu!
ERU
BYRJAÐIR
20-50% afsláttur
Öll verkfærabox, rafmagns-,
loft- og handverkfæri
VERKFÆRA-
VEISLA!
Valdar áltröppur og stigar á -20-30% • Allar járnhillur -20%
Gerðu
frábær
kaup!
MARKAÐS-
DAGAR
B
ir
t m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
p
re
nt
vi
ll
ur
o
g/
eð
a
m
yn
da
br
en
gl
.