Fréttablaðið - 24.02.2020, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 24.02.2020, Blaðsíða 2
Veður Vestan 8-15 m/s, en mun hægari A-lands í fyrstu. Suðlæg átt 5-13 á morgun og lægir um kvöldið. Gengur á með éljum en snjóar um tíma SV til í kvöld og nótt og á SA- landi á morgun. SJÁ SÍÐU 14 Klárir í slaginn Á frettabladid.is finnur þú Fréttablaðið í dag og safn eldri blaða undir flipanum Blöðin. Lestu Fréttablaðið þegar þér hentar á frettabladid.is Berglind, Helga og Stefanía hafa aðstoðað foreldra barna á BUGL. UPPELDI „Það hefur ekki verið til neitt aðgengilegt og auðskiljan- legt íslenskt efni um uppeldi, hvað þá eitthvað sem er alfarið byggt á vísindum, hluti sem er búið að rannsaka. Við erum enn þá mikið í því að leita til ættingja eftir ráðum. Nú ætlum við að breyta því,“ segir Berglind Berndsen uppeldisfræð- ingur. Hún, ásamt Helgu Theó- dóru Jónasdóttur og Stefaníu Dögg Jóhannesdóttur, hefur sett á lagg- irnar vefinn Viðja – uppeldisfærni. Þær kynntust við störf sín á BUGL. Berglind og Stefanía eru uppeldisfræðingar en Helga er sál- fræðingur. „Við höfum verið að aðstoða foreldra við að takast á við margþættan og f lókinn vanda barna. Við áttuðum okkur þá enn frekar á mikilvægi þess að gera eitt- hvað til að grípa fyrr inn í og reyna að fyrirbyggja alvarlegri vanda. Ef uppalendur geta nálgast upplýs- ingar um hvernig hægt er að skapa styðjandi umhverfi í uppeldinu og hafa aðgang að verkfærum sér til stuðnings hefur það jákvæð áhrif á þroska barna á fjölmörgum svið- um,“ segir Berglind. „Við erum bæði með podcast sem heitir Uppeldisspjallið og heima- síðu þar sem má finna alls konar fróðleik. Það eru ekki allir sem vita af podcastinu enn þá,“ segir hún glöð. „Svo erum við nýbyrjaðar að taka upp myndbrot, þar sem við svörum fyrirspurnum sem okkur berast frá uppalendum. Fólk getur sent fyrirspurn, við lesum hana upp nafnlaust að sjálfsögðu og förum yfir gagnlegar leiðir til að fást við tiltekinn vanda,“ segir Berglind. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa. „Það eru strax margir búnir að hafa samband og þakka fyrir góð ráð, eða fyrir að fá staðfestingu á að þeir séu að gera rétt.“ Atriðin sem þær taka fyrir eru margs konar, eitthvað sem f lestir ef ekki allir foreldrar kannast við. ,,Við byrjuðum í haust á grunn- þáttunum, hvað er hegðun og eðli- legar væntingar til hegðunar, hvaða þættir hafa áhrif á hegðun og svo framvegis. Núna erum við að taka fyrir ákveðna þætti sem hafa óbein áhrif á hegðun eins og svefn, nær- ingu, lyf, álagsþætti og fleira. Þetta er eitthvað sem f lestir kannast við. Það voru margir uppalendur sem biðu spenntir eftir svefnþætt- inum,“ segir Berglind. Stefna þær svo að því að taka fyrir samskipti systkina, skýr fyrirmæli, að setja mörk, skjánotkun barna og margt fleira á næstunni. Upplýsingarnar eru ekki bundn- ar við einhvern tiltekinn aldurshóp, mörg ráðin geta átt við ungbörn og jafnvel unglinga. „Það má segja að áherslan sé mest á leik- og grunn- skólabörn, en margt af þessu getur vel átt við unglinga líka,“ segir hún. „Það sem við leggjum áherslu á er að ef la uppeldisfærni uppalenda til að takast á við áskoranir sem fylgja þessu hlutverki og draga þar með úr líkum á frekari vanda. Það er svo oft sem ekkert er gert fyrr en allt er komið í óefni eða neikvæð samskipti við barnið orðin að víta- hring.“ arib@frettabladid.is Auðskilið íslenskt efni um uppeldi á vefnum Berglind, Helga og Stefanía kynntust við störf sín sem uppeldisfræðingar og sál- fræðingar á BUGL. Þeim fannst vanta aðgengilegt og auðskiljanlegt íslenskt efni um uppeldismál og komu því á laggirnar vefsvæðinu Viðju – uppeldisfærni. Það voru margir uppalendur sem biðu spenntir eftir svefn- þættinum. Berglind Berndsen uppeldisfræðingur ORKUMÁL Landsvirkjun og Rio Tinto, eigandi álversins í Straums- vík, eru sammála um að gagnsæi ríki um samninga og raforkuverðið verði gert opinbert. Hörður Ar narson, forstjór i Landsvirkjunar, kom fram í þætt- inum Sprengisandi á Bylgjunni í gær og sagði Landsvirkjun vilja aflétta trúnaði af samningi við Rio Tinto og hafi óskað eftir því form- lega í síðustu viku. Væri þá hægt að ræða innihald samningsins fyrir opnum tjöldum. Samningurinn var undirritaður árið 2010 og endurskoðaður 2014. Í samningnum væru meðal ann- ars ákvæði um endurskoðun til að tryggja samkeppnishæfi verk- smiðjunnar. „Það er ánægjulegt að sjá að Landsvirkjun sé sammála okkur um að raforkuverð ISAL verði gert opinbert. Rio Tinto lagði þetta til við Landsvirkjun í síðasta mánuði,“ segir Bjarni Már Gylfason, upplýs- ingafulltrúi Rio Tinto á Íslandi. „Rio Tinto er sammála því að gagnsæi verði að vera um þessi mál.“ Bjarni telur raforkuverð til ISAL ekki samkeppnishæft, hvorki hér- lendis né í alþjóðlega. Þess vegna væri tap á rekstri ISAL og yrði svo í fyrirsjáanlegri framtíð ef ekkert breytist. Úrlausn væri sameiginlegt hagsmunamál. – khg Vilja opinbera raforkuverð Tvö sex vetra steingrá hross léku sér í vetrarveðrinu í Kópavogi í námunda við aðsetur hestamannafélagsins Spretts. Íslenska hestakynið er komið í beinan legg frá því mongólska, með viðkomu í Noregi og Hjaltlandseyjum. Enginn veður yfir það frekar en Genghis Khan. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Rio Tinto er sam- mála því að gagnsæi verði að vera um þessi mál. Bjarni Már Gylfason, upplýsingafulltrúi Rio Tinto á Íslandi VERKFALL Slæm umgengni í mið- bænum kemur í ljós nú þegar verk- fall sorphirðufólks stendur yfir. Mikill erill hefur verið á endur- vinnslustöðvum Sorpu um helgina þar sem fólk f lykkist til þess að losa sig við heimilissorp. Engin hefð bundin götu hreinsun eftir skemmtana hald helgarinnar hefur átt sér stað í mið bænum og má sjá rusl á víð og dreif. Þá er búist við á fram haldandi röskun á skóla starfi í grunn skólum borgarinnar næstu vikuna. Verk fallið hefur á hrif víðar, en í f lestum leik skólum borgarinnar hefur verið haldið uppi lág marks- þjónustu, en sumum hefur verið lokað. For eldra fé lög hafa til að mynda sent frá sér á skoranir til Eflingar og borgarinnar um að leysa deiluna. Ekki er ljóst hve nær samninga- nefndir Ef lingar og borgarinnar munu funda að nýju. – vá, oæg Ruslið fýkur um göturnar 2 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.