Fréttablaðið - 24.02.2020, Blaðsíða 9
Guðmundur
Steingrímsson
Í DAG
Síðumúla 37, 108 Reykjavík · Sími: 564-5040 · hirzlan@hirzlan.is · www.hirzlan.is
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
24.-28.
FEBRÚAR
S
P
R
EN
G
IV
IK
A
H1
Rafmagnsborð
Verð frá
48.900 kr.
120 cm borð 48.900kr.
140 cm borð 51.900kr.
160 cm borð 54.900kr.
180 cm borð 56.900kr.
Verð eru með vsk.
Án samsetningar
og aksturs.
Open Point
skrifborðsstóll
Tilboðsverð
33.900 kr.
Armar og
höfuðpúði
seldir sér.
Einhvern veginn þykir mér lík-legt að í kjölfarið á nýrri skoð-anakönnun Capacent Gallup í
síðustu viku hafi þingflokkur Mið-
flokksins farið á duglegt fyllerí og
aldeilis látið gamminn geisa, greint
pólitíkina með gífuryrðum í drasl
á einhverju öldurhúsi í borginni
og gleymt fötunum sínum úti um
allan bæ. Ég hugsa að þeir hafi jafn-
vel sett bindin á hausinn, hneppt
frá skyrtunum og sturtað yfir sig
nokkrum hálfslítersbjórum í flippi
og farið svo í karókí og sungið We
are the champions með íslenskum
texta á Ölveri.
Hver var þessi skoðanakönnun
og niðurstaða hennar? Jú, þessi:
Um 23% landsmanna telja að lofts-
lagsbreytingar séu ekki af manna
völdum. Um 23% landsmanna
telja jafnframt að of mikið sé gert
úr þætti mannsins þegar kemur
að hlýnun jarðar. Umtalsverður
hluti þjóðarinnar telur allt þetta
loftslagstal verulegar ýkjur. Eins og
Miðflokkurinn. Þetta er auðvitað
dauðafæri fyrir hann.
Höfuð í sand
Nýjasta umhverfiskönnun Capa-
cent er stórmerkileg. Áður en
maður fellur í fullkomið þung-
lyndi yfir því að 23% þjóðarinnar
telji sig virkilega vita betur en allt
vísindasamfélag veraldarinnar
og telur litla ástæðu til að hafa
áhyggjur, þó ekki væri nema smá,
af mögulegu hruni lífríkisins, þá
verður maður að minna sig líka á
aðra stóra drætti sem komu fram
í sömu könnun. Íslendingar eru
almennt að breyta neyslumynstri
sínu og hegðun út af loftslags-
málum. Loftslagsmál eru í öðru
sæti á eftir heilbrigðismálum yfir
mestu áhyggjuefni þjóðarinnar.
Og þótt 23% telji náttúrunni um að
kenna og 10% segist ekki vita neitt
um þau mál, að þá eru þó tæplega
70% þjóðarinnar með það á hreinu
að hlýnun andrúmsloftsins er af
manna völdum.
Það má hugga sig við þetta, en
það breytir þó ekki því að það er
samt fullkomlega út í hött — miðað
við alla umræðuna og allan þann
hafsjó óyggjandi vitnisburða sem
streyma yfir mannkyn á degi
hverjum — að hlutfall þeirra sem
halda að hlýnun jarðar sé ekki af
manna völdum skuli vaxa milli
kannana. Hér kunna einhverjir
sálfræðilegir kraftar að búa að
baki. Kannski vex afneitun eftir
því sem hættuástand verður alvar-
legra? Það er kannski freistandi
fyrir suma þegar vá er aðsteðjandi
að taka strútinn. Þykjast ekki sjá.
Stinga höfði í sand. Afturendinn
mun þó samt hlýna.
Að spúa lygi
Áður en lengra er haldið: Popúlisti.
Hvaða fyrirbrigði er það? Mikið
er talað um popúlistaflokka og
uppgang þeirra. Hugtök stjórn-
málanna eru oft illskilgreinanleg,
en popúlisti í mínum huga er þó
ekkert annað en siðlaus tæki-
færissinni. Svo einfalt er það.
Popúlisti er reiðubúinn til þess að
láta mikilvæg grundvallaratriði
eins og sannleikann, gögn, vísindi
og réttlæti lönd og leið. Hann er
reiðubúinn til að byggja völd sín
á atkvæðum þeirra kjósenda sem
láta öðru fremur stjórnast af ótta
og fáfræði, jafnvel þótt hann sjálfur
viti betur. Sjónvarpsþáttaserían
The Loudest Voice — með nýjasta
vini Daða og Gagnamagnsins,
Dauðafæri fyrir popúlista
Russel Crowe, í aðalhlutverki — er
fyrirtaksgreining á svona hugs-
unarhætti. Hún fjallar um hug-
myndafræðinginn á bak við Fox
News. Á einum tímapunkti gerði
hann sér grein fyrir eftirfarandi,
sem varð síðan grunnurinn að við-
skiptaáætlun andskotans: Flestir
fjölmiðlar í Bandaríkjunum eru
uppteknir við það að segja satt
og rétt frá, gæta heimilda og þess
háttar. Við ætlum ekki að gera
það. Við ætlum að vera rödd þeirra
sem tortryggja sannleikann og
eru ginnkeyptir fyrir alls konar
samsæriskenningum og uppspuna.
Og það sem meira er, við ætlum að
vera eina rödd þeirra, því enginn
annar er reiðubúinn til þess.
Hann sagði þetta ekki nákvæm-
lega svona, en nokkurn veginn. Og
þótt ævi Roger Ailes hafi endað
smánarlega fyrir hann — hann
uppskar eins og hann sáði — þá
sýpur heimsbyggðin enn þá seyðið
af siðleysinu. Fox News spúir hroð-
bjóði yfir mannkyn á degi hverjum
og uppsker gríðarlegt áhorf og völd.
Næstu alþingiskosningar
Sanniði til. Að 23% landsmanna
séu svona þenkjandi eins og
könnun Capacent ber vitni um, er
ávísun á stóraukið fylgi popúlista-
flokks á Íslandi. Afneitunina má
færa sér í nyt. Í næstu alþingis-
kosningum verða umhverfismál
lykilmál. Allir flokkar munu leggja
áherslu á aðgerðir í loftslagsmálum,
vegna þess að það mun blasa við að
slíkt verður að gera, og það hratt.
Allir flokkar, segi ég, nema einn.
Einn flokkur mun segja nei hva.
Alveg einsog Roger Ailes. Þetta
loftslagstal er rugl. Vísindin eru
samsæri. Hviss, pang. Tuttugu og
eitthvað prósent í höfn.
Gott og vel. Fari það fólk á fyllerí.
Aðalatriðið er þetta: Þegar þetta
gerist þurfa hin sjötíu og eitthvað
prósentin virkilega að standa í
lappirnar.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 2 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0