Fréttablaðið - 24.02.2020, Side 9

Fréttablaðið - 24.02.2020, Side 9
Guðmundur Steingrímsson Í DAG Síðumúla 37, 108 Reykjavík · Sími: 564-5040 · hirzlan@hirzlan.is · www.hirzlan.is SKRIFSTOFUHÚSGÖGN 24.-28. FEBRÚAR S P R EN G IV IK A H1 Rafmagnsborð Verð frá 48.900 kr. 120 cm borð 48.900kr. 140 cm borð 51.900kr. 160 cm borð 54.900kr. 180 cm borð 56.900kr. Verð eru með vsk. Án samsetningar og aksturs. Open Point skrifborðsstóll Tilboðsverð 33.900 kr. Armar og höfuðpúði seldir sér. Einhvern veginn þykir mér lík-legt að í kjölfarið á nýrri skoð-anakönnun Capacent Gallup í síðustu viku hafi þingflokkur Mið- flokksins farið á duglegt fyllerí og aldeilis látið gamminn geisa, greint pólitíkina með gífuryrðum í drasl á einhverju öldurhúsi í borginni og gleymt fötunum sínum úti um allan bæ. Ég hugsa að þeir hafi jafn- vel sett bindin á hausinn, hneppt frá skyrtunum og sturtað yfir sig nokkrum hálfslítersbjórum í flippi og farið svo í karókí og sungið We are the champions með íslenskum texta á Ölveri. Hver var þessi skoðanakönnun og niðurstaða hennar? Jú, þessi: Um 23% landsmanna telja að lofts- lagsbreytingar séu ekki af manna völdum. Um 23% landsmanna telja jafnframt að of mikið sé gert úr þætti mannsins þegar kemur að hlýnun jarðar. Umtalsverður hluti þjóðarinnar telur allt þetta loftslagstal verulegar ýkjur. Eins og Miðflokkurinn. Þetta er auðvitað dauðafæri fyrir hann. Höfuð í sand Nýjasta umhverfiskönnun Capa- cent er stórmerkileg. Áður en maður fellur í fullkomið þung- lyndi yfir því að 23% þjóðarinnar telji sig virkilega vita betur en allt vísindasamfélag veraldarinnar og telur litla ástæðu til að hafa áhyggjur, þó ekki væri nema smá, af mögulegu hruni lífríkisins, þá verður maður að minna sig líka á aðra stóra drætti sem komu fram í sömu könnun. Íslendingar eru almennt að breyta neyslumynstri sínu og hegðun út af loftslags- málum. Loftslagsmál eru í öðru sæti á eftir heilbrigðismálum yfir mestu áhyggjuefni þjóðarinnar. Og þótt 23% telji náttúrunni um að kenna og 10% segist ekki vita neitt um þau mál, að þá eru þó tæplega 70% þjóðarinnar með það á hreinu að hlýnun andrúmsloftsins er af manna völdum. Það má hugga sig við þetta, en það breytir þó ekki því að það er samt fullkomlega út í hött — miðað við alla umræðuna og allan þann hafsjó óyggjandi vitnisburða sem streyma yfir mannkyn á degi hverjum — að hlutfall þeirra sem halda að hlýnun jarðar sé ekki af manna völdum skuli vaxa milli kannana. Hér kunna einhverjir sálfræðilegir kraftar að búa að baki. Kannski vex afneitun eftir því sem hættuástand verður alvar- legra? Það er kannski freistandi fyrir suma þegar vá er aðsteðjandi að taka strútinn. Þykjast ekki sjá. Stinga höfði í sand. Afturendinn mun þó samt hlýna. Að spúa lygi Áður en lengra er haldið: Popúlisti. Hvaða fyrirbrigði er það? Mikið er talað um popúlistaflokka og uppgang þeirra. Hugtök stjórn- málanna eru oft illskilgreinanleg, en popúlisti í mínum huga er þó ekkert annað en siðlaus tæki- færissinni. Svo einfalt er það. Popúlisti er reiðubúinn til þess að láta mikilvæg grundvallaratriði eins og sannleikann, gögn, vísindi og réttlæti lönd og leið. Hann er reiðubúinn til að byggja völd sín á atkvæðum þeirra kjósenda sem láta öðru fremur stjórnast af ótta og fáfræði, jafnvel þótt hann sjálfur viti betur. Sjónvarpsþáttaserían The Loudest Voice — með nýjasta vini Daða og Gagnamagnsins, Dauðafæri fyrir popúlista Russel Crowe, í aðalhlutverki — er fyrirtaksgreining á svona hugs- unarhætti. Hún fjallar um hug- myndafræðinginn á bak við Fox News. Á einum tímapunkti gerði hann sér grein fyrir eftirfarandi, sem varð síðan grunnurinn að við- skiptaáætlun andskotans: Flestir fjölmiðlar í Bandaríkjunum eru uppteknir við það að segja satt og rétt frá, gæta heimilda og þess háttar. Við ætlum ekki að gera það. Við ætlum að vera rödd þeirra sem tortryggja sannleikann og eru ginnkeyptir fyrir alls konar samsæriskenningum og uppspuna. Og það sem meira er, við ætlum að vera eina rödd þeirra, því enginn annar er reiðubúinn til þess. Hann sagði þetta ekki nákvæm- lega svona, en nokkurn veginn. Og þótt ævi Roger Ailes hafi endað smánarlega fyrir hann — hann uppskar eins og hann sáði — þá sýpur heimsbyggðin enn þá seyðið af siðleysinu. Fox News spúir hroð- bjóði yfir mannkyn á degi hverjum og uppsker gríðarlegt áhorf og völd. Næstu alþingiskosningar Sanniði til. Að 23% landsmanna séu svona þenkjandi eins og könnun Capacent ber vitni um, er ávísun á stóraukið fylgi popúlista- flokks á Íslandi. Afneitunina má færa sér í nyt. Í næstu alþingis- kosningum verða umhverfismál lykilmál. Allir flokkar munu leggja áherslu á aðgerðir í loftslagsmálum, vegna þess að það mun blasa við að slíkt verður að gera, og það hratt. Allir flokkar, segi ég, nema einn. Einn flokkur mun segja nei hva. Alveg einsog Roger Ailes. Þetta loftslagstal er rugl. Vísindin eru samsæri. Hviss, pang. Tuttugu og eitthvað prósent í höfn. Gott og vel. Fari það fólk á fyllerí. Aðalatriðið er þetta: Þegar þetta gerist þurfa hin sjötíu og eitthvað prósentin virkilega að standa í lappirnar. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 2 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.