Fréttablaðið - 24.02.2020, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 24.02.2020, Blaðsíða 6
Skýringin á lausum plássum er því ekki mannekla eins og haldið hefur verið fram. Skúli Helgason Notkun: 2 hylki tvisvar á dag við vægum gigtarverkjum. Notist ekki ef ofnæmi fyrir jarðhnetum eða soja, eða sár í maga eða þörmum er þekkt. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.florealis.is og www.serlyfjaskra.is. Haltu þínu striki! Harpatinum er eina viðurkennda jurtalyfið á Íslandi til að draga úr gigtarverkjum Fæst án lyfseðils í næsta apóteki www.florealis.is Karnival í úrhelli í Erfurt ÍRAN Harðlínumenn í Íran hertu enn tökin í þingkosningum sem fóru fram síðastliðinn föstudag. Íranska ríkissjónvarpið greindi frá því gær að harðlínumenn hefðu unnið stórsigur í kosningunum, þar af öll 30 sætin í Teheran. Alls voru um 58 milljónir Írana á kjörskrá, en kosið var um 16.000 frambjóðendur í 290 þingsæti. Þá voru kjörnir nýir fulltrúar í klerka­ ráð landsins, æðstu valdastofnun Írans, í stað þeirra sem fallið hafa frá, en ráðið velur erkiklerk lands­ ins. Fyrirfram var talið ólíklegt að kosningarnar myndu leiða til umskipta í írönskum stjórn­ málum. Harðlínumönnum hafði verið spáð sigri, eftir að níu þúsund stjórnarandstæðingum var meinað að bjóða sig fram. Flestir þeirra myndu flokkast sem „hófsamir“ og „umbótasinnaðir“. Hinn áttræði Ajatollah Ali Khamenei æðstiklerkur hvatti til kjörsóknar í ríkisfjölmiðlum lands­ ins og sagði það „trúarlega skyldu“. Innanríkisráðuneytið sagði kjör­ sókn hafa einungis verið um 42,6 prósent sem er minnsta þátttaka frá byltingu klerkastjórnarinnar árið 1979. Í stærri borgum landsins sé þátttakan minni, eða allt frá tutt­ ugu til þrjátíu prósent. AP fréttastofan sagði í gær þessa litlu kosningaþátttöku vera hugs­ anleg merki um víðtæka óánægju almennings með klerkastjórn Írans og bágborna stöðu efna­ hagsmála. Að meina þúsundum stjórnarandstæðinga framboð dró úr tiltrú á kosningarnar. Lítil kjör­ sókn er þannig mælistika á óánægju almennings. Versnandi efnahagsástand og mikil verðbólga hefur ýtt undir mikla óánægju meðal Írana. Fin­ ancial Times segir ríalinn, gjald­ miðil Írans, hafa fallið um 60 pró­ sent á síðustu tveimur árum og verðbólga sé nú 37%. Alþjóðagjald­ eyrissjóðurinn segir að dregið hafi úr landsframleiðslu Írans um 9,5 prósent á síðasta ári miðað við árið áður. Atvinnuleysi á síðasta ári var tólf prósent. Væntingar voru miklar um aukið frelsi í landinu og betri lífs­ kjör vegna aukinna samskipta við Vesturveldin í kjölfar kjarnorku­ samningsins við stórveldin árið 2015. Í stað þess eru miklir erfið­ leikar vegna refsiaðgerða Banda­ ríkjamanna sem Donald Trump Bandaríkjaforseti kom á árið 2018. Síðustu mánuði hefur margoft verið boðað til mótmæla í Íran, þar sem stjórnvöld eru gagnrýnd fyrir efnahagsþrengingar, aukna einangrun landsins og spillingu í stjórnkerfi landsins. Mótmælt hefur verið í stærstu borgum Írans. Það er einkum ungt fólk sem hefur mót­ mælt. david@frettabladid.is Harðlínumenn í Íran munu enn herða tökin Kjörsókn í írönsku þingkosningunum sem var einungis 42,6 prósent er sú minnsta frá byltingunni árið 1979. Lítil kjörsókn talin mælistika á óánægju almennings enda efnahagur landsins mjög bágborinn og verðbólga mikil. Frá einum kjörstaðanna í höfuðborginni Teheran á föstudag. MYND/GETTY Í gær fór fram mikil útihátíð í Erfurt, höfuðborg Þýringalands, undir kjörorðinu „Öllum áhyggjum er lokið“. Þrátt fyrir úrhellisrigningu ríkti mikil hátíðarstemming þegar 2.500 þátttakendur fóru í skrúðgöngu um borgina í litskrúðugum búningum, þeyttu lúðra og börðu bumbur. MYND/GETTY Skúli Helgason, formaður skóla og frístundasvið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON MENNTAMÁL Skúli Helgason, for­ maður skóla og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, segir rangt að aðeins 200 milljónir króna hafi verið settar í að bæta starfsum­ hverfi leikskólakennara. En það kom fram í samtali við Guðrúnu Jónu Thorarensen, samráðsfulltrúa leikskólastjóra, á laugardag. Minnst hafi verið sett í málaflokkinn fyrsta árið, 2018, en í alls fari tæplega 2,3 milljarðar til hans eða um 765 millj­ ónir á hverju ári. „Frá 2017 og 2018 hefur Reykja­ víkurborg gripið til ýmissa aðgerða til þess að styrkja leikskólastigið í heild, svo sem starfsaðbúnað og menntunartækifæri,“ segir Skúli. Starfsfólki hafi verið fjölgað á elstu deildum, fjölgað launuðum undir­ búningstímum, sett inn fjármagn til heilsueflingar og liðsheildarvinnu, fjármagnað launuð leyfi og fag­ námskeið, opnað ungbarnadeildir og tvöfaldað fjármagn í fjölmenn­ ingarlegt leikskólastarf. Einnig sé verið að byggja nýja leikskóla og byggja við þá eldri til að auka rými til þess að brúa bilið fyrir fólk sem er að ljúka fæðingarorlofi. „Þetta er eitt stærsta fjárfestingar­ verkefni borgarinnar á komandi árum og er fyrir utan þessa 2,3 millj­ arða,“ segir hann. Með þessu hafi biðlistum verið útrýmt. „Skýringin á lausum plássum er því ekki mann­ ekla eins og haldið hefur verið fram.“ Skúli segir ekki rétt að viðhald hafi skort enda hafi mikið verið gert. Viðhald hafi farið úr 185 millj­ ónum árið 2016 í 695 milljónir nú. Skúli tekur hins vegar undir áhyggjur Guðrúnar Jónu af fjölda leikskólakennara. Hrun hafi orðið í náminu eftir að það var lengt í 5 ár. „Það sem við í borginni getum gert er að halda áfram að bæta vinnuað­ stæðurnar og kjörin, en ríkið þarf að koma inn með hvataaðgerðir.“ – khg Leikskólastigið verði stórbætt á þremur árum Erfitt efnahagsástand og einangrun landsins hefur ýtt undir mikla óánægju meðal Írana. BANDARÍKIN Bandaríski öldunga­ deildarþingmaðurinn Bernie Sand­ ers vann öruggan sigur í forvali um næsta forsetaefni Demókrata í Nevadafylki sem fram fór um helg­ ina. Hann hlaut 47% atkvæða. Joe Biden, fyrrverandi varafor­ seti, gekk mun betur í Nevada en í fyrstu tveimur forkosningum flokksins sem haldnar voru í Iowa og New Hampshire. Hann fékk nú um 19 prósent atkvæða. Forvalið skilaði Pete Buttigieg 15 prósentum atkvæða og Elizabeth Warren 10 prósentum. Alls verður 36 landsfundarfulltrúum Nevada nú skipt milli þeirra frambjóðenda sem hlutu 15 prósent atkvæða eða fleiri í forkosningunum í gær. Á landsþingi Demókrata sem haldið verður í Wisconsinfylki 13. júlí næstkomandi, mun forseta­ frambjóðandi f lokksins verða val­ inn, til að etja kappi við Donald Trump forseta. – ds Öruggur sigur Bernie Sanders í Nevada fylki 2 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.