Fréttablaðið - 24.02.2020, Blaðsíða 10
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
649 kr.pk.
Rjómabollur fylltar, 2 stk.
749 kr.pk.
Vatnsdeigsbollur, 8 stk.
199 kr.pk.
Vegan bollur, 2 stk.
Gleðilegan
bolludag!
Boll
abolla BOLLA
!
HETJA HELGARINNAR
Bruno Fernandes
Portúgalski landsliðsmaðurinn fæddist í
september árið 1994 í úthverfi Portó. Frá
unga aldri stefndi hann á að ná langt á
knattspyrnuvellinum og hætti snemma í
skóla til að elta drauma sína.
Átján ára flutti Bruno til Ítalíu þar sem
hann lék í fimm ár áður en heimahagarnir
kölluðu og Bruno samdi við Sporting.
Portúgalinn varð
sjöundi dýrasti leik-
maðurinn í sögu félags-
ins þegar United greiddi
55 milljónir punda til
Sporting Lisbon.
FÓTBOLTI Forráðamenn Manchester
United hljóta að vera guðslifandi
fegnir að hafa hætt að láta einhverja
aura skipta máli og samþykkt að
borga verðið sem Sporting Lisbon
vildi fá fyrir portúgalska landsliðs-
manninn Bruno Fernandes. Samn-
ingaviðræður voru búnar að standa
lengi yfir og var ekkert leyndarmál
að Bruno var helsta skotmark Sol-
skjær í janúar áður en United gaf
eftir. Eina eftirsjáin gæti verið að
hafa ekki náð í Bruno fyrr, eftir
vandræði liðsins í sóknarleiknum
framan af tímabilinu.
United greiddi væna summu fyrir
portúgalska landsliðsmanninn sem
hefur staðið undir þeim væntingum
sem gerðar voru til hans. Með Bruno
kom ferskur blær inn í sóknarleik
Manchester United sem hefur fengið
sjö stig af níu mögulegum í deildinni
með sóknartengiliðinn innanborðs.
Hann átti stóran þátt í að landa sigri
á Watford um helgina með því að
brjóta ísinn í fyrri hálfleik og leggja
upp þriðja markið í leiknum.
Síðustu ár hefur heimavöllur
United, sem oft er kallaður Leikhús
draumanna (e. Theater of Dreams),
ekki staðið undir nafni en Bruno
hefur verið fljótur að fá aðdáendur
til að rísa á fætur á ný.
Bruno, sem verður 26 ára síðar á
þessu ári, er að leika hjá sínu fimmta
félagsliði. Bruno fór átján ára til
ítalska félagsins Novara þar sem
sóknartengiliðurinn steig fyrstu
skref sín í meistaraflokki. Hann lék
síðar í þrjú ár með Udinese og eitt ár
hjá Sampdoria áður en tilboð barst
frá ættlandinu. Sporting vildi fá
23 ára gamlan Bruno aftur til sín.
Hann kom eins og stormsveipur inn
í lið Sporting og var strax kominn í
lykilhlutverk.
Þrátt fyrir að hafa verið hluti af
liði Sporting sem varð fyrir árás
stuðningsmanna liðsins, hélt Bruno
tryggð við félagið. Níu leikmenn
fengu samningi sínum rift, margir
hverjir landsliðsmenn Portúgals en
Bruno hélt tryggð við félagið og átti
sitt besta tímabil þegar hann skoraði
32 mörk í öllum keppnum.
Fréttir bárust af áhuga United á
Bruno síðasta sumar og heyrðist
frá forráðamönnum leikmannsins
að hann væri áhugasamur. Viðræð-
urnar fóru aldrei á flug og varð hann
því að bíða fram í janúar. Þrátt fyrir
það lét Bruno ekki deigan síga og var
frábær með Sporting á fyrri hluta
tímabilsins í portúgölsku deildinni
áður en skiptin til United komu til.
kristinnpall@frettabladid.is
Bruno vekur
Old Trafford
aftur til lífsins
Það tók Bruno Fernandes aðeins 234 mínútur að
brjóta ísinn fyrir Manchester United og hefur spila-
mennska liðsins stórbatnað eftir komu Portúgal-
ans. Bruno var allt í öllu í liði heimamanna þegar
Man. United vann 3-0 sigur á Watford um helgina.
Bruno er eins
og blanda af
Veron og Scholes. Hann
er með skapgerð Veron
en gæði eins og Scholes.
Ole Gunnar Solskjær
Bruno Fernandes er nú
búinn að skora úr þrettán
vítaspyrnum í röð.
2 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT