Fréttablaðið - 24.02.2020, Qupperneq 36
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÉG HEF SÉÐ HINA
SÖNNU FEGURÐ ÞESSA
LANDS OG FÓLKSINS SEM BÝR
HÉRNA. MIG LANGAR ÞVÍ MIKIÐ
AÐ FAGNA ÞESSUM FJÓRÐA
ÁFANGA MEÐ FÓLKINU HÉRNA
HEIMA.
Michael Reid
2 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Eftir áralanga þróun og prófanir
höfum við náð markmiði okkar.
Við höfum búið til eina
þróuðustu dýnu heims
Simba tvinndýnan er gerð úr einstakri
samsetningu 2500 keilulaga gorma
og móttækilegs minnissvamps.
Fáðu betri svefn
– sama hvert svefnmynstur þitt er.
Komdu og kynntu þér Simba
í næstu Dormaverslun eða á
www.simba.is
V
A
RA
ÁRSINS 2018
B
R
E T L A N
D
HEILSUDÝNUR
Kjörin heilsudýna ársins á
meðal 10.637 þátttakenda í
neytenda könnun KANTAR
TNS í Bretlandi
SIMBA STÆRÐIR VERÐ
Dýna 80 x 200 cm 79.990
Dýna 90 x 200 cm 89.990
Dýna 90 x 210 cm 94.990
Dýna 100 x 200 cm 94.990
Dýna 120 x 200 cm 104.990
Dýna 140 x 200 cm 114.990
Dýna 160 x 200 cm 134.990
Dýna 180 x 200 cm 149.990
Dýna 180 x 210 cm 159.990
Dýna 200 x 200 cm 169.990
OP
IÐ
Á
SU
NN
UD
ÖG
UM
Í
DO
RM
A
SM
ÁR
AT
OR
GI
SIMBA
DÝNURNAR
HENTA BÆÐI Í
HEFÐBUNDIN OG
STILLANLEG
RÚM
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 11–18.30
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Egill Kaktuz og Mike Reid stefna á að setja óhefðbundin heimsmet á Íslandi í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Þeir Egill Kaktuz Þor-kelsson, Michael Reid og Yonathan Belik eru partur af hópnum sem stendur að verkefninu Eitthjól Ísland, en þeir
stefna á heimsmet á Íslandi. Þetta
yrði þriðja heimsmet Michaels,
en hann hefur verið búsettur hér-
lendis í um fjögur ár og starfar sem
jöklaleiðsögumaður. Egill er í Sirkus
Íslands og sérhæfir sig í grippli, sem
er íslenska orðið yfir það að halda
mörgum boltum á lofti í einu. Hann
er einnig mjög fær á einhjóli, en
þegar blaðamaður segist hafa tekið
eftir nokkrum á slíku undanfarið
stendur ekki á svörum.
„Það hefur örugglega bara verið
ég,“ segir hann og hlær.
Ofur gripplari
Það eitt og sér er merkilegt hvað
Egill er fjölhæfur, eða ofur gripplari
eins og Michael kallar hann, en það
er enn þá merkilegra í ljósi þess að
hann þjáist af vöðvarýrnunarsjúk-
dómi. Michael virðist hans helsti
stuðningsmaður og segir það magn-
að hversu langt hann hefur komist
á sviðum sem krefjast líkamlegrar
hæfni þrátt fyrir sjúkdóminn.
„Ég komst að því um tvítugt
að ég væri með þennan ættgenga
vöðvarýrnunarsjúkdóm. Síðan þá
hef ég reynt að ögra sjálfum mér
og líkama mínum, í það minnsta
meðan ég hef fulla stjórn á mínu lífi
og limum. Það er ástæðan fyrir því
að ég hef ákveðið að gera allt sem
ég get, hvern einasta dag, til að lífa
lífinu til fulls og fara út fyrir þæg-
indarammann,“ segir Egill Kaktuz.
Næsta heimsmet
Næsta heimsmetið sem þeir stefna á
er að fara einn kílómetra á einhjóli á
meðan þeir grippla.
„Fyrsta metið okkar var í að
ferðast lengstu vegalengd á smá-
hjóli. Sigríður Ýr Unnarsdóttir
tók þátt í því og það fékk nokkra
umfjöllun hérlendis. Nú hef ég tekið
þátt í þremur heimsmetum en við
stefnum á að slá þessi tvö til viðbót-
ar. Fimmta metið snýst um að fara
kringum landið á einhjóli og taka
þátt í ýmsum viðburðum í kringum
landið á leiðinni,“ segir Michael.
Staðfesting frá borgarstjóra
Fyrst stefna þeir þó á, eins og áður
sagði, að grippla á einhjólum heilan
kílómetra. Michael viðurkennir að
eflaust hafi einhver gert það áður,
en það sé mjög flókið og erfitt ferli
að fá slíkt viðurkennt af heimsmeta-
bók Guinness. Til þess þurfi meðal
annars staðfestingu frá borgar- eða
bæjarstjóra.
„Við þurfum að útvega helling
af gögnum og staðfestingum. Við
þurfum til dæmis að fá borgar- eða
bæjarstjóra til að sýna tilrauninni
athygli. Ef tré fellur í mannlausum
skógi, gerðist það yfirleitt?“ segir
Michael og hlær.
Ekki bara ferðabæklingur
Vonir standa til að gera sjónvarps-
þætti um för þeirra í kringum
Ísland.
„Það hefur enn ekki verið full-
komlega staðfest en við vonum það
besta. Mig langar mikið að sýna
þá fegurð sem landið hefur upp
á að bjóða. Ég hef kynnst því vel,
ekki bara af því að ég bý hér heldur
einnig sem leiðsögumaður. Ég hef
séð hina sönnu fegurð þessa lands
og fólksins sem býr hérna. Mig
langar því mikið að fagna þessum
fjórða áfanga með fólkinu hérna
heima því hin metin hafa verið sett
í útlöndum,“ segir Michael. „Ísland
er svo miklu meira en bara ferða-
mannabæklingur,“ bætir hann við.
Egill Kaktuz og Michael lýsa því
eftir borgar- eða bæjarstjórum í
kringum landið sem vilja leggja
þessu áhugaverða verkefni lið.
steingerdur@frettabladid.is
Stefna á að setja tvö
heimsmet á Íslandi
Félagarnir Egill Kaktuz Þorkelsson Wild og Michael Reid stefna
á að setja tvö heimsmet á Íslandi. Michael hefur áður sett þrjú
heimsmet fyrir. Egill er sirkuslistamaður en þjáist einnig af vöðva
rýrnunarsjúkdóm sem orsakaði það að hann lifir nú lífinu til fulls.